Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Qupperneq 6
LAUGARDAUR 14. JUNÍ 1997 6 ÍJ útlönd stuttar fréttir í gallanum á þing Nýkjörinn þingmaður komm- i únistaflokksins franska mætti í bláum vinnugalla á fyrsta degi í nýs þings í vikunni til að minna á rætur sínar í verka- mannastétt. Kæti meö Robinson Stjómarerindrekar í Genf hafa lýst yfír ánægju sinni í með skipan Mary Robin- son írlands- forseta í emb- i ætti yfir- manns mann- réttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum. Þeir segja að skipan hennar verði til mikilla bóta fyrir málstað stofn- í unarinnar. Ópíummynd leiðinleg | Fremsti kvikmyndagagnrýn- jí andi Hong Kong segir að ný kínversk kvikmynd um ópíum- | stríð Englendinga og Kínverja 1 sé hundleiðinleg. Auknar líkur á ET Breska veðmangarafýrirtæk- j ið William Hill telur likurnar á því að samband náist við geim- verur fyrir 1. janúar árið 2000 ‘ vera 33 á móti einum. Frádráttur fyrir hjól Belgar sem fara hjólandi i vinnuna fá sérstakan skattafrá- drátt, svipaðan þeim sem bif- reiðaeigendur fá. Sprengjur á velli Tíu jarðsprengjur sem nasist- ar komu fyrir í heimsstyrjöld- ;! inni síðari hafa fúndist undir j; knattspyrnuvelli í Úkraínu. J Unglingalið Þýskalands og Úkrainu léku þar um daginn. Sakaðir um mengun J Umhverflsverndarsamtökin I Grænfriðungar sökuöu forráða- menn fransks kjamorkuvers f um að menga Ermarsundið með geislavirkum úrgangi. Friðaráætlun í Kongó Sáttanefnd í Brazzaville, höf- uðborg Kongós, kom sér saman um friðaráætlun í gær. Vilja takmarka áhrif ! Yflrvöld í Tíbet íhuga að gefa út reglur um hvernig stað- ið skuli á vali ;; á endurholdg- j uðum búdd- J um. Tilgang- ; urinn er að ; draga úr áhrifum Dala- is Lamas, útlægs andlegs leið- j toga Tíbetbúa. Kvikmyndahús brann Fimmtiu og átta manns týndu lífi þegar eldur kom upp í kvikmyndahúsi á Indlandi í gær. Reuter Svart- sýni í Hong Kong Markaðurinn í New York hækk- aði hressilega þegar þau tíðindi bár- ust að góðar horfur væra í efna- hagslífi landsins. Markaðirnir í Evrópu fylgdu í kjölfarið en hækk- un á öflum helstu vísitölum Evrópu nam um og yfir 1%. í Frakklandi bættist ofan á bjartsýnina vestan hafs að allar líkur era á því að sam- komulag náist um EMU og þar var hækkunin heil 2,8%. Svartsýni virðist ríkja á mark- aðnum í Hong Kong rúmum tveim- ur vikum áður en Kínverjar taka við stjóm ríkisins. Hlutabréf féllu þar um 3,45%. í Tokyo var nokkur hækkun eftir að jenið snarféll á móti dollarnum. -vix Frökkum og Þjóðverjum tókst ekki að leysa ágreining sinn: Myntbandalag ESB stendur enn í þeim Frökkum og Þjóðverjum tókst ekki að jafna ágreining sinn um myntbandalag Evrópusambandsins á leiðtogafundi þjóðanna í frönsku borginni Poitiers í gær. Óvíst er þvi hvort tekst að ná samkomulagi um stöðugleikasáttmála ESB fyrir leiðtogafund þess í Amsterdam eft- ir helgina. Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands, sagði að sósíalista- stjórn sín væri fylgjandi mynt- bandalaginu en vildi að tekið væri á því á annan hátt en áður. Frakk- ar vilja að hagvexti og atvinnu- skapandi aðgerðum verði gert jafn hátt undir höfði og aðgerðum til að halda fjárlagahallanum í skefjum. „Þeir sem segja að við stöndum frammi fyrir miklum vanda hafa rangt fyrir sér. Þeir sem segja að vandinn sé enginn hafa rangt fyrir sér. Okkur er vandi á höndum og við munum leysa hann,“ sagði Dominique Strauss-Kahn, fjármála- ráðherra Frakklands, við frétta- menn. Hann sagði að það mundi taka tíma að komast að samkomu- lagi. Theo Waigel, fjármálaráðherra Þýskalands, sagði að tekin hefðu verið skref í rétta átt á fundinum í gær. Hann sagði að evrópskir emb- ættismenn mundu funda stíft um helgina til að reyna að ná sam- komulagi fyrir fund fjármálaráð- herra ESB á sunnudagskvöld. Hann viðurkenndi þó að ekki væri nein trygging fyrir því að það tækist. „Við munum kannski fá svar við því á sunnudag, kannski á mánu- dag, kannski í næstu viku,“ sagði Waigel. Hagfræðingar segja útlitið ekki bjart-. Reuter Passaðu þig bara góðurinn, gæti só litli verið að segja við þann stóra. Eða öfugt. Þessir skemmtilegu fýrar tóku þátt í sýningu á súmóglímu við upphaf ástralska súmómótsins í Sydney í gær. Símamynd Reuter NATO reynir að hughreysta þá sem fá ekki inngöngu Forustumenn Atl- antshafsbandalagsins reyndu í gær að hug- hreysta vonsvikin ríki Austur-Evrópu, sem ekki verður boðið í NATO í fyrstu umferð stækkunar, að þau væra engu að síður hluti nýs öryggiskerfis í Evrópu. Ríkjunum var þó ekki geflnn neinn ádráttur um að leið- togar NATO mundu Javier Solana, fram- ákveða á fundi sínum í kvæmdastjóri NATO. Madríd í næsta mán- uði hvenær þeim yrði boðin innganga. „Það sem ráðherrar NATO lögðu áherslu á í dag var að dyr bandalagsins yrðu áfram opnar,“ sagði Javier Solana, fram- kvæmdastjóri NATO, á fundi með frétta- mönnum að afloknum tveggja daga fundi vamarmálaráðherra bandalagsins. „Ég hef það á til- finningunni að í lokayfirlýsingu Madrídfundarins verði ekki að finna ákveðna dagsetningu og ákveðin lönd sem verður boðið inn í annarri umferð," sagði Solana ennfremur. William Cohen, landvarnaráð- herra Bandaríkjanna, kom félögum sínum í opna skjöldu þegar hann til- kynnti að stjómvöld i Washington vildu að aðeins þrjú lönd fengju inn- göngu í NATO í fyrstu umferð stækkunar, Pólland, Tékkland og Ungverjaland. Inngönguboðið verð- ur formlega borið fram á fundinum í Madríd í júlí. Reuter Kauphallir og vöruverð erlendis New York 7500 Dow Jonoo 7000 6500 6000 7333,33 F M A M 2100 Nlkkel Hong Kong i 1450 1400 1350 1300 1250 1200 1150 Hang Seng^ / 14793,32 r M A M 1 i Bensín 98 o M 1 1 Hráolía tunnaf- 18,30 A M r~i Vélhjól Arabíu- Lawrence boð- ið til sölu Vélhjólið sem Arabíu- Lawrence þeysti á þegar hann J lenti í slysi og særðist til ólíf- is árið 1935 hefur verið boðið til sölu. Hjólið er af gerðinni Brough Super- | ior og verðið er 200 milljónir Lawrence, sem var mikill . áhugamaður um vélhjól, var á heimleið þegar tveir drengir á J reiðhjólum fóru í veg fyrir hann. Lawrence gat afstýrt árekstri en | við það skaust hann fram af hjóli sínu. Hann lést á sjúkrahúsi sex dögrnn síðar. | Eigandi hjólsins, sem vill ekki láta nafns síns getið, hafnaði ný- lega tilboði sem hljóðaði upp á J 150 milljónir króna. J Sérfræðingar segja að sams konar hjól og I sama ástandi, en J sem á ekki þessa merkilegu sögu J að baki, mundi fara á fimm J milljónir króna. Rússneskir glæpaflokkar herða tökin Skipulagðir glæpaflokkar í ; anda mafíunnar hafa hert svo tökin á efnahagslífi Rússlands, stjórnmálum og dómskerfi að ör- yggi landsins og umbótastefnu stjórnvalda stafar stórhætta af. Anatólí Kúlikov innanríkis- ráðherra sagði á fundi með sam- ráðherrum sínum að brýn þörf væri á stefnu til að berjast gegn glæpaflokkunum. J í yfirlýsingu sem innanrikis- ij ráðuneytið sendi frá sér kemur fram að skráðum glæpum skipu- lagði-a glæpasamtaka hefði fjölg- að um 94 prósent á undanfóm- i um fimm árum. Rúmlega níu j þúsund slíkir hópar era starf- andi í Rússlandi og hafa þeir um eitt hundrað þúsund manns í : þjónustu sinni. Ekkert fé í upp- byggingu við Stonehenge j Ekkert verður úr áformum um að bæta aðstöðu ferðamanna við forsögulegu steinaþyrping- 1 una Stonehenge þar sem ekki i fékkst fé til þess úr sjóðum ríkis- happdrættisins. Stonehenge er vinsælasti ferðamannastaður Englands. Umsjónarmenn Stonehenge höfðu gert sér vonir um að fá 43 | milljónir punda úr happdrætt- inu til að byggja fullkomna þjón- j ustumiðstöð viö þetta 5000 ára | gamla furðuverk. J Ekki er ljóst hvers vegna verk- | inu var neitað um fé. Hussein Jórdan- íukóngur gagn- ^ rýnir þingmenn Hussein Jórdaníukonungur Ígagnrýndi í gær ályktun sem fram er komin í fulltrúadeild Bandaríkja- ; þings þar sem ;j þess er f'arið á leit að Clinton j forseti ítreki j að Jerúsalem sé óskipt höf- j uðborg ísra- Iels. Konungur sagði aö slík ályktun gæti grafið undan sátta- hlutverki bandariskra stjórn- valda í Mið-Austurlöndum. í ræðu á fundi alþjóðasamtaka verkalýðsfélaga í Genf hvatti hann ísraelsmenn einnig til að j stöðva frekara landnám á landi j araba þar sem það stefndi friðar- ferlinu í voða. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.