Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1997, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1997, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 1997 7 Fréttir > Líöur vítiskvalir en hefur beöið eftir aögerð í fimm mánuði: Lífiö hefur ver- ið píslarganga síðan 1991 \ - segir Eyþór Ragnarsson, Hornfirðingur á fertugsaldri „Eg þori lítið að hugsa um bata- horfur mínar og læt hverjum degi nægja sínar þjáningar. Ég veit ekk- ert hvað framtíðin ber í skauti sér og þori ekki og get ekki tekið nein- ar ákvarðanir um hvað muni verða. Ég var heppinn að hitta Halldór Jónsson bæklunarlækni því honum þakka ég það að geta þó staulast um í dag. Ég var nánast al- veg orðinn rúmfastur," segir Ey- ' þór Ragnarsson, Homflrðingur á fertugsaldri, sem beðið hefur sár- þjáðrnr eftir aðgerð á bæklunár- skurðdeild Landspítalans síðan í október. Eins og fram kom í svörum heil- brigðisráðherra á Alþingi á dögun- um eru biðlistar eftir að komast í aðgerðir á sjúkrahúsunum mjög langir og sumir hafa þurft að bíða I í allt að þrjú er eftir að komast að. Á bæklunarskurðdeild bíða nú 1.300 manns eftir að komast í að- gerð og því er Eyþór aðeins eitt dæmi af ótal mörgum. „Ég áfellist ekki sjúkrahúsin og alls ekki læknana en það er afskap- lega pirrandi að heilbrigðiskerfið skuli ekki vera í stakk búið til þess að þjóna sjúklingum betur en raun ber vitni. Fjöldi fólks er frá vinnu vegna þessa og það hlýtur að vera hagur þjóðfélagsins að gera þó ekki væri nema hluta þessa fólks vinnufært sem fyrst.“ Eyþór segir bakvandamál sitt hafa byrjað með brjósklosi fyrir um tíu árum og síðan 1991 hafi líf hans verið ein píslarganga. Hann var fyrir nokkru nánast alveg kominn í rúmið en nú „staulast hann um“ og er ósjálfbjarga að miklu leyti. Hann segist vera með stanslausa verki í bakinu og að annar fóturinn sé hálflamaður. „Það gáfu sig liðir í hryggnum, þeir hafa verið skrúfaðir saman og það er gífurlegt magn af jámi inni í mér til þess að halda mér sam- an.“ Eyþór bíður þess nú að komast í sína nírrndu bakaðgerð og hann er starfsfólki og yfirlækni bæklunar- skurðdeildar innilega þakklátur fyrir þá umönnun sem hann hefur fengið. Hann var búsettur á Homa- firði, þar á hann hús og vanda- menn, en vegna krankleika síns hefur hann ekki getað búiö eystra í nokkur ár. Hann býr nú í gestaí- búið Sjálfsbjargar í Hátúni í Reykjavík þar sem vel er um hann hugsað. „Ég vorkenni ekki sjálfum mér en fólk getur ekki gert sér það í hugarlund hversu mikil áhrif langvarandi veikindi hafa á fólk. Ég hugsaöi ekki út í þessa hluti Hraðfrystistöð Þórshafnar: Eyþór Ragnarsson líöur vítiskvalir en hefur þurft aö bíða eftir bakaögerö á bæklunardeild Landspítalans síöan í október síöastliönum. Hann segir aö líf sitt hafi verið ein píslarganga síöan 1991 en viö brjósklos hefur hann glímt í tfu ár. DV-mynd Hilmar Þór fyrr en ég lenti í þessu og þannig er það eflaust með marga fleiri. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og fólk ætti að hugsa meira um heilsuna. Hún er það dýrmætasta sem við eigum,“ segir Eyþór Ragnarsson. -sv > > > > Ibúar fá forkaups- rétt á hlutabréfum DV, Akureyri: íbúum Þórshafharhrepps var fyrir helgi send greinargerð sveit- arstjóra hreppsins um sölumál hlutabréfa í Hraðfrystistöð Þórs- hafhar þar sem sveitarstjórinn rakti gang þeirra mála undanfarin ár. Um leið fengu íbúarnir senda tilkynningu um forkaupsrétt þeirra á hlutabréfum í HÞ. íbúunum er gefinn kostur á að kaupa hlutabréf sem eru í eigu FRÆS ehf. sem er eignarhaldsfélag sveitarsjóðs og fer með hlutafiár- eign sveitarfélagsins. Hámarks- upphæð sem hverjum einstaklingi verður heimilt að kaupa fyrir sam- kvæmt forkaupsrétti nemui 389.700 krónum og tekur sú upp- hæð mið af því að nýta að fvólu skattaafslátt vegna hlutabréfa- kaupa eins og hann er í dag. Bréfin eru boðin með 5% afslætti frá vegnu meðalgengi á forkaups- réttartímanum en síðasta skráða sölugengi þeirra er 4,30. Bréfin veröa seld gegn staðgreiðslu en í samvinnu við Sparisjóð Þórshafnar og nágrennis verður boðið upp á fjármögnum kaupanna til allt að 36 mánaða, gegn handveði í viðkom- andi hlutabréfi. Forkaupsréttartím- inn er til og með 20. mars. -gk > > > > > > > > > Akureyri: Leigjendasam- tök stofnuð DV, Akureyri: Leigjendasamtök Norðurlands verða stofhuð á fundi sem boðað hefur verið til nk. fimmtudags- kvöld kl. 20 í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Undirbúningsnefnd hefur starfað að stofnun samtak- anna síðan í haust og gengið mjög vel, að sögn Sigurjóns Pálmasonar, formanns nefndar- innar. Ákveðið er að Leigjendasam- tök Norðurlands þjónusti Norð- urland allt og verði hagsmuna- samtök leigjenda sem upplýsi og aðstoði leigjendur í hveiju því sem tengist leigumálum. Eitt af fyrstu áherslumálum hinna nýju samtaka verður að hvetja þau sveitarfélög sem ekki greiða hú- saleigubætur til að taka það upp. Undirbúningshópurinn segir að það sé engan veginn veijandi að leigjendur í sumum sveitarfélög- um þurfi að þola misrétti sem er í því að sum sveitarfélög greiði slíkar bætur en önnur ekki, og brýnt sé að ríki og sveitarfélög komi sér saman um hvernig fjár- magna skuli húsaleigubótakerfið. Sigurjón Pálmason segir að kynning á stofnun samtakanna hafi gengið sérstaklega vel, en í undirbúningshópnum hafa m.a. starfað fulltrúar framhaldsskól- anna á Akureyri og fleiri aðilar eins og verkalýðsfélög, húsnæðis- samvinnufélög og stofnanir á vegum ríkis og sveitarfélaga hafi heitið stuðningi sínum. -gk ÞÆR ERU KOMNAR TIL AB VERA!!! INSTITUTE-FOR-SKII\I-THERAPY SNYRTIVÖRUR STJARNANNA í H0LLYW00D! Ótrúlega áhrifaríkar, náttúrulegar, ofnæmisprófaðar og ilmefnalausar snyrtivörur - án og með ávaxtasýru. (AHA 5 -10%). Framleiddar í Kaliforníu, USA, þar sem fólk hefur hvorki tíma né áhuga á að bíða eftir SÝNILEGUM árangri. Vill aðeins það allra besta - STRAX! Næturkrem (AHA10%), augnkrem (AHA 5%), dagkrem, hreinsikrem, hand- og líkamskrem (heldur niðri psoriasis), andlitsmaskar o.fl.ofl. Líka einstaklega virk krem- og maskameðferð ætluð bóluhúð. Snyrtivörurnar frá INSTITUTE-FOR-SKIN-THERAPY eru einungis fáanlegar á völdum snyrtistofum í Kaliforníu og nú líka á íslandi hjá Snyrtistofunni MAJU, Bankastræti 14, Reykjavík, Snyrtistofu DÍU, Bergþórugötu 5, Reykjavðík og Snyrtistofu Löllu, Grænumörk 10, Hveragerði. Fást bæði í venjulegum umbúðum og stærri vinnuumbúðum fyrir snyrtistofur. MJÖG HAGSTÆTT VERÐ. g É Heildsala-smásala-upplýsingar Síðumúla 17 • 108 R. • Sfmi: 588-3630 • Fax: 588-3731 Opi6 kl. 10-12 og 17-19 daglega ÞAÐ SÉST RAUNVERULEGUR MUNUR Á HÚÐINNI Á ÖRFÁUM DÖGUM. HÚN VERÐUR HEILBRIGÐ, SLÉTT OG SKÍNANDI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.