Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Page 14
14 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 T*fr"\7’ Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn. skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLT111,105 RVÍK, SIMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasiða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvntst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni biaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Sauðfé í Sahara íslands Enn gerir landgræðslustjóri ekkert, þótt mývetnskir bændur reki sauðfé á gróðurvana Austurafrétt í trássi við umvandanir og siðaprédikanir. Hann tuðar og tuðar og tuðar, en beitir ekki því valdi, sem hann hefur, til að láta loka viðkvæmum svæðum fyrir ágangi búfjár. Friða þarf þessi svæði af almennum vistfræðilegum ástæðum og einnig vegna þess, að sandfokið af þeim ógn- ar náttúruperlunni í Dimmuborgum. Þær munu smám saman fyllast af sandi. Hann er raunar þegar er farinn að berast niður í þær með vaxandi hraða. Landgræðslustjóri hefur þó samvizkubit vegna þessa aðgerðaleysis, því að nýlega sagði hann í blaðaviðtali: „Þeir eru að skaða ímynd bænda og landbúnaðarins í heild, og ég tel, að flestallir bændur eigi erfitt með að sætta sig við þennan upprekstur á þessum tíma.“ Það sannast hins vegar á landgræðslustjóra, að fagurt hugarfar og góð áminningarorð eru til lítils, ef menn hafa ekki bein i nefinu til að framkvæma það, sem þeir eru beinlínis ráðnir til að gera. Þannig skaðar hann mál- efnið, sem honum hefur verið falið að varðveita. Annar maður stendur einnig í vegi gróðurverndar á afréttum Mývatnssveitar. Það er landbúnaðarráðherra, sem líka gerir ekkert, en hefur hins vegar ekkert sam- vizkubit, enda hefur hann alltaf staðið dyggan vörð um ýtrustu sér- og stundarhagsmuni í landbúnaði. Árum saman hafa verið miklar deilur um upprekstur mývetnskra bænda. Landgræðslustjóri hefur verið að reyna að hafa vit fyrir þeim og ná samkomulagi við þá, fyrst um takmörkun og síðan stöðvun, en þeir hafa látið allt slíkt hljóma sem mýflugusuð í eyrum sínum. Mývetnskir bændur líta á tuðið í landgræðslustjóra sem linkind eins og norsk stjórnvöld líta á tuðið í utan- ríkisráðherra okkar. Ef brotaviljinn er eindreginn, þýð- ir ekkert að nudda vandræðamönnum með góðu til að haga sér eins og samfélagið ætlast til af þeim. Svo var upprekstur þessi orðinn óvinsæll vorið 1992, að þá var hluti fjárins fluttur á afrétt á bílum í skjóli myrkurs. DV frétti af þessu og fór á staðinn, þar sem að- gerðir bænda voru festar á filmu. Eftir þetta fóru nátt- úruverndarmenn að kveða fastar að orði. Áfram héldu mývetnskir bændur að nauðga landinu. Vorið 1994 kom seint. Þá fluttu þeir sauféð á hvíta skafla í svörtum sandi. Þá neyddist landgræðslustjóri til að segja, að breytingar væru í nánd, en sú nánd er því mið- ur ekki kominn enn, þremur árum síðar. Landgræðslustjóri hefur sagt í viðtali við DV, að í rauninni séu upprekstrarlönd Mývetninga í heild óbeit- arhæf. Þetta er nákvæmlega sama skoðun og fræðimenn hafa. En mývetnskir sérhagsmunaaðilar telja sig vita betur og hafna skoðunum úr öðrum sveitum. Vísindamenn ganga raunar lengra en embættismenn og segja afréttir Mývetninga vera stærsta rofsvæði í Evr- ópu og þótt víðar væri leitað. Verði ekkert aðhafzt, mun nærri allt gróðurlandi frá Vatnajökli og norður í Öxar- fjörð smám saman verða sandinum að bráð. Þetta kom fram á ráðstefnu í Mývatnssveit í fyrra, er lögð var fram áætlun um friðun 3000-4000 ferkílómetra svæðis á þessum slóðum. Samkvæmt henni á að hafa Mývetninga með í ráðum, ráða þá til landverndarstarfa og borga þar á ofan fyrir túnrækt þeirra. Brotamenn Mývatnssveitar hafa samt alls engan sam- starfsvilja sýnt og því ber embættismönnum skylda til að stöðva landeyðingu þeirra með lögregluvaldi Jónas Kristjánsson Skammstafanir og þróun öryggismála Þegar menn lesa um alþjóðamál eða alþjóðlegt samstarf, rekast þeir fljótt á nauðsyn þess að leggja skammstafanir á minnið. Þær leiða menn oft í gegnum frumskóg stofnana og samninga. Á þetta ekki síst við, þegar rætt er um ör- yggismál og það, sem lýtur bein- línis að herfræðilegum þáttum. Fyrir þá, sem skrifa um þessi málefni á öðrum tungum en ensku og frönsku, kann oft að vera erfitt að þýða skammstafanir yfir á eig- ið mál. Þannig tölum við íslend- ingar um NATO, þegar vísað er til Atlantshafsbandalagsins eða Norður-Atlantshafbandalagsins, eins og er orðrétt þýðing á hinu enska heiti bandalagsins, North Atlantic Treaty Association. Við notum sem sé ensku skammstöf- unina. Það gerum við hins vegar ekki, þegar við ræðum um Vestur- Evrópusambandið, VES, eða West- em European Union, WEU. VES varð til á undan NATO, lagðist hins vegar í dvala í nokkra áratugi, en gegnir nú nýju hlut- verki í öryggismálum Evrópu og þó sérstaklega innan Evrópusam- bandsins (ESB), European Union (EU). ísland er aukaaðili að VES sem evrópskt aðildarríki NATO. NACC, PfP, EAPC Millifyrirsögnin vísar til stofn- ana eöa samstarfs, sem hefur orð- iö til um öryggismál síðan Sovét- ríkin hurfu úr sögunni árið 1991. Norður-Atlantshafssamstarfs- ráðið, North Atlantic Cooperation Council, NACC, varð til í desem- ber 1991. Þar hefur verið stofnað til samstarfs milli NATO-ríkjanna og ríkja í Mið- og Austur-Evrópu. Félagsskapur í þágu friðar (FÞF), Partnership for Peace (PfP), varð til á árinu 1994 fyrir frum- kvæði NATO. Tilgangur félags- skaparins er að þróa samstarf í ör- yggismálum miili NATO og ríkja í Mið- og Austur-Evrópu. í íslensk- um fjölmiðlum og opinberum gögnum er talað um samstarf NATO um frið eða friðarsamsam- starf NATO, þegar vísað er til Fé- lagsskapar í þágu friðar. Má færa fyrir því haldgóð rök, að með því að ræða ekki beint um félagsskap sé gefm röng mynd á íslensku af eðli þessa samstarfs. Undir hatti FÞF verður efnt til æfingar hér á landi innan skamms með þátttöku margra ríkja. Þar verða æfð við- brögð við náttúruhamfórum. Hinn 30. maí síðastliðinn stofn- uðu utanríkisráðherrar NATO- ríkjanna og fulltrúar aðildarríkja NACC og þátttökuríki í FÞF á fundi í Sintra i Portúgal nýjan samstarfsvettvang Evró-Atlants- hafssamstarfsráðiö, Euro-Atlantic Partnership Council (EAPC). Kemur þetta nýja ráð í stað NACC. Á nýja ráðið að taka mið af þvi, hve vel hefur tekist að efla samstarf um stjórnmál og vamar- mál innan NACC og Félagsskapar f þágu friðar. Verður FÞF áfram við lýði sem sérgreindur þáttur í samstarfmu innan ramma EAPC. í sjálfu sér er þessi nafnbreyt- ing á NACC ekki einstæð. Ráð- stefhan um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE), Conference on Security and Cooperation in Erlend tíðindi Björn Bjarnason Europe (CSCE), varð til 1975. Nú heitir þessi stofnun Öryggissam- vinnustofnun Evrópu (ÖSE), Org- anisation for Security and Cooper- ation in Europe (OSCE). Meira en nafnbreyting Ákvörðunin um að breyta NACC í EAPC hefur meira í för með sér, því að greina má áherslubreytingu í því að bæta orðinu Evró inn í heiti þessa samstarfsvettvangs. Þar er undir- strikað, að um tveggja stoða sam- starf sé að ræða, það er annars vegar milli Evrópuríkja og hins vegar Atlantshafsríkja, en með því orði er einkum vísað til Bandaríkjanna og Kanada í Norður-Ameríku, þótt auðveldast sé fyrir okkur íslendinga að falla undir hugtakið. Innan NATO hefur um nokk- urt árabil verið unnið að því að skilgreina sérstaka evrópska ör- yggis- og varnarhagsmuni (European Security and Defence Identity, ESDI) og jafhframt leið- ir til að gæta þeirra. Vilja ýmsir, að Vestur-Evrópusambandið gegni sérstöku hlutverki í þessu tilliti. Innan NATO eru menn þó ekki á einu máli um það eða að VES renni beinlínis inn í Evr- ópusambandið eins og reifað er í Maastricht-samkomulaginu. Frá sjónarhóli íslendinga yrði óheppilegasta afleiðing þessarar þróunar í öryggismálum Evró-Atl- antshafssvæðisins sú, að klofning- ur skapaðist milli Evrópu og Norður- Ameríku. Þá kynnum við að standa frammi erfiðu vali, þrátt fyrir þá sérstöðu að hafa ótímabundinn, tvíhliða varnar- samning við Bandaríki Norður- Ameríku. „Þegar menn lesa um alþjóðamál eða alþjóðlegt samstarf, rekast þeir fljótt á nauösyn þess aö leggja skammstafanir á minnið. Þær leiða menn oft í gegnum frumskóg stofnana og samninga. Á þetta ekki síst við, þeg- ar rætt er um öryggismál og þaö, sem lýtur beinlínis að herfræöilegum þáttum,“ segir m.a. í grein Björns. Símamynd Reuter skoðanir annarra ■ 'ér' v _______________________________ Bandaríkin taka séns I „Þaö er skynsamlegt að aöstoða við að koma á lög- : um og reglu í nýja Kongó (fyrrum Saír) sem er stórt i land í hjarta Afríku og hefur alla burði til að vera ; ríkt. Því er hins vegar ekki að neita að yfirvöld i ; Washington taka talsverðan séns með því að vingast svo skjótt við Laurent Kabila forseta. Hann á enn eft- ir að sýna það sem er mikilvægast fyrir stríðsherra sem sest á friðarstól, nefnilega vilja til að viður- : kenna sem samborgara þá sem voru á öndverðum ; meiöi við hann í sjö mánaða borgarastríðinu í Saír.“ Úr forystugrein Washington Post 12. júní. Valdbeiting ekki ráttlætanleg „Enn hafa deilur risið milli Noregs og íslands um fisk á norðlægum miðum. Allt bendir til að um sé að kenna tilkynningu til fiskistofu sem komst ekki til skila. íslenski skipstjórinn heldur fram að tilkynn- í ingin hafi verið send og þá ætti allt að vera i stakasta i lagi. Vegna slíkra smámuna var skipið stöðvað og dregið til lands af norsku strandgæslunni og skip- stjórinn fékk 30 þúsund (norskra) króna sekt og var gert að greiða 375 þúsund (norskar) krónur vegna fjárnáms. Forsætisráðherra íslands brást hart við að- gerðum Norðmanna og sagði að svona kæmu vina- þjóðir ekki fram hvor við aðra. Þar hefur hann á réttu að standa. Við lítum svo á að nauðsynlegt sé fyrir Norðmenn að sýna mátt sinn og megin á norð- urslóðum. Það getur verið réttlætanlegt þegar mikil- vægir hagsmunir eru í húfi en ekki þegar um er að ræða misskilning í ómerkilegu máli.“ Úr forystugrein Dagbladet 11. júnl. Hárrétt ákvörðun „Ákvöröun Josephs Ralstons hershöfðingja um að sækjast ekki lengur eftir embætti yfirmanns her- ráðsins var sú eina rétta þegar litið er til hneykslun- ar almennings á því hvemig tekið var á framhjá- haldsmálum í hemum nýlega. Framboð hans var dauðadæmt um leiö og það spurðist út að hann hefði einnig haldið fram hjá konu sinni fyrr á ferli sín- um.“ Úr forystugrein New Vork Times 12. júní.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.