Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1997, Síða 9
I>V FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1997
#n helgina
Hanna Dnra í Lista-
safni Knpavngs
Á sunnu-
dagskvöldið
kl. 20.30 held-
ur Hanna
Dóra Sturlu-
dóttir sópran
tónleika í
Listasafni
Kópavogs.
Undirleikari
er Jónas Ingi-
mundarson. Hanna Dóra
Viðfangsefni Sturludóttir
tónleikanna
eru lög eftir Grieg, Sibelius, Verdi,
Fjölni Stefánsson og þrjú lög eftir
Þorkel Sigurbjömsson. Auk söng-
laganna verða fluttar aríur eftir R.
Stoltz, Fr. Lehár og Puccini.
Hanna Dóra Sturludóttir stund-
aði nám í Söngskólanum í Reykja-
vík, hjá Kristni Sigmundssyni og
Snæbjörgu Snæbjarnardóttur. Síð-
astliðin ár hefur hún verið i fram-
haldsnámi við Listaháskólann í
Berlín. Hanna Dóra hefur komið
fram á fjölmörgum tónleikum í
Þýskalandi, Póllandi og Austur-
ríki. Hún hefur sungið í útvarpi og
sjónvarpi og inn á geislaplötur.
Tvö síðustu sumur söng hún stór
hlutverk á óperuhátíðum í Þýska-
landi. Hún hefur sótt ýmis nám-
skeið og haustið 1995 varð Hanna
Dóra hlutskörpust í Ijóðasöng-
keppni sem haldin var í Berlín.
Hanna Dóra var ráðin við óp-
eruhúsið í Bonn síðastliðið haust
og hér heima hefur hún tekið þátt
í uppfærslum á óperum í Islensku
óperunni, Óperusmiðjunni og
Þjóðleikhúsinu.
Grænlensk ferða-
Flugleiðir innanlands, Græn-
landsflug og Feröamálaráð Græn-
lands, ásamt samstarfsnefnd Is-
lands og Grænlands í ferðamálum
verða með kynningu á ferðamögu-
leikum á Grænlandi nú um helg-
ina í Perlunni. Alls munu um 26
fyrirtæki, grænlensk og íslensk,
kynna þjónustu sína í ferðamál-
um. I tilefhi af kynningunni kem-
ur hingað fjöldi erlends ferðaskrif-
stofufólks sem hefur sérhæft sig í
sölu á ferðum til íslands og Græn-
lands.
Grænlensk framleiðsla af ýmsu
tagi verður í sviðsljósinu, sýndur
verður selskinnsfatnaður og græn-
lenskur matvælaiðnaður kynntur.
Grænlenskir skemmtikraftar
munu troða upp, óvenjuleg tísku-
sýning verður haldin og sýningar
á handunnum grænlenskum vör-
um. Einnig verða fluttir fyrirlestr-
ar og landkynningarmyndir sýnd-
ar af myndböndum. Kristján Frið-
riksson heldur fyrirlestur í fund-
arsal Perlunnar á sunnudaginn en
hann hefur dvalið á Grænlandi
meira og minna síðastliðið ár.
Lars Emil Johansen, forsætis-
ráðherra Grænlands, og Halldór
Um helgina verða ferðamöguleikar á Grænlandi kynntir í Perlunni en alls
munu 26 fyrirtæki kynna þjónustu sína í ferðamálum.
Blöndal samgönguráðherra opna verður opin á morgun og sunnu-
ferðakynninguna en kynningin dag frá kl. 10-18.
kynning í Perlunni
LEIKHÚS
Þjóðleikhúsið
Litli Kláus og Stóri Kláus r
’ sunnudag kl. 14.00
í Fiðlarinn á þakinu
S laugardag kl. 20.00
Köttur á heitu blikkþaki
; sunnudag kl. 20.00
Listaverkið
laugardag kl. 20.30
! Villiöndin
fóstudag kl. 20.00
Borgarleikhúsið <
Konur skelfa
fostudag kl. 20.00
laugardag kl.20.00
; Dómínó
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
í Bar Par
laugardag kl. 20.30
Loftkastalinn
Áffam Latibær
sunnudag kl. 14
f Á sama tíma að ári
sunnudag kl. 20.00
Leikfélag Akureyrar
I Vefarinn mikli frá Kasmir
laugardag kl. 20.30
Kvennakór Hafnarfjarð-
ar í Víðistaðakirkju
í Kvennakór Hafnarfjarðar eru um þessar mundir 73 konur en kórinn er aö
Ijúka sínu 3ja starfsári.
Hinir árlegu vortónleikar
Kvennakórs Hafnarfjarðar verða
haldnir í Víðistaðákirkju á sunnu-
daginn kl. 17. Sérstakur gestur á
tónleikunum verður Sigrún
Hjálmtýsdóttir.
Á efnisskránni verður mjög fjöl-
breytt lagaval við allra hæfi, inn-
lend og erlend lög frá ýmsum tím-
um. Diddú mun syngja nokkur lög
með kórnum auk þess að syngja ein-
söng. Stjómandi kórsins er Halldór
Óskarsson og undirleikari er Hörð-
ur Bragason.
Kæru Krakkaklúbbsmeðlimir
Slæðudagar í Sneglu
Nú standa yfir árlegir
slæðudagar í Sneglu list-
húsi á homi Grettisgötu
og Klapparstígs í Reykja-
vik. Þar er til sýnis og
sölu það nýjasta í hönn-
un á silkislæðum og sjöl-
um eftir sjö textílkonur
listhússins. Listakonum-
ar era Björk Magnúsdótt-
ir, Ema Guðmarsdóttir,
Helga Pálína Brynjólfs-
dóttir, Hrafnhildur Sig-
urðardóttir, Ingiríður
Óðinsdóttir, Jóna Sigríð-
ur Jónsdóttir og Þuríður
Dan Jónsdóttir. Slæðu-
dagar standa yfír til 23.
maí og er Snegla opin
virka daga frá kl. 12-18
og kl. 10-14 á laugardög-
um.
Hinir árlegu slæðudagar standa nú yfir í
Sneglu listhúsi.
Skemmtihúsið
Ormstunga
sunnudag kl. 20.30
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
a\\t milli hirpj^
Smáauglýsingar
m
550 5000
Irmelin Sandman Lilius í Noiræna húsinu
Krakkar!
vegna mikillar aðsóknar ætlum við að framlengja
sýninguna á myndina Gullbrá og birnirnir 3,
sem sýnd er í Stjörnubíó. Myndin er sýnd alla
laugardaga og sunnudaga kl. 3, út maí.
Pið getið nálgast miðana í Stjörnubíó, alla virka
daga eftir kl. 16.30 og fyrir kl. 14.30 um helgar.
Frítt í bíó fyrir alla Krakkaklúbbsmeðlimi.
Góða skemmtun.
Á morgun kl. 12 veröur dagskrá
ætluð bömum og unglingum í Nor-
ræna húsinu en þar mun fmnski
barnabókahöfundurinn Irmelin
Sandman Liiius lesa á sænsku úr
bókum sínum. Á sunnudaginn kl. 16
heldur hún fyrirlestur þar sem hún
mun tala um nýjustu bók sína Hand
i hand, sem hún skrifaði ásamt syst-
ur sinni, Heddi Böckman. Á undan
fyrirlestrinum syngur telpnakór frá
Ábo í Finnlandi.
Irmelin hefur skrifað bækur af
ýmsu tagi, ljóðabækur, smásögur,
skáldsögur og bamabækur.
Bókin Hand i hand, sem kom út
árið 1996, fjallar um æsku þeirra
systra og rifja þær upp minningar
frá stríðsámnum í Finnlandi. Þær
voru og eru enn mjög samrýndar og
gengu saman hönd í hönd gegnum
ýmsa erfiðleika á þeim árum.
Irmelin er fædd árið 1936. Hún
hefur hlotið margar viðurkenningar
og verðlaun fyrir bækur sínar en
þær hafa verið þýddar á 15 tungu-
mál.