Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1997, Side 28
52
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
Ofraun
„Ég held að þeir ættu að fara
sér hægt í að sameinast Fram-
sókn og stækka félagið, þegar
þeim er ofraun að halda því sam-
an eins og það er í dag.“
Bjarki Magnússon Dagsbrúnar-
maður í Alþyðublaðinu.
Einir eftir
„Þar með verðum við einir eft-
ir i Evrópu sem bönnum okkar
þegnum að neyta landbúnaðaraf-
urða frá öðrum löndum.“
Sighvatur Björgvinsson í DV
Harðsvíruð ríkisstjóm
„Ég vona að þjóðin átti sig á
hverra hagsmuna þessi ríkis-
stjórn stendur fyrir. Hún er lang-
langharðsvíraðasta ríkisstjórn
sem við höfum nokkurn tíma
haft.“
Steingrímur J. Sigfússon í Al-
þýðublaðinu.
Spnrnin um réttaröryggi
„Allt vekur þetta upp spurn-
ingar um almennt réttaröryggi í
landinu; að tveir opinberir emb-
ættismenn geti hist í sundi og
tekið þar ákvörðun um opinbera
rannsókn og málshöfðun."
Árni Gunnarsson um Spaug-
stofumálið í Degi-Tímanum.
Ummæli
Páskaeggið bíður
„Þetta er yndisleg tililnning
og frábær stund. Við hefðum all-
ar getað unnið. Þegar nafn mitt
var kallað fór fiðringur og
skjálfti um mig. Nú bíður páska-
eggið eftir mér heima.“
Harpa Lind Harðardóttir, feg-
urðardrottning Suðurnesja
1997, í DV.
Hundur
klifrar
í trjám
Flat Nose eða Flatnefur er
blendingur bolabíts og völsku-
hunds. Hann hefur haft eðlis-
læga áráttu til að klifra í trjám
allt frá því hann var smáhvolp-
ur. Hann er nú hreinasta stjarna
í Bandaríkjunum og Japan. Eig-
andi hans, Barney Odom, segir
þetta „náðargjöf ‘ úr hendi guðs.
Blessuð veröldin
Dagblöð úr plasti?
Getur hugsast að blöð og bæk-
ur framtíðarinnar verði prentuð
á plast? Sænska fyrirtækið AB
Gelloplast hóf að gefa fréttablað
fyrirtækisins út á plasti 1984. í
fyrstu var þetta í gamni gert en
fleiri létu í ljós áhuga sinn á
þessu. Blaðið er prentað á pólý-
eten sem blandað er fylliefnum.
Hægt er að endurvinna plastið.
DV
Hlýnandi veður
Á sunnanverðu Grænlandssundi
er 995 mb lægð sem hreyfist aust-
norðaustur en víðáttumikið og vax-
andi háþrýstisvæði er suður í hafi.
Gert er ráð fyrir vestan- og suðvest-
Veðrið í dag
anátt næsta sólarhringinn, víða all-
hvössu og á stöku stað hvössu síðar
í dag. Rigning verður annað slagið
um landið suðvestan- og vestanvert
en úrkomulítið norðaustan- og aust-
anlands. Heldur lægir og léttir víða
til í nótt. Hlýnandi veður og víða
má reikna með 4 til 7 stiga hita í
dag.
Horfumar á höfuðborgarsvæðinu
gera ráð fyrir suðvestan stinning-
skalda og rigningu eða súld en all-
hvassri vestanátt með skúrum þeg-
ar líður á daginn. Hiti verður 3-5
stig.
Veðrið kl. 6 í morgun
Sólarlag í Reykjavík: 20.44
Sólarupprás á morgun: 06.13
Síðdegisflóð i Reykjavík: 19.55
Árdegisflóð á morgun: 08.18
Veörið kl. 6 í morgun:
Akureyri
Akurnes
Bergstaðir
Bolungarvík
Egilsstaðir
Keflavíkurflugv.
Kirkjubkl.
Raufarhöfn
Reykjavík
Stórhöfði
Helsinki
Kaupmannah.
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Amsterdam
Barcelona
Chicago
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
Lúxemborg
Malaga
Mallorca
París
Róm
New York
Orlando
Nuuk
Vín
Washington
snjóél 2
alskýjað 3
snjóél á sið. klst. 2
snjóél 2
skýjað 3
skúr á síð. klst. 4
alskýjað 2
alskýjað 0
rigning 3
rigning 5
léttskýjað -2
rign. á síó. klst. 5
þokumóða 5
alskýjað 2
rigning 5
skýjað 7
léttskýjað 11
heiðskírt -4
léttskýjað 2
mistur 8
skýjaó 4
mistur 5
léttskýjað 5
rigning 14
alskýjað 13
léttskýjað 5
heiöskírt 4
rigning 3
heiðskírt 19
skafrenningur -19
léttskýjað 0
skýjaö 6
Sterkasti maður heims í fjögur skipti:
Kemur fram hjá David
Letterman í kvöld
- er farinn að þreytast, segir Magnús Ver
„Ég viðurkenni fúslega að ég er
farinn að þreytast, aldurinn virð-
ist eitthvað vera farinn að segja til
sin. Ég ætla hins vegar að halda
áfram í þessu á meöan ég held
fullri orku, þetta er gaman og mér
gengur þokkalega vel,“ segir
Magnús Ver Magnússon krafta-
karl en hann hélt í gærkvöld utan
til Bandaríkjanna þar sem hann
kemur fram í þætti hins þekkta
Maður dagsins
Davids Lettermans.
Magnús Ver er nýkominn heim
frá kraftakeppni í Ástralíu þar
sem hann bar sigur úr býtum.
Hann hefur unnið á nokkrum slik-
um mótum undanfarin ár, auk
þess að vera sterkasti maður
heims fjórum sinnum, þar af þrjú
síðastliðin ár.
„Ég veit svo sem ekki nákvæm-
lega hvað Letterman vill mér en
þeir eru nýfamir að sýna myndir
frá þessum mótum í Ameríku og
viðtökurnar hafa verið mjög góð-
Magnús Ver Magnússon.
ar. Ég get ekki sagt að ég kvíði því
að koma fram í þættinum, enda
orðinn nokkuð sjóaður í þessu."
Magnús segist ekki í nokkrum
vafa um landkynningarþáttinn í
þessu brölti sínu og segist raunar
oft hafa orðið var við það að einu
íslendingamir sem fólk erlendis
þekkti væru hann og Björk. Hann
segist gjarna vildu sjá styrk frá
hinu opinbera vegna ferðalag-
anna.
„Ég lifi og hrærist í þessu og
þetta er það eina sem ég geri,
keppi, kem fram sem kynnir og
þess háttar. Það er hægt að lifa af
þessu með góðum stuðningi fyrir-
tækja en ég fékk synjun i eina
skiptið sem ég sótti um styrk frá
utanríkisráðuneytinu.
Magnús segist hafa ýmis önnur
áhugamál en kraftabakteríuna.
Hann sé t.d. um þessar mundir að
vinna í því að flytja inn fæðubæti-
efni og vítamin.
„Síðan álpaðist ég til þess að
kaupa mér tölvuleikinn Doom og
hann tekur mikinn tíma. Ég reyni
svo auðvitað að æfa um fimm
sinnum í viku en vegna ferðalaga
get ég yfirleitt ekki æft eins mikið
og ég vildi," segir Magnús Ver
Magnússon.
Magnús er í sambúð með Ástu
Guðmundsdóttur. Hann á tvær
dætur, Steinunni Sif, 7 ára, og
Maríönnu, 8 ára. -sv
Myndgátan
Lætur ekki deigan síga
Myndgátan hér aö ofan lýsir orötaki.
Bikarinn fer á loft í Ásgarði í
kvöld.
Hrein
úrslit í
kvenna-
bolt-
anum
í kvöld kl. 20 i Garðabæ mæt-
ast Stjaman og Haukar í fimmta
leik liðanna um íslandsmeistara-
titilinn í handknattleik kvenna.
Haukar unnu fyrstu tvo leikina
og margir töldu Stjömuna þar
með úr leik. Þær hafa hins vegar
heldur betur bitið frá sér, jöfn-
uðu metin í fyrrakvöld og nú er
hreinn úrslitaleikur 1 kvöld.
Reikna má með fullu húsi í Ás-
garði og eins gott fyrir áhan-
gendur liðanna að láta sig ekki
vanta. Bikarinn fer á loft í kvöld.
íþróttir
í kvöld er líka leikið á Reykja-
vikurmótinu í knattspymu en
þá mætast Valur og Víkingur á
gervigrasinu í Laugardal. Leik-
urinn hefst kl. 20.30.
Bridge
Landslið ítala vann góðan sigur,
73-29 á landsliði Bandaríkjanna á
Forbo-bridgemótinu sem fram fór í
Hollandi í janúarmánuði síðastliðn-
um. í þessu spili græddu ítalir 13
impa, þrátt fyrir að sami samningur
hafi verið spilaður á báðum borð-
um. Sagnir gengu eins á báðum
borðum:
f K853
* G1096
-f ÁG9
* 107
* Á62
V D2
* K74
* KG984
* G4
* ÁK83
* D105
* ÁD63
Suður Vestur Norður Austur
1 Grand pass 2 * pass
2 * pass 4p/h
í lokuðum sal varð Bob Hamman
sagnhafi og fékk út tígulsjöu. Hann
átti slaginn á niuna í blindum og
svínaði strax hjartagosa. Versace,
sem sat í vestur, drap á drottningu
og spilaði meira hjarta. Hamman
svínaði næst laufdrottningu sem
Versace drap á kóng og spilaði lauf-
gosa. Eftir þessa byrjun fékk Ham-
man ekki nema 9 slagi. Á hinu borð-
inu var Lanzarotti sagnhafi og fékk
út tígulfjarka. Hann átti fyrsta slag-
inn á gosann og svínaði strax lauf-
drottningu. Freeman, sem sat i vest-
ur, drap á kóng og spilaði áfram
tígli. Lanzarotti drap á drottningu
heima, lagði niður laufás og tromp-
aði lauf með hjartagosa. Austur
henti tígli og eftirleikurinn var auð-
veldur. Trompdrottning var sönnuð
í vestur, næst kom hjarta á ás,
fjórða laufið trompað og síðan
hjarta á kóng. Spaðakóngur varð
siðan 11. slagur sagnhafa.
ísak Öm Sigurðsson