Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Qupperneq 25
UV LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997
fréttir 25
TIMSS-rannsóknin - áfellisdómur yfir skólastefnunni:
Verður að taka á málinu
- segir Björn Jónsson, fyrrverandi skólastjóri Hagaskóla
„Þetta er ömurleg niðurstaða.
Hins vegar má segja að það sé einn
kostur við hana: Hún er svo afdrátt-
arlaus að það verður ekki komist
hjá því að gera eitthvað í málinu,"
segir Bjöm Jónsson, fyrrverandi
skólastjóri Hagaskóla, um niður-
stöður Timss-rannsóknarinnar.
Bjöm segir í samtali við DV að
hefði raungreina- og stærðfræði-
kunnátta íslenskra skólanema sýnt
sig að vera í meðallagi í alþjóðleg-
um samanburði, þá hefði umræðu
um málið án efa verið drepið á dreif
með því að segja sem svo að þetta
væri nú svo sem allt í lagi miðað
við allt og allt.
Bjöm, sem er mjög reyndur
skólamaður, segist i raun og veru
ekki vera sérlega undrandi á niður-
stöðunni. Menn hafi hér á landi ver-
ið talsvert ánægðir með sig og talið
hlutina í nokkuð góðu lagi og ekk-
ert sérstaklega verið að seilast eftir
ákveðnum samanburði sem gæti
verið óhagstæður.
Bjöm var spurður um þátt heim-
Fréttaljós á
laugardegi
Stefán Ásgrímsson
ilanna og foreldra í málinu og sagð-
ist hann vilja taka undir orð
menntamálaráðherra þar sem hann
sagði að þegar skorið var á þann
þráð sem var milli heimila og skóla-
náms og tekin upp ný stærðfræði,
sem olli því að foreldrar gátu ekki
lengur aðstoðað börn sín, hefði það
verið stórt skref í átt þangað sem nú
er komið.
Skólarnir ráða engu
„Ef við lítum á skólana verðum
við að hafa það í huga að hver skóli
ræður afskaplega litlu um það hvað
hann kennir. Honum eru einfald-
lega lögð til námsgögn og námsskrá
og ræður nánast engu um þessa
hluti. Það eina sem skólinn getur
gert er að gera sitt besta samkvæmt
námsgögnum og námsskrá. Hann
hefur ekkert stefnumótunarvald í
dæminu. Það eru sérstakir aðilar
sem ákveða t.d. stærðfræðina og
hvað á að taka fyrir í henni og
hvemig, segir Bjöm.
Bjöm segir að nú sé liðinn um
aldarijórðungur síðan námsskrá
var umbylt með nýjum grunnskóla-
lögum, en síðan litið hirt mn að
hafa hliöstæða endurskoðun í gangi
eins og þau lönd gerðu sem höfð
vom til fyrirmyndar á sínum tíma.
Áberandi sé að námsefhi hafi ekki
Dæmi um spurningu:
Brúnir
tenings?
Hversu margar brúnir em á
teningi? var ein spurningin í
TIMSS-rannsókninni. Rétt svar
er 12.
19% 3. bekkjar bama á ís-
landi svöruðu rétt en 48%
Kóreubama, 50% kanadískra
bama, 33% bama í Singapúr og
24% bandarískra barna.
verið endumýjað að marki og menn
hjakkað með sömu gömlu bækurnar
árum saman undir því yfirskini að
endurskoðun væri í vændum.
Vandi Kennaraháskólans
Hvað varðar Kennaraháskólann
segir Bjöm að skólinn standi
frammi fyrir þeim vanda að þurfa
að sjá öllu landinu fyrir kennurum,
þar á meðal smærri skólum dreif-
býlisins þar sem hver kennari verð-
ur að geta kennt flestallar náms-
greinar. Af því leiði að valgreinar,
eða sérgreinar kennaraefnanna
verða í kennaranáminu svo smáar í
sniðum að menn geti ekki náð því
að verða verulega vel að sér í þeim.
ískrar menntunar þar sem leitast
var við að kenna ungu kynslóðinni
út frá því sem telja mætti henni nyt-
samlegt, auk þess að varðveita
menningararfinn og það sem í hon-
um væri markverðast út frá túlkun
hvers tíma. Þessi markmið þóttu
ekki nógu nytsamleg og við tók
mjög þröngsýn nytsemishyggja,
blönduð kenningum úr atferlissálar-
fræði og félagsfræði og nemendum
og kennurum í vaxandi mæli látið
eftir að svara hver fyrir sig spum-
ingunni: hvað þarf ég að læra til að
komast af? Ekki þótti lengur vit í að
eyða tíma barnanna í að læra allt of
mikil ópraktísk bókleg fræði. Hér á
landi tóku síðan ýmsir skólamenn
upp á sína arma ýmsar þroskakenn-
gagnið. Þá er einnig endurmenntun
kennara á dagskrá auk fleiri þátta.
Ég held að allir geri sér grein fyrir
þvi að það tekur langan tíma, mörg
ár, áður en áhrifin koma að fullu
fram,“ segir Stefán Baldursson
skrifstofustjóri í menntamálaráðu-
neytinu.
Eftir að niðurstöður TIMSS-rann-
sóknarinnar á námsárangri 3. og 4.
bekkjar bama voru birtar í vik-
unni, og reyndust jafnvel verri held-
ur en niðurstöðurnar á árangri 7. og
8. bekkjar, þá hefúr það orðið ljóst
að íslenski grunnskólinn á í mjög
alvarlegri kreppu. Árangur ís-
lenskra nemenda er einfaldlega
hraklegur og þegar niðurstöðurnar
vora kynntar sagði Þórólfur Þór-
TIMSS-rannsóknin
90%
80
85
ra
M
70 4
62
60
50
40 39
30
20
10
82
£
'O
S£
56
26
79
48
23
76
44
18
Ágætiseinkunn
I Fyrsta einkunn
@ Önnur einkunn
Hlutfall þeirra sem ná
viðurkenndum
árangri
64
34
15
„Þetta er grundvallarvandi og mjög
erfiður fyrir stofnun að standa
frammi fyrir. Segjum að kennara-
nemi taki stærðfræði og eðlisfræði
sem valgreinar, þá verða þær það
lítil prósenta af heildamámi hans
að hann getur aldrei orðið eins góð-
ur í þeim og æskilegt væri.
Bjöm var í framhaldinu spurður
um löggildingu kennarastarfsins og
hvort hún væri þá i raun fremur til
bölvunar en til bóta fyrh grunn-
skólann.
Björn kvaðst ekki treysta sér til
að svara þeirri spumingu beint.
„Við erum að tala um svo erfitt
vandamál sem er kennarastéttin og
íslenska skólakerfið að það er
spuming hvar á að byrja,“ sagði
Bjöm.
Skólastefna naum-
hyggju
En á hvaða fræðilegum grunni
byggðist sú skólastefna sem fram-
fylgt hefur verið síðasta aldarfjórð-
unginn með þessum árangri sem
TIMSS-skýrslan sýnir? Helga Sigur-
jónsdóttir kennari hefur rannsakað
málefni skólakerfisins og þó eink-
um grannskólans og ritað greinar
og bækur um þau mál. Hún segir að
ekki verði sagt að skólastefnan und-
anfarin ár hafi byggst á einhverri
einni skólakenningu umfram aðra.
Rætumar megi þó að rekja til ár-
anna 1965-1966 þegar byrjað var að
horfa til breytinga sem gerðar vora
á grannskólum í Bandaríkjunum
þrjátíu áram fyrr. Megininntak
þeirra var það að horfið var í vax-
andi mæli frá markmiðum klass-
ingar sem m.a. segja það að lítil
börn geti lítið lært fram eftir öllum
aldri. „Ég held að þessar kenningar
séu einn þátturinn i því nú, hve lít-
il börn era illa að sér í stærðfræði
og raungreinum," segir Helga.
Byltingar til bölvunar
„Maður sér það gjaman í pólitík-
inni og víðar að sums staðar tekst
með jafnri og lýðræðislegri þróun
að ná fram þeim markmiðum sem
allajafna þykja farsæl. Annars stað-
ar er slík þróun stöðvuð og algjör
stöðnun verður í nokkra áratugi.
Síðan kemur bylting. Þetta hefur
gerst á íslandi,“ segir Björn Jóns-
son. Þannig hafi verið gengið er frá
fræðslulögum á fimmta áratugnum
sem voru í gildi fram yfir 1970 þeg-
ar farið var að leggja drög að því að
semja ný.
„Þetta er slæm þróun. Það var
kyrrstaða og síðan er gerð bylting í
þessum málum með nýjum fræðslu-
lögum upp úr 1970. Það er alltaf til-
viljunum háð hversu góðar lausnir
menn hitta á í byltingu og með nýju
lögunum varð kúvending. Hlutimh
áttu að koma af sjálfu sér, frelsið
átti að vera mikið, en á níunda ára-
tugnum taka menn síðan í ljósi
reynslunnar að reyna að draga í
land og ná áttum. Þetta er í stuttu
máli sagt sá vandi sem íslenska
skólakerfið býr við í dag,“ segh
Björn Jónsson.
Hvað verður gert?
„Endurskoðun námskrárinnar á
áð vera lokið fyrir upphaf skólaárs-
ins 1998 en síðan tekur væntanlega
einhvem tíma að koma henni í
kennarar verða að átta sig á þeim
villigötum sem skólamálin hafa ver-
ið á, hversu langan tíma tekur að
rétta kúrsinn. „Bæði kennarar og
foreldrar verða að gera aðrar kröfur
og ég held jafnvel að það þurfi
einkaskóla til að sýna að hægt sé að
gera öðravísi. Enn fremur tel ég að
það verði að aflétta einokun Náms-
gagnastofnunar á námsbókum í
grunnskólunum. Mér líst vel á það
sem menntamálaráðherra er aö
gera, en það er hins vegar ekki nóg.
Námsmarkmið þurfa að vera skýr
og nákvæmlega þarf að vera til-
greint til hvers er ætlast af hverjum
aldursflokki, þó án nokkurs ein-
strengingsháttar. Ef kennararnir
vakna og átta sig á að þeh hafa
hreinlega veriö hafðir að fíflum, þá
er von til þess að úr rætist," sagði
Helga.
lindsson prófessor að ástandið væri
það alvarlegt að ekki yrði lengur
undan því vikist að taka með afger-
andi hætti á málinu. Um næstu ára-
mót er loks að vænta niðurstaðna
þess hluta rannsóknarinnar sem
tekur til stærðfræði og raungreina-
kunnáttu framhaldsskólanemenda.
Verið er að vinna úr rannsókna-
gögnum við Boston College á þeim
hluta rannsóknarinnar og sam-
kvæmt heimildum DV verða niður-
stöðumar síst betri en þær sem þeg-
ar hafa birst.
Af villigötunum
Helga Sigurjónsdóttir segir að
það fari mjög efth því hvera fljótir
Fyrir 17. júní
Tilboð
Opiö í dag írá
K\. 10-16
Sumorúlpur, -------------
óður kr. - nú kr. 1.000
Stuttkápur, HlýlSID
óður kr. 16.900 - nú kr. 9.900 Mörkin 6 • Sími 588 5518