Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1997, Síða 11
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997
lyndbönd
25
Það eru jól en Howard Langston
(Arnold Schwarzenegger) er
ekki í jólaskapi. Hann vill allt
fyrir fjölskyldu sína gera en
hefur bara ekki tíma til að
sinna henni því að það er svo
mikið að gera á skrifstofunni. Eftir að hafa
misst af verðlaunaafhendingu sonar síns í
karateklúbbnum ákveður hann að bæta fyrir
það með því að kaupa handa honum vin-
sælasta leikfangið þessi jólin - Túrbómann-
inn. Því miður fyrir Howard er Túrbómaður-
inn löngu uppseldur og ekki mikill tími til
stefnu. Hann eyðir því aðfangadeginum í
örvæntingarfulla leit að síðasta Túrbó
manninum í hatrammri samkeppni
við bréfberann brjálaða Myron (Sin-
bad), sem er í sömu erindagjörð-
um. Önnur vandamál sem þvæl-
ast fyrir Howard eru skugga-
legur jólasveinn sem platar
Howard til að kaupa haus
lausan Túrbómann sem tal-
ar kóresku, staðfastur
lögregluþjónn sem oft-
ar en einu sinni verður
á vegi hans, og ná- 1
granninn óþolandi -
„hinn fullkomni fað-
ir“, sem gerir sig
heimakominn hjá fjölskyldu
Howards og sér um jólaundir-
búninginn á meðán Howard elt-
ist við Túrbómanninn.
28. maí gefur Skífan út á
myndbandi jólamyndina Jingle
All the Way, með Amold
Schwarzenegger í aðalhlutverk-
inu. Schwarzenegger er án
efa vinsælasti hasar-
myndaleikari ní-
unda og tíunda ára-
tugarins en hefur
verið að bæta á sig
gamanleik undan-
farin ár og leikið
til skiptis í hasar-
myndum og gam-
anmyndum, en
Jingle All the
Way er fyrsta
jólamyndin
hans. Hann seg-
ir að sagan hafi
höfðað til sín
enda kannist
hann vel við
vandræði aðal-
söguhetjunn-
ar, bæði þau
að finna
nýjasta og
flottasta leikfang-
ið handa börnunum
sínum og hitt, að finna tíma
til að sinna bæði fjöl-
skyldunni og vinn-
unni. Leik-
Jingle All the Way:
Jólasaga
stjóri myndarinnar er Brian Levant (The
Flintstones, Beethoven) og Chris Columbus er
framleiðandi, en hann hefur setið í leikstjóra-
stólnum í myndum eins og Home Alone,
Home Alone 2: Lost in New York, Mrs. Doubt-
fire og Nine Months.
Túrbómaðurinn er ekki byggður á ein-
hverri teiknimyndasögu, heldur var hann
hannaður sérstaklega fyrir Jingle All the
Way. Útlit Túrbómannsins var hannað af Tim
Flattery (sem vann svipuð verk í Batman og
Mighty Morphin Power Rangers) í sam-
vinnu við leikmyndahönnuð myndar-
innar, Leslie McDonald. Leikfongin
voru síðan framleidd og þeir hönn-
uðu einnig Túrbómannsbúning, sem
Schwarzenegger klæðist undir lok
myndarinnar.
Hluti myndarinnar gerist í hin-
um fræga „Mall of America" í Minn-
eapolis/St. Paul, en hann er stærsti al-
gjörlega yfirbyggði búðaklasi í Bandaríkj-
unum, nærri því 400.000 fermetrar að
stærð og inniheldur meira en 400 sérvöru-
verslanir, ásamt 14 sala kvikmyndahúsi og
margs konar skemmtistöðum og veit-
ingahúsum. Þessi risastóra
„Kringla" var kjörinn vettvangur
fyrir ævintýralegan og kómískan
eltingarleik Howards og bréfber-
ans.
Amold Schwarzenegger, hasar-
hetja númer eitt i Hollywood, er
búinn að vera í bransanum í 20 ár.
Þessi geðþekki Austurríkismaður
fékk snemma áhuga á lyftingum
og vaxtarrækt og hlaut titilinn
Herra Alheimur“ 20 ára gam-
all, þann fyrsta í röð þrett-
án slíkra. Kvikmynda-
ferill hans hófst árið
1977 í Pumping Iron,
heimildamynd um
Herra Alheims- keppn-
ina. Hann fékk í kjölfar-
ið hlutverk í kvikmynd-
unum Stay Hungry og The
Villain og sjónvarpsmynd-
inni The Jayne Mansfield
Story. Hann sló síðan í gegn með hlut-
verki sínu í Conan the Barbarian, sem
aflaði yfir 100 milljón dollara og leiddi af
sér framhaldsmyndina Conan the Destroyer.
1983 tók hann að sér hlutverk dráparavél-
mennis undir leikstjórn James Cameron í The
Terminator, tiltölulega ódýrri mynd sem sló í
gegn og aflaði bæði Schwarzenegger og
Cameron gríðarlegra vinsælda. í kjölfarið lék
hann í röð hasarmynda - Commando, Raw
Deal, Predator, The Running Man og Red Heat
- þangað til hann lék sitt fyrsta grínhlutverk ,
með Danny DeVito í Twins, undir leikstjórn
Arnold Schwarzenegger, sem á myndinni
heldur á frekar ófrýnilegum jólasveini, leikur
fööur í leit aö jólagjöf handa syni sínum. Á
innfelldu myndinni er hann í miklum æsingi í
leikfangaverslun.
Ivan Reitman. Eftir hina afar vinsælu Total
Recall lék hann aftur undir stjórn Ivan Reit-
man í Kindergarten Cop. Næsta hlutverk hans
var í framhaldsmyndinni Terminator 2: Judgv
ment Day, sem telst vinsælasta myndin hans’
og náði inn yfir hálfum milljarði dollara.
Næst kom Last Action Hero og síðan þriðja
myndin hans undir stjórn James Cameron -
True Lies. Síðast sáum við hann í hasarmynd-
inni Eraser en þar á undan endurnýjaði hann
samstarf sitt við Danny DeVito og Ivan Reit-
man í Junior, en þá bættist Emma Thompson
í hópinn. Næst eigum við von á honum sem
Mr. Freeze í fjóröu Batman-myndinni.
-PJ
UPPAHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Logi Bergmann Eiðsson
„Ætli uppáhaldsmyndin
mín sé ekki Life of Brian
með bresku
grínistun-
um í Monty
Python.
Þeir eru
rosalega
góðir og ég
kann vel að
meta
húmorinn í
myndum
þeirra. Það
er hægt að
horfa á
þessar
myndir aft-
ur og aftur
og þær eru
þess eðlis
að þær
koma
manni auð-
veldlega í
gott skap.
Ég hafði líka mjög gaman af
myndinni When Harry Met Sally.
Billy Crystal sem lék aðalhlut-
verkið í þeirri mynd er verulega
fyndinn. Mér fannst Chevy Chase
skemmtilegur á sín-
um tíma en stjama hans hefur
þó fallið
undanfarin
ár. Sama
má segja
um Dan
Akroyd.
Hann var
góður í
Blues
Brothers
en sú mynd
er að mínu
mati frá-
bær. Rocky
Horror er
einnig
dæmi um
mynd sem
hægt er að
horfa á
með reglu-
legu milli-
bili og hafa
gaman af.
Ég horfi þónokkuð á myndbönd
og hef mest gaman af verulega
fyndnum myndum með svolítið
ruddalegum húrnor."
• :
8§I 1 m
I IrB S i V
First Do No Harm The Secret of Roan
Inish
Fear
Slrtsp Ired Daril
Sjr,
, / 10
...First Do No Harm er ný dramat-
ísk mynd með stórleikonunni Meryl
Streep í aðal- _____________________
hlutverki.
Leikur hún
Lori Reinmull-
er sem berst
fyrir lífi sonar
síns og velferð
fjölskyldu sinn-
ar. Lori og eig-
inmaður henn-
ar lifa ham-
ingjusömu lífi
ásamt þremur
sonum síntnn.
Skugga dregur fyrir sólu þegar
yngsti sonurinn greinist með sjald-
gæfan sjúkdóm sem veldur því að
smátt og smátt hverfur honum allur
máttur. Allt er reynt til að bjarga
lífi drengsins en allt kemur fyrir
ekki, honum versnar stöðugt. Þegar
öll sund virðast lokuð tekur Lori þá
örvæntingarfullu ákvörðun að leita
að einhverju hálmstrái í flóru
þeirra rita sem hún hefur um sjúk-
dóminn. Eftir því sem örvæntingin
verður meiri því minna verður fjöl-
skyldulífið og fjárhagur heimilisins
fer í rúst þegar kerfið styrkir ekki
lengur lækniskostnað og fjölskyldan
neyðist til að taka soninn úr lífs-
nauðsynlegri lyfjameðferð.
Auk Meryl Streep leikur Fred
Ward stórt hlutverk í myndinni.
Leikstjóri er Jim Abrhams.
Bergvík gefur ...First Do No Harm
út og er hún leyfð öllum aldurs-
flokkum. Útgáfudagur er 28. maí.
Mj-íkI cftir J«4tn S«j fc*
juim I.)iwh SuunlWh Ed»o
The Secret Of
Roan Snish
John Sayles hef-
ur í mörg ár verið
að gera athyglis-
verðar kvikmynd-
ir en það er þó
ekki fyrr en með
Lone Star að hann
vekur verðskuld-
aða athygli. Áður
en hann gerði
Lone Star gerði
hann The Secret
of Ronan Inis á ír-
landi og hefur
myndin hlotið lofasamlega dóma. í
myndinni nýtur hann aðstoðar eins
merkasta kvikmyndatökumanns
samtímans, Haskell Wexlers, og þyk-
ir hann ná einstökum áhrifum með
kvikmyndatökuvélinni.
Sögusviðið er norðvesturströnd ír-
lands og er handritið byggt á þjóð-
sögu um fyrirbærið Selkie sem sagt
er vera hálfur maður og hálfur selur.
Þegar Fiona kemur til dvalar hjá fóð-
urforeldrum sínum, sem búa í litlu
fiskiþorpi á ströndinni, vonast hún
til að geta svipt hulunni af dularfullu
hvarfi barnungs bróöur síns en hún
er sannfærð um að hann sé enn á
lífi. Henni tekst að fá til liðs við sig
ömmu sina og afa og saman halda
þau til eyjarinnar Ronan Inis til að
komast að hinu sanna í málinu.
Myndform gefur út The Secret of
Ronan Inish og er hún leyfð öllum
aldurshópum. Útgáfudagur er 28.
Eldheit ást sem breytist í ban-
væna þráhyggju er þema hinnar
taugastrekkj-
andi myndar,
Fear. Aðalper-1
sónan er ungI
stúlka, Nicole I
Walker, sem erl
að reyna að I
finna sína eiginj
fótfestu i lifinuj
og á erfitt meðl
að sætta sig við|
afskiptasemi
föður síns.
Kvöld eitt hittir
hún David, ungan mann sem virðist
í fyrstu eins og klipptur út úr
draumaheimi Nicole. Þau ná strax
saman og Nicole er hamingjusöm
upp fyrir haus. Faðir hennar er
samt ekki sáttur við drenginn og
finnur ftjótt að bak við blíða fram-
komu hans leynist annar og verri
maður. Athugasemdir föðurins hafa
samt lítil áhrif á dótturina sem tel-
ur þær vera afskiptasemi af verstu
gerð. Nicole áttar sig þó um síðir á
hvem mann kærastinn hefur að
geyma en þá er það orðið of seint og
spurningin er aðeins hvort hún'
verður fórnarlamb brjálæðings eða
sleppur lifandi úr hildarleiknum.
Með aðalhlutverkin fara Mark
Wahlberg, Reese Witherspoon og
Alyssa Milano. Leikstjóri er James
Foley.
ClC-myndbönd gefa Fear út og er
hún bönnuð börnum innan 16 ára.
Útgáfudagur er 27. maí.