Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1997, Page 12
26
myndbönd
MYHDBAW
Flirting with Disaster:
Leitað að uppruna sínum ★★★
Mel Coplin er taugaveiidaður ungur maður sem á fal-
lega eiginkonu og nýfætt bam. Hann er þó ekki alveg
sáttur því að hann er ættleiddur og hann vill finna for-
eldra sína. Hann fær að vita nafn móður sinnar á ætt-
leiðingastofnuninni og í kjölfarið leggur hann í ferðalag
ásamt fjölskyldu sinni til að hitta hana. í fór með þeim
er ung kona sem starfar sem sálfræðingur við stofnun-
ina, en hún er ekki öll þar sem hún er séð. Ferðin reyn-
ist hið mesta klúður, enda virðist ættleiðingastofnunin
vera i vandræðum með að finna réttu upplýsingarnar.
Ýmsar litríkar persónur koma við sögu, svo sem tví-
kynhneigður fyrrum skólafélagi konu Mel og kærastinn hans, áður en hann
finnur loksins foreldra sína. Þeir reynast vera litlu skárri en hinir brjálæð-
ingarnir sem hann kemst i kynni við á ferðalaginu og enn flækjast málin
þegar fósturforeldrar hans mæta á staðinn. Myndin er gjörsamlega út í hött
en ærslafenginn húmorinn virkar nokkuð vel, því að hann er ferskur og
frumlegur, og myndin er oft bráðfyndin. Téa Leoni og Patricia Arquette
standa sig vel, en Ben Stiller virðist eitthvað úti að aka í aðalhlutverkinu.
Senuþjófarnir eru þó allir aukaleikararnir og þar má finna mörg þekkt
nöfn, svo sem George Segal, Mary Tyler Moore, David Patrick Kelly, Alan
Alda og Lily Tomlin.
Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: David O. Russel. Aðalhlutverk: Ben Stiller,
Patricia Arquette og Téa Leoni. Bandarísk, 1996. Lengd: 93 mín. Öllum
leyfð. -PJ
Sunset Park: ^
Ólíkindalegur körfuboltaþjálfari viffl
ýllPPI'
Phyllis er lágvaxin, hvít kennslukona við Sunset
Park skólann. Til að drýgja tekjur sínar tekur hún að
sér að þjálfa körfuboltalið skólans þótt hún hafi ekkert
vit á körfubolta. Leikmennirnir eru ekkert alltof ánægð-
ir með nýja þjálfarann sinn og telja lítið á honum að
græða þótt þeir hafi verið að tapa nánast öllum leikjum
sínum. Eftir að hafa kynnst leikmönnunum fær Phyllis
áhuga á starfinu, les sér til og fer að reyna að takast á
við starfið af einhverri alvöru. Undir stjöm hennar fara
leikmennirnir að ná hetur saman og vinna leiki. Jafh-
framt þjálfuninni verður hún í praxís eins konar félags-
ráðgjafi fyrir leikmennina, sem eiga ekkert sældarlíf í fátækrahverfum borg-
arinnar. Myndin rokkar á milli þess að vera grínmynd, vandamálamynd,
samfélagsádeila og hetjusaga. Heiðarlegar tilraunir til að taka á raunveru-
legum vandamálum eru virðingarverðar, en oft dettur myndin niður á amer-
iskt velluplan, sérstaklega i lokin. Leikararnir standa sig flestir sæmilega
þótt þeir neyðist til að fara á velluplanið af og til, og þá eru stundum fynd-
in atriðið í kringum skrýtnari leikmenn liðsins.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Steve Gomer. Aðalhlutverk: Rhea Perlman
og Fredro Starr. Bandarísk, 1996. Lengd: 95 mín. Öllum leyfð. -PJ
★★★
KillenA Journal of Murder:
Samviskulaus morðingi
Þessi mynd er byggð á sannsögulegum atbm-ðum,
frásögn fangavarðarins Henry Lessers af glæpamannin-
um Carl Panzram. Hann var í fangelsi fyrir innbrot en
við barsmíðar fangavarða á honum sagðist hann hafa
drepið 21 mann. Henry Lesser fær samúð með honum
en hryllir við þegar hann heyrir frásögn Panzram af
lífi sínu. í kjölfar þess að Panzram drepur fangavörð
eru haldin réttarhöld, þar sem tekist er á um það hvort
telja beri hann geðveikan eður ei. I myndinni kemvu
fram hörð ádeila á dómskerfið og þá sérstaklega þann
þátt þess sem lýtur að refsingu og endurhæfingu. Segja
má að sú gagnrýni sé heldur seint á ferðinni þar sem myndin gerist á milli-
stríðaárunum, en vissulega má finna samsvörun í nútímanum. Hugtakið
glæpamannaframleiðsla er í deiglunni og mörgum þykir lítið vera að gert
í endurhæfingu. Robert Sean Leonard stendur sig sæmilega í hlutverki
Henry Lesser, en James Woods sýnir sannkallaða meistaratakta sem hinn
harðsvíraði morðingi.
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Tim Metcalfe. Aðalhlutverk:
James Woods og Robert Sean Leonard. Bandarísk, 1995. Lengd: 90 mín.
Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Mrs.Winterbourne:
Öskubuskuævintýri *
Connie Doyle er ung, ólétt, blönk og heimilislaus.
Bamsfaðir hennar hefúr hent henni út á guð og
gaddinn. Aðstæður haga því þannig að eftir lestar-
slys, þar sem ungur auðmaður og ólétt brúður hans
farast, er hún tekin í misgripum fyrir brúðina og
hún lendir inni á auðmannsheimili Winterbourne-
fiölskyldunnar. Hún og tvíburabróðir hins látna
verða ástfangin og hyggja á brúðkaup, en þá kemur
bamsfaðir hennar til sögunnar og vUl ná í sneið af
kökunni. Hér er á ferðinni rómantísk gamanmynd
og aldrei þessu vant gengur rómantíkin sæmilega
upp og er tiltölulega látlaus og trúverðug. Hins vegar er hlutverk henn-
ar fremur lítið og meiri áhersla lögð á grínið, sem er því miður fremur
misheppnað. Þar á ofan bætist að leikaramir ráða illa við hlutverk sín
og em flestir úti á þekju, fyrir utan Shirley MacLaine sem sýnir ágæta
takta. Undir lokin leysist myndin svo endanlega upp í froðu.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Richard Benjamin. Aðalhlutverk: Ricki Lake,
Shirley MacLaine og Brendan Fraser. Bandarísk, 1996. Lengd: 106 mín.
Öllum leyfð.
-PJ
FOSTUDAGUR 14. MARS 1997
Myndbandalisti vikunnar
•••
/ • o •
3. til 9. mars
10 8
J
'ílíxt.::
11 10
j
12
13 j
7
11
1 ....
15 j 14
16 j 13
17 j 12
18 j 20
J
19 W
20 16
SÆTI FYRRH VIKUR VIKA ÁLISTA TITILL j ÚTGEF. TEG.
1 W 1 1 7 1 i 3 3 Eraser Warner myndir Last Man Standing Myndform 3 Spenna
2 Spenna
3 4 2’ 2 4 The Arrival j Háskólabíó Spenna
4 1 3 Independence Day Skífan Spenna
5 5 4 Eye for an Eye ClC-myndbönd Spenna
6 3 < 3 6 3 3 Mission: Impossible ClC-myndbönd Spenna c Fargo Háskólabíó Spenna
7 ; 6 7 3 - J1 .
Ný
9
Killer: A Journal of Murder
Powder
Sam-myndbönd Spenna
Sam-myndbönd
Drama
Truth about Cats and Dogs skífan
Mr. Wrong
Sam-myndbönd
Gaman
j
Gaman
3 3
Warnermyndir
14 j Ný 1
Spacetruckers
Mrs. Winterbourne
Happy Gilmore
Bio-Dome
The Rock
Flirting with Disaster
Cable Guy
Spy Hard
Bergvík
Skrfan
ClC-myndbönd
Sam-myndbönd
Sam-myndbönd
Skífan
Skrfan
Sam-myndbönd
Spenna
Gaman
\ Gaman
Gaman
j
j Spenna
J
Gaman
j Gaman
Gaman
Arnold Schwarzenegger lætur ekki að sér hæöa og
kvikmynd hans Eraser fer beinustu leiö í efsta sæti
myndbandalistans eins og búast mátti viö. Er
myndin hér til hliöar úr einu af háspennuatriðum í
myndinni. Tvær aðrar nýjar myndir koma inn á list-
ann. í áttunda sæti er Killer: A Journal of Murder, en
í henni leikur James Woods dauðadæmdan morö-
ingja sem segir ungum fangelsisveröi sögu sína. í
fjórtánda sæti er svo Mrs. Winterbourne, þar sem
Shirley MacLaine leikur aðalhlutverkiö, ríka og ráö-
ríka konu sem heldur að stúlka ein, sem lifir af járn-
brautarslys, sé tengdadóttir hennar og barnið sem
hún eignast því barnabarn hennar.
Eraser
Arnold Schwarzen-
egger og Vanessa
Williams
Leyniþjónustu-
maðurinn John Kru-
ger, sem hefur þarrn
starfa að halda hlífi-
skildi yfir vitnum al-
ríkislögreglunnar,
fær það verkefiii að
vemda fegurðardís-
ina Lee sem er eina
vitnið gegn glæpa-
mönnum sem eru við
það að ná valdi á
gjöreyðingarvopni.
Kruger er leiddur í
gildru og látið líta
svo út að harrn sé
svikari. Hann þarf
því ekki aðeins að
vemda vitnið heldur
þarf hann að vemda
sjálfan sig fyrir eigin
mönnum og sanna
sakleysi sitt.
Last Man
Standing
Bruce Willis og
Christopher Walken
Sögusviðið er lítill
bær, Jericho í Texas.
Þangað kemur
ókunnugur maður
sem nefnir sig John
Smith. Ekki líður á
löngu uns hann er
búinn að flækja sig í
harðvítugar deilur
tveggja glæpagengja
í bænum. Smith er
samt ekkert lamb að
leika sér við eins og
andstæðingar hans
komast fljótt að og
hann aflar sér fljótt
virðingar glæpafor-
ingjanna. Hann geng-
ur til liðs við annan
foringjann en leikur
einnig um stund
tveimur skjöldum.
The Arrival
Charlie Sheen og
Ron Silver
Stjömufræðingur-
inn Zana vinnur við
að hlusta eftir hljóð-
merkjmn utan úr
geimnum. Kvöld eitt
uppgötvar hann ein-
kennilegt hljóð sem
hann telur strax að
gefi slíka vísbend-
ingu. Þegar Zane fer
að skilgreina hljóðin
betur verður hann æ
sannfærðari um að
hljóðin séu ekki af
þessum heimi. Hann
á hins vegar í mikl-
um vandræðum með
að sannfæra yfir-
mann sinn enda
kemur í ljós að hljóð-
merkin koma frá
jörðu.
!ÍPÍ* i rnrc nui
¥ ,1«
Independen-
ce Day
Jeff Goldblum og Bill
Pullman
Vísindamenn
NASA verða varir
við að einhverjir
risastórir hlutir era
á sveimi í geimnum
og áður en langt um
líður kemur í ljós að
þetta eru geimför frá
óþekktri plánetu. Á
skömmum tíma sigla
þessi risastóru skip
inn í gufuhvolfið og
taka sér stöðu fyrir
ofan allar helstu höf-
uðborgir heimsins.
Brátt skýrist að ekki
er um neina vináttu-
heimsókn að ræða
heldur stefha geim-
verumar á að út-
rýma jarðarbúum.
Eye for an
Eye
Sally Field, Kiefer
Sutherland og Ed
Harris
Líf McCann- fiöl-
skyldunnar breytist í
martröð þegar dóttir
þeirra er myrt á
hrottalegan hátt.
Skömmu síðar hand-
tekur lögreglan
mann sem er grun-
aður um morðið. Það
verður mikið áfall
fyrir móðurina þegar
manninum er sleppt
því hún er sannfærð
um að hann sé morð-
inginn. Áður en
langt um líður finnst
lík ungrar konu og
flest bendir til að um
sama mann sé að
ræða.