Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1997, Side 56
> FRÉTTASKOTIÐ
cc ( LLI ' SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
s: lxo «=t 1— LTO 1— Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997
Verðþróun
á tómötum og paprikum
700 kr.
0
23.maí 30.maí 6.júní ll.júní
Græn paprika CSZ3 Tómatar
________________n^i
Grafið sýnir verðþróun á grænni
papriku og tómötum í Bónusi frá 23.
maí.
>Verðhrun á
grænmeti
Útsöluverð á tómötum og grænni
papriku snarlækkaði í gærmorgun.
Verslanir Bónus lækkuðu græna
papriku úr 445 kr. í 279 kr. kílóverðið
og tómatar lækkuðu í 159 kr. í versl-
unum Hagkaups lækkaði kílóverð af
tómötum úr 298 kr. í 198 kr. -ST
Veörið um helgina:
Svalt með
skúrum
Veður fer kólnandi um helgina
og gengur á með skúrum, að sögn
veðurfræðinga Veðurstofunnar. Á
sunnudag verður hæg breytileg átt
norðanlands en skúrir síðdegis
sunnanlands. Hiti verður á bilinu
3-12 stig, hlýjast sunnan til. Á
mánudag og á þjóðhátíðardaginn er
spáð áfram hægri breytilegri eða
norðlægri átt, skúraleiðingum um
allt land og svölu veðri. Hiti verður
2-12 stig og hlýjast sunnanlands.
Óku drukknir inn
í Hvalfjarðar-
göngin
Tveir menn óku ölvaðir á jeppa-
bifreiö inn í Hvalfjarðargöngin í
gærmorgun. Bíllinn hafnaði að lok-
um niðri í frárennslisskurði sem
liggur með fram gangnaveggnum og
festist þar. Stórhætta var á ferðum
þar sem engin gæsla er á staðnum
og verið var að sprengja innar i
göngunum. Mennirnir komust þó
aðeins 150 metra inn í göngin áður
en ökuferðinni lauk.
Mennimir eru úr sveitinni og
sitja nú í gæslu lögreglunnar í Borg-
arnesi. -sf
m
L O K I
Gylfa Traustasyni, útgeröarmanni Sæljóns ÁR, hótaö veiðileyfissviptingu:
Fór tvö kíló fram yfir
karfakvóta skipsins
- skiptir ekki máli hvort um eitt eða þúsund kíló er að ræða, segir Fiskistofa
„Ég er hérna með bréf frá Fiski-
stofu þar sem mér er hótað svipt-
ingu veiðileyfis næstkomandi mið-
vikudag 18. júní fyrir að fara 2 kíló
fram yfir þann karfakvóta sem
skipið hefur. Þetta er gert þótt við
eigum inni um 30 tonn af ufsa-
kvóta. Ég hefði haldið að hægt
væri að millifæra þessi tvö kíló úr
þeim kvóta. Nú verð ég að fara á
stúfana og kaupa mér tveggja kilóa
kvóta til þess að missa ekki veiði-
leyfið. í fullri alvöru þá á svona
vitleysa ekki að þekkjast. Að menn
séu á fullum launum hjá Fiskistofu
við að eltast við og skrifa mönnum
bréf vegna þess að þeir hafi farið
eitt eða tvö kíló fram yfir kvóta,“
sagði Gylfi Traustason, útgerðar-
maður Sæljóns ÁR, í samtali við
DV.
Hann sagði að þegar hann hefði
rætt við menn hjá Fiskistofu um
þetta hefði honum verið sagt að
þar væri tekið á svona málum allt
niður í eitt kíló.
„í lögunum segir að til þess að
skipi sé heimilt að fara á sjó verði
aflaheimildir að vera til fyrir þeim
afla sem líklegt er að skipið fái. Ef
menn eru komnir fram yfir þá eru
þeir komnir fram yfir,“ sagði Ari
Arason, starfsmaður Fiskistofu, í
samtali við DV.
Hann var spurður hvort það
skipti engu máli hvort um eitt kíló
eða eitt tonn væri að ræða?
„Er einhver munur á því? Ann-
aðhvort er skip komið fram yfir
kvóta eða ekki. Hér halda menn
sig við orðanna hljóðan í lögun-
um,“ sagði Ari.
„Þetta nemur einum karfa og
við hefðum betur haft hann í
kvöldmatinn á heimleiðinni. Ann-
ars veit ég ekki hvers konar
skrípaleikur þetta er. Við erum
gerðir að brotamönnum, sem
svipta á veiðileyfi, fyrir einn karfa,
tvö kíló, á sama tíma og hvers kon-
ar brotamenn ganga lausir í þjóð-
félaginu," sagði Jón Arason, skip-
sfjóri á Sæljósi ÁR, í samtali við
DV. -S.dór
Tvíburarnir Ebba (t.v.) og Edda fermast í dag og ætla að nota tækifærið og halda litlu tvíburunum, systkinum sínum,
undir skírn. DV-mynd MB
Tvennir tvíburar:
Skírðir og
fermdir saman
Sá einstæði atburður gerist í dag
í Skarðskirkju á Skarðsströnd að
tvíburarnir Ebba og Edda Unn-
steinsdætur fermast og systkini
þeirra, sem eru einnig tvíburar,
verða skírð um leið.
„Ebba átti heiðurinn af hugmynd-
inni um að ferma og skíra í einu.
Hún var búin að bíða eftir því lengi
að eignast lítil systkini og fékk þá
hugmynd að þær systur gætu haldið
á litlu tvíburunum undir skírn,“
segir Dagný Karlsdóttir, móðir tví-
buranna, en hún og eiginmaður
hennar, Unnsteinn Eggertsson, búa
að Skarðsá á Skarðsströnd ásamt
bömunum fjórum.
„Það er mjög sérstakt að vera að
ferma fyrri tvíbura og skíra seinni.
Ætli það sé ekki einstakt að það
hittist svona á innan sömu fjöl-
skyldu? Mér brá svolítið þegar ég
frétti að ég gengi aftur með tvíbura
en þetta er mjög gaman. Það er alltaf
gaman þegar bömin em fríð og heil-
brigð.“ -sf
Bjartviðri sunnanlands
Á morgun verður fremur hæg norðlæg eða breytileg átt, súld eða rign-
ing norðanlands en skúrir síðdegis sunnanlands. Hiti verður á bilinu 3 til
12 stig, hlýjast sunnanlands.
Hæg breytileg átt
Á mánudag er útlit fyrir hæga breytilega eða norðlæga átt og skúra-
leiðingar um allt land. Hiti verður 2 til 10 stig.
Veðrið í dag er á bls. 57.