Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1997, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
Fréttir
Heilahimnubólgan á Sauðárkróki:
Sjúklingar á batavegi eftir
meðvitundarleysi í sólarhringa
DV, Sauðárkróki:
„Konan mín varð þess var um
fimmleytið um morguninn að ég
lá meðvitundarlaus í rúminu og
hafði strax samband við lækni.
Ég lá síðan án meðvitundar á
sjúkrahúsinu á þriðja sólarhring.
Þegar ég rankaði við mér vissi ég
varla í þennan heim né annan og
fór ekki að hjama við íyrr en
undir síðustu helgi," sagði Jónas
Sigurjónsson, verkamaður á
Sauðárkróki, í samtali við DV á
Sjúkrahúsi Skagfírðinga á Sauð-
árkróki í gær.
Jónas er einn þriggja einstak-
linga sem veiktust alvarlega af
heilahimnubólgufaraldri á Sauð-
árkróki. Jónas fær að fara heim
af sjúkrahúsinu í dag eftir að
hafa dvalið þar í tvær vikur
vegna veikindanna. Hann sagði
að veikindin hefðu byrjað með
kvefi sem hefði ágerst. Daginn
fyrir nóttina sem hann veiktist
og missti meðvitund var hann
þó ekki slappari en svo að hann
fór á hestbak. Hinir tveir sem
veiktust á Króknum voru
tveggja ára barn og nemandi á
heimavist Fjölbrautaskólans.
Þau voru bæði flutt á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri en eru á
batavegi.
Landlæknir ákvað að öllum
íbúum Sauðárkróks á aldrinum
2-18 ára yrði boðin hólusetning
og hefur vel rúmur helmingur
fólks á þessum aldri þegið bólu-
setningu, en einnig verður bólu-
sett á morgun og fóstudag. Að
sögn Amar Ragnarssonar heilsu-
gæslulæknis er veikin ekki
bráðsmitandi. Helstu einkenni
em hár hiti og skert meðvitund
ásamt slappleika.
Þessi tegund heilahimnubólgu,
meningokokka, mun vera land-
læg en hefur skotið upp kollinum
annað slagið. Það verður að telj-
ast sérstakt að svo mörg alvarleg
tilfelli hafi komið fram á svo
skömmum tíma og litlu svæði
sem Sauðárkróki.
-Þ.Á.
Jónas á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki.
DV-mynd Þórhallur
Stulkur voru sigursælar a
framhaldsskólamótinu
Norton
slípiskífur og
skurðarskífur
fyrir járn, ál, !
ryðfrítt stál og
stein
fmlk
Þegar gæðin skipta máli
Skeifan 11 D • Sími 568 6466
Stúlkur voru sigursælar á hesta-
íþróttamóti framhaldsskólanna en
þar kepptu nemendur frá 15 skólum.
Fiölbrautaskólinn í Breiðholti
fékk flest stig, 464,3, en Menntaskól-
inn í Hamrahlíð fékk 463,5 stig.
Auk þess aö keppa að saman-
lagðri stigasöfnun fyrir skólana
kepptu stigahæstu keppendur for-
keppninnar til úrslita og vom stúlk-
ur í flestum verðlaunasætunum.
Ásta D. Bjamadóttir var stiga-
hæsti knapinn með 168,1 stig en Sig-
ríður Pjetursdóttir var í öðm sæti
með 168 stig. Hún og hestur hennar,
Rómur, voru jafnframt valin glæsi-
legasta par mótsins.
Fjórgangur
1. Ásta D. Bjamadóttir (FG) á Eldi
2. Sigríður Pjetursdóttir (MH) á
Rómi
3. Þóra Brynjarsdóttir (FS) á Kjama
4. Marta Jónsdóttir (FS) á Sóta
5. Kristín Sveinbjamardóttir (MS) á
Fjólu
6. Helga R.
Spuna
Valgeirsdóttir (FB) á
Tölt
1. Ásta D. Bjarnadóttir (FG) á Eldi
2. Drífa Jónasardóttir (ML) á Skafli
3. Margrét S. Sigmarsdóttir (MS) á
Mána
Guðmar Þ. Pétursson (FB) á Þjóni
Saga Steinþórsdóttir (MR) á Sunnu
Borghildur Kristinsdóttir (FSU) á
Girði
Fimmgangur
1. Guðmar Þ. Pétursson (FB) á
Snoppu
2. Þóra Brynjarsdóttir (FS) á Tý
3. Sigríður Pjetursdóttir (MH) á Þöll
4. Anna Ingimarsdóttir (FNVS) á
Þokkabót
5. Jóhanna Claessen (MR) á Blakki
6. Haraldur Ambjömsson (FS) á
Blæ
Húsfélagsdeila:
Umhverfisráðherra víki
Þess hefur verið krafist að Guð- ráðherra taki sæti hans þegar ráðu- flokksfélaga og hlutafélaga í eigu ým-
mundur Bjarnason umhverfisráð-
herra víki úr ráðherrastóli og annar
K
Littlewoods
pöntunarlistinn
vor/sumar 1997
er kominn.
Rúmlega 600 bls.,
fullar af
glaesilegum
fatnaði á alla
fjölskylduna.
o
i-£Q
*£ (Þú
GRÆNT
SÍMANÚMER:
Þú færð listann
ÓKEYPIS
ef þú hringir í okkur!
greiöir eingöngu póstburðargjaldið)
800 8600
Littlewoods
neytið fjallar um deilumál í húsfé-
lagi hússins að Hafnarstræti 20 í
Reykjavík, sem vísað hefur verið til
úrskurðar umhverfisráðuneytisins.
Skrifstofur Framsóknarflokksins eru
í húsinu og er húsnæðið í eigu
issa Framsóknarmanna og er Guð-
mundur Bjarnason einn eigendanna.
Að sögn Sigurðar Eyþórssonar á
skrifstofu Framsóknarflokksins
snýst deilan um breytingar sem gerð-
ar voru á fyrstu hæð hússins þar sem
aðstaða SVR er til húsa, en breyting-
amar vom samþykktar í húsfélagi
hússins. Einn eigenda hússins sætti
sig ekki við málsmeðferðina og hefúr
skotið ágreiningnum til umhverfis-
ráðuneytisins eins og heimilt er sam-
kvæmt lögum. -SÁ
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Fatasöfnun
Hjálparstofnun kirkjunnar verður komið fyrir við kirkjur á
gengst fyrir fatasöfnun á Akureyri, viðkomandi stöðum og starfsfólk
Egilsstöðum, Isafirði og í Reykjavík kirknanna tekur við fótunum. Tek-
dagana 10.-12 apríl nk. Gámum ið verður á móti hreinum og heilum
fatnaði og góðum skóm sem bundn-
ir em saman. Fyrsta kastið fara fót-
in til fyrram Júgóslavíu, Tsjetsjeníu
og Angóla. -sv
Vélsleðamenn með fjallamót
DV, Akureyri:
Eyfirskir vélsleðamenn gangast
um helgina fyrir fjallamóti i Nýja-
dal en rúmur áratugur er nú liðinn
síðan eyfirskir og sunnlenskir
vélsleðamenn beittu sér fyrir stofn-
un Landssambands íslenskra
vélsleðamanna. Stofnfundurinn var
haldinn í Nýjadal á Sprengisands-
leið og var mikið í fréttum á sínum
tima, enda brast á hið versta óveður
og margir fundarmanna lentu í erf-
iðleikum vegna þess.
Nú er aftur stefnt að móti
vélsleðamanna í Nýjadal að frum-
kvæði vélsleðamanna í Eyjafirði og
hefur undirbúningur staðið yfir síð-
ustu vikur. Gert er ráð fyrir að
menn mæti á staðinn nk. fóstudags-
kvöld og á laugardagsmorgun verö-
ur haldið i skipulagöa skoðunarferð
um nágrennið. Þar er margt að sjá,
s.s. stórfengleg hverasvæði í Vonar-
skarði sem fáir hafa séð. Á laugar-
dagskvöldinu verður efnt til mikill-
ar grillveislu. -gk