Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1997, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 1997 5 Fréttir pv____________________________ Kjarasamningagerðin er að breytast: Vægi heildarkjarasamn- inga er að minnka - segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ „Ég skal viðurkenna það að ég var ekki kátur yfir samningi VR og stórkaupmanna á dögunum. Ég hefði viljað sjá samning á lægri nótum heldur en sá samningur var og sá sem nú var verið að und- irrita,“ sagði Þórarinn V. Þórar- insson, framkvæmdastjóri VSÍ, í samtali við DV, eftir að hann hafði undirritað nýja kjarasamninga við VR. Hann sagði að það hefði alltaf verið markmið Vinnuveitenda- sambandsins að gera samninga sem væru samræmanlegir mark- miðum um að verðbólgan færi ekki yfir 2 prósent. Þessum nýju kjarasamningum muni fylgja meiri verðbólga en 2 prósent en þeim muni ekki fylgja nein óða- verðbólga. „Hins vegar er alveg ljóst að samningarnir sem VR gerði við heildsalana markaði ákveðið gólf fyrir VR að standa á í samningum og raunar síðan Rafiðnaðarsam- bandið,“ sagði Þórarinn. Hann var spurður hvort búið væri með þessum samningum að brjóta ísinn og aðrir samningar jorðu eins og þessir: „Það met ég svo. Þessir samn- ingar eru þríþættir að því leyti að samningurinn við Iðju er mjög á þeim nótum sem við höfum verið að ræða um frá því í síðustu viku. Samningurinn við VR byggir meira á fyrirtækjaþættinum. í honum er atriði sem við höfúm verið að þróa með okkur síðan í haust um staðlaðan fyrirtækja- þátt. Þar er um að ræða að starfs- fólk í verslunum getur tekið upp sveigjanlegan dagvinnutíma gegn hærra kaupi. Samningurinn við rafiðnaðarmennina er svona Kj arasamningarnir: Kauphækk- unin frá 12,3 til 13,4 pró- sent Þeir þrír kjarasamningar sem gerðir voru í fyrrinótt milli Verslun- armannafélags Reykjavíkur, Rafiðn- aðarsambandsins og Iðju annars veg- ar og VSÍ hins vegar, eru í aðalatrið- um mjög líkir nema samningstíminn. Hjá VR hækka öll laun um 4,7 pró- sent við undirritun samningsins. Þann 1. janúar 1998 hækka launin um 4,0 prósent og 1. janúar 1999 um 3,65 prósent. Samningurinn gildir til 15. febrúar árið 2000. Lægsti taxti af- greiðslufólks, eftir þessa samninga, er byrjunarlaun fyrir 18 ára sem eru 61.884 krónur á mánuði. Eftn fimm ára starf hjá sama fyrirtæki er taxti afgreiðslufólks 67,120 krónur á mán- uði. Hjá rafiðnaðarmönnum hækka launin um rúm 14 prósent i samning- um þeirra á almennum markaði og við Reykjavíkurborg en um 13,4 pró- sent í samningum við stórkaupmenn. Þá lengist orlof þeirra um 3 daga auk ýmissa breytinga á launataxtakerfinu. Launahækkunaráfangar eru við und- irritun og síðan 1. janúar 1998,1. jan- úar 1999 og 1. janúar árið 2000. Hækkun á taxta iðjufólks er svip- aður því sem gerist hjá verslunar- mönnum nema hvað allra lægstu taxt- arnir hækka verulega. Samningur Iðju gildir fram i október 1999. 1 öllum þessum samningum er ákvæði um að dagvinnutími megi vera 8 stundir á tímabilinu frá klukk- an 7.00 til klukkan 19.00. -S.dór meira einfaldur prósentuhækkun- arsamningur," sagði Þórarinn. Hann var spurður um það sem haldið var fram í karphúsinu í gær að um pólitíska samninga væri að ræða: „Það er algerlega fráleitt að halda slíku fram. Ef menn horfa á þetta af sanngirni hljóta þeir að sjá að það er fólk úr öllum stjórn- málaflokkum sem hefiu- komið að þessari samningsgerð. Ég fúllyrði einnig af langri reynslu að afstaða manna til stjórnmálaflokka hefur ekki ráðið gerðum forystumanna í verkalýðshreyfingunni um mörg undanfarin ár. Það hefur heldur ekki gerst i þessum samningum." Ertu sammála því að umhverfíð sé að breytast hvað kjarasamn- ingagerð varðar? „ Já, ég held að þessir samningar nú, séu liður í því að færa samn- ingagerðina nær fyrirtækjunum. Ég sé fyrir mér að vægi heildar- samninga með hátíðlegum undir- skriftum eins og nú minnki á kom- andi árum,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson. -S.dór LIONSKLUBBURINN EIR kynnir » ' ......... .... ' „Þessi mynd er galdur sem dáleidir þi$ þér gjörsamlega í sitt band og þú óskar að hún megi aldrei hætta". (Ásgrímur Sverrisson. Land og sytii rit kvikmyndagerðarmanna) „Ljúfasta mynd ársins ... Hjartastyrkjai perla sem hlýtur að fá erlenda óskarinn". (Þorfinnur Ómarsson. Land og synir) KOLYA HÁSKÓLABÍÓI 12. MARS KL. 20.30 Sérstök forsýning. Allur ágóði sýningarinnar rennur til vímuvarna. EFTIRTALIN FYRIRTÆKI STYRKJA ÞESSA SYNINGU: I t.i ■..niKf tmllii hf HeimmstæKi ni s TRYCONCA MBSTÖÐiNHF. VERSLUNARA4AN NAFEIAC HAFNARFJAKÐA8 TCAGIom Landsbanki fslands I Bankl allra Ujndsxnanna RÁÐGAKURM si^m\RœHEKsni«RÁÐqOF i®pn r^n Faid.nl 14 og lOóbaa Hafrwllri Slmar S4XS05 og S«S4)1«S . OSTA OG í SHJÖRSALAN SF. ÍSLENSKA VERSLUANRFÉLAGIÐ • ÁRGERÐI • TEXTI H/F • ÁRBÆJARAPÓTEK • TP OG C/O • Ó.M. BÚÐIN • SÓL OG SÆLA, MIÐBÆJARMARKAÐI• HOLTS APÓTEK • ÓLAFUR ÞORSTEINSSON EHF • KREDITKORT • ANDRÉS FATAVERSLUN • VERKFRÆÐISTOFAN VISTA • BERGVÍK, SKIPAÞJÓNUSTA - SKIPAVARAHLUTIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.