Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1997, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 1997
Fréttir
Páll Halldórsson yfirflugstjóri stoltur af mönnum sínum eftir þrjár stórar þyrlubjarganir:
Er stoltur en fannst
samt að nóg væri komið
- hætta menn ekki nú að hugsa um að taka TF-LÍF tímabundið úr umferð?
„í raun og veru finnst mér þetta
allt óraunverulegt. Síðasta vaktin
hjá Benóný og hans mönnum var
einstök. Síðustu daga hefur maður
horft á þá fullur af stolti yfir því
hvað allt gengur vel. Ég hélt satt að
segja að nóg væri komið en svo kem-
ur þetta upp á núna,“ sagði Páll Hall-
dórsson, yfirflugstjóri Landhelgis-
gæslunnar, sem sljórnaði ferð þyrl-
unnar TF-LÍF við björgun 10 manna
áhafnar Þorsteins GK frá Grindavík
við Krísuvikurberg í gær.
Þótt ótrúlegt sé hafa tvær áhafnir
á TF-LlF nú á aðeins tæpum fimm
sólarhringum framkvæmt þrjár
stærstu þyrlubjarganir á íslandi
fyrr og síðar. Benóný Ásgrímsson
og menn hans björguðu 19 manna
áhöfn Vikartinds og 10 mönnum af
áhöfn Dísarfells. Áður en framan-
greindir atburðir gerðust var
stærsta björgunin sú þegar PáU og
menn hans björguðu 9 manna áhöfn
Barðans um borð í TF-SIF, minni
þyrluna, í tveimur atrennum við
Hólahóla á Snæfellsnesi árið 1987.
Átta manns var hins vegar bjargað
Tíu manna áhöfn Þorsteins GK frá Grindavík sem var 176 tonna bátur. Myndin er tekin eftir komu TF-LÍF með skip-
brotsmennina í flugskýlið á Reykjavíkurflugvelii. Páll Halldórsson flugstjóri og Jakob Ólafsson flugmaður eru ann-
ar og fjórði frá vinstri f efri röð. DV-mynd S
— - TBWTTT"
íjHH
Æ Jm ,/í ~ v *
um borð í TF-SIF þegar Steindór GK
fórst við Krísuvíkurberg árið 1992.
„Eins og Benóný hefúr komið inn
á hefur allt gengið upp,“ sagði PáU.
„Okkar stöðugu æfingar og skipulag
í bættum aðferðum eru að skUa sér.
Dauða tíma höfúm við ávaUt notað í
æfingar - ef menn eru ekki í þjálfun
og þekkja ekki hver annan er þetta
ekki hægt.“
Aðspurður um hugmyndir um að
leggja TF-LÍF tímabundið og taka
hana út af tryggingum, sagði PáU:
„Dettur nokkrmn það í hug núna?
Hætta menn ekki bara að hugsa um
það?“
PáU sagði að áhöfn TF-LÍF hefði
verið komin í kapphlaup við tímann
i gær þegar akkeri Þorsteins GK
losnaði:
„Þá var skipið farið að reka og
við þurftum að koma tengUínu nið-
ur afhn- við aUt aðrar og verri að-
stæður. Þá var báturinn farinn að
nálgast bergiö. Ágúst Eyjólfsson
spilmaöur talaði stöðugt við mig og
leiðbeindi mér yfir bátnum. Þetta
gekk síðan aUt vel.“ -Ótt
Stuttar fréttir
TF-LÍF bjargaði tiu skipverjum er Þorstein GK rak upp undir bergið:
Ægikraftar méluðu
Lánasjóðsmál
Frumvarp um breytingar á
Lánasjóði ísl. námsmanna verð-
ur afgreitt fyrir vorið, segir Val-
gerður Sverrisdóttir, formaöur
þingflokks Framsóknarflokks-
ins, í viðtali við Alþýðublaðið.
Ungliöar á útleið
Ungliðar í Framsókn íhuga að
segja sig úr flokknum og þing-
menn íhuga að flyfja þing-
mannafrumvarp um Lánasjóö-
inn, segir Vikublaðið
14 daga verk
14 daga mun taka að dæla
svartolíu og annarri olíu úr
tönkum Vikartinds á strandstað
við Þykkvabæ, segir RÚV.
Þetta er búið
HeUu kynslóðimar eru horfnar
úr byggðarlaginu, fólksstraumur-
inn burt er látlaus. 8% Uuttu úr
þéttbýlinu og 11% úr dreifbýlinu
á félagssvæði Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Fáskrúðsfjarðar á
síðasta ári, að sögn Eiríks Stef-
ánssonar, formanns félagsins, í
Alþýðublaðinu.
Milljón tonn
HeUdarloðnuaflinn á vertíð-
inni er kominn yfir milijón
tonn og eftir er að veiða rúm
250 þúsund tonn af útgefnum
kvóta. Mest hefur borist á land
á Seyðisfiröi af loðnu á þessari
vertíð. -SÁ
Það var hrikaleg sjón sem blasti
við er komið var fram á bjargbrún-
ina þar sem Þorsteinn GK lá á
stjómborðshliðinni nokkrum tug-
um metra neðar og brimiö barði
bátnum við klettana. EyðUeggingin
virtist algjör og svo
virtist sem stjómborðs-
hliðin væri hreinlega
að molna burt úr skip-
inu. Brimið gekk yfir
þaö og brothljóð og ísk-
ur barst með vindinum
upp tU fjölda björgun-
arsveitarmanna sem
kaUaðir höfðu verið á
vettvang en gátu lítið
að gert. FuUtrúi trygg-
ingafélags skipsins var
á staðnum og ekki var
annað á honum að
heyra en engu yrði
hægt að bjarga heUu úr
flakinu. Skipið var
tryggt fyrir 84 miUjónir
króna.
Það var um klukkan
14.46 í gær að haft var
samband við stjómstöð
Landhelgisgæslunnar
úr Þorsteini GK, 178
tonna stálskipi úr
Grindavík, og tilkynnt
að báturinn hefði feng-
ið veiðarfæri í skrúf-
una tæpa sjómUu und-
an Krísuvíkurbergi.
Veður var vont og rak
bátinn með landinu. Akkeri vom
látin faUa tU öryggis og áhöfn þyrl-
unnar, TF-LÍF, var beðin að vera í
viðbragðsstöðu. Þegar í ijós kom að
báturinn ætti í vandræðum með
akkerin var þyrlan send strax á
bátinn við
staðinn. Næstu bátar vora í um
einnar klukkustundar siglingu frá
Þorsteini.
Þegar þyrlan kom á staðinn,
klukkan 15.30, var ákveðið að hún
biði átekta á bjargbrúninni en þeg-
ar annað akkerið
slitnaði var ákveðið
að flytja áhöfnina frá
borði.
Andartaki síðar
höfðu sex menn úr
áhöfn Þorsteins veriö
hífðir frá borði en
skipstjórinn og þrír
aðrir ætluðu að
freista þess að reyna
að bjarga skipinu.
Mótorbáturinn Freyr
átti þá aðeins um 4
sjómUur að skipinu.
Þyrluáhöfhin fylgdist
gaumgæfilega með
gangi mála og þegar
hún sá, um klukkan
16, að hin akkeris-
festin gaf sig lét hún
skipstjórann vita og
híföi mennina fióra
frá borði. Þyrlrn-
vamarliðsins komu
á staðinn um svipað
leyti.
Um klukkan 16.40
rak Þorstein að landi
án þess aö bátar, sem
þá vora komnir á
staðinn, næðu tU
□
Reykjavik 1
Reykjanesbær • NjpWÍ: Þorsteinn GK hefur : samband viö Landhelgisgæsluna. Báturinn var meö veiöarfæri í skrúfunni.
KMfwvatn 14.57: Ákveöiö aö TF-LÍF fari strax á staöinn.
15.30: Þyrlan komin aö bátnum og blöur átekta.
GHndavfk <9 Krisuvfkurberg Mannbjörg við Krísuvíkurberg 15.39: Annaö akkeiiö slitiö. Ákveöiö aö flytja áhöfn frá boröi. 16.00: Hitt akkeriö slitiö, skipstjóri ásamt 3 öörum er biöu átekta híföir yfir í þyrluna. 16.40: Þorstein GK rekur á land og eyöileggst.
IrFs^a
iá 91% 904 1600
Á Landhelgisgæslan að geta
tekið völdin af skipstjóra?
Helgi Hrafnsson, vélarvörður á Þorsteini GK:
Spurning um mínútur
að koma taug í Frey
„Þetta var aUt eftir bókinni. Við
settum út bæði akkerin þegar
drapst á vélinni en þau héldu ekki.
Fyrst slitnaði keðjuakkerið en siðan
það akkeri sem var með vír. Það
voru rosalegar hviður þegar þetta
gerðist. En það var bara spuming
um mínútur að koma taug yfir i
Frey sem var skammt undan. Við
sáum hann koma,“ sagði Helgi
Hrafnsson, 2. vélstjóri á Þorsteini
GK, við komuna með TF-LÍF tU
Reykjavíkur siðdegis í gær.
„Þegar báturinn losnaði vorum
við fiórir eftir um borð, ég, hinn vél-
stjórinn, skipstjórinn og stýrimað-
ur. Síðan voru stýrimaðurinn og
vélsljórinn hífðir upp en ég og skip-
stjórinn fórum síðastir. Við vissum
síðan ekkert um endalok bátsins
þegar við fórum með þyrlunni,“
sagði Helgi. -Ótt
klettana
hans og eftir að hafa fylgst með
bátnum berjast í briminu er óhætt
að fyUyrða að næsta lítið standi eft-
ir af honum eftir nóttina. Með
hveijum hálftímanum sem leið
fylgdust menn með því hvemig
skipið brotnaði meir og meir undan
þunga sjávarins.
TF-LÍF, þyrla Landhelgigæslunn-
ar, hefur nú á tæpri viku bjargað 39
mönnum úr sjávarháska. -sv
Hjálmar Jónsson:
Ekkert
mátti fara
úrskeiðis
„Þegar við komum að var skip-
ið 0,8 sjómUur frá landi en þá var
slaki á öðra akkerinu en hitt
hélt. Viö ákváðum að setjast við
Krísuvíkurbergið en fljóUega
slitnaði og við ákváðum þá að
taka sex menn rnn borð. Þegar
því lauk og ég var kominn inn í
vél aftur slitnaði aUt og ég fór
niður aftur. Þá var erfitt að fóta
sig niðri, mikill sjógangur og
skipið bara rak sfiómlaust,“
sagði Hjálmar Jónsson, sigmaður
á TF-LÍF, eftir að hafa bjargað tíu
manns af Þorsteini GK við Krísu-
víkm-berg í gær.
Hjálmar sagðist hafa verið mjög
ósáttrn- viö að fara upp í þyrlu á
ný eftir að hafa bjargað sex mönn-
um - hann vUdi taka aUa strax á
meðan „tenging" var enn við skip-
ið með línu frá þyrlunni.
Hann seig síðan niður á ný eftir
að tengUínu hafði verið komið nið-
ur og aðstoðaði þá fióra sem eftir
voru við að komast um borð.
Hjálmar var síðan tekinn síðastur
upp í þyrluna. 150 metrar vora í
Krísuvíkurbergið þegar björgun
lauk. „Ef eitthvað hefði þá farið úr-
skeiðis hefðum við ekki náö öUum
mönnunum," sagði Hjálmar. -Ótt