Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1997, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 1997
Fréttir
Verkalýðshreyfingin og kjarasamningar:
Þröng miðstýring á ekki
lengur við í samningum
- segir Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur
samningum er mál þeirra sem því
halda fram. Þaö veröur hver að
hafa það fyrir sig. Ég tel að við höf-
um gert, eftir atvikum, góðan kjara-
samning. Það er því kannski rétt að
spyrja okkar viðsemjendur að þvi
hvort þeir séu tilbúnir að gefa eitt-
hvað sérstaklega eftir vegna þess að
menn telji þetta einhverja pólitik.
Ég hef ekki þekkt samtök vinnu-
veitenda að slíku. Það er nógu erfitt
að fá þá að samningaborðinu til
samningsgerðar. Ég hef aldrei fund-
ið fyrir því að þeir séu tilbúnir að
gefa eitthvað eftir bara eftir því
hvaða pólitískur litur er á viðmæl-
endum þeirra.“
Breyttar aöstæöur
- Þú nefndir áðan að þjóðfélagið
væri að breytast. Hefur verkalýðs-
hreyfingin breytt sínum vinnu-
brögðum i takt við það?
„Nei, en hún verður að gera það.
Verkalýðshreyfingin verður að laga
sig að breyttum aðstæðum í þjóðfé-
laginu. Annars situr hún eftir með
sárt ennið. Ég get nefnt sem dæmi
um breytt vinnubrögð hjá okkur að
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
hefur verið að vinna að þessum
kjarasamningi, sem nú hefur verið
undirritaður, síðan i nóvember
1995. Þá hófst vinna við okkar
kröfugerð sem við lögðum síðan
fram við okkar viðsemjendur 10.
febrúar síðastliðinn."
- Það hefur verið ýjað að því,
Magnús, að Verslunarmannafélag
Reykjavíkur sé á leið úr Alþýðu-
sambandi íslands eftir átökin og at-
burðina á síðasta þingi VSÍ þegar
verslunarmönnum þótti að sér veg-
ið?
„Ég kannast ekkert við þetta og
tel þetta fjarri lagi,“ sagði Magnús
L. Sveinsson.
-S.dór
„Auðvitað er maður aldrei full-
komlega ánægður með kjarasamn-
inga en ég er tiltölulega sáttur við
þennan samning. Hann er í takt við
það sem við sömdum um við Félag
íslenskra stórkaupmanna. Þar var
ramminn að þessum samningi
myndaður. Ef allt gengur eftir skil-
ar hann okkur 8 til 10 prósenta
kaupmáttaraukningu á næstu 3
árum og það er alltaf markmið við
gerð kjarasamninga að þeir skili
kaupmáttaraukningu," sagði Magn-
ús L. Sveinsson, formaður Verslun-
armannafélags Reykjavikur, eftir
að hann hafði undirritað nýjan
kjarasamning við vinnuveitendur í
gær.
Forysta VR
- Verslunarmannafélag Reykja-
víkur, undir þinni stjóm, hefur
óvænt tekið forystuna í þessum
samningaviðræðum og lokið sinni
samningagerð. Hvaða skýring er á
því?
„Ég skal ekkert segja um það
hvort við höfum tekið forystu. Viö
höfum í raun ekki gert annað en
fylgja eftir þeirra hugmyndafræði
sem við höfum verið að vinna að
hjá Verslunarmannafélagi Reykja-
víkur um alllangt skeið.“
- Kjarasamningagerð hefur um
langt árabil verið með nokkuð hefð-
bundnum hætti. Nú hefur orðið
breyting á og eitt félag, að vísu
stórt, tekur forystuna og leggur lín-
urnar. Hvað veldur?
Breytt þjóöfélag
„Menn verða að gera sér grein
fyrir því að þjóðfélagið er að breyt-
ast. Sú þrönga miðstýring sem ráð-
ið hefur ferðinni við gerð kjara-
samninga á undanfömum áratug-
um á ekki lengur við. Við höfum
verið að berjast fyrir því í VR og ég
hef verið mjög harður baráttumað-
ur fyrir því að breyta samnings-
Magnús L. Sveinsson, formaöur Verslunarmannafélags Reykjavíkur, tók óvænt forystuna í kjarasamningaviðræöun-
um og geröi nýjan samning aöfaranótt mánudagsins. Hér takast þeir í hendur, Magnús L. Sveinsson og ólafur B.
Ólafsson, formaöur Vinnuveitendasambands íslands
forminu. Ég hef viljað fara með það
út i starfsgreinar og jafnvel fyrir-
tæki og það er að takast núna. Það
sýnir sig að það er jarðvegur fyrir
þessu núna. Þegar við vorum búin
að gera samninginn við Félag ís-
lenskra stórkaupmanna, sem er
auðvitað hreinn starfsgreinasamn-
ingur, þá opnuðust leiðir til að gera
kjarasamninga við ýmis stór fyrir-
tæki. Þau vom fús til samnings-
gerðar og töldu eðlilegt að samn-
ingsformið færðist nær þeim. Þetta
er að mínum dómi liður í því að
færa samningana nær fólkinu
sjálfu."
DV-mynd ÞOK
Pólitískur samningur?
- Er þetta pólitískur samningur
eins og sumir hér í Karphúsinu
halda fram?
„Þetta er kjarasamningur á
gmndvelli þeirra krafna sem við
lögðum fram. Hvort menn finna
einhverja pólitíska lykt af þessum
I
I
<
(
(
(
(
Dagfari
Æ, æ, engin verkföll
Það eru slæmar horfur í samn-
ingamálunum. Síðustu fréttir em
þær að það sé komið samninga-
hljóð í mannskapinn. Menn em
famir að semja. Það boðar ekki
gott. Það þýðir að einhver hefur
gefist upp. Éinhver hefur gefið eft-
ir en samningar í karphúsinu
ganga einmitt út á það að taka
menn á taugum. Láta ekki á neinu
bera, vera ískaldur fram á síðustu
stundu, lemja í borðið, hóta, neita,
ganga út, skella dymm, sem sagt
haga sér eins og samningar komi
ekki til greina og þá gefur viðsemj-
andinn sig. Þá bila þeir sem eiga að
bila.
Verkalýðsfélögin voru búin að
afla sér verkfallsheimilda. Þeir hjá
Mjólkursamsölunni vom meira að
segja famir af stað. Verkalýðsfor-
ingjarnir vom komnir með verk-
fallshótanimar upp á vasann og
búnir að skipuleggja verkfollin út í
æsar og það var blómatíð fram
undan. Verkalýðsforingarnir voru
búnir að vera sérlega grimmir í
framan og höfðu staðið sig frábær-
lega vel. Þeir sýndu það aftur og
aftur í sjónvarpinu hvers þeir voru
megnugir. Sjónvarpið er lykilatrið-
ið. Það veit enginn út í verkalýös-
félögunum hvað menn segja á
samningafundum, hver sofi og
hver vaki og það veit enginn um
frammistöðu einstakra foringja
nema það sem kemur í sjónvarp-
inu. Og þess vegna verða menn að
standa sig í sjónvarpinu. Vera
grimmir, vera harðir, hóta, neita,
berjast fram í síðustu setningu fyr-
ir verkalýðinn og málstaðinn.
Þetta hefur mörgum verkalýðs-
foringjanum tekist og launafólkið
hefur fengið byr undir báða vængi
og menn herðast í stéttarátökunum
og bíta í skjaldarrendur og sam-
þykkja orðalaust að fara í verkfall.
Að minnsta kosti að hóta að fara í
verkfall. Það er svipan sem dugar,
hugrekkið sem felst í samstöðunni,
alvaran á bak við kaupkröfurnar.
Og þetta var búin að vera góð
lota. Vinnuveitendur voru linir og
taugaveiklaðir. Stórkaupmenn
sviku lit og sömdu, þeir fyrir aust-
an sömdu og Verslunarmannafé-
lagið var búið að gera samninga,
sem voru að vísu ómögulegir
samningar, en samningar þó sem
brutu samstöðuna hjá vinnuveit-
endum á bak aftur og þetta var
tangarsókn sem hinir verkalýðs-
foringjarnir voru ekki fullkomlega
sáttir við en VR hafði samt samið
og það sýndi að hægt væri að
semja þótt menn treystu sér full-
komlega til að semja betur.
Nú var bara að hafa þolinmæði
og taugar og menn voru komnir
með verkfallshótanir og sumir
höfðu gengið út, jafnvel tvisvar,
jafnvel oftar og þetta leit afar vel út
fyrir helgi. Það voru engir samn-
ingar framundan og allt stefndi í
verkfoll.
En auðvitað vilja menn ekki verk-
foll. Auðvitað var verkfallshótunin
ekki ætluð til raunverulegra verk-
falla. Hver hefur efni á verkfalli?
Hver er tilbúinn að afsala sér vinnu
og launum fyrir einhverjar skitnar
prósentur sem hvort eð er hverfa í
verðbólguna. Það hefur enginn efni
á verkfalli þegar til kastanna kemur
og kannske er það best að semja
eins og VR og semja bara einhvem
veginn og allir sáu jú í sjónvarpinu
að verkalýðsforingjamir höfðu gert
sitt besta. Þeir höfðu neitaö og fuss-
að og gengið á dyr og verið alvarleg-
ir í framan og náð mjög góðum ár-
angri í öllum viðtölum sem við þá
hafa verið tekin.
Þetta hefur verið löng og ströng
samningalota og menn eru orðnir
þreyttir og nenna þessu ekki leng-
ur. Sjónarspilið hefur jú tekist.
Dagfari
(
(
(
(
(
(