Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1997 3D"V 18 tónlist ** * ísland 1-3(4) Stoosh Skunk Anansie 1-3(2) Dig Your Own Hole Chemical Brothers 1-3(1 ) Pottþétt7 Ymsir 4. ( 3 ) Polydistortion Gus Gus 5. ( 7 ) Evita Ur kvikmynd 6. (19) Falling into You Celine Dion 7. ( 5 ) Romeo &Juliet Úr kvikmynd 8. ( 8 ) Spice Spice Girls 9. (12) Homework Daft Punk 10. ( 6 ) Pop U2 11. (9) Blur Blur 12. (13) Tragic Kingdom No Doubt 13. (14) Secrets Toni Braxton 14. (- ) Paranoid & Sunburnt Skunk Anansie 15. (- ) Uve in Paris Celine Dion 16. (- ) Ultra Depeche Mode 17. (11) Space Jam Úr kvikmynd 18. (10) Boatmans Call Nick Cave 19. (Al) í,Álftagerði Alftagerðisbræður 20. (16) Grammy Nominees 1997 Ýmsir London ——-lög- | 1. (1 ) Believe I Can Fly ‘ R. Kelly t 2. ( - ) Old before I Die Robbie Williams f 3. (- ) Staring at the Sun U2 t 4. ( 4 ) Bellissima DJ Quicksilver f 5. (- ) Around the World Daft Punk t 6. (- ) Don’t Leave Me Blackstreet f 7. ( 7 ) You Might Need Somebody Shola Ama t 8. (- ) You Showed Me Lightning Seeds | 9. ( 5 ) Ready or not The Course t 10. (- ) Reverence Faithless NewYork -lög- 1. (1) Can't Nobody Hold Me down Puff Daddy 2. (-) Hypnotize The Notorious B.I.G. 3. ( 2 ) You Were Meant for Me Jewel 4. ( 4 ) For You I Will Monica 5. ( 3 ) Wannabe Spice Girls 6. ( 6 ) I Want You Savage Garden 7. (5) All by Myself Celine Dion 8. (- ) Return of the Mack Mark Morrison 9. (- ) Hard to Say l'm Sorry AZYet 10. (- ) Where Have All the Cowboys... Paula Cole Bretland -plötur og diskar— 1. ( -) Ultra Depeche Mode 2. ( 2 ) Spice Spice Girls 3. ( -) Mother Nature Calls Cast 4. ( 1 ) Dig Your Own Hole The Chemical Brothers 5. ( 4 ) White on Blonde Texas 6. ( 3 ) Ten WetWetWet 7. (10) Blur Blur 8. ( -) Share My World Mary J Blige 9. ( 5) Tragic Kingdom No Doubt 10. ( -) Come Find Yourself Fun Lovin' Criminals Bandaríkin — plötur og diskar— 1. ( 1 ) Life after Death The Notorious B.I.G. 2. ( 2 ) Spice Spice Girls 3. ( 3 ) Space Jam Soundtrack 4. ( 4 ) Falling Into You Celine Dion 5. ( 5 ) Bringing down the Horse The Wallflowers f 6. ( 6 ) Pieces of You Jewel f 7. ( 7 ) Selena Soundtrack I 8. (- ) Baduizm Erykah Badu 9. ( 9 ) Unchained Melody/The Early... Leann Rimes 10. (-) Another Level Blackstreet Það þarf heilmikið til að komast á toppinn með „instrumental" tónlist, eða tónlist án söngs. Hún þarf að vera taktföst, hröð og grípandi. Tónlist sem höfðar jafnt til þeirra sem hlusta á rokk og þeirra sem hlusta á danstónlist. Chemical Brothers tókst að skapa einmitt þetta þegar þeir gáfu út sína fyrstu breiðskífu árið 1995. Hún kall- aðist Exit Planet Dust. Tveimur árum síðar er lagið Setting Sun farið að hljóma mjög víða, fyrsta smáskífan af annarri plötu sveitarinnar. Breiðskífan er nýkomin í verslanir og heitir Dig You Own Hole (óbein þýðing gæti verið = Grafðu þína eigin gröf, en enskumælandi íslendingar eru þegar það margir að þýðinga sem þessara er vart þörf lengur). Tökum dæmi um blöndu af velgengni: Gott væri að fá tvo stráka úr skóla í Manchester, helst þá Tom Rowlands og Ed Simons, báðir þyrftu þeir að flla hip hop, acid jazz, house, techno og kolruglað amerískt rokk og ról. Útkoman væri Chemical Brothers. Byrjuðu sem plötusnúðar Þeir byrjuðu að vísu sem plötusnúðar í partý- um Manchester sem Dust Brothers (sbr. Exit Planet Dust). Fyrsta tólftomman þeirra var gefln út af Junior Boyz Own eftir að hafa fyrst komið út hjá lítt þekktu plötu- fyrirtæki (ekki það að JBO sé í hópi með EMI og Warner, en það er stórt í heimi danstónlistarinnar). Lagið hét Song To The Siren og JBO útgáfan hafði að geyma eitt klikkaðasta mixið með Sabres Of Paradise. Næsta skref bræðranna var endurhljóð- blandanir. Þeir tóku aö sér endurhljóð- blandanir fyrir Leftfield, Primal Scream, Manic Street Preachers o.fl. við góðar undirtektir. Fyrsta breiðskífan kom síðan út hjá Virgin (aðeins stærra en JBO) í maí árið 1995 og fékk feiknagóðar undirtektir. Chemical Brothers slógu síðan í gegn á hátíðum Evrópu það sumar og hafa haft í nógu að snúast síðan. Þeir hafa meira að segja tekið hljómsveitir eins og Daft Punk upp á sína arma og eru að hluta til ábyrg- ir fyrir velgengni frönsku strákanna. Það er broddur í tónlist bræðranna ... grafðu þína eigin ... GBG Félagarnir í Chemical Brothers hafa slegið rækilega í gegn með nýju plötunni sinni, Dig Your Own Hole. K ♦ Aðalsmerki hljómsveitarinnar Kukls var að ferðast um Evrópu í litlum sendiferðabíl til tónleika- halds - Amsterdam, Rotterdam, Berlín, London; barir, knæpur, stór- ir staðir, litlir staðir, Hróarskelda, kaldur klakinn. Allir þessir staðir voru hluti af raunveruleika liðs- manna Kuklsins, hljómsveitar sem var stofnuð á íslandi árið 1983. Liðs- menn Kuklsins voru: Guð Krist (raf- strengjaleikari), Birgir Mogensen bassaleikari, Einar Melax sem spil- aði á DX7 og píanó, Sigtryggur Bald- ursson trommuleikari, Einar Öm, trompetleikari og söngvari, og söng- konan heimsfræga, Björk. Ráttur einstaklingsins... ...til að vera hann/hún sjálfur var baráttuefni Kuklsins. Annar konsert Kuklsins var „Við krefj- umst framtiðar" árið 1983. Þar spil- aði sveitin ásamt Crass sem síðar bauð Einari (stúdent i London) út- gáfu á efni Kuklsins á eigin merki. Fyrir þá sem ekki þekkja til pönks- ins má segja að hljómsveitin Crass hafl staðið og standi enn fyrir þeim hugsjónum sem vom taldar upp hér að framan. Kukl var stofnað upp úr Þey, Purrki Pillnikk, Van Houtens Kókó og Tappa tíkarrassi og spilaði ofur- þunga tónlist. Hljómsveitin þáði útgáfutilboð Crass og snemma árs 1984 kom The Eye (Augað) út jafnt hérlendis og erlendis. Kuklið fékk fina dóma í tónlistartímaritum eins og NME og Sounds. Sama ár fór hljómsveitin í tónleikaferð til styrktar námaverkamönnum í Englandi ásamt Flux of Pink Indi- ans, Chumbawamba, D&V og fleiri hljómsveitum og við tók Evróputúr- inn ógurlegi - í litlum sendibíl var henst frá París til Óslóar á einni nóttu. Vegalengdir skiptu hljóm- sveitina litlu máli þegar tónleikar vom annars vegar. Tvær plötur á sama ári Platan Holidays in Europe kom út síðar sama ár, hjá sama útgáfu- fyrirtæki. Gegnumgangandi hug- sjónin var að festast ekki í neinu Hver man ekki eftir Kuklurunum? formi, kukla í hinu og þessu og þannig var hljómsveitin allan sinn feril, allt til ársins 1986. Á þessum þremur árum var Einar staddur er- lendis við nám og því var Kuklið ekki starfrækt allan ársins hring en vinnan var mögnuð og að tónlistar- sköpuninni var unnið hörðum höndum. Þegar Sykurmolamir vora stofnaðir árið 1986 var gagngert ákveðið að hafa þá í algjörri mót- stöðu við þyngsli Kuklsins, líka til að sýna að liðsmenn sveitarinnar gætu eitthvað fleira. DV sagði um tónleika- haldið: Þann 26. nóv. árið 1983 var skrif- að í DV: Ég er gersamlega orðlaus. Þessum tónleikum verður ekki lýst með orðum. Þeir sem upplifðu þá munu hins vegar geyma þá alla sína ævi. 17. sept. sama ár: Ný útgáfa af rokktónlist, öðmvísi en nokkuð sem ég heyrt áður. Hverjum þeim sem hlustar á tón- list Kuklsins verður það ljóst að tón- listarsköpun sem þessi verður ekki endurtekin. Hópur sem þessi kemur aðeins saman einu sinni á ævinni, pönktímabilið er búið. Þó Kuklið hafi verið uppi á þvf tímabili er tón- listin ristir mun dýpra en t.d. tón- list Sex Pistols (sem er líklega hvað frægust pönksveita þrátt fyrir skammlífi). Hvers vegna... ... þessi grein um Kuklið núna? Það er von þú spyrjir. Tilefnið er endurútgáfa Crass á báðum plötum Kuklsins, The Eye og Holidays in Europe. Plöturnar hafa aldrei verið til á geislaplötu og vínyllinn klárað- ist fyrir einhverjum árum. Plötum- ar era sérstaklega fyrir þá sem eru búnir að gegnspila vínylinn sinn og einnig fyrir þá sem vilja upplifa þessa ólýsanlegu stemningu sem er sagt frá hér á undan. Það má segja að þessar tvær plöt- ur hafi að geyma einhverja þá sér- stæðustu tónlistarsköpun sem kom- ið hefur frá hópi íslenskra tónlistar- manna. Tónlistin er þung og alls ekki auðmelt en Einar segir: Ég er aðeins búinn að hlusta á Holidays in Europe og hún stenst alveg tím- ans tönn. Þetta er frábær plata. Ég er ekki búinn að hlusta á The Eye en ég býst við þvi sama frá þeirri plötu. Svo skemmir náttúrlega ekki fyr- ir að hin heimsfræga Björk syngur á plötunum. Það er til heilmikið af söfnuram í þessum brjálaða heimi, ert þú einn af þeim? -GBG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.