Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1997, Síða 32
40
MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1997
DeVilbiss
Fréttir
DV, Akranesi:
Rekstur Hótel Stykkishólms gekk
mjög illa á síðasta ári og er unnið að
endurskipulagningu rekstrarins að
sögn Sigurðar Skúla Bárðarsonar
hótelstjóra.
I>V
Hótel Stykkishólmur:
erfiður rekstur
Nýting hótelsins var góð yfir sum-
armánuðina en veturinn hefur verið
mjög erflður og skuldir hótelsins eru
töluverðar. Stykkishólmsbær, sem á
77% hlutafjár í hlutafélaginu Þór sem
rekur hótelið, samþykkti á síðasta
fundi sínum að beina því til stjómar
Þórs hf. að leitað yrði eftir auknu
hlutafé utan núverandi hluthafahóps
og að ákvörðun um hlutafjáraukn-
ingu bæjarins yrði tekin með hlið-
sjón af aukningu annarra aðila.
Forsenda þess að bærinn setji
meira fé í fyrirtækið sé sú að rekst-
urinn verði endurskipulagður.
Samkvæmt heimildum lítur rekst-
ur Hótel Stykkishólms vel út næstu 5
mánuði en ljóst er að ekki er hægt að
reka hótelið með svo miklar skuldir
til langs tíma án aukningar hlutafjár
og skuldbreytinga. -DVÓ
Sparisjóður Keílavíkur:
sprautukönnur
og fylgihlutir
í úrvali
17 milljóna hagnaður
Þegar gæðin skipta máli
Skeifan 11 D • Sími 568 6466
DV, Suðurnesjum:
Heildartekjur Sparisjóðsins í
Keflavik 1996 voru 903,5 milljónir og
heildargjöldin 190,5 milljónir. Fram-
lag til afskriftareiknings útlána
nam 86,8 milljónum. Hagnaður af
rekstri Sparisjóðsins eftir skatta
varð 17,1 milljón króna. Þetta kem-
ur fram í nýrri ársskýrslu Spari-
sjóðsins.
Heildarinnlán í Sparisjóðnum í
árslok námu 4,9 milljörðum og
höfðu aidiist frá fyrra ári um 116,3
milfjónir eða 2,4%. Ef núvirði verð-
bréfaútgáfu er bætt við innlán
námu þau um 6,3 milljörðum. Heild-
arútlán námu 6,0 milljörðum í árs-
lok og höfðu aukist um 275 milljón-
ir frá árinu áður eða um 4,8%. Útlán
til viðskiptamanna námu 5,8 millj-
örðum eða 96,3% af heildarútlánum
og höfðu þau aukist um 7,4% frá ár-
inu áður.
Eigið fé sjóðsins nam í árslok 556
milljónum króna. Eiginfjárhlutfall
samkvæmt ákvæðum 54. greinar
laga um banka og sparisjóði var í
árslok 12,11%. Sambærilegt hlutfall
árið áður var 9,45%. Á árinu var
meðaltal stöðugilda hjá sjóðnum
68,6 og námu launagreiðslur 148,6
milljónum.
Sparisjóðurinn í Keflavík verður
70 ára 7. nóvember. Höfuðstöðvar
Sparisjóðsins eru í Keflavík og rek-
ur sjóðurinn útibú í Njarðvík, Garði
og Grindavík. Sparisjóðsstjóramir
eru tveir, Geirmundur Kristinsson
og Páll Jónsson. -ÆMK
ASKRIFTARFERÐIR
DV OG FLUGLEIÐA
Vinningur
Einn heppinn askrifandi DV er
dreginn út í viku hverri
og hreppir ferð fyrir tvo
til St. Petersburg Beach í Florida
ásamt gistingu í eina viku.
Sólarstundin nálgast
Heppinn áskrifandi DV verður dreginn
út næsta miðvikudag.
Nöfn vinningshafa verða birt í
DV-Ferðum í Helgarblaði DV.
Ert þú heitur?
Allir skuTdlausir áskrifendur DV,
nýir og núverandi, eru með
í sólarpottinum.
DV-Ferðir alla
laugardaga
Alla laugardaga er umfjöllun
í DV-Ferðum þar sem er að
finna upplýsingar og
vandaðar frásagnir um
ferðalög innanlands og utan.
Sólarftöfuðborg Flugleiða í ár.
Sannkallað ævintýri fyrir alla
fjölskylduna.
St. Peterburg Beach er einn vinsælasti
áíangastaður sólþyrstra ísléndinga í
Florida. Þar bjóðast nær óteljandi
tækifæri til hvers konar skemmtunar og
útivistar, góðir gististaðir, yndisleg
strönd, frábær aðstaða fyrir ferðamenn,
þar sem allt er í boði, og
hagstætt verðlag.
Islenskur fararstjóri verður á St.
Petersburg Beach 27.5. - 2.9. í ferðum
sem hefjast á þriðjudögum og lýkur á
mánudöguin.
FLUGLEIDIR
Traustur islenskur ferðafilagi
Fjölmargir
án bílbelta
DV, Akureyri:
Lögreglumenn á Ólafsfirði og Dal-
vík könnuðu sérstaklega í vikunni
notkun bílbelta í bæjunum tveimur
og reyndist útkoman slök, að sögn
lögreglunnar á Ólafsfirði.
Á stuttum tíma voru 8 ökumenn
stöðvaðir sem ekki voru með beltin
spennt og þurfa þeir að greiða sekt
vegna þessa. Einn ökumaður var
einnig tekinn fyrir að viröa ekki
stöðvunarskyldu og annar stöðvað-
ur réttindalaus á vélsleða. -gk
Grindavík:
Nýr slökkvibíll
DV, Suðurnesjum:
„Ég er mjög ánægður með aö fjár-
veiting sé komin til að kaupa slökkvi-
bíl. Það er veriö að hressa upp á bíla-
flotann en meðalaldur hans er 25 ár.
Við erum ekki búnir að ákveða
hvemig bíll verður keyptur en okkur
vantar dælubíl," sagði Ásmundur
Jónsson, slökkviliðsstjóri í Grinda-
vík, i samtali við DV, en bæjarstjóm
Grindavíkur hefur ákveðið að verja
allt að 8 miiljónum króna á þessu ári
til að kaupa slökkviliðsþifreið.
Ásmundur segir að nú verði reynt
að vinna úr þessum fjármunum til að
kaupa notaðan og góðan bíl, en dælu-
bíllinn sem fyrir er sé orðinn gamall
og lúinn og þarfhist mikilla viðgerða
enda frá árinu 1964 og ekki er lengur
hægt að treysta á hann þegar útkall
verður. Slökkvilið Grindavíkur er
með 4 bíla. -ÆMK
Eru Eiðar að
fara í eyði?
DV, Egilsstöðum:
Það virðist vera að halla undan
fæti fyrir skólahaldi á Eiðum. Fyrir
tveim árum var Alþýðuskólinn lagð-
ur niður sem slíkur og rekstur skóla-
halds á staðnum sameinaður
Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Nú er svo komið að einungis 38
nemendur frá ME era á Eiðum og
ekki líklegt að þar verði rekinn skóli
meö svo fáum nemendum. Á Eiðum
hefur lengi verið starfandi 10. bekkur
grunnskóla en vitað er að hann verð-
ur ekki starfræktur þar næsta vetur.
Á Eiðum er heimavist fyrir um 100
manns, mötuneyti, sundlaug og
íþróttahús, auk kennarabústaða. Því
er mikið í húfi að þessi hús verði
nýtt áfram. Mikill áhugi er á því
eystra að fmna leiðir til að nýta þessi
mannvirki á Eiðum en á þessari
stvmdu er allt í óvissu um framtíð
skólahalds þar. -SB