Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 1 1 Vigdís Hrefna Pálsdóttir leikur frillu Peróns í Evítu: - segir þessi hæfileikaríka stúlka „Það hefur einhvern veginn alltaf legið fyrir að ég ætlaði í leiklist. Ég var búin að ákveða að fara til Frakklands í haust og fara þar í frekara söngnám. Ég vissi því að ég á eftir að fara í prufusöng og ákvað eiginlega þess vegna að fara í áheyrn- arprufuna fyrir Evítu. Ég hef gaman að söngleikjum, þekkti tónlistina í Evítu og ákvað því eiginlega fyrir hálfgerða tilviljun að prófa,“ segir Vigdís Hrefna Pálsdóttir, tvítug Reykjavíkur- mær, um það hvernig stendur á því að hún stígur sín fyrstu spor á sviði nú þegar söngleikurinn Evíta verður frumsýndur í ís- lensku óperunni á mánudags- kvöld. Einhvern veginn öðru- vísi Vigdís leikur frillu Peróns sem siðan verður að víkja fyrir Evítu. Lagið sem Vigdís syngur hefur ómað á öldum ljósvakans síðustu dægrin og hefur stúlkan vakið verðskuldaða athygli fyrir flutn- inginn. Hún syngur eitt af aðal- lögunum og er líklega óþekktust þeirra sem fremst fara í söng- leiknum. „Ég á erfitt með að útskýra hvernig en þetta er öðruvísi en ég reiknaði með. Þetta er vissu- lega mjög gaman en hefur jafn- framt verið mikil vinna. Það er góður skóli að fá að vinna með því íslenska tónlistarfólki sem stendur fremst hér á landi í dag. Með því að taka þátt í þess- ari vinnu hef ég styrkst enn frekar I þeirri ákvörðun minni um að leggja leiklistina fyrir mig.“ Hlakkar til sýninganna j Það er óhætt að segja að stúlk- an hafi haft í mörg horn að líta undanfamar vikur. Hún lauk stúdentsprófum frá MR fyrir nokkmm dögum og tók þá á svip- uðum tíma 5. stig í söng frá Söng- skólanum í Reykjavík. Þar að auki hefur hún tekið fimm stig á píanó. „Þetta var vissulega mikil vinna um tíma og ég hlakka mikið til þegar sýningar hefjast. Við erum ánægð með sýninguna og ég vona að fólk verði það líka. Ég er svolítið hissa hversu lítið stressuð ég er en það á ör- ugglega eftir að koma,“ segir Vigdís sem segist ætla að reyna að finna sér vinnu hálfan dag- inn þangað til hún fer út. r Aheyrnarprufur Vigdís hefur undanfarin þrjú sumur dvalið í Frakklandi og ætlar nú til Strassborgar í haust. Hún ætlar í háskólann, í frönsku, stefnir á söngnám með og hugsanlega píanónám. Síðar ætlar hún svo að ferðast um Frakkland og reyna fyrir sér í leiklistinni. „Söngurinn er mjög góður með og vinnan í Evítu á án efa eftir að nýtast mér vel þegar á hólminn verður komið og ég þarf að standa mig í áheym- arprufum," segir Vigdís Hrefna Pálsdóttir. -sv Vigdís Hrefna ætlar tii Frakklands í haust og hyggur á frönskunám og nám í söng og ef til vill í píanóleik. Síöan ætlar hún að reyna fyrir sér í leiklist. DV-mynd E.ÓI. erlend bóksjá Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. Meave Blnchy: Evenlng Class. 2. Terry Pratchett: Feet of Clay. 3. Roddy Doyle: The Woman Who Walked Into Doors. 4. Danlelle Steel: Mallce. 5. Ben Elton: Popcorn. 6. Mlchael Ondaatje: The Engllsh Patlent. 7. laln M Banks: Excesslon. 8. John Grlsham: Runaway Jury. 9. Jeffrey Archer: The Fourth Estate. 10. John le Carré: The Talor of Panama. Rit almenns eölls: 1. Frank McCourt: Angela’s Ashes. 2. Paul Wllson: A Little Book of Calm. 3. Blll Bryson: Notes from a Small Island. 4. The Art Book. 5. Nick Hornby: Fever Pltch. 6. John Gray: Men are from Mars, Women are from Venus. 7. Rlchard E. Grant. Wlth Nalls. 8. The Splce Girls: Glrl Power. 9. Mlchael Moore: Downsize Thlsl 10. Wlll Hutton: The State to Come. Innbundnar skáldsögur: 1. John Grlsham: The Partner. 2. Edward Rutherfurd: London: The Novel. 3. Wllbur Smlth: Blrds of Prey. 4. Danlelle Steel: The Ranch. 5. Edmund Whlte: The Farewell Symphony. Innbundin rit almenns eðlls: 1. Jean-Domlnlque Bauby: The Dlvlng-Bell and the Butterfly. 2. Slmon Singh: Fermat's Last Theorem. 3. Dava Sobel: Longltude. 4. Scott Adams: The Dllbert Prlnclple. 5. Paul Brltton: The Jlgsaw Man. (Byggt á The Sunday Tlmes) Bandarískir gagn- rýnendur mega vart vatni halda yfir nýj- ustu skáldsögunni eft- ir Thomas Pynchon, sem hefur vakið at- hygli með því að vera í felum áratugum saman að hætti J.D. Salingers. Aðrir eru ekki eins hrifnir og telja nýju söguna, sem heitir „Mason & Dixon“, hið mesta torf sem einungis félagar í aðdáendaklúbbi höf- undarins muni ná að pæla í gegnum. Pynchon, sem varð sextugur um daginn, sendi fyrstu skáldsög- una frá sér árið 1963. Hún nefndist „V“ og vakti verulega athygli í bókmennta- heiminum fyrir frumleika og óhefð- bundnar uppákomur af ýmsu tagi, svo sem krókódílaveiðar i sorpræs- um New York borgar. Þá var það helst vitað um Pynchon að hann hafði stundað nám við Cornell-háskólann með góðum árangri, en neitaði hins veg- ar algjörlega að koma fram opinber- lega sem höfundur; hafnaði öllum viðtölum, bannaði myndatökur og neitaði að lesa upp úr verkum sín- um. Þar fór hann í fórspor nokk- urra sérvitringa meðal bandarískra rithöfunda. Salinger er að sjálf- sögðu þeirra kunnastur en fleiri hafa gert hið sama, svo sem Harper Lee, höfundur „To Kill a Mocking- bird“. Hins vegar hefur Pynchon lif- að eðlilegu fjölskyldulífi; hann hýr í New York með eiginkonu sinni, sem er um leið umboðsmaður hans, og eiga þau einn son. Pynchon fylgdi fyrstu skáldsög- unni eftir með „The Crying of Lot 49“ árið 1966 og „Gravity’s Rain- bow“ árið 1973. Þá tók hann sér svo langt hlé að margir héldu að hann væri hættur að skrifa. Fjórða skáld- sagan kom ekki út fyrr en 17 árum síðar, árið 1990. Sú heitir „Vin- eland“ og olli sumum vonbrigðum. Landmælingamenn Nafn nýju skáldsögunnar vísar til tveggja enskra landmælingarmanna - Charles Mason og Jeremiah Dixon - sem voru fengnir til þess skömmu eftir að Bandaríkin urðu sjálfstætt ríki á átjándu öld að mæla landa- mærin á mifli Marylands og Penn- Umsjón Elías Snæland Jónsson sylvaníu. Þessi landamæri voru upp frá því við þá kennd og urðu síðar sú mikilvæga lína sem lá á milli suður- og norðurríkjanna, milli frelsis og þrælahalds. „Mason & Dixon“ er afar löng skáldsaga, eins og flest verk Pyn- chons - nánar tiltekið 773 blaðsíður. Þar segir frá fjölskyldu nokkurri í borginni Philadelphia - en svarti sauður ættarinnar segir sögu þeirra fé- laga Masons og Dixons allt frá á Englandi til Suður- Afríku og loks nýja heimsins. Að venju koma hinar furðuleg- ustu persónur við sögu, svo sem há- menntaður enskur hundur, sem er gjarn á að syngja, sjómað- ur sem hefur slíkt þefskyn að hann finnur á lyktinni hverra þjóðar þau skip eru sem nálgast og tvær klukkur sem spjalla saman. Til að gefa til kynna andstöð viðhorf til nýju skáldsögunnar skal hér stuttlega vitnað til tveggja gagnrýnenda. í The New York Times Book Revi- ew er aðdáunin í fyrirrúmi. Þeir sem urðu hissa á „Vineland” geta nú tekið gleði sína á ný því hér er „gamli Pynchon" aftur kominn, „hinn sanni Pynchon, sá allra besti“ segir þar. Það sé ekkert sambæri- legt við „Mason & Dixon" í banda- rískum bókmenntum - nema kannski sumar fyrri sögur snillings- ins. I enska blaðinu The Sunday Times segir að nýja sagan, sem sé í stíl Tristam Shandys, sé uppfinn- ingasöm á fyrstu 200 blaðsíðunum, en sama verði ekki sagt um þær 500 blaðsíður sem fylgja í kjölfarið. Vís- að er tfl þess að hámenntaði hund- urinn snúi aftur undir lokin en hafi þá lært að þegja, og bætt við: „Mað- ur óskar þess að Pynchon hefði gert hið sama nokkur hundruð blaðsíð- um áður.“ Tveir enskir landmælingamenn að störfum í Ameríku átjándu aldar- innar eru sögupersónur Pynchons í „Mason & Dixon“. Metsölukiljur • * » » Bandaríkin Skáldsögur: 1. Mary Higgins Clark: Moonllght Becomes You. 2. Sherl Reynolds: The Rapture of Canaan. 3. John Darnton: Neanderthal 4. Nora Roberts: Montana Sky. 5. John Grisham: The Runaway Jury. 6. John Sandford: Sudden Prey. 7. Belva Plaln: Promlses. 8. Ursula Hegi: Stones From the Rlver. 9. Wally Lamb: She's Come Undone. 10. Elizabeth Lowell: Where the Heart Is. 11. James Patterson: See How They Run. 12. Mlchael Ondaatje: The Engllsh Patlent. 13. Robln Cook: Invaslon. 14. Daie Brown: Shadows of Steel. 15. Dean Kootz: Ticktock. Rit almenns eðlis: íi 1. Andrew Well: Spontaneous Heallng. 2. James McBride: The Color of Water. 3. Mary Pipher: Revlving Ophella. 4. Jonathan Harr: A Civil Actlon. 5. Laura Schlesslnger: How Could You Do That?! 6. Carmen R. Berry & T. Traeder: Glrlfrlends. 7. Jon Krakauer: Into the Wlld. 8. Kathleen Norrls: The Clolster Walk 9. Thomas Cahill: How the Irlsh Saved Clvlllzatlon. 10. Jeff Foxworthy: No Shlrt, No Shoes ... No Problem! 11. Carl Sagan: The Demon-Haunted World. 12. Danalel Jonah Goldhagen: Hitler's Willing Executloners. 13. Vlncent Bugllosl: Outrage. 14. Mary Karr: The Liar’s Club. 15. Mary Pipher: The Shelter of Each Other (Byggt é New York Times Book Review)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.