Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1997, Síða 3
JJV FÖSTUDAGUR 14. MARS 1997
★ ★★^
HLJÓMPLÖTU
MH
Cassandra Wilson
New Moon Daughter
Þessi geislaplata er orðin eldri
en ég hélt, rúmlega ársgömul, en
ekki verri fyrir það. Cassandra
Wilson er ein af nýrri söng-
stjörnum djassins en á „New
Moon Daughter" leitar hún
meira á önnur mið. Hér má
finna lögin „Love is Blindness"
eftir þá félaga í U2, „Last Train
To ClarksviIIe“ sem hljómsveit-
in Monkees flutti fyrir margt
löngu, lag Neil Yongs „Harvest
Moon“ og fleiri sem eru langt frá
því að flokkast undir djass. Tvö
blúslög eru hér líka og er annað
þeirra eftir Robert Johnson. Eigin lög söngkonunnar, sem telja um
helming á plötunni, líkjast að sumu leyti tónsmíðum Joni Mitchells.
Djúp altröddin minnir hins vegar mest á söngkonuna Phoebe Snow,
einnig nokkuð á hina brasilísku Mariu Bethania og jafhvel á Ninu
Simone.
Undirleikur er allur óraflnagnaður ef frá er talið eitt lag. Kassagít-
ar, fiðla, harmoníka og kontrabassi (Lonnie Plaxico) setja gamaldags,
þjóðlegan blæ á tónlistina. Hún er reyndar öll á rólegu nótunum. Má
nefna að í eina eiginlega djasslagi plöflmnar „Skylark" er stálgítar í
aðalhlutverki. Hógværar og smekklegar útsetningamar gera plötu
þessa einstaklega ljúfa og áheyrilega og ekki spillir snilldargóð söng-
konan. Ingvi Þór Kormáksson.
Ýmsir flytjendur - 1997 Grammy Nominees ^
Brotabrot af Grammy-söngvunum
Upplestur Hillary Clinton er ekki að
finna á plötunni 1997 Grammy Nominees.
Ekki heldur söng og leik The Beatles og
eitt og annað furðulegt sem verðlaunað
var á Grammy-verðlaunahátíðinni á dög-
unum. Á plötunni eru þrettán lög með
jafnmörgum flytjendum sem allir kepptu
um Grammy-styttuna eftirsóttu í þremur
flokkum, það er að segja fyrir besta lag
síðasta árs, bestu poppsöngkonu og besta
nýliða ársins 1996.
Ekki er gott að segja hvers vegna einmitt
þessir flokkar voru valdir en ekki einhverj-
ir aðrir. Þeir sem kepptu um besta popp-
söngvarann hefðu til dæmis sómt sér þama
vel, sömuleiðis þeir sem kepptu í öllum
flokkum rokkgeirans, um stóra plötu ársins,
smáskífú ársins og þannig mætti lengi telja.
Útgefendur 1997 Grammy Nominees hefðu
sem sagt farið létt með að fylla tvöfalda plötu. En leiðin sem valin var var
sem sagt sú að kynna þrjá flokka og lögin sem rötuðu inn á plötuna eru
flest hver áheyrileg og safiiið því eigulegt. Mestur fengur er að því að
heyra í LeAnn Rimes sem valin var nýliði síðasta árs, komung söngkona
sem vafalaust var flestum íslendingum og sjálfsagt Evrópubúum með öllu
ókunn. Maður hefur þó fengið tækifæri til að heyra eitt lag með þessari
efiiiiegu söngkonu. Ásgeir Tómasson
Tony Bennett - On Holiday: ★★★'i,
Glæsilegur og vandaður flutningur
Hinn ágæti söngvari Tony
Bennett, sem nú stendur á sjö-
tugu, hefur haldið sínu striki í
gegnum súrt og sætt, sungið
klassisku dægurlögin með mikl-
um glæsibrag og ekki látið tísku-
bylgjur nútímans hafa áhrif á
sig, enda vissi unga kynslóðin
ekki hver hann var þegar honum
óvænt skaut upp kollinum í
hinni vinsælu þáttaröð á MTV,
Unplugged. Þar sló hann eftir-
minnilega í gegn, heillaði ungu
kynslóðina og í kjölfarið kom ____________________
plata sem náði metsölu og aflaði
Tony Bennett meðal annars Grammy-verðlauna. í dag fyllir Tony
Bennett hljómleikasali og það em ekki samtímamenn hans sem koma
á tónleika hans heldur er meirihlutinn ungt fólk sem hefur uppgötvað
að stundum er hollt að hlusta á það sem kemur frá hjartanu.
Þessar endurheimtu vinsældir Tonys Bennetts hafa ekki gert það að
verkum að hann sækir á ný mið í lagavali og er nýja plata hans On Holi-
day gott dæmi um það. Á henni sýnir hann einni mestu djasssöngkonu
sem uppi hefúr verið, Billy Holiday, virðingu sína og syngur lög sem voru
á söngskrá hennar. Þama eru lög sem Tony Bennett hefur verið að syngja
á undanfomum árum, klassísk dægurlög sem sum hver vora fyrst flutt af
Bilhe Holiday, má t.d. nefiia Sohtude, Wihow Weep for Me, These Foolish
Thing og God Bless the Child sem er eitt af fáum lögum sem Bilhe Holi-
day samdi. Þar fetar Tony Bennett í fótspor Natalie Cole og fleiri og nýt-
ir sér tæknina til að þau geti sungið lagið saman.
Bihie Holiday söng af mikihi tilfinningu og það gerir Tony Bennett
einnig svo að andi Holidays svífúr yfir lögunum. Tony Bennett fer þá leið
að nota aðeins píanó í undirleik í um það bil helmingi laganna og nokkr-
ar fiðlur og selló í öðrum, engar trommur eða bassa. Þetta gefur plötunni
mjúka áferð og söngurinn er því ávaht í fyrirrúmi. Hvergi er feilnóta sleg-
in og þótt skemmtilegt sé einnig að heyra Tony Bennett rífa sig upp með
stórsveitum þá er hér róið á gjöful mið og útkoman er einkar glæsileg,
Ijúf Og vönduð plata. Hilmar Karlsson
NICK CAVE var meöal
þeirra sem tilnefndur var
til verölaunanna.
1% 00*
•j &
# A
■f 4
'tónlist
17
Blur er einn flytjendanna sem eiga lög á Pottþétt 7.
Ahar Pottþétt-safnplötumar, sem
út vora gefnar á síðasta ári, var að
finna á listanum yfir tuttugu mest
seldu plötur ársins. Sú vinsælasta,
Pottþétt jól, seldist í um það bil tíu
þúsund eintökum og var því með
mest seldu plötum landsins í fyrra.
Engin hinna seldist undir fimm
þúsund eintökum og mætti margur
tónlistarmaðurinn vera ánægður ef
afurðir hans fengju slíkar viðtökur.
Ný pottþétt-plata, Pottþétt 7, er
að koma í verslanir þessa dagana.
Hún er tvöfold og á henni era 38 lög
sem flest hver hafa notið vinsælda
hér á landi sem annars staðar í
heiminum undanfamar vikur og
mánuði. Má þar nefiia Discoteque
með U2, Blur- smehinn Beetlebum,
Cosmic Girl með Jamiroquai, Mach
5 frá The Presidents of the United
States of America og hið nýút-
komna Into My Arms með Nick
Cave and the Bad Seeds. Eitt is-
lenskt lag er að finna á Pottþétt 7;
Kvöldin í bænum með Hauki Guð-
mimdssyni og kór Verslunarskóla
íslands, lag sem látlaust hefur hljó-
mað hjá útvarpsstöðvunum síðustu
vikur en verið ófáanlegt á geisla-
plötu þar th nú.
predikarar
Manic Street Preachers tilnefiidu
Brit verðlaunin (sem þeir fengu fyr-
ir bestu bresku hljómsveitina og
bestu bresku breiðskífuna) fyrrver-
andi framkvæmdastjóra sínum Phh-
ip Hah sem lést árið 1993 og fyrrver-
andi gítarleikara sínum, Richey Ed-
wards en hann hvarf fyrir rúmlega
tveimur árum.
wnÆSÖBI
•.-.‘.V'i'Éí-.»:
Næsta smáskífan af plötu
U2, POP, er lagiö góða „Star-
ing at the Sun“. Áður hefur
gefið út lagiö Discothéque á
smáskifu og náði það toppi
breska vinsældalistans (nú
situr nýja breíöskífa sveitar-
innar á toppi breska breið-
náð platínusölu þar í landi).
Myndbandiö við Discothéque
þótti afar skrautlegt en þar
U2 lýs
við th
The Edge
erfiina Iwpfl
sem átti aö fara I leöurgall-
ann). B-hliðin á smáskíftmni
(Of the River) en það l
sömdu
um Christy h
fjahað um vopr
ur-írlandi áriö
leikann á friði
er
annars i gervi diskógoðanna 1
The Vihage People (Meðlimir