Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1997, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997 helgina 23 iEIKHÚS Þjóðleikhúsið Tunglskinseyjan föstudag, kl. 20.00, laugardag, kl. 20.00. Smáborgarabrúðkaup sunnudag, kl. 20.00. Listaverkið sunnudag, kl. 20.30. Nemendasýning Listdansskólans laugardag, kl. 14.00. Borgarleikhúsið Bar Par föstudag, kl. 20.30. Konur skelfa föstudag, kl. 20.00, laugardag, kl. 20.00. Dóminó föstudag, kl. 20.00. íslenski Dansflokkurinn laugardag, kl. 20.00, Loftkastalinn Áfram Latibær sunnudag, kl. 14.00. Á sama tima að ári laugardag, kl. 20.00. Hugleikur, Freyvangi Vinnukonurnar föstudag, kl. 21.00. Leikfélag Akureyrar Vefarinn mikli frá Kasmír laugardag, kl. 20.30, sunnudag, kl. 20.30. Hugleikur, Freyvangi Embættismannahvörfm föstudag, laugardag. Hermóður og Háðvör Að eilífu laugardag, kl. 20.00. Tunglskinseyjan í Þjóðleikhúsinu Ópera Atla Heimis Sveinssonar, Tunglskinseyjan, var frumsýnd í Þjóðleihúsinu í gær. Óperan er gerð við óperutexta Sigurðar Pálssonar. Óperan gerist um árið 800 og segir frá keltneskum elskendum, Kalman og Auði, sem grimm örlög skilja að en eiga ljúfa endurfundi áratugum síðar á Breiðafjarðareyju sem þau kalla Tunglskinseyju. Söngvarar í Tunglskinseyjunni eru þau Loftur Erlingsson, Signý Sæmundsdóttir og Ingveldur G. Ólafsdóttir en hljómsveitina skipa þau Guðný Guðmundsdóttir, Auður Hafsteinsdóttir, Ragnhildur Péturs- dóttir, Junah Chung, Gunnar Kvar- an, Reynir Sigurðsson og Miklos Dalmay. Hljómsveitarstjóri er Guð- mundur Emilsson. Stutt útgáfa af óperunni var flutt í konsertformi árið 1995 á menning- arhátíð i Bielefeld, Köln og Bonn og var auk þess flutt í þýska útvarpið. Verkið var í heild heimsfrumsýnt á íslenskum menningardögum í Pek- ing í mars á þessu ári og til tals hafa komið sýningar á óperunni á afmæl- ishátíð Stokkhólmsóperunnar á Signý Sæmundsdóttir og Loftur Erlingsson í hlutverkum sínum í Tunglskinseyjunni. næsta ári. sýningar. Önnur sýning er 1 kvöld, lokasýningin er á þriðjudag. Sýn- Hér á landi verða einungis fjórar þriðja sýning verður á morgun og ingamar hefjast kl. 20. Jorfæruhelgi" á Akureyri llrslit í fata- hönnunarkeppni Nýlega valdi dómnefnd í Tatahönnunar- keppni Smirnoff þá tiu sem komast í úr- slitakeppnina sem haldin verður í Súlna- sal Hótel Sögu í kvöld. Eftir keppnina verður stórdansleikur með Agga Slæ, Tamlabandinu og Sigrúnu Evu. Afls tóku 20 nemendur i fatahönnun þátt í undanúr- slitum og voru þeir frá Iðnskólanum í Reykjavík, Fjölbrautaskólanum í Breið- holti, Myndlista- og handíöaskóla íslands og Danmarks Design Skole. Þema keppninnar í ár er áratugurinn fyrir aldamót og sá nemandi er vinnur úr- slitakeppnina keppir fyrir íslands hönd í London í nóvember næstkomandi. í loka- keppninni er búist við fulltrúum frá allt að 40 þjóðum er valdir hafa verið úr hópi yfir 6000 þátttakenda. Þess má geta að árið 1995 vann Linda Björg Árnadóttir aðalúrslita- keppnina sem haldin var í Suöur- Afríku. Eru því miklar vonir bundn- ar við framlag íslands sem áður enda framúrskarandi og frjór hópur nem- enda sem keppa að íslandsmeistarat- itlinum í ár. DV, Akureyri:_______________________ Helgin sem í hönd fer verður á Akureyri tileinkuð bílaíþróttum og efnt til svokallaðrar „torfæruhelg- ar“ í bænum. Hápunktur helgarinn- ar er „Greifatorfæran" sem fram fer í malargryfjunum ofan bæjarins á laugardag kl. 13 en þar keppa helstu ökumenn landsins í fyrstu torfæru- keppni sumarsins. Fyrirtæki í bænum hafa tekið höndum saman með Bílaklúbbi Ak- ureyrar og bifreiðaþjónustutækjum til að auka á úrval skemmtunar í bænum um helgina, m.a. með bíla- sýningum, grillveislum og vöru- kynningum auk fjölbreyttrar dag- skrár veitinga- og skemmtistaða bæjarins. í dag verður t.d. sýning á torfæru- bílum á Ráðhústorgi. Á sunnudag verður jeppasýning Eyjafjarðar- deildar 4x4 klúbhsins á Ráðhústorgi kl. 14. Þar verða til sýnis margir öflugustu og glæsileg- ustu fjalla- jeppar Eyfirð- inga ásamt til- heyrandi búnaði fjallaferöa. -gk Fyrsta torfæru- keppni ársins verður haldin fyrir noröan um helg- ina. Kór Stykkishólmskirkju heldur tónleika kl. 17 á morgun. Tónleikar í Stykkishólmi í sumar verða tónleikar tíðir í Stykkishólmskirkju og er þetta annað sumarið í röð sem slíkt tón- leikahald er í kirkjunni. Fyrstu tón- leikamir eru á morgun, kl. 17, en að þeim standa félagar í kór Stykk- ishólmskirkju. Efnisskrá tónleikanna verður fjölbreytt. Auk þess sem kórinn syngur allur saman verður honum skipt upp í karla- og kvennakór. Þá kemur einnig fram tríó, skipað fé- lögum úr kómum, með gitarundir- leik. Stjómandi kórsins er Sigrún Jónsdóttir en undirleikari er Hólm- geir Þorsteinsson. Miðvikudaginn 4. um hús og garða Þeir sem hafa áhuga á aá auglýsa í þessu aukablaöi vinsamlega hafi samband vi& Gu&na Geir Einarsson í síma 550-5722 hi& f/rsta. Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 29. maí. Meöal efnis: • Hellulagnir. • Utanhússklæðningar. • Merkingar á húsum. • Vatn í görðum. • Lýsing í görðum. • Girðingar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.