Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1997, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
43
pv_______________________________________________Fréttir
Fríhafnarstarfsmenn:
Skipta um félag
innan BSRB
DV, Suðurnesjum:
„Ástæðan fyrir úrsögn okkar er
að við sættum okkur ekki við hækk-
un félagsgjalda sem myndi þýða
helmingshækkun hjá okkar fólki.
Við mótmæltum þessari ákvörðun
fyrir aðalfund SFR en án árangurs,"
sagði Valdimar Þorgeirsson, starfs-
maður Frihafnarinnar á Keflavíkur-
flugvelli, við DV.
Hann var valinn í þriggja manna
nefnd sem starfsfólk valdi til að
vinna að hagsmunum þess. Form-
lega hefur verið gengið frá því að
allir starfsmenn Fríhafiiarinnar -
samtals 91 - hafa sagt sig úr Starfs-
mannafélagi ríkisstofnana og gengu
í Félag flugmálastarfsmanna sem
einnig er innan BSRB.
Á aðalfundi SFR var samþykkt að
taka 1,1% af heildarlaunum félags-
manna en var áður 1,3% af föstum
launum. Þessi ákvörðun stjómar
þýddi að hækkunin myndi meðal
annars koma verst niður á starfs-
fólki Fríhafnarinnar sem vinnur
mikla yfirvinnu en er með lág
grunnlaun.
Hjá sumum starfsmönnum væri
um helmings hækkun félagsgjalda
að ræöa. Starfsmennimir vildu ekki
una þessari niðurstöðu og lögöu
fram breytingartillögu um að
hækka félagsgjöld í 1,6% af föstum
launum. Aðalstjómin féllst ekki á
tillögu starfsmanna sem tóku þá
ákvörðun allir sem einn að segja sig
úr stéttarfélaginu. Starfsfólk mun
borga í hið nýja félag 1% af föstum
launum í félagsgjöld. Heimildar-
maður DV sagði að félagsgjalda-
hækkun SFR væri til komin vegna
þess að meira fé vantaði í rekstur
félagsins.
„Það lá fyrir tillaga á aðalfundi
1995 um að skipa félagsgjaldanefnd
sem skilaði síðan þessari niður-
stöðu að taka 1,1% af heildarlaun-
um. Á aðalfundi í mars var síðan
tekist á um tvö sjónarmið og greidd
atkvæði. Þetta kemur lægst launaða
fólkinu til góða sem er á lærri
grunnlaunum en hækkar hjá öðr-
um,“ sagði Ámi Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Starfsmannafélags
ríkisstofhana, en í því félagi vom
fyrir uppsögn starfsmanna Fríhafn-
arinnar 4.458 manns. Árni á ekki
von á því að fleiri segi sig úr félag-
inu vegna þessa mdaáls.
-ÆMK
Hvalfjaröargöngin
vel hálfnuð
DV, Akranesi:
Bormenn Fossvirkis höfðu lokið
við að sprengja og grafa alls 3.244
metra undir Hvalfjörð núna um
mánaðamótin eða tæplega 60% af
heildarlengd ganganna. Lokið var
við 1.822 metra að sunnanverðu og
1.402 metra að norðan.
Fossvirkismenn í göngunum
fengu frí um páskana og snera aftur
til starfa að morgni 1. apríl. Verkið
gekk vel dagana og vikumar fyrir
páska.
Heildarlengd ganganna verður
5.484 metrar og þar af era sprengd
göng á landi 1.734 metrar en undir
sjó 3.750 metrar. Vegskálar við enda
ganga era 165 metrar. Tvær akrein-
ar verða að sunnanverðu, 3,6 km, en
þrjár akreinar að norðanverðu, 2,2
km.
-DVÓ
Flutningaaðilar:
Takiö eftir
Ðjóðum upp á þrif á:
vöruflutningabifreiðum og hópferðabifreiðum.
Tjöruþvottur, þvottur, blettun, vélaþvottur,
bón, teflonhúð, þrif að innan, djúphreinsun,
lakkhreinsun og mössun.
Einnig merkingar á bíla, glugga, skilti o.fl.
Ungt fólk hefur síöustu mánuöi flutt inn í falleg hús viö Víkurbraut i Vík í Mýrdal. Á myndinni er falleg húsalengja viö
Víkurbrautina. Frá vinstri er fyrst hús Ivars Páls Bjartmarssonar. Næst er parhús og í endanum nær býr Bjarghildur
Pálsdóttir. Þriöja húsið er hús Verkalýösfélagsins Víkings og síöan kemur parhús þeirra Ágústs Freys Bjartmarsson-
ar og Kristínar Svafars. Fjærst er hús Jóhanns Einarssonar og Fríöu Jóhönnu Hammer. DV-mynd Njöröur
EyjaQöröur:
Löng bið eftir
stórgripaslátrun
DV, Dalvík:
Bið eftir að koma nautgripum til
slátrunar hjá Sláturhúsi KEA á Ak-
ureyri er aillöng um þessar mundir
og nú er verið að lóga gripum sem
búið var aö panta fyrir á tveim síð-
ustu mánuðunum 1996.
Samkvæmt upplýsingum frá Slát-
urhúsi KEA era nú um 300 ungneyti
á biðlista og um 200 kýr. Ekki er þó
um að kenna afkastagetu Slátur-
hússins heldur því að erfiðlega hef-
ur gengið að vinna markaði.
Að sögn Helga Sveinssonar hjá
sláturhúsi KEA era í gangi mikil
undirboð á markaðnum og kjöt-
vinnslumar hafa verið tregar til að
kaupa kjöt á verði sem sláturhúsið
telur að það þurfi að fá.
„Mér sýnist allt stefna í það að
við þurfum að auka fullvinnslu kjöt-
afurða hjá okkur, til að liðka fyrir,“
sagði Helgi. Hann benti jafnframt á
að markaðurinn hérlendis tæki tæp-
lega við öllu því kjöti sem til væri á
fæti og m.a. þess vegna verður
bændum greiddur bónus fyrir smá-
kálfa sem þeir koma með tU slátran-
ar á næstunni, tU þess að spoma við
birgðasöfnun.
-hiá
Smiðjuvegi 12, rauð gata
Sími: 587-2323
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er 50 crfsiát+ur
af annarri auglýsingunni.
Smáauglýsíngar
ii
W : 550 5000