Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 JLj'V
Ivjðtal
Ellefu ár frá fyrstu hjartaaðgerðinni hér á landi:
Þoldi ekki álagið í bríddsinu
- segir Valgeir G.Vilhjálmsson um dvölina á Borgarspítalanum
„Ég gerði mér í sjálfu sér engar
sérstakar væntingar um hvað kæmi
út úr þessu. Mér var gert ljóst að ég
yrði að fara í aðgerð og féllst á að
. verða sá fyrsti til að fara í þessa að-
gerð hér heima þegar eftir því var
leitað. Læknarnir sögðu mér að ég
yrði farinn að hlaupa á fjöll mánuði
síðar en ég tók það ekkert of bók-
staflega. Taldi reyndar að það væri
bara sagt til þess að róa mig,“ segir
Valgeir G. Vilhjálmsson, fyrsti fs-
lendingurinn tii þess að fara í
hjartaaðgerð hér heima. í dag eru
nákvæmlega 11 ár frá því að hún
var gerð.
Fákk verk við að reima
Valgeir segist hafa fengið verk í
handlegginn í febrúar, verk sem
ekki vildi fara. Hann var sóttur og
rannsakaður hátt og lágt og að því
loknu átti að leyfa honum að fara
heim.
„Ég komst ekki lengra en fram í
forstofu. Ég var að reima á mig
skóna þegar ég fékk verk, hafði orð
á því við hjúkrunarfræðing sem
þarna var og hann kyrrsetti mig um
leið.“
Valgeir segist hafa þurft að vera á
spítalanum fram á vor. Hann var
búinn að samþykkja að verða fyrst-
ur til þess að gangast undir þessa
aðgerð hér heima og nú tók við bið
eftir tækjum sem nauðsynleg þóttu
fyrir aðgerðina.
Líðanin var ekki svo slæm á
sjúkrahúsinu að sögn Valgeirs. Þeg-
ar kom fram undir mánaðamótin
apríl maí var hann hættur að þola
mikið andlegt álag.
Þurfti pillu og súrefni
„Við vorum fjórir saman á stof-
unni og tókum upp á því að spila
bridds okkur til skemmtunar. Eitt
sinn átti meðspilari minn sögnina.
Ég var með ágæt spil og lagði niður.
Þegar á leið var mér hætt að lítast á
hvernig meðspilarinn ætlaði að
spila úr, varð eitthvað æstur og það
endaði þannig að ég þurfti að kalla
á hjúkrunarfólkið og fá tungurótar-
töflu.“
Læknarnir sáu enga ástæðu til
þess að taka fyrir spilamennsku
þessa mikla keppnismanns en ráð-
lögðu honum þó að fara hægt í sak-
irnar. í annað sinn segir Valgeir að
legið hafi við að illa færi við spila-
mennskuna. Þá hafi hann fengið
rosalega góð spil, alla ásana, kóng-
ana og eitthvað af öðrum mannspil-
um, samtals 56 punkta.
„Mér varð svo mikið um þetta að
ég þurfti bæði að fá pillu og súr-
efni,“ segir Valgeir og hlær við að
rifja þetta upp.
Aldrei smeykur
Þegar stóri dagurinn rann upp
var mikið tilstand. Valgeir segist lít-
ið hafa viljað ræða við þá sem höfðu
farið utan í sams konar aðgerðir,
segir að stundum sé best að vita
sem minnst. Á milli 20 og 30 manns
tóku þátt í aðgerðinni, íslenskir
læknar og hjúkrunarfólk og sænsk-
ir sérfræðingar.
Á þessum tíma var Valgeir 63 ára
gamall. Hann segist hafa verið far-
inn að finna til máttleysis, það hafi
í raun komið nokkuð skyndilega.
Eitt árið hafi hann getað elt uppi
dýrbitið lamb og gengið með það
langa vegu. Árið eftir segist hann
varla hafa getað gengið stiga án
þess að þreytast mikið.
„Það var alveg morgunljóst að að-
gerðin yrði ekki umflúin. Þeir tóku
æð úr fætinum, frá ökkla og upp í
læri, bútuðu hana niður og tengdu
fram hjá fjórum kransæðum. Ég
treysti læknunum fullkomlega og
var aldrei smeykur við að verða sá
fyrsti sem fara skyldi í þessa aðgerð
hér á landi.“
Passa upp á hreyfing-
una
Valgeir segir aðgerðina hafa
lukkast vel. Hann hafi að vlsu verið
svolítið langt niðri strax á eftir. Við
því hafi verið varað og það lagast
allt um leið og hann hafi komist
heim. Hann segist lítið mark hafa
tekiö á loforðinu um að hann yrði
farinn aö hlaupa á fjöfl eftir mánuð
en reyndin varð nú samt sú.
„Ég gekk upp á Trölladyngju og
passa nú vel upp á hreyfmguna. Ég
reyni að synda daglega og geng
heiman að frá mér í sundlaugina,
um 20 mínútna gang hvora leið.
Hreyfingin er afskaplega mikilvæg
og án efa það sem ræður því að ég
held þetta góðri heilsu enn,“ segir
hinn 74 ára Valgeir G. Vilhjálms-
son. -sv
30% afsláttur
Sérstakt sumartilboð!
€€
Verð frá kr. 13.580,-
•ir kr. 2-
innifalinn i ver>i eftir
18 eða 21 gíra
Grip Shift
eða E-Z Fire
Shimano Equipped
AIluTec
VERSLUN FYRIR ÞA SEM VIUA
GERA HAGSTÆÐ KAUP !
- tryggiH.
Vi& Fellsmúla
Sími 588 7332
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14
Vaigeir G. Vilhjálmsson segist reyna að hreyfa sig eitthvað á hverjum degi.
Hreyfingunni þakkar hann hversu góð heilsan er í dag. DV-mynd E.ÓI.
117 e^a 135 MHz PowerPC 603e • 11,3 tommu dual-scan S7SA-
litaskjár sem styður púsundir lita • Upplausn 800x600 pát.
12 eða 16 - 64 Mb vixmsluminni • 750 Mb eða 1 Ob harðdiskur
Möguleiki á sexhraða geisladrifi • Tvœr PC-kortarauiir
Eai'hlaða 30 vattstunda, HiMH, meðal-ending: 2 til 4 klst.
16 bita víððma hljðð • localtalk
Verð frá aðeins
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavík, sími: 511 5111
Heimasíða: http://www.appla.is