Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 14. JUNI 1997 Ragnar Fjalar Lárusson afmæli 55 - ~ Ragnar Fjalar Lár- usson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju og prófastur 1 Reykjavík- urprófastsdæmi vestra, Auðarstræti 19, Reykjavík, verður sjö- tugur á morgun. Starfsferill Ragnar Fjalar er fæddur að Sólheimum í Blönduhlíð í Skaga- Ra9nar Fjalar firði og ólst upp í Skagafjarðarsýslu. Ragnar Fjalar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1948 og embættisprófi í guðfræði frá HÍ 1952. Hann sótti námskeið í Log- umkloster á Jótlandi, danska prestaháskólanum 1981. Ragnar Fjalar var sóknarprestur í Hofsóssprestakalli í Skagafirði 1952-55, í Siglufjarðarprestakalli 1955-68 og í Hallgrímsprestakalli frá 1968. Hann stundaði kennslu, aðallega í krist- infræði, samhliða prests- skap við Unglingaskól- ann á Hofsósi 1953-55, við Barnaskólann á Siglufirði 1955-67, við Gagnfræðaskólann á Siglufirði 1955-67 og Austurbæjarskólann í Reykjavík 1968-74. Einnig kenndi Ragnar Fjalar ensku við Vél- Lárusson. skóla íslands 1972-77, var formaður sáttanefnd- ar á Siglufirði 1955-67, formaður barnaverndarnefndar á Siglufirði 1955-67, formaður Æsku- lýðsráðs Siglufjarðar 1961-67, sat í fræðsluráði Siglufjarðar um skeið, sat í stjórn Guðbrandsdeildar Prestafélags Islands 1954-55 og var varamaður í stjóm Prestafélags ís- lands um skeið. Ragnar Fjalar hefur einnig ritað flölda greina í blöð og tímarit og skrifað greinar og hugvekjur í eftir- farandi bækur: Kristnar hugvekjur, árið 1980, Gaudeamus Igitur, Minn- ingar úr MA, árið 1978, Siglufjarðar- kirkja 1932 til 1982 árið 1982. Fjölskylda Ragnar Fjalar kvæntist 16.6. 1951 Herdísi Helgadóttur, f. 10.7. 1928, hjúkrunarfræðingi. Foreldrar henn- ar eru Helgi Ólafsson, kennari á Ak- ureyri, og kona hans Valý Þorbjörg Ágústsdóttir. Böm Ragnars Fjalars og Herdísar era Guðrún, f. 12.9.1950, félagsfræð- ingur, gift Eiríki Briem, fjármála- stjóra RARIK og eiga þau þrjú börn; Þórsteinn, f. 25.9. 1951, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, kvæntur Elsu Guðmundsdóttur og eiga þau Qögur böm; Valý Helga, f. 28.8.1953, hjúkrunarfræðingur, gift Jóni Þor- valdssyni ráðgjafa og eiga þau tvö börn en Valý Helga á einnig eitt barn frá fyrra hjónabandi; Lárus, f. 30.10. 1954, kvæntur Þóru Tryggva- dóttur kennara og eiga þau þrjú börn; Ragnheiður Jensína, f. 6.4. 1956, hjúkrunarfræðingur og á hún tvö börn; Halldóra Anna, f. 16.9. 1964, húsmóðir, í sambúð með Orra Páli Ormarssyni blaðamanni og eiga þau tvö börn en Halldóra Anna á einnig þrjú böm með fyrri manni sínum. Hálfbræður Ragnars Fjalars, sam- feðra, eru Stefán, fyrrverandi sókn- arprestur í Odda, f. 18.11. 1928; Björn Stefán, f. 29.3. 1936, iðnverka- maður; Halldór, f. 2.4.1939 en nú lát- inn, leigubifreiðastjóri. Foreldrar Ragnars Fjalars vora séra Lárus Arnórsson, f. 29.4. 1895, d. 5.4. 1962, prestur í Miklabæ í Skagafirði og Jensína Bjömsdóttir, f. 16.3. 1902, d. 4.12. 1982. Ragnar Fjalar mun flytja kveðju- messu á afmælisdaginn, þann 15.6., kl. 11. og mun sóknamefnd Hall- grímskirkju hafa gestamóttöku í kirkjunni frá kl. 14. Þorvarður Kári Ólafsson Þorvarður Kári Ólafsson, upplýsinga- og fjármálastjóri, Keilu- granda 6, Reykjavík, verður fertugur á morg- un. Starfsferill Þorvarður er fæddur í Reykjavík. Hann varð stúdent frá Menntaskól- anum við Hamrahlíð 1976, lauk BS-prófi í tölvunarfræði (við- skiptabraut) frá Há- skóla íslands 1981 og stundaði fram- haldsnám í Informationsbehand- ling/ADB við háskólann í Lundi árið 1983. Þorvarður starfaði með námi hjá Skýrr og Kristjáni Ó. Skagfjörð, síðan sem innkaupa- kerfisstjóri og sérfræð- ingur í vörustjórnun i Svíþjóð. Hann hefur starfað að íslenskum staðlamálum síðan 1988, fyrst hjá Reikni- stofnun HÍ, síðan hjá Iðntæknistofnun og Staðlaráði íslands, lengst af sem fram- kvæmdastjóri Fagráðs í upplýsingatækni og Evrópu- nefndar um stafatækni. Hann byggði upp íslenskt staðlastarf á Olafs- sviði upplýsingatæknistöðlunar og átti m.a. stóran þátt í stofnun EDI- félagsins, ICEPRO-nefndarinnar og Fagráðs í upplýsingatækni. Þor- varður var fulltrúi íslands 1 alþjóð- legri vinnu á sviði upplýsinga- tæknistöðlunar, stjómaði norræn- um verkefnum um gæðastjórnun í hugbúnaðargerð og alþjóðavæð- ingu hugbúnaðar og skipulagði tvær alþjóðlegar ráðstefnur á sviði stafatækni. Hann hefur einnig skipulagt Internetvæðingu Staðla- ráðs og er nú upplýsinga- og fjár- málastjóri þess. Þorvarður er höfundur eða rit- stjóri fjölmargra rita og greina um staðlamál og hefur haldið erindi á ýmsum ráðstefnum innan lands og utan. Siðast flutti hann inngangser- indi á ráðstefnu í Singapúr um jafn- ræði tungumála á upplýsingaöld. Fjölskylda Þorvarður kvæntist 1.6.1979 Erlú Stefánsdóttur matvælafræðingi, f. 17.1.1957. Foreldrar Erlu era Stefán Einarsson járnsmiður og Hildur Benediktsdóttir ljósmóðir. Synir Erlu og Þorvarðar eru Stefán Þor- varðarson, f. 1.9. 1982 og Björn Þor- varðarson, f. 10.5. 1984. Foreldrar Þorvarðar era Ólafur Byron Guðmundsson verkamaður, f. 6. 8. 1925, d. 5.11. 1984, og Auð- björg Jóhannsdóttir, starfsstúlka, f. 3.7. 1931. Pétur Gunnarsson Pétur Gunnarsson rithöfundur, Blönduhlíð 7, Reykjavík, verður fimmtugur á morgun. Starfsferill Pétur Gunnarsson. Pétur er fæddur í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1968 og meistaraprófi i heimspeki frá Uni- versité d’Aix-Marseille 1975. Fyrsta ritverk Pét- urs var ljóðabókin Splunkunýr dagur sem kom út árið 1973, svo komu skáldsögurnar Punktur punktur komma strik, 1976, Ég um mig frá mér til mín, 1982, Sagan öll, 1985, Sykur og brauð, 1987, Vasabók, 1989, Hversdagshöllin, 1990, Stór- bók, 1991 og Efstu dagar 1994. Pétur hefur einnig fengist við þýðingar og þýddi m.a. bókina Frú Bovary eftir Gustave Flaubert 1995 og hlaut Menningarverðlaun DV 1996 fyrir þá þýðingu sína. Hann þýddi einnig barnasögu eftir Peter Hand- ke 1987, samdi leikritið Grænjaxla 1977 fyrir Þjóðleikhúsið, í sam- vinnu við leikara Þjóðleikhússins og Spilverk þjóðanna, barnaleikrit- ið Krókmakarabæinn 1977, í sam- vinnu við nemendur Leiklistar- skóla íslands, og handrit að leik- inni heimildarmynd um Halldór Laxness 1988. Pétur samdi einnig texta á hljómplötuna Lög unga fólksins, 1977. Hann hefur skrifað fjölda greina í blöð og tímarit, unn- ið margvislegt efni fyrir útvarp og sjónvarp og haldið erindi og fyrir- lestra á fjölbreyttum vettvangi. Pétur sat í stjórn Alliance Francaise 1977-81 og var forseti þess félags 1980-81, í stjórn Rithöf- undasambands íslands 1978-82 og aftur frá 1991, í stjórn Félags áhugamanna um bók- menntir 1988-90 og í ritnefnd Tímarits Máls og menningar frá 1978. Fjölskylda Eiginkona Péturs er Hrafnhildur H. Ragnars- dóttir, f. 10.3 1948, pró- fessor. Foreldrar hennar eru Svan- laug Gunnlaugsdóttir húsmóðir og Ragnar Á. Magnússon endurskoð- andi. Synir Péturs og Hrafnhildar eru Dagur Kári, f. 12.12. 1973; Gunnar Þorri, f. 21.1. 1978. Foreldrar Péturs voru Guðmunda Þorgeirsdóttir, f. 8.6. 1918, d. 17.11. 1988, bókavörður, og Gunnar V. Pét- ursson, f. 17.1. 1914, d. 17.9. 1983, bílamálari. Systkini Péturs era Þórdis, f. 15.3. 1942, verkakona; Gunnar Birgir, f. 9.11. 1943, bílasmiður og bóndi; Sig- rún, f. 11.11.1948, gjaldkeri; Ásdís, f. 22.9. 1950, deildarstjóri; Þorgeir, f. 14.5. 1955, kvikmyndagerðarmaður; Sigurjón, f. 20.12. 1956, smiður. Pétur Emil Emilsson Pétur Emil Emilsson, kennari og verslunarmaður, Grundarstíg 24, Reykjavík, verður fimmtugur þann 18.6. nk. Fjölskylda Starfsferill Pétur er fæddur á Keldum í Rangárvöll- um. Hann lauk lands- prófi frá Hagaskóla í Reykjavík 1968, kenn- araprófi 1973, stundaði nám í ensku, dönsku og sálarfræði við Kennara- háskólann í Kaup- mannahöfn 1975-77 og Pétur Emil við The Cambrigde Institute í Kaupmannahöfn 1977. Pétur var kennari viö Heppuskóla á Höfn í Hornafirði 1973-75, stunda- kennari við Æfinga- og tilrauna- skóla K.H.Í. 1977-78, skólastjóri gagnfræðaskólans á Bíldudal 1979-82, Vesturhópsskóla í Vestur- Húnavatnssýslu frá 1972 og tungu- málakennari við Foldaskóla 1990-92. í dag rekur Pétur ásamt fjölskyldu sinrii verslunina Pétursbúð í Reykjavík. Pétur hefur einnig unnið í byggingarvinnu, sjómennsku, við öryggisvörslu í Danmörku og verið starfsmaður O. Johnson og Kaaber á yngri árum. Hann fór 1979 sem sendikennari Norræna félagsins til Danmerkur og kynnti ísland í dönskum skólum og deildum Nor- ræna félagsins i Danmörku og var trúnaðarmaður nemenda og kenn- ara í Æfinga- og tilraunaskóla K.H.Í. Pétur kvæntist 7.6. 1985 Sigrúnu Eddu Sigurðardóttir, f. 20.4. 1955. Foreldrar hennar eru Sigurður Breiðfiörð, bifreiðastjóri í Reykjavík, og María Guðmundsdóttir. Dóttir Péturs og Sig- rúnar er Stefanía Guð- rún, f. 23.10. 1984. Stjúp- börn Péturs eru Edda Marý Óttarsdóttir, f. 3.3. 1978, og Ósk Óttarsdótt- ir, f. 13.4. 1979. Pétur á einnig dótturina Bellu Freydísi, f. 22.5. 1972. Foreldrar Péturs eru Emil Als, f. 6.1.1928, augnlæknir í Reykjavík, og Vilborg Stefanía Pétursdóttir, f. 21.8. 1927, d. 8.12. 1984. Stjúpfaðir Péturs er Jón Daníelsson, f. 6.2. 1927, skip- stjóri. Emilsson. 111 hamingju með afmælið 15. júní 100 ára Sigríður Eiríksdóttir, Hrafnistu v/Kleppsveg, Reykja- vik. 90 ára Pétur M. Sigurðsson, Engjavegi 67, Selfossi. Hann verður að heiman á afmælisdag- inn. 85 ára Holger Gíslason, Hrísmóum 3, Garðabæ. 80 ára Hámundur Eldjám Bjömsson, Lönguhlíð le, Akureyri. Rögnvaldiu- Erlingsson, Laufási 3, Egilsstöðum. Halldór Ásmundsson, Hamraborg 16, Kópavogi. 75 ára Guðfinna Helgadóttir, Njálsgerði 10, HvolsveOi. Hólmfríður Þórðardóttir, Stóru-Sandvík, Sandvíkurhreppi. 60 ára Jón Ingi Sigursteinsson, Öldugötu 4, Hafnarfirði. Þórarinn Indriðason, Vífilsgötu 1, Reykjavík. Sveinbjörg Pétursdóttir, Mosgerði 8, Reykjavík. Kári Sigurðsson, Hátúni 12, Reykjavík. 50 ára Sigríður Lárusdóttir, Kríuhólum 2, Reykjavík. Einar Jakobsson, Hringbraut 40, Hafnarfirði. Þorgerður Þórdís Haraldsdótt- ir, Dalsbyggð 6, Garðabæ. Eyjólfur Sigurjónsson, Pétursey I, Mýrdalshreppi. 40 ára Sigríður Oddný Stefánsdóttir, Vatnsendabletti 158, Kópavogi. Lárus Óskar Friðriksson, Kleppsvegi 74, Reykjavík. Ingibjörg Vagnsdóttir, Heiðarbrún 7, Bolungarvík. Ásta Þóra Schiöth, Dalseli 29, Reykjavík. Indriöi Kristinn Friðriksson, Kleppsvegi 74, Reykjavik. Díana Vera Jónsdóttir, Fannafold 155, Reykjavík. Hafþór Harðarson, Grandargarði 7, Húsavík. Helga Guðnadóttir, Bakkahlíð 25, Akureyri. Jón Auðunn Jónsson, Klausturhvammi 9, Hafnarfirði. Steinunn Björg Steinþórsdótt- ir, Skuggahlíð, Neskaupstaö. Björgvin K. Björgvinsson, Tjarnargötu 16, Reykjavík. ídag, 14.júní, eiga afmæli Páll Helgason ferðafrömuður, Vestmannaeyjum, og dóttir hans, Telma Dögg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.