Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1997, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1997
7
DV Sandkorn
Troðfull vél
Samkeppnin S innanlandsfluginu
tekur á sig ýmsar myndir. Fyrir
helgi, mitt í umræðunni um um-
deilda sameiningu Flugleiða og FN,
gerðist það að
Flugleiðir
urðu að fresta
flugi til Sauð-
árkróks vegna
veðurs. Far-
þegar héldu
að þeir myndu
missa alveg af
ferð til borgar-
innar þegar
kvisaðist út að
vél frá ís-
landsflugi,
sem ekki gat
flogið til Siglufjarðar, myndi koma
við á Króknum og taka þá upp i.
Vél íslandsflugs var troðfyllt en
samt urðu einhverjir að verða eftir.
Þegar þetta fregnaðist til höfúð-
stöðva Flugleiða mun snúður hafa
komið á menn og þeir í fyrstu neit-
að að greiða reikning íslandsflugs.
Á endanum fékkst reikningurinn
greiddur en Flugleiðamönnum var
ekki skemmt.
Ríkasti pabbinn
í einum 6 ára bekk í skóla í höf-
uðborginni snerist umræðan á dög-
unum um hver ætti ríkasta
pabbann. Ein stelpan sagðist eiga
svo ríkan
pabba að
mamma henn-
ar gæti bara
verið heima
og þyrfti ekk-
ert að vinna.
Hún færi í all-
ar búðimar
og eyddi pen-
ingunum hans
pabba í fót.
Einn strákur-
inn í bekkn-
um bætti um
betur og sagði: Pabbi minn er svo
ríkur að hann keyrir aldrei til
Vestmannaeyja. Hann tekur annað
hvort flugvél eða skip þegar hann
fer þangað."
„Sími í leg-
göngum"
Ungmennasamband íslands held-
ur úti riti sem heitir Skinfaxi og er
ætlað ungu fólki. I blaðinu kennir
ýmissa grasa og er margt þar
ágætt. Lesend-
ur ráku þó
sumir hveijir
upp stór augu
þegar nýjasta
tölublaðið
barst þeim í
hendiu þvi
svo var að sjá
sem próförk
blaðsins hefði
lokað báðum
augum. Á bls.
59 í blaðinu er
fræðsla um
ýmislegt sem snýr að kynlífi og
kemur þar við sögu getnaðarvöm
sem þeir Skinfaxamenn nefiia
„lyggjuna". Þá er fóiki ráðlagt að
setja vamir í „ieggönd" undir
ákveðnum kringumstæðum. Það
sem þó ber hæst er væntanlega
simi í leggöngum sem fellur undir
skilgreininguna „náttúrulegar að-
ferðir". Orðrétt segir: ...dagatalsað-
ferðin, breytingar á sími i leggöng-
um. Undir herlegheitunum öllum
tróna merki Flugmálastjómar og
Hjálparstofnunar kirkjunnar - með
þinni hjálp. Nú velta menn fyrir
sér hvort símavæðing þjóðarinnar
eigi sér engin takmörk.
Kviðsvið
ísfirðingum hefur að undanfömu
orðið tiðrætt um sviðahausa eftir
að stjómsýslu bæjarins var skipt
upp í einstök svið. Gísli Hjartarson,
ritstjóri Skut-
uls, hefúr við
mismikinn
fognuð haldið
úti skrifum í
bæjarblöðun-
um þar sem
hann uppnefn-
ir forstöðu-
menn hinna
ýtnsu sviða.
Nú mun Gisli
hafa bætt um
betur og kall-
ar undirstöðu bæjarapparatsins,
starfsfólkið á bæjarskrifstofunni,
sviðalappimar. Hina ýmsu fulltrúa
stjómsýslunnar, sem hvomgum
hópnum tilheyra, kallar hann svo
því virðulega nafiii kviðsviðin.
Umsjón: Róbert Róbertsson og
Reynir Traustason
Fréttir
Hættan á skjálfta upp á 5,5 ekki úr sögunni:
Ekki nogu oflugur
til að brjóta hús
- segir Ragnar Stefánsson jaröskjálftafræðingur
„Við höfúm haft áhyggjur af þvl
að í kjölfar þeirra hreyfinga sem
hafa verið á svæðinu við Ölkeldu-
háls gætu hreyfingamar færst í
sprungu til suðurs. Ef það gerist má
allt eins búast við skjálfta af stærð-
inni 5,5 á Richter en það er stærsti
skjálfti sem mælst hefur á þessu
svæði á þessari öld,“ segir Ragnar
Stefánsson jarðskjálftafræðingur
um skjálftavirknina sem verið hef-
ur við Ölkelduháls siðan um helgi.
Stærsti skjálftinn á svæðinu nú
varð rúmir 4 á Richter um kl. 11 á
laugardagskvöld og síðar um nótt-
ina varð annar aðeins minni. Rúm-
lega þúsund smáskjálftar urðu á
svæðinu á sunnudag, um 400 á
mánudag og enn færri í gær.
„Mér sýnist hafa dregið úr þessu
en það segir ekkert um það að hætt-
an á stærri skjáiftum sé liðin hjá.
Mesta virknin er suður af Hengils-
svæðinu, í átt til Þrengslanna.
Dragi menn línu frá Ölkelduhálsi,
þar sem mestu skjálftarnir hafa ver-
ið nú, og til suðsuðvesturs um Hell-
isheiði, þá lenda þeir suður í
Þrengslunum. Við höfum óttast að
svæðið þarna á milli kynni að
brotna í skjálfta og ef það gerist þá
sýna mælingar að við gætum fengið
skjálfta allt að 5,5 á Richter."
Ragnar segir að búast megi við
þessum stóru skjálfttnn í fjalllend-
inu þar sem byggð er lítil en Hjalla-
hverfið sé þó ekki nema um 5-10 km
austan við þetta svæði.
„Skjálfti af þessari stærðargráðu
myndi ekki valda neinum usla.
Þetta yrði vissulega óþægilegur
hristingur en hann myndi ekki
brjóta hús eða neitt slíkt. Það helsta
sem gæti gerst er að breytingar
yrðu á hverum og slíku, einhver
tímabundin röskun, en það er allt
og sumt,“ segir Ragnar Stefánsson
jarðskjálftafræðingur. -sv
íbúar í Ölfusinu rólegir:
Líklega oröin vön
skjálftunum
- segir Einey Þórarinsdóttir, húsfreyja á Bjarnastöðum
„Við höfum vissulega fundið fyrir
þessum skjálftum en þeir hafa ekki
haft nein áhrif á okkur nú frekar en
endranær. Við leggjumst óhrædd á
koddann á kvöldin og líklega erum
við bara orðin vön skjálftunum,“
segir Einey Þórarinsdóttir, hús-
freyja á Bjamastöðum í Hjallahverfi
í Ölfusi.
Einey segir enga ástæðu til þess
að vera að velta sér upp úr því þótt
jarðfræðingar segi að hugsanlega
geti skjálfti upp á 5,5 á Richter ein-
hvern tíma komið. Sagt sé jafnframt
að hús séu ekki í hættu vegna þess
og því sé ekki ástæða til þess að
hlaupa upp til handa og fóta yfir
einhverju sem aldrei verður.
„Það má kannski segja að ástæða
væri til að huga að lausamunum í
hillum en þar með er það líka talið
sem ég sæi ástæðu til að gera. Mér
finnst þó ekkert athugavert við það
þótt fólk hafi einhvern viðbúnað ef
þvi líður betur með það. Ég veit
hins vegar ekki um neinn hér í
kringum okkur sem lætur þetta
raska ró sinni,“ segir Einey Þórar-
insdóttir.
-sv
Barnaspítali Hringsins:
RS-tilvikum
fækkar verulega
„Tilfellum hefur ótvírætt fækk-
að og okkur sýnist þetta vera í
rénun. Það er með þetta eins og
annað sem sem er að ganga að
hrinan líður hjá. Það sem er þó
sérstakt nú er hve harður sjúk-
dómurinn hefur verið og hve
þungt hann hefur lagst á marga,"
segir Þórólfur Guðnason, læknir á
Barnaspítala Hringsins.
Þórólfur segir að óvenjumörg
böm á fyrsta ári hafi verið lögð
inn vegna RS-sjúkdómsins nú og
að ástandiö hafi varað lengur en
nokkru sinn, eða frá því í janúar.
Hann segfr að þótt tilfellum hafi
nú fækkað verulega sé ekki úti-
lokað að eitt og eitt skjóti upp
kollinum. -sv
Hverageröi
® Þoi
Selfoss
x____JL
0
rrrai
Menn óttast að jarðskjálfti,
5,5 á Richter, geti orðið á
þessu svæði í kjölfar hreyf-
inga undanfarinna daga.
Reykjavík
Jaröskjálftar:
Enginn viö-
búnaður í
Hveragerði
- segir bæjarstjórinn
„Það er enginn viðbúnaður í
gangi af okkar hálfu vegna þessara
jarðskjálfta nú. Hér hafa verið jarð-
hræringar nokkuð stöðugt frá 1994
og lengur ef út í það er farið. Við
vitum um það sem er að gerast en
sjáum ekki ástæðu til neinna að-
gerða, a.m.k. ekki miðað við óbreytt
ástand," segir Einar Mathiesen,
bæjarstjóri og formaður almanna-
vama í Hveragerði.
Einar segir fólk vissulega hafa
allan varann á, almannavama-
nefndin sé mjög virk og þar sé unn-
ið eftir ákveðnu skipulagi. Menn
yrðu þvi ekki gripnir í bólinu ef
eitthvað gerðist.
„Við höfum okkar upplýsingar
frá jarðskjálftafræðingum og höfum
ekki séð að neitt kalli á aðgerðir nú
frekar en áður þegar þessar
skjálftahrinur ganga yfir,“ segir
bæjarstjórinn.
-sv
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa
Frá og með 15. apríl 1997 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki
3. flokki
1. flokki
2. flokki
1. flokki
3. flokki
1. flokki
1. flokki
1. flokki
2. flokki
3. flokki
1991-21. útdráttur
1991 -18. útdráttur
1992 -17. útdráttur
1992 -16. útdráttur
1993- 12. útdráttur
1993 -10. útdráttur
1994- 9. útdráttur
1995- 6. útdráttur
1996- 3. útdráttur
1996- 3. útdráttur
1996- 3. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu,
miðvikudaginn 15. apríl.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja
frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á
Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
CHÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
|J HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • I08 REYKJAVlK • SlMI 569 6900