Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1997, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 1997
17
Mikið um að vera á þemadögum í Rimaskóla:
Krydd í tilveruna og allir mjög ánægðir
- segir Hannes Fr. Guðmundsson aðstoðarskólastjóri
um verkefnum. Þar voru S gangi
umhverfisverkefni tengd Grafarvogi
og einnig voru
tísku- og leik-
sýningar í boöi.
Á fostudag
var síðan
haldin sýn-
ing í skólan-
um þar sem
verk krakk-
anna voru
sýnd og var
þá foreldr-
um og öðr-
um fjöl-
skyldumeð-
limum boðið
að koma og
skoða af-
raksturinn.
„Við
um að
breyta til og
brydda upp á
einhverri ný-
breytni fyrir
nemendur. Það
DV-mynd ÞÖK var því ákveðið
að halda þessa þemadaga en það hef-
ur aldrei verið gert áður hér í skól-
anum. Þetta hefur tekist mjög vel og
ég held að allir séu afar ánægðir
með þetta, bæði nemendur, kennar-
ar og stjórnendur skólans. Þetta
í tilveruna og
börnunum líka meiri fróðleik.
Markmiðið er að gera þetta að ár-
vissum viðburði," segir Hannes Fr.
Guðmundsson, aðstoðarskólastjóri
Rimaskóla, aðspurður um árangur
þemadaganna. -RR
Hannes Fr. Guömundsson, aöstoöar-
skólastjóri Rimaskóla, sést hér vlö eltt
ákváð- verkanna.
Það var mikið um að vera í Rima-
skóla á dögunum þegar DV var þar
í heimsókn en þá stóðu yfir þema-
dagar í skólanum. Hefðbundið
skólastarf var þá brotið upp og nem-
endur unnu að ýmsum áhugaverð-
Krakkarnir t 4 bekk A, B og C í Rimaskóla sýna hér margvísleg verk sfn sem þau unnu á þemadögum í skólanum.
Ákváðum að búa til
ruslaskrímsli
- segja þeir Eyþór og Sverrir Gauti
DV rakst á þrjú böm í smíðaher-
bergi skólcuis. Þau voru að klára
að búa til það sem þau kölluðu
ruslaskrímsli. Skrímslið var
árennilegt, grænt að lit og minnti
helst á smækkaða mynd af risa-
eðlu. Á hausnum hafði skrímslið
ljósaperu og inn hálsinn á því lítið
dekk sem krakk-
arnir sögðu að
væri hálsfesti.
„Hugmyndin
kom þegar við fór-
um að heimsækja
Sorpu. Við
ákváðum bara
að gera þetta
skrímsli og
hafa það svona
í laginu. Við
erum búnir að
vera í þrjá daga
að búa það til.
Við gerðum
skrímslið aðallega
úr pappa og spýt-
um. Síðan settum
við dekk á hálsinn á
því og ljósaperu á
hausinn. Skrímslið heit-
ir Teitur feitur af því
það er svo feitt. Það getur
verið rosalega hættulegt og
borðar rusl,“ sögðu þeir fé-
lagar Eyþór Grétarsson og
Gaman í skólanum
„Það er mjög gaman í skólanum
og skemmtilegir krakkar. Það er
líka rosa gaman þegar við fáum að
gera eitthvað annað, eins og núna
að búa til alls konar hluti,“
segja Eyþór og Sverrir
Gauti.
Þeir félagar voru ekki
þeir einu sem voru að
búa til ruslaskrimsli. í
einni stofunni rákust
DV-menn á Karl
Jensson, sem er í 4.
bekk. Hann var með
svartan kassa á höfð-
inu sem á var málað
skrímslaandlit. Karl
sagðist hafa búið
skrímslið til sjálfur
ásamt tveimur fé-
lögum sínrnn.
Bekkjarfélag-
ar Karls
voru búnir
að búa til sér-
ú t b ú n a r
ruslafötur og
alls kyns fond-
ur sem allt var
gert úr rusli. Allt
dótið sem þau
bjuggu til var
mjög vel og
skemmtilega unnið í
öllum regnbogans lit-
um. Það eru greini-
Birgitta Guömundsdóttir, Sverrir Gauti Ríkarösson og Eyþór lega snjallir og hug-
Sverrir Gauti Ríkarðsson, tveir Grétarsson sjást hér viö ruslaskrímsliö sem þau bjuggu til myndaríkir krakkar í
af höfúndum skrímlsisins. sjálf. DV-mynd ÞÖK Rimaskóla. -RR
Rimaskóli:
Erfitt verkefni í nýju hverfi
Rimaskóli í Grafarvogi er einn af
nýjustu skólunum á höfúðborgar-
svæðinu. Skólinn tók til starfa
haustið 1994 og er því á fjórða starfs-
ári sínu. í skólanum eru um 650
nemendur og þeim fer sífellt fjölg-
andi. Starfsfólk skólans er tæplega
60 manns.
„Fjölgun nemenda hefur verið
mjög mikil á stuttum tíma. Þetta er
nýtt og mjög vaxandi hverfi og það
kæmi mér ekki á óvart að nemend-
um myndi fjölga um 150 fyrir næsta
haust. Við tökum nú líka nemendur
úr Borgarhverfi þar sem enginn
skóli er fyrir. Ég tel að það sé ekki
létt að finna erfiðara verkefhi en við
höfúm hér. Það er alltaf erfitt að
byrja með nýjan skóla í nýju hverfi
þar sem ríkir visst rótleysi. Þessar
aðstæður hér reyna mjög mikið á
starfsfólk skólans en sem betur fer
höfúm viö úrvalsfólk hér,“ segir
Hannes Fr. Guðmundsson, aðstoðar-
skólastjóri Rimaskóla.
Kennsla fer fram í tveimur aö-
skildum byggingum. Að sögn Hann-
esar er stefnt að því að byggja nýja
álmu við skólann og tengja bygging-
amar tvær. -RR
Þau voru einbeitt á svip þar sem þau voru aö vinna aö verkefni sfnu á
þemadögunum. DV-mynd ÞÖK
Börnin dugleg og skapandi
- segir Jónína M. Sævarsdóttir kennari
„Verkefhiö heitir úr óbyggð í
byggð og nemendumir em að búa
til stórar myndir þar sem fram kem-
ur náttúran, sveitin, iðnaðurinn og
borgin. Bömin hafa sótt allt efhið
sjálf og þetta er nokkurs konar end-
urvinnsla á hlutrnn sem þau hafa
fundið í nánasta umhverfi. Við feng-
um að fara á gámastöðina hjá Sorpu
hér í Grafarvogi til að fmna ýmsa
hluti,“ segir Jónína Margrét Sæv-
arsdóttir, kennari í Rimaskóla, en
hún var að leiðbeina bömum á aldr-
inum 10-12 ára við að búa til stóra
mynd sem sýnir sveitina.
Á myndum sáust greinilega ein-
kenni hvers umhverfis fyrir sig.
Börnin höfðu gert skemmtilega
mynd af borginni þar sem Hall-
grímskirkja og Perlan vom mjög
áberandi. Burstabærinn var ein-
kennandi fyrir sveitina og stórar
gráar verksmiðjur og reykur sýndu
iðnaðarhverfi.
„Það er allt mögulegt sem bömin
nota á þessum myndum, m.a. tæki og
tól sem sýna iðnaðinn og gangstéttir
og stígar borgarinnar em gerðir m.a.
úr flísum. Verkefnið hefur gengið
mjög vel. Bömin era mjög dugleg og
skapandi og hafa gert mjög skemmti-
lega hluti," segir Jónína. -RR
Umboðsmenn:
BEKO fékk viöurkenningu
í hinu virta breska tímariti
WHATVIDEO sem
bestu sjónvarpskaupin.
• Myndlampi Black Matrix
• 100 stöðva minni
• Allar aðgerðir á skjá
• Skart tengi • Fjarstýring
• Aukatengi f. hátalara
• (slenskt textavarp
R
Lógmúla
Reykjavík; Byggt & Búiö, Kringlunni. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi,
Kf.Borgfirðbtaa, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Vestfirðlr: Geirseyrarbúðin,
Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvfk.StraumurJsafirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,
Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Hegri.Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri.
KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavfk. Austurland: KHB, Egilsstöðum. Verslunin Vlk,
Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúösfiröi. Kf. Stöðfirðimga, Stöðvarfirði.
Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes,
Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg.Grindavík.