Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1997, Síða 11
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1997
"k
- iz
Dragonheart:
tyndbönd
33
Drekinn og riddarinn
Dragonheart er ævintýri sem seg-
ir frá baráttu góðs og ills fyrir þús-
und árum. Sagan hefst á því þegar
hinn fjórtán ára gamli prins, Einon,
verður vitni að dauða foður síns í
bændauppreisn. Einon sjálfur er
særður banasári, en móðir hans
biðlar til dreka um að bjarga lífi
hans. Drekinn samþykkir með því
skilyrði að hann verði miskunn-
samur konungur og gefur af lífs-
krafti sínum svo að prinsinn megi
lifa. Þegar Einon reynist harðstjóri
hinn mesti dregur lærifaðir hans,
hinn hugprúði riddari Bowen, þá
ályktun að drekinn hafi eitrað huga
hans og einsetur sér að útrýma öll-
um drekum í landinu. Tólf árum
síðar hefur hann nánast lokið ætl-
unarverkinu - aöeins einn er eftir
en sá reynist jafningi hans i bar-
daga. Þeir ákveða að semja um
vopnahlé og eftir að hafa komist í
kynni við dóttur uppreisnarleiðtog-
ans taka þau höndum saman um að
berjast gegn harðstjóranum.
Einvalalið leikara
Dennis Quaid leikur riddarann
og Sean Connery talar fyrir drek-
ann, en leikstjóri er Rob Cohen
(Dragon: The Bruce Lee Story, Dayl-
ight). Nýliðiim Dina Meyer leikur
bóndadótturina, en Dragonheart er
aðeins önnur mynd hennar - sú
fýrri var Johnny Mnemonic. Pete
Postlethwaite leikur ferðafélaga
Bowens, munkinn Gilbert, og hlut-
verk óþokkans Einons er í höndum
Davids Thewlis, en þeir Postlet-
hwaite og Thewlis eiga það sameig-
inlegt að hafa verið að leika í öllu
alvarlegri myndum upp á síðkastið.
David Thewlis vakti feikna athygli
fyrir túlkun sína á hinum kald-
hæðna Johnny í Naked, en hefúr
einnig sést nýlega í Restoration,
Total Eclipse og The Island of Dr.
Moreau. Pete Postlethwaite var til-
Drekinn spýr eldi í átt aö riddaranum hugumprúöa.
nefndur til óskarsverðlauna fyrir
leik sinn í In the Name of the
Father, en hann hefúr m.a. leikið í
The Usual Suspects, The Last of the
Mohicans, Alien 3 og Hamlet.
Dennis Quaid lék í fyrstu kvik-
mynd sinni 1977, en sú hét Septem-
ber 30, 1955. Hann vakti fyrst ein-
hverja athygli 1979 þegar hann lék í
gamanmyndinni Breaking Away og
í kjölfarið fylgdu hlutverk í mynd-
um eins og The Long Riders,
Caveman, The Right Stuff og Enemy
Mine. Hann hlaut síðan mikið lof
fyrir leik sinn í The Big Easy 1987
og fylgdi henni eftir með Suspect.
Þá komu myndir eins og Great Balls
of Fire!, Postcards ffom the Edge og
Undercover Blues, en nýjustu
myndir hans eru Something to Talk
About og Wyatt Earp. Hann er gift-
ur leikkonunni Meg Ryan og hefur
leikið á móti henni i þremur mynd-
um, Innerspace, D.O.A. og Flesh and
Bone.
Leikari í nær hálfa öld Sean
Connery byrjaði leikferil sinn fyrir
46 árum í söngleiknum South
Paciflc. Eftir mörg smáhlutverk á
sviði og í kvikmyndum skaust hann
upp á stjömuhimininn árið 1962
þegar hann lék James Bond í Doct-
or No. Alls lék hann í sjö Bond-
myndum, en hann hefur vaxið sem
leikari með aldrinum og nýtur nú
mikillar virðingar. 1987 hlaut hann
óskarsverölaun fyrir leik sinn í The
Untouchables, en á löngum hlut-
verkalista hans má m.a. Fmna The
Name of the Rose, Murder on the
Orient Express, The Hunt for Red
October, Indiana Jones and the Last
Crusade, The Russia House, Rising
Sun, Medicine Man, First Knight, A
Bridge Too Far, Robin and Marian,
The Man Who Would Be King, The
Anderson Tapes, The Hill, Mamie
og nú síðast The Rock.
Sean Connery sést ekki í Dragon-
heart - hann talar einungis fyrir
drekarm, en allt var gert til að láta
persónuleika Seans Connerys og
leiktúlkun hans koma fram í tölvu-
teikningum drekcms. Rödd hans var
tekin upp áður en önnur vinna
hófst og tölvuteikningarnar voru
hannaðar til að passa við rödd hans,
sem og líkamstjáningu hans. Rob
Cohen kom sér upp viðamiklu safni
filmubúta úr fyrri myndum Seans
Connerys og flokkaði filmubútana
niður í mismunandi tilfinningatúlk-
anir. Teiknararnir gátu síðan geng-
ið í þetta safn og fundið réttu svip-
brigðin til að herma eftir. Tölvulík-
an drekans var langflóknasta tölvu-
líkan sem Industrial Light & Magic
hafði nokkurn tímann gert.
Grameðlan í Jurassic Park hafði
milli sjö og átta þúsund stjórn-
punkta en drekinn í Dragonheart
um 280.000. d-PJ
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Geirmundur Valtýsson
„Ég horfi mjög sjaldan á
myndbönd og það eru líklega
nokkur ár síðan ég setti spólu
í tækið. Þær myndir sem ég
man eftir í augnablikinu
eru Nýtt Lif, Dalalíf og
Löggulíf eftir Þráin Ber-
telsson. Ég hafði mjög
gaman af þeim myndum.
Sama má segja um mynd-
ina Magnús eftir sama
höfund en hana sá ég
í bíó á sínum
tíma. Það er
gaman að
horfa á
skemmti-
legar
myndir
en mál-
mn er
þannig
háttað
hjá
mér að
ég
engan tíma
til að horfa á
myndbönd.
Ég vinn og
æfi alla daga og svo er ég að
syngja um allar helgar. Það var nú
samt nokkuð magnað að í síðustu
viku fór ég á tvær leiksýning-
ar en það hefur ekki gerst í
manna minnum. Það var
sæluvika hér fyrir norðan og
þá sá ég leikritið Græna lyft-
an í uppfærslu Leikfé-
lagsins. Svo lá leiðin v '.'
suður og f V'
V
þar sá
ég leikrit-
ið Konur
skelfa í
Borgarleik-
húsinu.
Bæði leik-
r.itin voru
mjög
skemmtileg
og ég vildi gjam-
an gera meira af
þessu en því miður
þá hef ég ekki tíma
til þess.“
mm 811 wm 1 ■■ fc
U flHL 9 ® ■1 ■yn
Boys Surviving Picasso Moll Flanders
f&fWC
Winona Ryder hefur átt auknum
vinsældum að fagna og hefur sýnt
að mikið er
spunnið í hana ’Mm
sem leikkonu. í
Boys leikur
hún stúlku,
Patty, sem hef-
ur alltaf haft
einstakt lag á
að koma sér í
hin mestu
vandræði.
Kvöld eitt er
hún úti á lífinu
ásamt vini sín-
um og endar sú yfnreið um bæinn
með því að þau stela bíl og þeysa út
fyrir bæinn. Eftir það veit enginn
hvað skeð hefur, síst Patty, en eitt
er víst: Vinur hennar er horfmn.
Patty verður hrædd og leggur á
flótta á hestbaki en dettur af baki og
missir meðvitund og veit ekki af sér
fyrr en hún vaknar í herbergi hjá 17
ára pilti sem hafði komið að henni
meövitundarlausri.
Auk Winonu Ryder leika í mynd-
inni Lucas Haas, John C. ReiUy,
Skeet Urich og James Legross. Leik-
stjóri og handritshöfundur er Stacy
Cochran.
Háskólabíó gefur Boys út og er
hún leyfð öllum aldurshópum. Út-
gáfudagur er 13. maí.
Pablo Picasso er af flestum talinn
mestur allra listmálara á þessari
öld. Hann lifði
fram yfir nírætt #anthonv hohiinj
og fjölbreyttu lífl.
í Surviving Pic-
asso, sem gerð af
þeim ágæta leik-
stjóra James
Ivory, er fylgst
með tíu ára ástar-
sambandi hans
við listakonuna
Francoise Gill i
sem var 23 ára|_
þegar hún hitti
Picasso fyrst árið 1943, þá 55 ára.
Ástarsamband þetta veitti
Francoise mikiö en um leið lenti
hún í miklum átökum, andlegum
sem og líkamlegum. í tíu ár þurfti
hún að taka á öllu sem hún átti til
að halda vitinu í ástarsambandi við
þann mann sem hún síðar taldi
kröfuharðasta, ósanngjarnasta og
svikulasta mann sem hún hafði
nokkru sinni kynnst.
Það er ung leikkona, Natascha
McElhone, sem leikur Francoise og
var þetta frumraun hennar. Éinnig
má sjá hana í Devils Own sem sýnd
er þessa dagana í kvikmyndahús-
um. í hlutverki Picassos er breski
stórleikarinn Anthony Hopkins.
Warner myndir gefa út Surviving
Picasso og er hún öllum leyfð. Út-
gáfudagur er 15. maí.
Hinn frægi ævintýrasagnahöf-
undur Daniel Defoe samdi hina vin-
sælu skáldsögu
um Moll Fland-
ers. Kvikmynd sú
sem nú er komin
á myndband er
önnur myndin
sem gerð er eftir
þessari vinsælu
skáldsögu. í fyrri
myndinni lék
þokkagyðjan Kim
Novak Moll
Flanders en nú er
það Robin Wright
sem leikur hana. Kannski er hún
þekktari sem eiginkona Seans
Penns.
Moll Flanders fæddist inn í fá-
tæka fjölskyldu í London snemma á
18. öld og ólst upp við vesöld. Moll
dreymir um betra líf og lætur ekki
fáfræði og stéttaskiptingu þjóðfé-
lagsins buga drauma sína. Hún
kynnist ungum listamanni og verð-
ur ástfangin en örlögin eru henni
ekki hliðholl og um tima virðist ver-
öldin snúa baki við henni. Hún gefst
ekki upp og uppsker að lokum laun
erfiðis síns.
Auk Robin Wright leika i Moll
Flanders Morgan Freeman,
Stockard Camiing, John Lynch og
Brenda Fricker.
Sam-myndbönd gefa út Moll
Flanders og er hún bönnuð börn-
um innan 12 ára. Útgáfudagur er
12. maí.