Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1997, Blaðsíða 8
22
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997 JUV
um helgina
Hugleikur á
Áhugaleikfélagið Hugleikur í Reykjavík hyggur nú á sína fyrstu
leikferð í tíu ár. Nú eins og þá er ferðinni heitið norður í land og
hyggjast þeir Hugleikarar sýna verk sitt, Embættismannahvörfin, I
Freyvangi í Eyjafirði.
Höfundar leiksins eru allir meðlimir í félaginu en Hugleikur sýn-
ir einatt frumsamin verk. Að þessu sinni lögðu hvorki meira né
minna en átta manns hönd á plóginn.
Hér er á ferðinni saga af feimnum og óframfærnum embættis-
manni sem reynir að leita horfinna félaga sinna, sem ekki hafa snú-
ið aftur úr sendiferðum upp á Korpúlfsstaði. Þangað liggur leið
hans og verkið gerist á þessu glæsta en niðurnídda kúabúi á mörk-
um borgar og sveitar. Illa gengur að finna hina týndu en þeim mun
betur gengur honum að kynnast því dularfulla lifi sem enn leynist
í rústunum innan um það drasl og dót sem komið hefur verið fyr-
ir á Korpúlfsstöðum í gegnum tíðina.
Sýningamar verða tvær, sú fyrri er í kvöld en hin síðari annað
kvöld.
Nina Kerola í Listakoti
í dag, kl. 14, opnar
finnska grafiklistakonan
Nina Kerola sýningu á verk-
um sínum í Gallerí Lista-
koti, Laugavegi 70. Nina var
við nám í Björneborgs
Konstskola í Finnlandi
1986-89 og í framhaldsnámi
við Listaháskólann í Stokk-
hólmi 1996-1997. Hún hefur
haldið nokkrar einkasýning-
ar í Finnlandi og Sviþjóð,
nú síðast í Grafiska sáll-
skapet í Stokkhólmi i febrú-
ar á þessu ári. Hún hefur
einnig tekið þátt í fjölda
samsýninga.
Sýningin í Listakoti
stendur til laugardagsins 14.
júní og er opin virka daga
10-18 og laugardaga 10-16.
IMurlandi
Rússíbanar í
Kaffileikhúsinu
Á morgun stendur Kaffileikhúsið í
Hlaðvarpanum á ný fyrir kvöldverði
og dansleik með hinni bráðskemmti-
legu og sprellfjörugu hljómsveit Rús-
sibönum. Hljómsveitin lék á dansleik
í leikhúsinu að kvöldi siðasta vetrar-
dags fyrir fullu húsi og var það mál
manna að skemmtilegri dansleikur
hefði ekki verið haldinn í borginni
lengi.
Rússíbanar eru skipaðir þeim
Guðna Franzsyni klarínettuleikara,
Daníel Þorsteinssyn harmoniku- Rússíbanarnir munu halda uppi fjörinu i Kaffileikhúsinu annaö kvöld.
leikara, Einari Kristjáni Ein-
arssyni gítarleikara, Jóni
Skugga bassaleikara og
Kjartani Guðnasyni slag-
verksleikara. Þetta eru úr-
vals tónlistarmenn sem leik-
ið hafa með helstu sveitum
bæjarins, eins og Sinfóníu-
hljómsveit íslands, Caput,
Júpiters, Langa Sela og
Skuggunum og Skárr’ en
ekkert. Tónlist þeirra er sam-
bland af latneskum og slav-
neskrnn gullmolum, gyðinga-
, sígauna- og tangótónlist og
ekki síst tónlist gömlu meist-
aranna, eins og Mozarts og
Brahms, leikin að hætti Rús-
síbana.
Kvöldverður hefst kl. 20 en
dansleikurinn kl. 23.30. Boðið
verður upp á fiskisúpu og
súkkulaðitertu 1 eftirrétt.
Skógardísirnar, klassískt dansverk eftir M. Fokin
sýningar Listdansskóla íslands.
Nemendasýning
Listdansskóli íslands heldur árlega nemenda-
sýningu sína í Þjóðleikhúsinu á morgun kl. 14.
Að venju taka allir nemendur skólans þátt í
sýningunni og verður efnisskráin mjög fjöl-
breytt. Fluttir verða stuttir dansar bæði í klass-
ískum og nútima stíl, samdir af kennurum skól-
ans fyrir viðkomandi flokka, sumir með aðstoð
nemendanna sjálfra. Einnig verður flutt nýtt
dansverk eftir David Greenall, dansara íslenska
dansflokksins, sem jafnframt kennir við List-
dansskólann. Verkið nefnist Nátthrafnar og er
viö tónlist F. Chopin, veröur lokaatriöi nemenda-
Listdansskólans
við tónlist eftir Duke Ellington. Lokaatriði sýn-
ingarinnar er Les Sylphides eða Skógardísirn-
ar. Það er samið af M. Fokin en tónlistin er eft-
ir F. Chopin. Gestadansari með skólanum í því
verki er Guðmundur Helgason, sem kennir við
skólann auk þess sem hann er dansari í ís-
lenska dansflokknum.
Þessi sýning er jafnframt siðasta nemenda-
sýningin sem núverandi skólastjóri, Ingibjörg
Bjömsdóttir, stýrir en hún lætur af störfum eft-
ir margra ára starf.
Grænmetis-
réttahlaðborð
Bergmáls
Líknar- og vinafélagið Bergmál verður
meö grænmetis- og baunaréttahlaðborð
að Hamrahlíð 17, húsi Blindrafélagsins, í
dag, milli klukkan 18 og 21. Boðið verð-
ur upp á grænmetisrétti og tilheyrandi
sósur og salöt. Þeir peningar sem safnast
verða notaðir til þess að hlúa að sjúku
fólki en félagar úr Bergmáli fóru á dög-
unum til Noregs til að kynna sér aðbún-
að og aöhlynningu fyrir sjúkt fólk, þó
fyrst og fremst krabbameinssjúklinga.
Farið var á þijú heilsuhæli og lærðu
þær konur sem fóru heilmikið um
mataræði, auk þess sem þær fengu að
taka fullan þátt í matargerðinni.
Félagið hefur undanfarin ár veriö með
orlofsdvöl að Hlíðardal í Ölfúsi fyrir
krabbameinssjúklinga og blinda og verð-
ur þar engin breyting á í ár. Nú er um
að ræða síðustu tvær vikumar í júlí, sú
fyrri er fyrir blinda en seinni vikan fyr-
ir krabbameinssjúklinga. Þar verður
boðið upp á sérfæði.
Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Léttur málsverður í hádeginu.
Aðalfundur Árbæjarsafiiaðar í safn-
aðarheimili kirkjunnar kl. 12.30.
Prestamir.
Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 14 með
þátttöku Átthagafélags Sléttu-
hrepps. Ræðumaður Oddvn- Þ. Her-
mannsson. Ámi Bergur Sigur-
bjömsson.
Breiðholtskirkja: Guðsþjónusta
kl. 11. Aðalsafiiaðarfundur Breið-
holtssafnaðar verður haldinn að
loknum létfiun málsverði kl. 12.30.
Samkoma ungs fólks með hlutverk
kl. 20. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Guðný Hallgríms-
dóttir.
Digraneskirkja: Messa kl. 11. Alt-
arisganga.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Prestur
sr. María Ágústsdóttir.
Fella- og Hólakirkja: Guösþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjart-
arson. Prestarnir.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykja-
vík: Alþjóðlegiu- minningardagur
um þá sem látist hafa af völdiun al-
næmis. Guðsþjónusta kl. 11. Félagar
úr alnæmissamtökunum annast
ritningarlestra. Andrea Gylfadóttir
syngur einsöng. Kór kirkjunnar
syngur. Prestur Bryndís Malla
Elídóttir.
Grafarvogskirkja: Guðsþjónusta
kl. 11. Kór Grafarvogskirkju syngur
undir stjórn Harðar Bragasonar
organista. Aðalsafnaðarfundur
verður haldinn að loknum létfiun
málsverði. Sýning Dluga Eysteins-
sonar er opin á efri hæð kirkjunn-
ar. Sóknamefiid.
Grensáskirkja: Messa kl. 11. Altar-
isganga. Prestur sr. Kjartan Jóns-
son.
Hallgrímskirkja: Messa kl. 11.
Barnakór Hallgrimskirkju syngur,
stjómandi Bjamey Ingibjörg Gunn-
laugsdóttir. Sr. Karl Sigurbjöms-
son. Ensk messa kl. 14. Sr. Karl Sig-
urbjömsson.
Hafnarfjarðarkirkja: Guðsþjón-
usta kl. 11. 5 ára bömum boðið sér-
staklega í kirkju ásamt fjölskyldum
sínum. Barnakórinn syngur. Stjóm-
andi og organleikari: Hrönn Helga-
dóttir. Prestar: sr. Þórhildur Ólafs
og sr. Þórhallur Heimisson. Tón-
leikar Kórs Hafnarfjarðarkirkju kl.
16. Aðgangur ókeypis.
Háteigskirkja: Messa kl. 11. Sr.
Tómas Sveinsson.
Hjallakirkja: Hátíðarmessa kl. 11 í
tilefni af tíu ára afmæli safnaðar-
ins. Guðrún S. Birgisdóttir og
Martial Nardeau leika á flautur.
Kór Hjallaskóla flytur stólvers. Kór
kirkjunnar syngim. Afinæliskaffi
strax að messu lokinni. Poppmessa
kl. 16. Pylsuveisla að lokinni popp-
messu. Allir hjartanlega velkomnir.
Prestamir.
Kópavogskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Sigurjón Ámi Eyjólfsson hér-
aðsprestur prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Kópavogskirkju syngur.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr.
Bragi Skúlason.
Langholtskirkja, Kirkja Guð-
brands biskups: Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Gylfi Jónsson. Einsöngur
Bjöm Jónsson.
Laugameskirkja: Guðsþjónusta
kl. 11. Síðasta guösþjónusta fyrir
sumarleyfi. Félagar úr Kór Laugar-
neskirkju syngja. Guösþjónusta kl.
14 í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12.
Ólafur Jóhannsson.
Lágafellskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Bjami Þór Bjama-
son. Jón Þorsteinsson.
Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Frahk M. Halldórsson.
Óháði söfhuðurinn: Næsta guðs-
þjónusta verður gönguguðsþjónusta
á Akraíjall sunnudaginn 8. júní kl.
10.
Seljakirkja: Guðsþjónusta kl. 14.
Altarisganga. Sr. Ágúst Einarsson
prédikar. Sóknarprestur.
Seltjamameskirkja: Messa kl. 11
Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir.