Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1997, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1997
5
I>V
Fréttir
Alvarlegir eldsvoðar út frá sjónvarpstækjum:
Takið tækin úr sambandi
- segir Erlingur Lúðvíksson, varðstjóri í slökkviliðinu
„Það eru komnir þrír alvarlegir
eldsvoðar frá áramótum sem rekja
má til sjónvarpstækja. Það sem ger-
ir eld í sjónvarpstækjum hættulegri
en i öðrum heimilistækjum er að
það verður sprenging í sjónvarps-
tækinu og glóandi agnir spýtast út.
Þessi gerviefni sem eru í okkar nú-
tímaíbúðum brenna mjög hratt og
mynda banvænan reyk. Annað at-
riði varðandi sjónvarpstækin er að
það kviknar oftast í þeim á nóttunni
þegar ailir sofa en tækin eru enn i
sambandi," segir Erlingur Lúðvíks-
son, varðstjóri í Slökkviliðinu í
Reykjavík.
Sjónvarpstæki ollu tveimur elds-
voðum á laugardagsmorgun. Hjón
sluppu naumlega úr brennandi
húsi í Hábergi í Breiðholti og mik-
il mildi var að tvö börn þeirra
voru í pössun annars staðar þegar
eldsvoðinn varð. í Vestmannaeyj-
rnn slapp íbúi giftusamlega út úr
brennandi húsi með hjálp tveggja
lögreglumanna.
„Meirihluti fólks virðist bara
ekki taka sjónvarpstækin úr sam-
bandi sem það á auðvitað að gera.
Það slekkur kannski með fjarstýr-
ingunni en það er áfram straumur á
tækinu. Það er hægt að vera með
tenglabretti þar sem hægt er að
slökkva á öllum helstu græjunum
með einum rofa. Þetta er ekkert
bundið við tegundir og ekkert endi-
lega við aldurinn en það er auðvitað
meiri líkur á að eitthvað bili í eldri
tækjum þó að það sé ekki beint or-
sökin,“ segir Erlingur. -RR
iBALENO WAGON 4WD
„í starfi mínu keyri ég mikið á milli kynningarfunda og þarf bíl
sem er með þægilegum sætum, er lipur í bæjarakstri
og áreiðanlegur og traustur á vegum.
Svo verður hann að hafa fjórhjóladrif.
Baleno Wagon fullnægir þessum þörfum mínum, er fallegur og
rúmgóður með mikið af alls kyns geymsluhólfum. Hann er líka
aflmikill og hljóðlátur, en það lærir maður að meta á lengri leiðum.
Svo er hann líka einstaklega eyðslugrannur!"
Ólafur Ólafsson
deildarstjóri í kynningardeild Delta hf.
Akstur á ári u.þ.b. 30-35.000 km.
„Frábæri tilboðspakkinn", aukabúnaðurinn, sunnudagsverðið
og afmælisafslátturinn - allt er innifalið með Baleno. Við
öllum það einfaldlega staðalbúnað og venjulegt verð.
BALENO WAGON 4WD
fyrir aöeins 1.580.000,- kr.
BALENO WAGON 2WD aðeins
SUZUKI
AFL OG
ÖRYGGI
Prufukeyrðu Suzuki t dag. Taktu nokkrar beygjur, finndu
þcegilegan gír. Mjúkur og léttur - eins og akstur á að vera.
Og spurðu síðan sjálfan þig: Get ég virkilega gert betri bílakaup? SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
, , Sími 568 51 00.
SUZUKI S0LUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Olafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00.
Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50.