Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Blaðsíða 5
DV FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997
19
To^listarviðb
ársins 1996
Tónleikar Bjarkar Guðmunds-
dóttur, David Bowie og bresku
sveitarinnar Pulp voru haldnir
undir merkjum Listahátíðar í síð-
astliðið sumar og taldist vera tón-
listarviðburður ársins á íslensku
tónlistarverðlaununum.
David Bowie lét sig ekki muna
um það að fylla Laugardalshöllina
þann 23. júní. Alls sóttu 5500
manns tónleikana sem þóttu hinir
glæsilegustu. Hljómsveitin Lhooq
hitaði upp fyrir stjömuna en allt
ætlaði vitlaust að verða þegar
Bowie tók gömlu slagarana sína
eins og Heroes og Under Pressure
sem hann gerði frægt með hljóm-
sveitinni Queen á sínum tíma.
Daginn eftir var komið að Björk
Guðmundsdóttur að leika i Laug-
ardalshöll og þó ekki hefðu jafn-
margir komið til þess að sjá hana
og Bowie var það mál manna að
tónleikar hennar hefðu verið afar
vel heppnaðir þó einhverjir hafi
haft það á orði að hún hefði mátt
vera lengur á sviðinu. Sérstaka
lukku vakti þegar hún söng á ís-
lensku þau lög sem hún hefur gert
fræg erlendis á ensku. Tvö ár
vom frá því að Björk hélt tónleika
síðast á fslandi. Með Björk spil-
uðu breska hljómsveitin Metal
Headz Plaid og imnusti hennar
Goldie.
Um fimm þúsund manns fögn-
uðu Jarvis Cocker og félögum
hems í sveitinni Pulp gífurlega
þegar hún hélt tónleika í Laugar-
dalshöllinni þann 2. júlf síðastlið-
inn. Jarvis, sem er þekktur fyrir
að yrkja ekki um neitt nema það
tengist kynlífi, fór á kostiun og
náði góðu sambandi við áheyrend-
ur sína með léttu spjalli milli laga
um Hvítárferðir og heimspekileg-
um vangaveltum. Margir þeirra
voru reyndar orðnir aðframkomn-
ir vegna hita og þreytu áður en
Pulp hóf leikinn. fslensku sveit-
imar Funkstrasse, Botnleðja og
SSSól höfðu nefnilega hitað þá
hressilega upp. Eins og við var að
búast var fögnuður áhorfenda
mestur þegar lög eins og Disco
2000 og óðurinn góði inn meðaljón-
inn, Common People, voru flutt.
-JHÞ
★ .
- ^
nlist
ir *ir
Gunnar Þórðarson er heiðursverð-
launahafi íslensku tónlistarverðlaun-
anna 1997. Hann hefúr verið atvinnu-
maður í tónlist í þrjá áratugi. Hann
vakti fyrst athygli með hljómsveitinni
Skuggum en er þekktastur fyrir að
hafa verið í hljómsveitunum Hljóm-
um og Trúbrot. Gunnar Þórðarson er
einn afkastamesti lagasmiður lands-
ins og hefur samið vel yfir 300 lög.
Hann hefur ekki einungis samið dæg-
urtónlist heldur hefur hann einnig
samið sinfóníska tónlist. Undanfarin
ár hefúr hann snúið sér að alvarleg-
um tónsmíðum en hann stendur enn
upp úr sem dægurlagasmiður.
Stjama Páls Rósinkranz hefúr skin-
ið bjart undanfarin misseri enda hef-
ur lag hans, I Believe in You, af sam-
nefiidri gospelplötu verið afar vin-
sælt. Platan gekk einnig vel í tónlist-
arþyrsta íslendinga. Páll var einnig
valinn söngvari ársins í hittifyrra.
Aðrir sem hlutu tilnefningu voru
Bjami Arason, Bubbi Morthens, Páll
Óskar og Stefán Hilmarsson.
Emilíana Torrini hefúr gert garð-
inn frægan á tveimur stöðum að und-
anfómu. Hún átti söluhæstu plötuna
fyrir síðustu jól, sú heitir Merman. í
öðra lagi söng hún í söngleiknum
Stone Free (og á samnefndum geisla-
diski). Aðrar sem hlutu tilnefningu
vora Andrea Gylfadóttir, Anna Hall-
dórsdóttir, Björk Guðmundsdóttir og
Margrét Kristín Sigurðardóttir.
Anna Halldórsdóttir söngkona, sem
gaf út plötu sína Villtir morgnar fyrir
jólin, var valin bjartasta vonin í ár. í
fyrra hlutu rokkjöframir í Botnleðju
þennan titil en þeir eru óskoraðir sig-
urvegarar íslensku tónhstarverðlaun-
anna 1997. Dead Sea Apple, Margrét
Kristin Sigurðardóttir, Quarashi og
Slowblow voru einnig tilnefnd.
Stefán Hilmarsson, Máni Svavars-
son og Friðrik Sturluson hljóta sam-
eiginlega titilinn lagahöfundur ársins.
Þeir unnu saman að plötu Stefáns,
Eins og er, en þar eru famar ótroðnar
slóðir. Aðrir sem vora tilnefndir eru
Bubbi Morthens, Jóhann Helgason,
Magnús Eiríksson og Þorvaldur
Bjami Þorvaldsson.
Magnús Þór Jónsson (Megas) er
textahöfúndur ársins. Hann gaf út
nýja plötu fyrir síðustu jól sem hann
kallar Til hamingju með fallið og þar
er að finna beitta texta eins og á öllum
öðrum plötrnn hans. Andrea Gylfa-
ar voru þeir Stefán S. Stefánsson sax-
ófónleikari, Hilmar Jensson gítarleik-
ari og Bjöm Thoroddsen gítarleikari
tilnefndir.
dóttir, Bubbi Morthens, Magnús Ei-
ríksson og KK og Stefán Hilmarsson
vom einnig tilnefiid.
Eiður Amarsson sem spilar í Tod-
mobile og hefur einnig leikið í Snigla-
bandinu er bassaleikari ársins 1997.
Hann tók þátt í endurreisn Todmobile
sem gengið hefur afar vel. Aðrir sem
voru tilnefndir eru Jakob Smári
Magnússon, Jóhann Ásmundsson,
Ragnar Páll Steinarsson og Róbert
Þórhallsson.
Kristinn Ámason telst eiga klass-
íska geislaplötu ársins í ár. Hún kall-
ast Northem Light/Sor Ponce. Aðrir
sem vom tilnefiidir vora Hljómeyki
með plötu sína Koma, Marta G. Hall-
dórsdóttir og Öm Magnússon með
plötuna íslensk þjóðlög (Safn Engel
Lund), Þorsteinn Gauti Sigurðsson
með Píanókonsert nr. 2 í c- moll eftir
Rachmaninov og Blásarakvintett
Reykjavíkur og félagar með plötuna
Grand Partita eftir Mozart. Friðrik Karlsson úr gæðasveitinni
Mezzoforte var valinn gítarleikari árs-
ins. Haim starfar í London og hefúr
verið gítarleikari fyrir Madonnu.
Mezzoforte gaf nýlega út plötuna Mon-
key Fields og hlotið góðar viðtökur er-
lendis. Eðvarö Lárusson, Guðmundur
Sigurður Flosason saxófónleikari
er jazzleikari ársins. Fyrri tvö árin
sem þessi heiðursverölaun hafa verið
veitt hefur Eyþór Gunnarsson píanó-
leikari fengið verðlaunin. Eyþór var
tilnefiidur i ár og auk hans og Sigurð-
Pétursson (sem var gítarleikari ársins
þrjú undanfarin ár), KK og Þorvaldur
Bjami Þorvaldssson voru einnig til-
nefndir.
Velgengni félaganna úr Mezzoforte
í íslensku tónlistarverðlaununum er
mikil. Óskar Guðjónsson úr þeirri
ágætu sveit er blásturshljóðfæraleik-
ari ársins en Jóel Pálsson, Sigurður
Flosason, Stefán S. Stefánsson og
Veigar Margeirsson vom einnig til-
nefndir.
HlíÓTnborösleikari
Eyþór Gunnarsson er nú valinn
hljómborðsleikari ársins í þriðja sinn.
Hann er meðlimur í Mezzoforte og
hefúr einnig spilað með Bubba
Morthens. Aðrir þeir sem voru til-
nefndir eru Jón Ólafsson (hann
hreppti hnossiö í hittifyrra), Kjartan
Valdemarsson, Máni Svavarsson og
Pálmi Sigurhjartarson.
Gunnlaugur Briem úr Mezzoforte
er valinn trommuleikari ársins í
fjórða skipti og er hann eini tónlist-
armaðurinn sem hefur hlotið ís-
lensku tónlistarverðlaunin öll árin
sem þau hafa verið veitt. Einar Val-
ur Scheving, Haraldim Freyr Gísla-
son, Jóhann Hjörleifsson og Matthí-
as Hemstock vom einnig tilnefndir
sem trommuleikari ársins.