Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Side 2
2 fréttir
K
LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 I
Gaf upp rangt verð á innfluttum bílum:
Átta mánaða fangelsi
og 10 milljóna sekt
Einar Ásgeirsson, einn af stjóm-
endum og eigendum endurvinnslu-
fyrirtækisins Hringrásar, var í gær
dæmdur til 8 mánaða fangelsisvistar
og 10 milljóna króna sektar fyrir toll-
lagabrot i Héraðsdómi Reykjavíkur.
Einari var geflð að sök að hafa út-
búið og lagt inn til tollafgreiðslu hjá
embætti tollstjórans í Reykjavík rang-
ar aðflutningsskýrslur og ranga vöru-
reikninga vegna fjögurra bifreiða sem
seljandi bifreiðanna í Kanada útbjó á
þann hátt að kaupverð var þar til-
greint mun lægra en raunverulega
var í þeim tilgangi að komast hjá
greiðslu aðflutningsgjalda.
Með þessu móti urðu aðflutnings-
gjöldin samtals tæplega 3,7 milljón-
um lægri en ella.
Brot sín játaði Einar skýlaust.
Hann var dæmdur í 8 mánaða fang-
elsi, þar af 5 mánuði skilorðs-
bundna, og sekt.
Brotin þóttu hafa verið framin af
ásetningi. Bar því samkvæmt 1.
mgr. 126. gr. tollalaga að víkja til
hliðar almennu sektarhámarki 50.
gr. almennra hegningarlaga og
sekta hann um að minnsta kosti
helmingi hærri upphæð en hann
reyndi að draga af aðflutningsgjöld-
um. 10 milljónir króna þóttu hæfi-
leg sekt og kemur 12 mánaða fang-
elsi í hennar stað ef hún er ekki
greidd innan 4. vikna frá dómsbirt-
ingu. -sf
Áburðardreifing:
Ástand hálend-
isgróðurs verra
en í fyrra
Ástand gróðurs á hálendinu er
síst betra en í fyrravor og undanfar-
in vor, heldur þvert á móti heldur
verra, að sögn Stefáns Sigfússonar,
fulltrúa hjá Landgræðslunni. Stefán
hefur yfirumsjón með áburðardreif-
ingu og áburöarflugi stofnunarinn-
ar. Hann segir að kuldar og hvass-
virði nú í vor hafi valdið sýnilegum
skaða á gróðurþekju hálendisins.
Um 400 tonnum verður dreift á
Auðkúluheiði á næstunni með Dou-
glas DC-3 flugvél Landgræðslunnar,
en svæðið þar er nokkru minna en
hefúr verið eftir að vatnsborð uppi-
stöðulóns Blönduvirkjunar var hækk-
að. Um eina viku tekur að dreifa
þessu áburðarmagni en flugvélin tek-
ur um 4 tonn í hverri ferð. -SÁ
Tvö sjúkraflug
Vélar Landhelgisgæslunnar fóru í
tvö sjúkraflug í gær.
Fyrst fór Fokkervél Gæslunnar
til Akureyrar og sótti þar bam í
hitakassa. Vélin fór í loftið kl. 11.11
og lenti um kl. 14.
Þá fór þyrla Gæslunnar í loftið
stuttu fyrir 19 i gærkvöld að sækja
lítinn dreng sem slasaðist alvarlega
í bílslysi á Homaflrði. -sf
Það voru ekki milliríkjadeilurnar viö Reynisvatn í gær. Þangaö komu sendiherrar margra ríkja og brugöu sér á hest-
bak. Rússneski sendiherrann, Júrí Resitov, fór þar fyrir. Þaö koma Júrí þægilega á óvart þegar hann fékk tauminn
á hryssunni Ösp meö þeim oröum aö hún væri honum heimil til notkunar hvenær sem hann langaöi aö bregöa sér
á bak, svo lengi sem bæöi lifa. DV-mynd ÞÖK
Karnivalhátíð
varnarliðsins
DV, Suðurnesjum:
Vamarliösmenn á Keflavíkur-
flugvelli halda árlega sumarhátíð
sína meö kamivalsniði 14. júní og
em allir velkomnir.
Hátíðin fer fram í stóra flugskýl-
inu, næst vatnstanki vallarins, og
gefst gestum kostur á að njóta þar
fjölbreyttrar skemmtunar fýrir alla
fjölskylduna frá kl. 11-17.
Fjöldi íslendinga hefur sótt
skemmtimina imdanfarin ár. Þátt-
taka í þrautum og leikjum og hress-
ing af ýmsu tagi verður á boðstól-
um. Aðgangur er ókeypis. Umferð
er um Grænáshlið ofan Njarðvíkur.
Gestir em vinsamlega beðnir að
hafa ekki með sér hunda.
-ÆMK
Biskupskosn-
ingar í
Á næstu dögum verður kjörskrá
fyrir biskupskosningamar send út
til skoðunar og kynningar og mun
hún liggja frammi í fjórar vikur. Sr.
Ólafur Skúlason biskup hefur beðist
lausnar frá næstu áramótum.
Kosningar verða í lok júlí eða í
ágúst og önnur umferð nokkmm
vikum seinna ef þess gerist þörf.
Fyrst verður kosið milli allra sem
sumar
era í framboði. Það em Auður Eir
Vilhjálmsdóttir, Sigurður Sigurðar-
son, Karl Sigurbjömsson og Gunnar
Kristjánsson. Ef enginn fær hreinan
meirihluta, þ.e. yfir 50%, er kosið
milli tveggja efstu manna. Fjórir
hafa tilkynnt framboð en enginn
tímafresfru gildir þannig að fleiri
gætu enn boðið sig fram.
-sf
íslenska útvarpsfélaglö opnaöi nýja útvarpsrás á FM 102,2 og á 104 á Akur-
eyri og heitir hún Stjarnan. Stjarnan er til húsa aö Lynghálsi 5 og er tónlist-
arstöö sem leggur aöaláherslu á sígilda rokkmúsík. Á myndinni er Jón
Ólafsson, framkvæmdastjóri fslenska útvarpsfélagsins, viö hljóönemann,
en fyrir aftan hann stendur Albert Guömundur Agústsson, starfsmaöur
Stjörnunnar. DV-mynd ÞÖK
Stuttar fréttir
Nýr minningarsjóöur
Vinir og velunnarar Her-
manns heitins Ragnars dans-
kennara, sem er nýlátinn, hafa
stofnað minningarsjóð um
hann og er sjóðurinn í vörslu
Búnaðarbanka íslands.
Klípan ekki fituminnst
Samkeppnisráð hefur bannað
Osta- og smjörsölunni að aug-
lýsa Klípu sem fituminnsta
viðbitið ofan á brauð. Heild-
verslun Karls K. Karlssonar
kærði auglýsingamar en versl-
unin selur majónes með 5,9 g
fítuinnihaldi í hverjum 100 g og
engri mettaðri fitu. Klípan er
með 27 g fitu í hverjum 100 g og
16 g af mettaöri fitu að auki.
10 ára upplýsingamiö-
stöð
Upplýsingamiðstöð ferða-
mála í Reykjavík er 10 ára göm-
ul og opnar 1 samvinnu við
Kynnisferðir handverksbúð á
Bakaraloftinu að Bankastræti 2
í tilefni afmælisins.
5,5 milljaröa samningar
Undirritaðir hafa verið 5,5
mifljarða verksamningar Lands-
virkjunar við verktaka vegna
virkjanaframkvæmda við Sultar-
tanga. Virkjunin verður tilbúin
haustið 1999. Verksamningamir
em um 40% af stofnkostnaði
virkjunarinnar. Bylgjan sagði frá.
Bíómenn reiðir
Samtök kvikmyndagerðar-
manna hafa ritaö menntamála-
ráðherra bréf og gera í því at-
hugasemdir við að enginn kvik-
myndagerðarmaður er meðal
þeirra sem hlutu listamanna-
laun í ár. Aldrei fyrr hafi þeir
verið hundsaðir jafn rækilega
og nú. Bylgjan sagöi frá.
Samstarfs leitaö
Alþýöuflokkur, Alþýðu-
bandalag og Kvennalisti í Kópa-
vogi leita samstarfs um sameig-
inlegt framboð til bæjarstjóm-
arkosninga að ári. Fulltrúar
flokkanna hafa hist en ekki er
farið að ræða uppstillingu enn
þá. RÚV sagði frá.
Deila Halims Als og
Sophiu
Dómstóll í Istanbul frestaði
fram í næsta mánuð að íjalla
um brot Halims Als gegn um-
gengnisrétti Sophiu Hansen við
dætur þeirra. Samtökin Bömin
heim krefjast meiri afskipta ut-
anríkisráðuneytisins af mál-
inu. Sjónvarpið sagði frá.
Stjórnsýsiukæra
Guðfræðingur sem var eini
umsækjandi um Seyðisfjarðar-
prestakall hefur lagt fram
stjómsýslukæm á hendur
sóknamefiidinni fyrir aö gefa
ekki upplýsingar um ástæður
þess að honum var hafriað.
RÚV sagði frá.
Brutu boðorö
Biskup Islands, Ólafur Skúla-
son, segir í bréfi til ríkissak-
sóknara að Spaugstofumenn
hafi brotið eitt af boðorðunum
tíu í sjónvarpsþætti sem sendur
var út fyrir páska.
Stórsparnaöur
Sjúkrahús landsins geta
sparað helming kostnaðar við
lyfiainnkaup með því að flytja
sjálf inn þau lyf sem þau þurfa,
miöað við að kaupa þau af inn-
lendum lyfjaheildverslunum.
RÚV segir frá þessu.
Járnblendifélagiö
graaftir
íslenska jámblendifélagið
hagnaðist um 612 milljónir eftir
skatta í fyrra. Áriö 1996 er
fjórða árið með síbatnandi hag
félagsins. Rekstur reykhreinsi-
búnaðar verksmiðjunnar á
Grundartanga gekk hins vegar
ekki jafh vel, aö því er segir í
frétt frá félaginu. -SÁ