Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1997, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1997, Side 14
14 MIÐ VTKUDAGUR 16. APRÍL 1997 Qtgáfufélag: FRIÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfust|'óri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjón og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritsflóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoöarritstjóri: alAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir 550 5999 GRÆN númer. Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafraen útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritsbórn: dvritst@centrum.is - Augtýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, slmi: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverö 150 kr. m. vsk., Helgarblaö 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins i stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds. Róttækt og rökrétt Tímaritið Economist hefur löngum skrifað skynsam- lega um efiiahagsmál, þar á meðal um stjórnkerfi sjávar- útvegs. Blaðið hefúr auðvitað mælt með sölu veiðileyfa eins og flestir firæðimenn, sem fiallað hafa um málið hér á landi, en sérstaklega þó bent á uppboð veiðileyfa. Einn ritstjóra blaðsins og höfundur tveggja bóka um umhverfismál, Frances Caimcross, var hér á landi fyrir helgina í boði umhverfisráðuneytis og Verzlunarráðs. Hún flutti erindi á föstudaginn og bætti sínu lóði á vog- arskál stuðnings við sölu veiðileyfa í sjávarútvegi. Margir hafa lengi mælt með sölu veiðileyfa, en talað fyrir daufum eyrum pólitískra ráðamanna, enda eru miklir hagsmunir í húfi. Til skamms tíma var almenn- ingur fremur áhugalaus um fremur fræðilega umræðu málsins, en hefur þó rumskað á síðustu mánuðum. Sumir forustumenn í sjávarútvegi hafa áttað sig á hngarfarshreytingunni og vilja koma til móts við hana í tæka tíð, áður en almenningur snýst beinlínis gegn hags- munum útgerðarinnar. Aðrir hanga fastir á sínu roði og munu enn um sinn ráða ferð samtaka útgerðarinnar. Krafan um sölu veiðileyfa er komin í flokk málefiia, sem njóta víðtæks stuðnings í þjóðfélaginu, þvert á flokkakerfið í landinu, án þess að stóru stjóramálaflokk- amir hafi tekið við sér. Hugsanlega er að myndast jarð- vegur fyrir nýjan flokk utan um þessi nýju mál. Það er til dæmis ærið verkefni fyrir nýjan stjórnmála- flokk að berjast fyrir sölu veiðileyfa í sjávarútvegi og af- námi ríkisafskipta af hefðbundnum landbúnaði, svo að tvö veigamestu dæmin séu nefiid. Markhópar fylgis- manna ættu alténd að vera nógu fjölmennir. Mikilvægur þáttur sinnaskipta fólks felst í, að fólk í sjávarplássum hefúr áttað sig á, að kvótakerfið vemdar ekki hagsmuni byggðarlaga. Kvótar eru á fleygiferð milli sveitarfélaga og landshluta. Fyrirtæki gleypa hvert ann- að í stórum stíl og útgerðarmenn festa fe í útlöndum. Tökum Eskifiörð sem daemi. Þegar AIli ríki hættir að gera út og erfingjar fara að hugsa um fiármál sín, fer eignarhald í sjávarútvegi á Eskifirði á tvist og bast. Einn góðan veðurdag situr Eskifiörður uppi með engan Alla og engan kvóta og algert hrun í atvinnulífinu. Ríkisvaldið getur með góðri samvizku selt veiðileyfi. Það er höfúndur allrar velgengni í sjávarútvegi. Ef það hefði ekki skammtað aðgang að fiskimiðum, væri afli mjög rýr og afkoma sjávarútvegs hörmuleg. Með skömmtun hefúr ríkið nánast framleitt auðlindina. Eina leiðin til að meta sannvirði leigunnar fyrir að- gang að takmarkaðri auðlind er að bjóða hana út og sjá, hvað markaðurinn vill borga fyrir hana. Þetta er ein helzta grundvallarregla markaðshagkerfisins og gildir fyrir sjávarútveg eins og aðrar athafiiir. Þaö væri meira að segja hægt að leyfa útlendum aðil- um að bjóða í veiðileyfi, svo framarlega sem afla sé land- að á íslenzka fiskmarkaði. Með leigugjaldi útlending- anna hefði þjóðfélagið allan arð sinn af auðlindinni á hreinu, áður en nokkurt veiðarfæri er bleytt í sjó. Alþjóðlegt uppboð veiðileyfa ryður úr vegi einu hindr- un þess, að við getum tekið þátt í Evrópusambandinu og notið margvíslegra hagsmuna þess og fiíðinda til fulls. Sá ávinningur bætist við arðinn af markaðsvæðingu sjávarútvegs og eflir framtíðarhagsmuni þjóðarinnar. Margir eiga vafalaust erfitt með að sætta sig við svo róttæka útfærslu á sölu veiðileyfa. En hún er samt ein- mitt rökréttasta niðurstaðan af forsendum málsins. Jónas Kristjánsson „Opinberir grinistar veröa alltaf afi fara mefi gát,“ segir Hjalti m.a. í grein sinni. - Spaugstofumenn mefi hýrri há. Grín eða guðlast? Enn ein stöðin er löngu orðin stofiiun í samfélaginu. Hlutverk hennar er að sýna hina hliöina á okkar daglega streði. Án skrum- skælingar yrði alvaran í hinu opna samfélagi of yfirþyrmandi, við myndum slævast, glata dóm- greind bæði á það sem miður fer og hitt sem okkur er kært. Ofnotaðar hugmyndir Stöðin fellur þó misvel í kramið. Stundum tekst höftmdunum ein- faldlega ekki nógu vel upp. Stund; um erum við viðkvæm fyrir því sem við sjáum. Stundum eru hug- myndir ofnotaðar. Ef til vill var það einmitt það sem gerðist laug- ardaginn fyrir páska. Helsti vandi stöðvarinnar er þó ef til vill að skilaboðin eru ekki alltaf nægilega skýr. Við sjáum ekki hvort um grín eða gagnrýni er að ræða. Opinberir grínistar verða alltaf að fara með gát. Gagnrýnendur sem beita húmor verða hins vegar að halda sig á ystu nöf. Annars missa þeir marks. Þeir verða að ögra, taka áhættu og vera óhræddir við af- leiðingamar. Trúverðugleiki þeirra og réttlæting felst þó í þvi að alltaf sé ljóst hvað þeir eru að gagnrýna og fyrir hvað. Hvar stirðnar hláturinn? En víkjum þá að „páskafrétt- um“ Stöðvarinnar. Hvað var um að vera? Grín, gagnrýni eöa jafii- vel guðlast? Þeirri spumingu verð- ur hver að svara fyrir sig og svo auðvitað hið opinbera réttarkerfi ef tilefiii reynist til slíkrar rann- sóknar. Hver svo sem niðurstaðan verður vakti þátturinn umræðu og áleitnar spumingar sem allir hafa gott af að glíma við: Hvað er okk- ur heilagt? Hvar stirönar hlátuiinn og hvenær tekur sársaukinn við? Hér er ekki mn nein algild mörk að ræða. Hið heilaga veröur ekki skilgreint í eitt skipti fyrir okkur öll. Þar ráða tilfinningar, jiersónugerð, lífs- reynsla og gildis- mat of miklu. Alla þessa þætti verð- um við að virða, hvort sem um til- „Guölast merkir óvirðingarum- mæfí um guö og sögnin að guö- lasta þýöir aö hafa guö aö spotti. Hér or þaö guödómurinn sjálfur sem er I brennipunkti. “ Kjallarínn Hjalti Hugason prófessor fiimingar og reynslu okkar eða annarra er að ræða. Þess vegna er kveðið á um guðlast í lögum. Ákvæðinu er ætlað að standa vörð um tilfinningar. Gu&löstunarhugtakið Guðlöstunarhugtakið hefur ann- ars tekið athyglisverðmn breyting- um í gegnmn tíðina. Orðið er gagnsætt og orðabókarmerking þess skýr. Guðlast merkir óvirð- ingarummæli um guð og sögnin að guðlasta þýðir að hafa guð að spotti. Hér er það því guðdómur- inn sjálfur sem er í brennipunkti. Svo algild viðmiðim virðist rúmast illa í lögum fjölhyggju- samfélags þar sem trú- frelsi ríkir. Af þeim sökum hefur hugtakið fengið þrengri merkingu og nær nú einkum yfir háð og spott mn trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegra trúarbragðafélaga sem starfa hér á landi. Með þessu er þung ábyrgð lögð á trúfélög og for- ystmnenn þeirra þar sem þeir hljóta að meta hversu langt má ganga gagnvart þeim helgu dómum sem þeim er trúað fyrir. Skilgreini þeir þessi mörk of þröngt verða þeir ásakaðir fyrir metnaðarleysi og glata trúverðug- leika í augum „sa£naðarbama“ sinna. Skilgreini þeir mörkin hins vegar of vitt rekast vamarviðbrögð þeirra fyrr eða síðar á við tjáningarfrelsið. Af tvennu illu er fyrri villan betri. Hún skapar vanda sem mögulegt er að leysa með mál- efhalegri umræðu. Sú síðari getur aftur á móti leitt til mannrétt- indabrota. Gleymum svo ekki að glíman um hin leyfilegu mörk á þessu sviði em ekki ný af nálinni. Marg- ar faríseasögur guðspjallanna fjalla einmitt um slík átök. Hjalti Hugason Skoðanir annarra Þögnin mikia i lífeyrismálum „Það undarlega viö „bestu lifeyrissjóði í heimi“ er, að þeir greiða einhvem lélegasta lifeyri sem um getur í sæmilega efnuðum velferðarríkjum. Lifeyris- greiðslur hefjast ekki fyrr en sjóðfelagar em orðnir sjötugir. Sama þótt þeir séu búnir að greiða í þrjá til fjóra áratugi til sjóðanna. Þetta mun heimsmet sem hvergi er slegið. Að vísu er hægt að fa lífeyrinn eitt- hvað fyrr, en þá með afarkostum og upptöku fjár- muna. Um svona smámuni geta þeir aldrei sem em að hælast um fjármálastjóm sína og hve vel þeim hefur tekist að ávaxta sín privat pund.“ OÓ í Degi-Timanum 15. apríl. Kjaramál farmanna „Hugmyndir um, aö ríkissjóður greiði niður laun farmanna á islenska kaupskipaflotanum, til þess að skipafélögin ráði fremur til starfa islenska farmenn, er fráleit ...Stjómvöld eiga ekki að hafa afskipti af kjaramáium farmanna með þvi að hefja niður- greiðslur á laun þefrra, svo skipafélögin ráði fremur til sin íslenska famenn. Kjaramál farmanna em þeirra mál og skipafélaganna og kalla ekki á nein af- skipti framkvæmda- eða löggjafarvaldsins." Úr forystugrein Mbl. 15. apríl. Dánarbætur, smánarbætur „Kona sem bjó við tiltölulega gott fjárhagslegt at- læti stendur í vetfangi uppi slypp og snauð ...Þetta mál vekur fjölmargar spumingar: Að því er dánar- bætumar varðar hljóta menn að velta fyrir sér, hvað valdi hinum furðulega lágu bótagreiðslum? Hvemig stendur líka á því, að varðskipsmenn hafa margfalt verri tryggingar en björgunarmenn í landi? Hvar er sómakennd ríkisvaldsins í þessu máli - ætlar það aö láta lúsarbætur til ekkjunnar verða einu aðstoð þess við fjölskyldu, sem fómfýsi og hefjulund fyrfrvinn- unnar leiddi til þessarar erfiðu stöðu?“ Úr forystugrein Alþ.bl. 15. apríl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.