Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1997, Page 11
FÖSTUDAGUR 14. MARS 1997
.____ímyndbönd 2S
RÉTTLÆTl
John Grisham er einn af vinsæl-
ustu skáldsagnahöfundum samtím-
ans. A Time to Kill var fyrsta
skáldsagan hans og var gefm út 1989.
Hún hlaut dræmar viðtökur og seldist
iila, en þegar næsta bók hans, The
Firm, sló í gegn tóku lesendur við sér
og A Time to Kill komst á metsölu-
lista. Hann hefúr síðan gefið út The
Pelican Brief, The Client, The Cham-
ber, The Rainmaker og nú síðast The
Runaway Jury. Allar voru þær met-
sölubækur og flestar hafa þær verið
kvikmyndaðar. John Grisham hefur
lýst því yfir að hann haldi mest upp á
fýrstu bókina sína og hann
vildi því tryggja að vel
yrði staðið að kvik-
myndun hennar. í
því skyni fékk
hann það bundið í
samning að hand-
rit, leikstjóraval
og val á helstu lei-
kurum væri háð
hans samþykki.
Enn fremur er
hann einn af fram-
leiðendum myndar-
innar. Sem leik-
stjóra valdi hann
Joel Schumacher
vegna frammistöðu hans við leik-
stjóm The Client, sem Grisham var
mjög ánægður með. Fyrir utan The
Client hefur Joel Schumacher leik-
stýrt St. Elmos Fire, The Lost Boys,
Cousins, Flatliners, Dying Young,
Failing Down og Batman Forever, en
næsta mynd hans verður fiórða mynd-
in í Batman-seríunni, Batman &
Robin.
Svertingi tekur til sinna
ráða
Sögusvið A Time to Kill er smá-
bærinn Canton í Mississippi
á heitu og sólríku suður-
ríkjasumri. Svertinginn
Carl Lee Hailey tekur til
sinna ráða þegar tveir
hvítir menn nauðga,
misþyrma og reyna að
drepa tíu ára gamla
dóttur hans. Hann ^
drepur mennina þeg-
ar verið er að leiða
þá fyrir dómara.
Hann fær ungan lög-
fræðing tO að verja sig,
eldhuga sem vinnur fyrir
nánast ekkert. Hann á í
höggi við reyndan sak-
sóknara sem krefst
dauðarefsingar og •
lífi hans og ör- 1
yggi hans
nánustu er ógnað. Spennan magnast í
smábænum, Ku Klux Klan fer á stjá
eftir að hafa legið í dvala í nokkur ár,
baráttufólk fyrir mannréttindum og
rétti svertingja lætur ekki sitt eftir
liggja, og réttarhöldin draga að sér at-
hygli fiölda fréttaliðs.
Óþekktur leikari í burð-
arhlutverki
Lögfræðingurinn ui
aðaihlutverk myndarinnar og Joh
Grisham vildi ekki fá stórstjörnu
hlutverkið. Margar af helstu sfiörnum
Hollywood vildu fá hlutverkið en
Grisham hafnaði þeim öllum og váldi
ungan og upprennandi leikara, Matt-
hew McConaughey, að tillögu
Schumachers, sem hafði séð hann í
Boys on the Side. Áður hafði hann
leikið í Dazed and
Confused og
Retum of the
Texas
Matthew McConaughey og Sandra Bullock berjast gegn óréttlætinu.
Chainsaw Massacre, en á milli Boys
on the Side og A Time to Kill lék hann
í gamanmyndinni Larger than Life og
kvikmyndahátíðarmyndinni Lone
Star.
Samuel L. Jackson leikur sakborn-
inginn Carl Lee Hailey, en hann hefur
aldeilis slegið í gegn síðustu árin.
Hann fylgdi aðdáunarverðri frammi-
stöðu í Pulp Fiction
eftir með hlutverki
í stórmyndinni Die
Hard with a
Vengeance, en með-
al nýrri mynda
hans eru Jungle
Fever (sem aflaði
honum einu verð-
launanna fyrir
besta leik í auka-
hlutverki sem
nokkurn tíma hafa
verið veitt á kvik-
myndahátíðinni i
Cannes), Kiss of
Death, Losing Isi-
ah, Fresh, The Gre-
at White Hype og
nú síðast The Long
Kiss Goodnight.
Aðrar myndir með
honum eru m.a.
Ragtime, Sea of
Love, Coming to
America, Do the
Right Thing, School
Daze, Mo Better
Blues, GoodFellas,
Patriot Games, National Lampoons
Loaded Weapon 1, Amos and Andrew
og True Romance. Næsta mynd hahs
mun vera kölluð 187.
í hlutverki lögfræðinema sem að-
stoðar Jake Brigance er stórstjaman
Sandra Bullock, en hún var ráðin í
hlutverkið áður en hún skaust upp á
sfiörnuhimininn eftir leik hennar í
Speed, sem hún fylgdi eftir með hlut-
verkum í The Net og While You Were
Sleeping. Meðal fyrri mynda hennar
eru The Vanishing, The Thing Cailed
Love, Love Potion 39, Demolition Man
og Wrestling Ernest Hemingway, en
næsta mynd hennar fiallar einmitt
um atburði í lífi Emest Hemingways
og heitir In Love and War.
Að lokum er vert að minnast á
Kevin Spacey í hlutverki saksóknar-
ans metnaðarfulla. Kevin Spacey
hlaut nýlega óskarsverðlaun fyrir leik
sinn í The Usual Suspects, en meðal
annarra mynda hans eru Outbreak,
Swimming with Sharks, Seven, Gleng-
arry Glen Ross og Consenting Adults.
Hann er einn leikara í mynd A1
Pacino, Looking for Richard, og þá er
von á honum í L.A. Confidental.
Einnig er von á fyrsta leiksfiórnar-
verki hans, Albino Alligator, þar sem
Matt Dillon, Faye Dunaway og Gary
Sinise eru í aðalhlutverkum. -PJ
Donald Sutherland, Oliver Platt og Matthew McConaug-
hey leika allir lögfræöinga sem eiga þó ekki margt sam-
eiginlegt.
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Snorri Sturluson
„Uppáhaldsmynd-
bandið mitt er kvik-
mynd Stuðmanna Með
allt á hreinu. Þetta er
mynd sem kemur sí-
feÚt á óvart. Það er
sama hversu oft ég
horfi á myndbandið,
það kemur alltaf
eitthvað nýtt í
ljós. Ég hef ekki tölu á því
hve oft ég hef horft á
myndina en er örugglega
kominn vel á annað
hundraðið. Hún er
alveg ótrúlega
fyndin og
skemmtileg og
er án ef
skemmtileg-
asta mynd sem
ég hef séð. Ein
besta mynd sem ég
hef séð og skildi mig
eftir orðlausan er Pulp
Fiction. Söguþráðurinn
virðist vera algjör steypa
og maður veit ekkert
hvað er að gerast en allt í
einu gengur allt saman
upp. Hún fer nokkrum sinn-
um upp að strikinu og stund-
um vel yfir það.
Þegar ég fer út á myndbanda-
leigu vel ég yfirleitt gamanmyndir
eða spennumyndir. Ég var t.d. að
horfa á The Nutty Professor með
Eddie Murphy og hún var mjög
fyndin. Nýlega horfði ég á
spennumyndina Eraser með
Arnold Schwarsenegger í
aðalhlutverki. Það er
reyndar eins gott að hún
var með íslenskum texta
því ég skildi
varla orð sem kom
af vörum Schwar-
seneggers og ég held
að þcu- sé ekki
hægt að kenna
lélégri enskukunnáttu
um. Konan mín er
hins vegar mjög veik
fyrir myndum
byggðum á sannsögu-
legum atburðum
þannig að ég
reyni helst
að koma i
fyrir
hún
mynd-
banda-
veg
una
ffii
Það má segja að útgáfa Wlultiplicity
á myndbandi hafi nokkuð skemmti-
lega tímasetningu. Eins og flestum er
kunnugt þá var
KlOUEll
m
-323x3SSS&ízgS-
kindin Dolly
klónuð í
Skotlandi og lík
aðferð notuð til
að búa til apa í
Bandaríkjunum
og voru það fáar
heimsfréttimar
sem vöktu meiri
athygli hér á
landi. í
Multiplicity er
einmitt á gam-
ansaman hátt
fengist við klónun og þarf Michael
Keaton svo sannarlega að hafa fyrir
hlutunum í aðalhlutverki myndarinn-
ar, leika persónuna i fiórum útgáfum.
Það er Harold Ramis sem leikstýrir
þessari ágætu gamanmynd sem segir
frá hrakfórum verkfræðingsins Dougs
Kinneys, sem kemst i kynni við vís-
indamann sem segist geta gert annað
eintak af honum, sem létti honum líf-
ið. Kirrney lætur imdan freistingunni
og er mjög ánægður með eftirmynd-
ina af sér. Til að auðvelda sér lífið
enn meira gerir Kinney aðra útgáfu af
sér. Gamanið kárnar þegar klónamir
tveir ákveða upp á eigin spýtur að
klóna sjálfa sig. Eins og væntannlegir
áhorfendur komast að þá gengur það
ekki upp ...
Skífan gefur út Multiplicity og er
hún ieyfð öllum aldurshópum. Út-
gáfudagur er 19. mars. -HK
ni ■ . &m wm H I
The Island of Dr. Moreau
Það er fátítt orðið að sjá einn mesta
leikara aldarinnar, Marlon Brando, í
nýrri kvikmynd enda segist hann
ekki fá orðið neitt
út úr lífinu nema
að borða góðan
mat og það má svo
sem sjá á honum.
Brando kom þó úr
híði sínu í fyrra
og lék Dr. Moreau
í The Island of Dr.
Moreau, sem gekk
þó ekki erfiðleika-
laust. Þegar eitt-
hvað var liðið á
kvikmyndatökur
var leiksfiórinn rekinn og John
Frankenheimer fenginn til að bjarga
hlutunum. Þetta er þriðja útgáfan af
The Island of Dr. Moreau sem lítur
dagsins ljós og segir hún frá prófessor
sem fæst við tilraunir á mönnum á af-
skekktri eyðieyju. Ungur maður, Dou-
glas, sem lifir af flugslys, kemur til
eyjarinnar. Hann kemst á snoðir um
ýmislegt sem ekki þolir dagsins ljós.
Þegar hann reynir að flýja kemst
hann að raun um að hann er fangi.
Brátt fer allt í háaloft þegar Dr. Mor-
eau og helsti aðstoðarmaður hans,
Montgomery, fara að berjast um yfir-
ráðin á eyjunni.
Auk Brandos leika í myndinni Val
Kilmer, David Thewlis og Fairuza
Balk.
Myndform gefur út The Island of
Dr. Moreau og er hún bönnuð börn-
um innan 16 ára. Útgáfudagur er
18. mars.
-HK
Le Confessional
Le Confessional eða Skriftunin er
kanadísk kvikmynd sem hefur vakið
mikla athygli hvar sem hún hefur ver-
ið sýnd og unnið
til verðlauna á er-
lendum kvik-
myndahátiðum.
Þetta er magn-
þrungin kvikmynd
eftir einn athyglis-
verðasta kvik-
myndgerðarmann
Kanada, Robert
Lepage, en fyrir
nokkrum árum
gerði hann Jesús
frá Montreal, sem
fór sigurför um heiminn.
I Le Confessional er sagt frá tveim-
ur uppeldisbræðrum í Quebec, málar-
anum Pierre, sem kemur til heima-
borgar sinnar til að vera viðstaddur
útfór föður síns, og Marc, sem er töku-
barn af óvissum uppruna. Bræðurnir
ákveða að gera leit að raunverulegum
fóður Marcs og rekja þeir uppruna
hans til ársins 1952 þegar Alfred
Hitchcock er að gera hina frægu kvik-
mynd sína I Confess í Quebec. Þeir
komast að þvi að getnaður Marcs er
falið leyndarmál sem erfitt er að fá -
botn í og þegar það kemur upp á yfir-
borðið hefur það óvæntar afleiðingar.
Með hlutverk bræðranna fara Lot-
haire Blutheau og Patrick Coyette. í
öðrum hlutverkum eru Kristin Scott
Thomas, Ron Burrage og Jean Luis
Millette.
Háskólabió gefur Le Confessional
út og er hún bönnuð börnum innan
12 ára. Útgáfudagur er 18. mars-HK
1 V
Confessional