Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1997, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
Fréttir
Sameining í innanlandsflugi í uppnámi vegna skilyrða Samkeppnisstofnunar:
Flugfélag íslands ekki
á koppinn að óbreyttu
„Ég get ekki lagt mat á það á þess-
ari stundu hvort áhugi er fyrir því
innan Flugfélags Norðurlands að
draga félagið út úr Flugfélagi ís-
lands. Það er alveg ljóst að menn
eru mjög tvístígandi í afstöðu sinni
og það er mikil ólga innan fyrirtæk-
isins og óvissa um framhaldið,"
sagði starfsmaður FN sem DV
ræddi við í gær.
Úrskurður Samkeppnisráðs
vegna samruna Flugfélags Norður-
lands og Innanlandsflugs Flugleiða
er í 8 liðum og setur hinu nýja fé-
lagi mjög þröngar skorður hvað
varðar samskipti við Flugleiðir og
fleiri atriði. í skýrslunni segir að öll
viðskipti hins nýja félags og Flug-
leiða skuli vera í sama anda og ef
um óskylda aðila væri að ræða. Þá
segir að stjómarmenn Flugleiða og
dótturfélaga, eða þeir sem eru í
störfum sínum háðir Flugleiðum,
skuli ekki sitja í stjóm Flugfélags
íslands.
Vegna þessa sendu Flugleiðir frá
sér tilkynningu í gær þar sem fram
kemur að félagið telur ófært að
fylgja sammna félaganna eftir. Að
óbreyttum skilyrðum verði innan-
landsflugið áfram hluti af Flugleið-
um. Félagið hefur þegar hafið und-
irbúning að nýjum rekstrar- og
þjónustuáætlunum. Sigurður Helga-
son, forstjóri Flugleiða, segir hug-
myndir um aukna og hætta þjón-
ustu í nýju félagi, Flugfélagi ís-
lands, hafa verið ónýttar með úr-
skurði Samkeppnisstofnunar.
Samkeppnisstofnun krefst þess að
atriði í hluthafasamningi Flugfélags
Norðurlands sem kveða á um að
hluthafar skuldbindi sig til að beina
viðskiptum til Flugfélags Norður-
lands á gildistíma samningsins og
Flugleiða, eftir því sem við á, skuli
felld út. Þá er þess einnig krafist að
felld verði út grein í sama samningi
sem kveður á um að Flugfélagi
Norðurlands sé ekki heimilt að
hefja flug til nýrra áfangastaða
nema 4 af 5 stjómarmönnum greiði
þeirri ákvörðun atkvæði sitt.
hlunnindi. Þetta atriði eitt og sér er
talið standa i starfsmönnum Flug-
leiða sem verða starfsmenn Flugfé-
lags íslands og höfðu gengið út frá
flugi á nokkrum flugleiðum í því
skyni að hamla samkeppni frá nú-
verandi eða tilvonandi keppinaut-
um.
íslandsflug:
Línur til
framtíðar
„Ég er ánægður með hvað þetta
er afgerandi. Ég lít þannig á að
þetta verði línur til framtíðar. Ég
geri ráð fyrir því aö þessi sömu
skilyrði muni gilda burtséð frá þvi
hvort til þessa samruna kemur
eða ekki,“ segir Gunnar Þorvalds-
son, stjómarformaður íslands-
flugs hf., sem er líklegasti sam-
keppnisaðili hins nýja Flugfélags
íslands á innanlandsmarkaði.
„Ég er sérstaklega ánægður
með það að þegar frjálsræðið
kemst á 1. júlí nk. þá hafa sam-
keppnisaðilar jafnan aðgang að
flugstöðvum landsins. Það á raun-
ar að mínu áliti að vera sjálfsagð-
ur hlutur," segir Gunnar. -rt
Skilyröi Samkeppnisstofnunar gætu orðið til þess aö ekkert verði af stofnun Flugfélags íslands með samruna
innanlandsflugs Flugleiða og Flugfélags Norðurlands.
Keppinautar fá sömu kjör
Úrskurðurinn kveður á um að
keppinautar hins nýja félags njóti
sömu kjara og Flugleiðir hvað varð-
ar farseðlaskipti og vildarkjör. Þá
ber Flugleiðum að leggja samkeppn-
isaðilum Flugfélags íslands til sömu
vildarkerfi og FÍ er boðið upp á. Þá
er skýrt kveðið á um það að Flug-
leiðir megi ekki bjóða starfsmönn-
um FÍ upp á sömu kjör og starfs-
menn þeirra njóta án þess að starfs-
menn samkeppnisaðila njóti sömu
fríðinda. Þama er um að ræða af-
sláttar- og frífarseðla og önnur
því að njóta sömu starfskjara áfram.
Þessu atriði var raunar, samkvæmt
heimildum DV, haldið á lofti þegar
verið var að laða nýja starfsmenn til
liðs við FÍ og þeim var sagt að þeir
fengju sömu fríðindi og Flugleiða-
starfsmenn.
Ákveðin skilyrði eru sett um að
óski nýir aðilar í innanlandsflugi
eftir sambærilegri aðstöðu á Akur-
eyrar- og Reykjavíkurflugvöllum og
Flugfélag íslands hefur yfir að ráða
þá beri hinu nýja félagi að uppfylla
þær óskir.
Loks er Flugfélagi íslands óheim-
ilt að auka ferðatíðni í áætlunar-
Mikil fundarhöld vora í gær
vegna málsins og ljóst er að úr-
skurðurinn hefur valdið miklu um-
róti meðal væntanlegra starfs-
manna Flugfélags íslands. Flugleið-
ir og Flugfélag Norðurlands munu
næstu daga fúnda um framhald
málsins. -rt
Stuttar fréttir
Snuröa hljóp á þráöinn í viðræðum Eiríks og Stöövar 2:
Ég er fárveikur
- segir Eiríkur - gamlir þættir í gær og á mánudag
„Biðstaða" er komin upp í samn-
ingaviðræðum Eiriks Jónssonar og
viðsemjenda hans á Stöð 2 um fram-
tíð hans á sjónvarpsstöðinni.
Snurða hljóp á þráðinn á fóstudag
þegar forsvarsmenn stöðvarinnar
fóru fram á það við Eirík að breyt-
ingar yrðu á störfum hans en
ákvæði í samningi hans við stöðina
kveður á um að þann 1. apríl verði
hlutverk hans endurskoðað.
Athygli vakti að nokkurra mán-
aða gamall þáttur Eiriks var sýndur
á mánudagskvöldið og annar slíkur
í gærkvöld. Þegar DV ræddi við Ei-
rík i síma í gær sagði hann:
„Ég er fárveikur, aldrei þessu
vant. Það vill bara svo til núna, ann-
ars er ég mjög sjaldan veikur. Ef ég
væri það ekki núna væri ég í vinnu.
Ég er svo bólginn í hálsinum að ég
gæti ekki einu sinni farið í útvarp,
hvað þá sjónvarp," sagði Eiríkur.
Aðspurður um viðræður hans við
yfirmenn sina á Stöð 2 sagði Eiríkur
að ekki væru allir alltaf sammála.
„Þetta er viðkvæmt starf. Það fer
ekkert á milli mála og það er bara
eins og gengur að það slái í brýnu
hjá mönnum," sagði Eirikur.
Hann sagðist ekki vera að hætta á
Stöð 2 en starfssamningur hans
rynni út um mitt sumar. „Þá er ég
hættur en það gerist margt á
skemmri tíma en það i þessum sirk-
us,“ sagði Eiríkur Jónsson. -Ótt
Þú getur svarað þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904 1600.
39,90 kr. mínútan
jáiM Nim
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Ertu fylgjandi frelsi
í innanlandsflugi?
Snuröa hljóp á þráöinn í samningaviöræðum Eiríks Jónssonar og Stöövar 2.
Gamlir þættir hafa því veröi sýndir undanfarin kvöld.
Magnesíumverksmiðja
Hagkvæmnis- og umhverfisrann-
sóknir benda til þess að fram-
kvæmdir við magnesíumverksmiðju
á Suðumesjum geti hafist strax á
næsta ári. Sjónvarpið segir frá.
Gróðinn varð að tapi
Verðbréfaþing íslands hyggst
spyrja stjómendur Útgerðarfélags
Akureyringa hvemig á þvf standi
að hagnaður sem boðaður var í
sumar hefur orðið 250 milljóna
króna tap. Sjónvarpið sagði frá.
Norðmenn í Bakkavör
Norskir aðilar eru að eignast
fimmtung í fiskvinnslufyrirtæk-
inu Bakkavör og leggja til fé til
vöruþróunar og markaðssetning-
ar að sögn Viðskiptablaðsins.
Sæbergi stefnt
Útgerðarfélaginu Sæbergi á
Ólafsfirði hefur verið stefnt vegna
launaskuldar við 26 sjómenn.
Skuldin varð til í þátttöku sjó-
mannanna í kvótaviðskiptum út-
gerðarinnar. Innheimtan byggir á
nýföllnum dómi félagsdóms.
Áburðarverksmiðjan
seld
Ríkissjóður hefur auglýst Áburð-
arverksmiðjuna i Gufunesi til sölu í
opnu útboði. Tilboðsfrestur er til 30
maí. Morgunblaðið segir ffá.
Ný gróðursamtök
Ný samtök, Gróður fyrir fólk í
landnámi Ingólfs, voru stofhuð í
gær, en samtökin ætla að stööva
gróður- og jarðvegseyðingu á suð-
vesturhorni landsins. Ingvi Þor-
steinsson, fyrrv. sérfræðingim á
RALA og frumkvöðull að kort-
lagningu gróðurfars landsins, er
formaður samtakanna. -SÁ