Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1997, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1997, Qupperneq 26
42 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1997 Afmæli____________________ Guðný Guðlaugsdóttir Guðný Guðlaugsdóttir, fyrrv. hót- elstýra í Tryggvaskála og verslun- arkona í Reykjavík, til heimilis að Safamýri 40, nú vistmaður að Sól- vangi í Hafnarfirði, verður áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Guðný fæddist að Götu í Holtum en flutti eins árs með foreldrum sínum að Vatnsnesi í Grímsnesi þar sem hún ólst upp fram að ferm- ingu er fjölskyldan flutti að Tryggvaskála á Selfossi. Guðný lærði kjólasaum í Reykjavík. Hún starfaði við Tryggvaskála og tók síðan við rekstri hans við lát föður síns 1939. Er Guðný gifti sig varð hún hús- móðir í Reykjavík en eftir lát manns síns varð hún matráðskona á Mjólkurbamum og stundaði síðan verslunarstörf, fyrst á Týsgötu 1, síðan hjá KRON og loks í Exeter. Fjölskylda Guðný giftist 6.10. 1934 Karli I. Jónassyni, f. 15.6.1900, d. 18.10.1952, stöðvarstjóra hjá Bifreiðastöð Stein- dórs og einum af stofnendum Karla- kórs Reykjavikur. Hann var sönur Jónasar, b. og smiðs í Litla-Skarði í Stafholtstungum, og k.h., Ingibjarg- ar Loftsdóttur, skálds og húsfreyju. Böm Guðnýjar og Karls era Guðríður, f. 24.4. 1938, kennari við Flensborg í Hafnarflrði, gift Árna Ros- enkjær rafvirkjameistara og eiga þau fjögur böm; Guðlaugur Tryggvi, f. 9.9. 1943, hagfræðingur og full- trúi við aðalskrifstofu HÍ, kvæntur Vigdísi Bjarna- dóttur, deildarstjóra á skrifstofu forseta íslands, og eiga þau tvö börn, auk þess sem hann á tvo syni frá fyrra hjónabandi. Systur Guðnýjar: Guðrún, f. 1.4. 1911, d. 11.8. 1986, húsmóðir á Sel- fossi; Guðríður, f. 16.4. 1912, d. 13.2. 1991, húsmóðir í Reykjavík; Bryn- dís, f. 22.9.1918, húsmóðir á Selfossi; Guðbjörg, f. 22.9. 1918, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Guðnýjar voru Guð- laugur Þórðarson, f. 17.2. 1879, d. 30.7. 1939, hótelstjóri í Tryggvaskála, organisti og fyrsti formaður UMFS, og k.h., Guðríður Eyjólfsdóttir, f. 16.9. 1884, d. 9.4. 1948, húsfreyja á Selfossi. Ætt Guðlaugur var sonur Þórðar, b. á Hellum á Landi, hróður Vilborgar, langömmu Þorgerðar Ingólfsdóttur söngstjóra. Þórður var sonur Guðlaugs, b. á Hellum, Þórðarsonar, b. á Hellum, Stefánssonar, á Bjalla á Landi, bróður Rannveigar Filippus- dóttur, ættmóður Waageættar, Geirs Haar- de og Matthíasar Mat- hiesens, og bróður Jóns á Brekkum, afa Sólveig- ar, ömmu Ásgeirs for- seta. Móðir Þórðar yngri var Vil- borg Einarsdóttir, b. á Hólum á Stokkseyri, Jónssonar. Móðir Ein- ars var Margrét Sigurðardóttir, b. í Vorsabæ í Flóa, systur Bjama Sí- vertsen riddara, forfoður Gunnars Bjarnasonar hrossaræktarráðu- nautar og Jónasar Kristjánssonar ritstjóra. Móðir Guðlaugs var Guðrún, systir Sæmundar, afa Guðrúnar Er- lendsdóttur hæstaréttardómara. Guðrún var dóttir Sæmundar, b. í Lækjarbotnum, ættfóður Lækjar- botnaættarinnar, Guðbrandssonar, bróður Sigurðar, langafa Guðmund- ar Danielssonar rithöfundar. Guðríður var dóttir Eyjólfs, landshöfðingja í Hvammi á Landi, Guðmundssonar, afa Eyjólfs Ágúst- sonar í Hvammi og afkomanda Markúsar Bergssonar, sýslumanns í Ögri, forfoður Jóns Baldvins Hanni- balssonar og Jóhannesar Nordals. Móðir Eyjólfs var Guðríður Jóns- dóttir, b. í Gunnarsholti, Jónssonar. Móðir Jóns var Guðríður Árnadótt- ir, prests í Steinsholti, Högnasonar, „prestafóður" Sigurðssonar, forfóð- ur Vigdísar forseta, Þorsteins Er- lingssonar, Tómasar Sæmundsson- ar, Gylfa Þ. Gíslasonar, Matthíasar Johannessens ritstjóra og Halldórs. Blöndals ráðherra. Móðir Guðríðar var Guðbjörg, systir Guðna, afa Guðna Kristinssonar á Skarði. Guð- björg var dóttir Jóns, b. á Skarði á Landi, Ámasonar, b. á Galtafelli, Finnbogasonar, fóðurbróður Jó- hanns, langafa Þórðar Friðjónsson- ar. Móðir Guðbjargar var Guðrún Kolbeinsdóttir, b. á Skarði, Eiríks- sonar, ættföður Reykjaættar, Vig- fússonar. Móðir Guðrúnar á Reykj- um var Amdís Jónsdóttir frá Gils- bakka, systir Sigríðar, móður Gunn- laugs Briem á Grund, afa Tryggva Gunnarssonar bankastjóra, langafa Hannesar Hafsteins og forfóður for- sætisráherranna, Jóhanns Haf- steins, Gunnars Thoroddsens og Davíðs Oddssonar. Móðir Guðrúnar á Skarði var Solveig Vigfúsdóttir, af Fjallsætt, þeirra Tryggva Ófeigsson- ar og Jóns Bjama óperusöngvara. Guöný Guðlaugsdóttir. Gísli Víðir Gísli Víðir Björnsson húsasmíðameistari, Hlíðar- stíg 2, Sauðárkróki, er fimmtugur í dag. Starfsferill Gisli fæddist á Sauðár- króki en ólst upp í Fram- nesi í Blönduhlíð í Skaga- firði. Hann lauk gagnfræða- prófl frá Héraðsskólanum á Laugum í Suður-Þingeyjar- sýslu 1965, lauk prófum frá Iðnskólanum á Sauðárkróki 1969, lærði húsasmíði hjá ísak Árnasyni, húsasmiðameistara á Sauðárkróki, lauk sveinsprófi 1974 pg fékk meistararéttindi 1977. Gísli hefur stundaði húsasmíðar frá því hann öðlaðist meistarcU'étt- indi og jafnan unnið sjálfstætt. Hann hefur lengi verið með bygg- ingarflokk hjá bændum víða um sveitir Skagafjarðar. Þá stundaði hann jafnframt vertíðir í Vest- mannaeyjum á ámnum 1967-84 og var tímabundið í fisk- vinnslu á Sauðárkróki nokkra vetur eftir það. Gisli hefur einnig verið lausamaður hjá Sögufé- lagi Skagfirðinga sl. fjóra vetur við þátta- skrif og fleira. Fjölskylda Gísli kvæntist 16.4.1997 Hallfríði Hönnu Ágústs- dóttur, f. 29.7. 1946, iðn- verkakonu og húsmóð- ur. Hún er dóttir Ágústs Guðmundssonar og Sigur- laugar Andrésdóttur, fyrrv. bænda að Kálfárdal í Gönguskörðum. Sonur Hallfríðar og Haralds Tyrf- ingssonar flugvélstjóra er Úlfar Ingi Haraldsson, f. 7.11. 1966, tónlistar- maður við nám í San Diegó í Kali- fomíu. Systkini Gísla eru Sigtryggur Jón, f. 4.1. 1938, kennari á Hvann- eyri, búsettur í Varmahlíð í Skaga- Gísli Víðir Björnsson. Björnsson firði; Broddi Skagfjörð, f. 19.7. 1939, oddviti í Framnesi í Blönduhlíð í Skagafirði; Sigurður Hreinn, f. 16.5. 1941, kennari við Nesjaskóla í Homafirði; Sigurlaug Una, f. 25.2. 1943, húsmóðir og verkakona í Varmahlíð í Skagafirði; Helga Björk, f. 7.11. 1944, húsmóðir og for- stjóri í Hveragerði; Ingimar Birgis, f. 1.3. 1950, húsasmíðameistari á Sauðárkróki; Valdimar Reynir, f. 15.10. 1951. Foreldrar Gísla: Bjöm Sigtryggs- son, f. 14.5. 1901, fyrrv. bóndi á Framnesi í Blönduhlíð, og k.h., Þur- íður Jónsdóttir, f. 10.3. 1907, fyrrv. húsfreyja á Framnesi, nú hjá dóttur sinni í Varmahlíð. Ætt Björn er sonur Sigtryggs, b. í Framnesi, Jónatanssonar, b. í Litla- Árskógi og síðar á Reykjahóli í Fljótum, Ögmundssonar, b. á Efri- Vindheimum í Eyjafirði, Ólafsson- ar, b. á Kálfskinni. Móðir Sigtryggs var Hólmfríður Gunnlaugsdóttir frá Gröf á Höfðaströnd Þorvaldssonar. Móðir Björns var Sigurlaug Jó- hannesdóttir, hreppstjóra á Dýrf- innustöðum, Þorkelssonar, b. á Svaðastööum, Jónssonar. Móðir Sig- urlaugar var Kristín Jónsdóttir, b. í Framnesi, Jónssonar og Rannveig- ar, systur Gyðríðar, móður Stefáns Stephensens, prófasts í Vatnsfirði, langafa framkvæmdastjóranna Bents og Davíðs Schevings Thor- steinsson. Hálfsystir Rannveigar var Þuríður, langamma Vigdísar forseta. Rannveig var dóttir Þor- valds, prests og skálds í Holti, Böðv- arssonar, prests í Holtaþingum, bróður Árna, prests í Steinnesi, föð- ur Guðríðar í Gunnarsholti, langömmu Eyjólfs landshöfðinga, langafa Guðlaugs Tryggva hagfræð- ings. Þuríður, móðir Gisla, er dóttir Jóns ríka á Flugumýri Jónassonar og Sigríðar Guðmundsdóttm: frá Gröf í Laxárdal í Dalasýslu. Smáauglýsinga deild DV er opin: • virka daga kl, 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl, 16-22 Skilafrestur smáauglýsinga er fyrir kl. 22 kvölaið fyrir birtingu, Attl. Smáauglýsing í Helgarblað DV verður þó að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag. aW mil/i himin. Smáauglýsingar 550 5000 Ágústa Jóhanna Hafberg Ágústa Jóhanna Haf- berg bankastarfsmaður, Þinghólsbraut 29, Kópa- vogi, varð sextug á mánudaginn. Starfsferill / Ágústa fæddist á Flat- /eyri og ólst þar upp. Hún lauk þar grunnskólanámi og stundaði síðan nám við húsmæðraskóla. Ágústa starfaði hjá Pósti og síma í sautján ár Ágústa Jóhanna Hafberg. en starfar nú hjá íslands- banka og hefur verið bankastarfsmaður í rúm- an áratug. Fjölskylda Ágústa giftist 7.8. 1904 Ól- afi Guðmundssyni, f. 11.5. 1934, málarameistara. Hann er sonur Guðmund- ar Jónssonar, skósmiðs á Selfossi, og Jóhanne ÓMsdóttur húsmóður. Börn Ágústu og Ólafs eru Vilberg F. Ólafsson, f. 4.4. 1967, mál- arameistari í Kópavogi, en dóttir hans er Ema Margrét; Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir, f. 17.4. 1968, málari, en dóttir hennar er Guðlaug Sunna. Systkini Ágústu eru Einar Haf- berg, f. 8.8. 1919, nú látinn; Ágúst Hafberg, f. 31.7.1927; Þorvaldur Haf- berg, f. 19.7.1932; Sveinn Hafberg, f. 21.4. 1934; Ingibjörg Hafberg, f. 14.8. 1935. Foreldrai' Ágústu: Friðrik Haf- berg, kafari á Flateyri, og Vilborg Hafberg húsmóðir. Askrifendur fá aukaafslátt af smáauglýsingum DV o\\t mili/ hirrn^ 9. % Smáauglýsingar Tll hamingju með afmælið 16. apríl 85 ára Sigurjón Jónsson, Kleppsvegi 118, Reykjavík. 80 ára Guðný Stefánsdóttir, Hjúkrunarheimilinu Eir við Gagnveg, Reykjavík. Jóhann Jónsson, Dalsgarði 2, Mosfellsbæ. Magndis Guðjónsdóttir, Ásabraut 12, Keflavík. 75 ára Jóhannes Haraldsson, Viðilundi 10A, Akureyri. 70 ára Kristín Jakobsdóttir, Kirkjuteigi 11, Keflavik. 60 ára Sigurjón Helgason, Háaleitisbraut 18; Reykjavík. Turid Helene Otterstad Gamst, Garðastræti 40, Reykjavík. Jean S.T. Leifsson, Kríuhólum 4, Reykjavík. Hlíf Steinsdóttir, Hreðavatnsskála, Borgar- byggð. 50 ára Haukur Amar Gíslason, matsfulltrúi og organisti, Þrastarrima 4, Selfossi, verður fimm- tugur á morg- un. Kona hans er Kristín Pét- ursdóttir þjónustufull- trúi. Þau hjónin taka á móti gest- um að heimili sínu að morgni afmælisdagsins frá kl. 7.00-12.00. Sigurrós Þorgrímsdóttir, Löngubrekku 3, Kópavogi. Erna Sigurðardóttir, Stakkanesi 2, Isafirði. Aðalheiður Kjartansdóttir, Víkurási 1, Reykjavík. 40 ára Elías Hafsteinsson, Oddabraut 9, Þorlákshöfn. Geirþrúður Pálsdóttir, Safamýri 34, Reykjavík. Ásmundur Hafsteinsson, Kaplaskjólsvegi 64, Reykjavík. Ólafur Tryggvason, Miðvangi 41, Hafnarfirði. Jón Óskar Ferdinandsson, Lynghrauni 3, Skútustaða- hreppi. Ólafur Bragason, Seljavogi 4, Höfnum. Kristján Tryggvi Snorrason, Kársnesbraut 23, Kópavogi. Valur Stefánsson, Sólvöllum 12A, Egilsstöðum. Steinunn Þórdis Maríus- dóttir, Bæjargili 25, Garðabæ. Guðrún A. Kristjánsdóttir, Ljósvallagötu 18, Reykjavík. Ragnheiður Viglundsdóttir, Heiðarvegi 44, Vestmannaeyj- um. Erla Karlsdóttir, Setbergi 35A, Hveragerði. Sigríður Gísladóttir, Lindasmára 57, Kópavogi. Þórunn Ámadóttir, Leiðhömrum 8, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.