Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Page 15
LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997
15
Lituð stærðfrœði
Af hyggjuviti minu hef ég
reiknað út að það sé grínlaust að
vera grunnskólanemi. Þeir kunna
nefnilega ekki að reikna. Það þyk-
ir vont. Þjóðin er i hálfgerðu
sjokki vegna þessa, sérstaklega
vegna þess að vankunnátta bam-
anna okkar fréttist til útlanda.
Þetta kom nefnilega í ljós í alþjóð-
legri könnun. Miðað við heiminn
allan erum við nánast á botninum
og hreinlega á botninum í Evr-
ópu.
Þetta ástand særir okkur mjög
vegna þess að við leggjum kapp á
að tróna á toppi útlendra saman-
burðarskýrslna. Við viljum vera
ríkust, fallegust, lifa lengst, eiga
flesta bíla, síma og tölvur og við-
halda því að vera hamingju-
samasta þjóð í heimi. Kannski fer
það saman að vera hamingjusam-
ur og kunna ekki að reikna. Þá fer
það alveg fram hjá okkur að allt
sé að fara til andskotans. Það er
nefnilega hægt að reikna sig nið-
ur í þunglyndi. Þeir sem ekki
kunna að reikna göslast áfram,
ánægðir með sig og sína. Hinir
fyllast kvíða fyrir framtíðinni
vegna þess að þeir hafa reiknað
sig í gjaldþrot.
Þótt grunnskólanemar eigi bágt
hlýtiu' staðan þó að vera enn verri
hjá stærðfræðikennurunum. Það
kemur í ljós að þeir kunna ekki
að kenna og það sem verra er,
þeir kunna ekki að reikna fremur
en bömin. Tíminn undanfarin ár
hefur ailur farið meira og minna í
kjaraþras og verkfóll. Það gefst
því sáralítill tími til þess að
kynna sér talnaþrautirnar svo
koma megi þeim inn í kollinn á
börnunum.
Rætur vandans
Menntamálaráðherra hefur
fundið út að vandræði þessi megi
rekja allt til áranna í kringum
1970. Þá tóku menn upp sérkenni-
lega trú í skólakerfinu, fóm að
lita í stærðfræðibækur i stað þess
að leggja saman og draga frá. Sak-
ir eru eflaust fyrndar í svo gömlu
máli en á þessum tíma tók Magn-
ús Torfi við af Gylfa Þ. sem
menntamálaráðherra. Menn
minnast Magnúsar helst fyrir þær
sakir að hann hætti að kenna ung-
dómnum að skrifa zetu. Það voru
ekki allir kátir vegna þess. Stöku
menn skrifa enn zetu en fækkar
óðum. Vera kann að seta Magnús-
ar Torfa í embætti forðum hafi
einnig tengst vaxlitun i stærð-
fræðibækur en ekkert skal þó um
það fullyrt. Vafasamt er raunar að
líta svo á að ráðherrar hafi mikið
með kennslustefnu að gera. Þar
koma eflaust frekar til sögunnar
kerfiskarlar og -konur í lokuðum
kimum ráðuneytis þeirra.
Stærðfræðieiginleikar
bókstafa
Ég er einn þeirra lánsömu
manna sem ná því að hafa verið í
grunnskóla fyrir árið ógnvæn-
lega, 1970. Ég var því aldrei látinn
lita í reikningsbækurnar. Ég hefði
þó vel getað hugsað mér það. Ég
var ágætur i því að lita, hafði
raunar næmt auga fyrir litasam-
setningu að mati teiknikennar-
ans. Mér þótti hins vegar aldrei
gaman að reikna. Með tímanum
lærði ég þó að leggja saman og
draga frá, jafnvel að margfalda og
deila. Ég þóttist sjá að sá fróðleik-
ur gæti komið að gagni. Betri
helmingur minn segir þó að ég
eigi í sífelldum vandræðum með
að draga rétt frá í heftinu.
Það kámaði hins vegar gaman-
ið þegar að algebrunni kom. Mér
þótti út í hött að leggja saman og
deila með bókstöfum. Ég gat
ómögulega séð hvernig mætti
leggja saman a og b og/eða jafnvel
deila öðrum bókstafnum í hinn.
Þrátt fyrir þetta skilningsleysi
á stærðfræðieiginleikum bókstafa
Laugardagspistill
Jónas Haraldsson
komst ég milli bekkja. Það voru
sem betur fer engar alþjóðlegar
kannanir á stærðfræðikunnátt-
unni. Singapúr hélt ekki vöku fyr-
ir okkur félögunum. í mennta-
skóla lét ég mér nægja tvo vetur í
stærðfræðinni, máladeildin varð
ofan á. Ágætrn- stærðfræðikenn-
ari skólans gerði ekki athuga-
semd við það val.
Samanburöarfræði
Hvort er svo betri brúnn eða
rauður? Gengur fólki betur eða
verr sem velur máladeild fremur
en stærðfræðideild í skóla? Hvor
hópurinn er hamingjusamari?
Hvor nær sér í hetra starf? Sitja
kannski báðir aðilar eftir meðan
þeir gera það best sem völdu sér
annað nám og annan starfsvett-
vang?
Það ^iU 0¥0 vol til að óg got
lagst í smálegan samanburð á
skólafélögum mínum úr mennta-
skóla, stúdentahópi frá þeim
árum er Magnús Torfi felldi niður
zetuna. Við héldum upp á útskrift-
arafmæli á dögunum. Krafta-
verkafólk í hópnum sá til þess að
út kom bók um hagi skólafélag-
anna, menntun, starf, fjölskyldu
og áhugamál hvers og eins.
Erfitt er að geta sér til um ham-
ingju manna eftir deildum í
menntaskóla. Á myndum í bók-
inni eru allir fremur hýrlegir til
augnanna og láta vel af sér í texta.
Á útskriftarballinu voru allir
glaðir og á fótamennt mátti engan
greinarmun gera á stærðfræði-,
náttúrufræði- og máladeildar-
mönnum. Almennt talað voru
máladeildarbekkirnir þó fallegri
en af þeirri ástæðu einni að fleiri
stelpur voru í þeim.
Algebran lítt sexí
A einu var þó sláandi munur.
Þeir sem voru í máladeild á sín-
um tíma eiga mun fleiri böm en
hinir. Hvað sem líður stærðfræði-
þrautum þá kunnu menn greini-
lega til verka á því sviði. Víst má
telja að hið frjósama ástalíf hafi
verið kryddað frösum sem menn
mundu úr kennslustundum, svo
sem: „Island ist eine Insel in dem
Nord-Atlantik“ og „Jeg hedder
Knud, hvað hedder du?“ Fyrir
þessu falla ólíklegustu menn og
konur og gerast ástleitin. Reynsl-
an sannar því að algebra, jöfnur
og mengi era ekki eins sexí og
tungumálin.
Starfsval
í starfsvali er talsverður mun-
ur á hópunum. í máladeildar-
hópnum eru fj ölmiðlamennirnir
fjölmennastir, þá kennarar, sál-
fræðingar, lögfræðingar og lækn-
ar. í hópnum eru einnig, svo
dæmi séu tekin, viðskiptafræðing-
ur, kerfisfræðingur, bókasafns-
fræðingur, mannfræðingiu:, iðju-
þjálfar, hjúkranarfræðingur, tón-
listarmenn, leikari, sveitarstjóri,
markaðsstjóri, flugmaður og flug-
freyja. I náttúrufræði- og stærð-
fræðideildarhópnum eru lækn-
arnir fjölmennastir, þá fram-
kvæmdastjórar, kennarar, verk-
fræðingar, meinatæknar, lyfja-
fræðingar, arkitektar, efnafræð-
ingar og prestar. Meðal annarra
starfsgreina þessara skólafélaga
má nefna hjúkranarfæðing, kaup-
mann, bílstjóra, bókasafnsfræð-
ing, fjölmiðlamann, leiklistarráð-
gjafa, iðjuþjálfa, kerfisfræðing,
fiskifræðing, endurskoðanda og
sjúkraþjálfara.
Valið í menntaskóla hefur því
greinileg áhrif á starfsvcd, svo
sem vænta mátti. Það riðlast þó
að hluta þannig að sömu starfs-
heitin sjást að nokkru meðal
beggja hópanna. Það er þó athygl-
isvert að kennarar era fjölmennir
í báðum hópunum. Vilji menn
gagnrýna kennara fyrir upp-
fræðslima á blessuðu ungviðinu
þá verður því fremur skellt á báða
hópana en annan. Ekkert kom þó
fram hvort þetta góða fólk hefur
lagt fyrir sig kennslu í stærðfræði
eða náttúrufræði.
Geðhjálp Norðmanna
Þjóðin þarf nú á áfallahjálp að
halda. Skólabörn era úti á þekju
stærðfræðinnar. Áfallið sem við
fengum í vikunni snertir yngri
börnin i grunnskólanum. í vetur
gat að líta frammistöðu þeirra
eldri. Þar var allt á sömu bókina
lært. Það liggur því fyrir að það
verður að hætta að lita í reikn-
ingsbækurnar.
Hið eina sem bjargar geði ey-
þjóðarinnar í norðri á þessum erf-
iðu tímum stærðfræðinnar er
sameiginleg fæð sem lögð er á
Norðmenn. Það er hins vegar
óvíst hve lengi sú sæla endist.
Það er ekki til setunnar boðið,
eins og ráðherrann sagði.