Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Page 5
FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1997
i$jínlistls
Hætlir eftir 12 ár:
t
Soundgarden eru hættir eftir 12 ára samstarf. Þegar í fyrra voru komnar af staö sögusagnir um innri vandamál í
hljómsveitinni, mestmegnis vegna bassaleikarans Shepherd. Meðlimir sveitarinnar bera þetta af sér og segja aö timi
hafi verið kominn til aö reyna eitthvaö nýtt.
Eftir tólf ár og fimm plötur hefur
hljómsveitin Soundgarden ákveðið
að hætta samstarfi og sinna „öðrum
áhugamálum" eins og segir í ffétta-
tilkynningu frá 10. apríl síðastliðn-
um. Þetta kemur eins og reiðarslag
fyrir aðdáendur sveitarinnar, sér-
staklega þegar þess er minnst að að-
eins eru þrjú ár síðan Soundgarden,
Pearl Jam og Alice in Chains voru
efstar á plötulistum í Bandaríkjun-
um í hámæli Grunge-æðisins.
Soundgarden sem skipuð er þeim
Chris Comell, söngvara og gítar-
leikara, Ben Shepherd bassaleikara,
Kim Thayill gítarleikara og Matt
Cameron trommuleikara var stofh-
uð árið 1984 i Seattle í Bandaríkjun-
um, höfuðborg „Gmnge“- tónlistar-
stefiiunnar. Sveitin er ein af þremur
frægustu Grungesveitum sem koma
þaðan en hinar tvær em Nirvana og
Pearl Jam. Sveitin varð fyrst þeirra
þriggja til að gera samning við stórt
Aðal laga- og textasmiöir Sound-
garden, þeir Chris Cornell söngvari
og Kim Thayill gítarleikari.
útgáfufyrirtæki og slá í gegn á al-
þjóðlegum markaði. Það var þó ekki
fyrr en 1994 með plötunni
Superunknown að Soundgarden
slógu virkilega í gegn og gátu kall-
ast stórsveit. Platan fór í fyrsta sæti
á mörgum listum, seldist í fimm
milljónum eintaka út um allan heim
og lögin Black Hole Sun og Spoon-
man hlutu Grammy-verðlaun 1995. í
fyrra fylgdi Soundgarden síðan eftir
með plötunni Down on the Upside
sem lenti í öðm sæti á Billboard-
listanum og lagið Pretty Noose var
tilnefnt til Grammy-verðlauna. Lög-
in Blow Up The Outside og Burden
In My Hand fóra ofarlega á lista og
platan komst í platínusölumark.
Soundgarden
í framhjáhlaupi má geta þess að
Soundgarden er í raun nafn á lista-
verki sem stendur í almennings-
garði við Washingtonvatn og er
myndað af holum pípum sem fram-
leiða ólík hljóð þegar vindurinn
blæs í gegnum þær.
Endalokin
Þrátt fyrir fáorða fréttatilkynn-
ingu um endalok sveitarinnar vom
þegar komnar á kreik sögusagnir í
fyrra um slæmt samstarf hljóm-
sveitarmeðlima og þá aðallega
vegna bassaleikarans Shepherd sem
labbaði út af sviðinu á miðjum tón-
leikum Soundgarden í Honolulu í
desember í fyrra og lýsti því yfir í
síðasta mánuði að hann væri orð-
inn fastur meðlimur Seattlesveitar-
innar Devilhead. Þeir Chris Comell
og Kim Thayill hafa hins vegar sagt
að þeir væm komnir að tímamótum
í líftíma sveitarinnar. Þeir væm
búnir að afreka allt sem þeir ætluðu
sér með sveitinni og tími væri kom-
inn til að reyna eitthvað nýtt.
Tilraunir
Meðlimir Soundgarden em
reyndar búnir að reyna eitthvað
öðruvísi því þeir Cameron og
Shepherd stofnuðu ásamt vinum
sínum sveitina Hater árið 1993 og
gáfu út eina plötu. Shepherd kom
siðan einnig við sögu á nýjustu
plötu Prodigy. Stutt er síðan síðan
þeir Thayill og Cameron léku á
nýrri plötu Pigeonhead með þeim
Steve Fisk sem „pródúserar" Scr-
eaming Trees og söngvara Satchel,
Shawn Smith.
Tónlist og textar
Það sem fyrst kemur upp í hug-
ann þegar tónlist Soundgarden ber
á góma er „þeirra sánd“ sem
kannski er hægt að skilgreina sem
samblöndu af melódísku metal- og
punkrokki, frekar klassíska upp-
setningu hljóðfæra sem brotin er
niður með D- stillingu gítara ( stillt-
ir niður í D), flókna takta sem eru
frábærlega útfærðir að söngmelódí-
unni og þunglyndislegri tjáningu
þeirra Cornell í söng og textum og
Thayill sem náð hefur þessu per-
sónulega og ólíka sándi á gítarinn
sem allar hljómsveitir sækjast eftir.
Tónlistin er þung og textamir oft
á tiðum óskiljanlegir. Reyndar hef-
ur Chris Comell söngvari, sem
samið hefur flesta texta sveitarinn-
ar, sagt með glott á vör að sér líði
allra best i þunglyndi. Þessi dmnga-
tilfinning, samblandin kraftmiklum
og frumlegum lagasmíðum, verður
eftir hverja hlustun betri og betri og
má segja að með plötunum Super-
Unknown og Down on the Upside
hafi Soundgarden sungið ólíkt feg-
urri svanasöng en aðrar sveitir.
Hugtakið dautt!
Soúndgarden hættir á þeim tíma
þegar sveitin hefur hvað mest blás-
ið nýju lífí í metalrokk og jafnvel
haldið hugtakinu sjáifu lifandi. Eft-
ir standa Metallica og örfáar aðrar
sveitir sem ekki era líklegar til mik-
illa ævintýra eða frumleika í laga-
smiðum. Bjartasta vonin fyrir
Soundgarden-aðdáendur er áfram-
haldandi ferill þeirra Cornell og
Thayill á tónlistarsviðinu og verður
áhugavert að heyra í þeim í framtíð-
inni, eða eins og þeir segja sjálfir:
„Við höfum gengið til fjallsins og til
baka, það er kominn timi fyrir nýja
hluti“.
-ps
Sennilena meira frá
Söngvari Foo Fighters og fyrrver-
andi trommuleikari Nirvana, Dave
Grohl hefur lýst þvi yfir að gefnar
verði út fleiri upptökur með Nir-
vana. Nýlega kom tónleikaplatan
From The Muddy Banks Of the
Wishkah. Grohl útilokaði þó að
hann og fyrrverandi bassaleikari
Nirvana, Krist Novoselic, myndu
spila inn á gamlar hljóðupptökur
með Kurt Cobain og gefa út, eins
og eftirlifandi meðlimir bítlanna
gerðu í laginu Free As a Bird.
Vefurinn gengur frá
plötubúðum
Fyrsta fyrirtækið sem selur lög í
gegnum Intemetið heitir Nordic
Entertainment Worldwide. Það
býður þjónustu sína á slóðinni
http://www.nordicdms.com en að
sögn kostar hvert lag um 30 til 50
krónur. Margir segja að sala af
þessu tagi muni á endanum ganga
frá hefðbundnum plötubúðum.
Móðir Tupacs lögsækir
Death Row
Útgáfúfyrirtæki rapparans sál-
uga, Tupac Shakur, er í afar vond-
um málum eftir að móðir hans fór
í mál við fyrirtækið. Sú gamla
heimtar rúmlega milljarð íslenskra
króna og segir að það sé sú upp-
hæð sem Death Row Records hafi
skuldað syni sínum.
Madonna aftur í söng-
inn
Söngkonan fræga, Madonna, hef-
ur ákveðið að hella sér aftur í popp-
ið eftir að hafa leikið fasistakvendið
Evitu Peron við mikinn fognuð að-
dáenda sinna. Hún er nú í London
að gera ný lög með upptökustjóran-
um Nellee Hooper (sem einnig er í
Soul R Soul). Þegar Madonna er
búin að gera ný lög með Hooper
heldur hún til Los Angeles til þess
að vinna með ballöðufabrikunni
Babyface.