Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Blaðsíða 3
JLX!/' FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997
HLJÓMPLjjTU
David Bowie - Earthling:
Hin fullkomna nýjungagirni ***
Tónlistin á Earthling virkar sem
stööugt áreiti, hávær, ögrandi og
oftar en ekki talsvert ffamandi I- FTgwHlfJ
þeím sem fékk æviskammtinn sinn B| y" '
af danstónlist fyrir hálfum öðrum H|KZZf > A
áratug. David Bowie og fylgiflskar . i&iBRjí.' - sá
hans eru hins vegar svo gæfusam- [
ir aö drekkja sér ekki alveg í tísku- | ýtg/
straumum sem ýmist eru kailaöir Lu»"iiá£~7 y \3EBB3B
acid eða drum'n' bass. Þeh fa meö- Laðtf ,.t T',
ferö þroskaðra tónlistarmanna sem
marga hildi hafa háö og lært aö I
nýta sér þá tónlist sem hæst ber og
gera hana að sinni.
Margt skemmtilegt ber fyrir eyru á Earthling. Sér í lagi má nefiia gít-
arleik Reeves Gabrels, stráksins sem Bowie uppgötvaði á síðasta áratug
og bauð að leika með sér í hljómsveitinni Tin Machine (blessuð sé minn-
ing hennar og megi hún aldrei upp rísa).
Frammistaða Gabrels er raunar slík að spyrja má hvort David Bowie
hefði ekki átt að skrá plötuna á þá tvo. Gabrels lætur ekki einungis til
sín taka sem hljóðfæraleikari. Hann semur jafhframt mörg laganna á
plöttmni með Bowie og Mark Plati upptökumanni og hljóðblandara.
í fljótu bragði virðast ekki mörg lög af Earthling eiga eftir að rata á
Greatest Hits-plötur framtíðarinnar og fæst eiga þau möguleika á vin-
sældalistasetu nema kannski Little Wonder. Það er þó síður en svo eina
ffambærilega lagið á plötunni, skárra væri það. Seven Years in Tibet er
til dæmis afbragðs lagasmíð og Looking for Satellites og Dead Man
Walking venjast vel.
David Bowie hefur náð sér vel á skrið eftir hörmungarárin í kjölfar
Let’s Dance-plötunnar. Earthling og Outside sem út kom fyrir tveimur
árum sanna það. Plöturnar eru afskaplega ólíkar, enda hefur Bowie sagt
að Earthling sé eiginlega útúrdúr, hljómsveitarplata. Sfðar verði þráð-
urinn tekinn upp að nýju ásamt Brian Eno og haldið áffam að spinna
ffá því þar sem Outside sleppti. Ásgeir Tómasson
Linda Thompson - Dreams Fly Away:
Vitnisburður um góða söngkonu ***
Tíu ár eru liðin á þessu ári frá
því að Linda Thompson söng síðast
inn á plötu og níu síðan söngrödd
hennar þagnaði alveg. Linda er þó
ekki látin heldur varð hún fyrir því
að rödd hennar þvarr svo gjörsam-
lega að hún hefur ekki getað sung-
ið tón í háa herrans tíð.
Platan Dreams Fly Away kom út
fyrir stuttu og hefur að geyma
nokkurs konar þverskurð af ferli
Lindu. Á plötunni eru hins vegar
margar útgáfur gamalla laga sem
ekki hafa komið út áður og þegar
saman er talið eru raunar aðeins sex af tuttugu lögum plötunnar óbreytt
frá því er þau komu út á sínum tíma. Önnur eru ýmist áður óútgefín
eða hefur verið breytt í hljóðblöndun. Aðdáendur Lindu og mannsins
hennar fyrrverandi, Richards Thompsons fínna því eitt og annað fram-
andi á Dreams Fly Away.
Platan sannar að þegar Lindu tókst best upp var hún afbragðs söng-
kona. Hér og þar átti hún í erfiðleikum með að skila sínu en yfirleitt
stóð hún sig með ágætum. Minnisstæðust af Dreams Fly Away eru lög-
in Walking on Wire, Dimming of the Day og auðvitað I Want to see the
Bright Lights Tonight. Þau sýna ekki einungis að Linda var góð söng-
kona heldur einnig hversu góður lagasmiður Richard Thompson er.
Ásgeir Tómasson
Komnir aftur á rétta braut
Blur-Blur ★★★
Mikið var! Hljómsveitin Blur
hefur loksins snúið af villu vin-
sældavegar poppsins og upphefúr
nú rokkið á ný. Sjálfsagt verða
margir þeir sem keyptu Parklife og
The Great Escape fyrir nokkrum
vonbrigðum með þetta nýja verk
Blur sem er meira í ætt við fyrstu
tvær plötur sveitarinnar og í raun
rökrétt framhald plötunnar
Modem Life is Rubbish. Blur hefur
á þessari plötu snúið sér meir að
rafmagnsgíturunum og breska hrá-
leikanum með amerísku rokkívafi,
sem verður að teljast breyting til betri vegar eins og fram kom 1 byrj-
un. Nýja platan byrjar að vísu á heldur bítlalegu lagi sem varð fyrir val-
inu sem fyrsta smáskífa plötunnar og nefiiist það Beatlebum. Ágætlega
grípandi lag. Strax í lagi nr. 2 sem heitir einfaldlega Song 2 er hlustand-
inn sleginn með háum, hrámn gítarleik sem minnir helst á Botnleðju
(þeirra uppáhald). Þegar líður á plötuna bætast effektar á strákslega
rödd Damon sem gerir strax mikið og hljómsveitin leyfir sér notkun á
hinrnn ýmsu tölvutöktum til að auka breiddina.
Yfirbragð plötunnar er hrátt og hljóðfæraleikur einfaldur í flestmn
tilfellum (engin Satriani-gítarsóló eða flókin trommubreik) en meðlim-
ir sveitarinnar skila sínu í frumlegheitum frekar en fæmi.
Bestu lög plötunnar að mínu mati era: Country Sad Ballad Man,
M.O.R., On Your Own (verðandi útvarpssmellur), Youre so Great og
Death of a Party (sem stendur sér á parti sem besta lag plötunnar).
Hljómsveitin fær líka bónuspunkta fyrir lagið Essex Dogs. Platan telst
þó ekki vera meistarastykki, en efhiviðurinn er til staðar, svo mikið er
víst.
Að síðustu fær Blur síðan hrós fyrir að taka baksíðumyndina á ís-
landi. íslandsvinir lengi lifi! Húrra... Guðjón Bergmann
- önnur breiðskífa sveitarinnar vekur athygli
Breska hljómsveitin Reef hefúr
verið að gera vart við sig á plötu-
markaðnum upp á síðkastið. Út-
varpshlustendur ættu nú þegar að
kannast við lagið Place Your
Hands sem hefúr að margra mati
verið ofspilað á útvarpsstöðvum
landsins það sem af er ársins. Lag-
ið er tekið af annarri plötu sveitar-
innar sem ber nafnið Glow og nú
þegar hefur X-ið 97,7 kynnt annað
hljómsveitin Reef spilamennsku.
Þeir létu ekki þar við sitja, heldur
hættu þeir i skólanum, fluttu sam-
an í stóra ibúð miðsvæðis og byrj-
uðu að semja tónlist. Fyrsta breið-
skífa sveitarinnar kom síðan út
árið 1995, en vakti ekki endilega
athygli sem skyldi. Önnur breið-
skífa sveitarinnar ætlar þeim
greinilega önnur forlög og hefur
þegar vakið á hljómsveitinni verð-
skuldaða athygli.
Reef spilar hrátt, melódískt rokk
og framburðm: söngvarans minnir
um margt á framburð Mick Jag-
ger, en nánar verður fjallað um
það í plötudómi hér í DV innan
skamms.
Nettengdir aðilar sem vilja nán-
ari upplýsingar um sveitina Reef
geta farið á slóð
http://www.reef.co.uk. GBG
Reef samanstendur af: Jack Bessant bassaleikara, Dominic Greensmith trommuleikara, Kenwyn House gítarleikara
og hinum rifraddaða söngvara, Gary Stringer.
lag af plötunni sem liklegt er til
vinsælda. Reef samanstendur af:
Jack Bessant bassaleikara, Domin-
ic Greensmith trommuleikara,
Kenwyn House gítarleikara og
hinum rifraddaða söngvara, Gary
Stringer.
Forsaga sveitarinnar er forlaga-
saga. Þannig vildi nefnilega til að
Gary, Jack og Kenwyn voru allir
aldir upp í andlegasta hluta Eng-
lands, nefnilega Glastonbury.
Gary og Jack áttu það til að spila
saman í hljómsveitum og vissu af
gítarleikaranum Kenwyn en það
var ekki fyrr en allir þrir voru
fluttir til London að hljómsveitin
Reef myndaðist. Svo heppilega
vildi til að Jack og Kenwyn voru
þar í sama tónlistarskólanum og
eftir að þeir höfðu kynnst í gegn-
um sameiginlegan vin beggja hóf
ÍlEJJjJ
yjJíiijjjjjjj
Aðdáendur gítargoðsins
Jimi Hendrix ættu að kæt-
ast þar sem nú er á leiðinni
geislaplata með sjaldgæfri
og áður óútgefmni tónlist
hans. Það er fjölskylda
kappans sem stendur aö út-
gáfunni en hún náði nýlega
útgáfuréttinum að lögum
kappans af lögmanni
nokknun sem hafði makaö
krókinn á því að gefa út
tónlist Jimi Hendrix. Þetta
markmið náöist eftir löng
málaferli (þau stóðu í tvo
áratugi) en flölskylda Jimi
Hendrix naut aðstoð millj-
arðamæringsins og með-
stofnanda Microsoft, Pauls
Allens. Geislaplatan kemur
út í Bandaríkjunum þann
22. apríl næstkomandi.
-JHÞ