Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1997, Síða 3
B FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997
HLJÓIUPLjÍTU
Davids Byrne - Feelings ★★★
Samur við sig
Talking Heads
dagarnir koma
aldrei aftur. David
Byme fer sinar leið-
ir og þau hin, sem
með honum voru,
finna sér stíg til að
þræða. Miðað við
það sem þau létu frá
sér fara undir nafn-
inu Heads á síðasta
ári verður að játast
að mun áhugaverð-
ara er að fylgjast
með Byme en þeim.
Að sumu leyti má
segja að David Byr-
ne sé á svipuðum
nótum og Björk.
Bæði þekkja vel til
nýjustu strauma í
framsækinni tónlist
og bæði kunna að notfæra sér þá og bæta jafnframt einu og öðru við frá eig-
in brjósti. Þau byggja á sama gmnni og margir aðrir en hafa sköpunargáf-
una til að bæta við ofan á frá eigin brjósti þannig að ekkert fer á milli mála
hver skaparinn er.
Á Feelings bræðir David Byrne saman stefnur og strauma úr fjölmörgum
áttum. Sums staðar eru taktarnir suður-amerískir, annars staðar afrískir.
Allt í einu bregður fyrir strengjakvartett og skyndilega bregður fyrir cajun-
fiðlu og þannig mætti lengi telja. Lögin á plötunni eru miseftirminnileg,
áhrifavaldamir fjölbreyttir en heildarmyndin er dæmigerð David Byme-
tónlist. Krefjandi, áræðin og áheyrileg.
Ásgeir Tómasson
Gully Hanna Ragnarsdóttir - Sangen til dig
Íslensk/skandinavísk blanda
Tuttugu ár
eru síöan Gully
Hanna Ragnars-
dóttir yfirgaf ís-
land og lenti að
lokum í Dan-
mörku ásamt
eiginmanni sín-
um. Frá íslandi
hafði hún með
sér þekkingu á
íslenskum þjóð-
vísum og ljóð-
um þjóðskálda
sinna. Mörg ár
eru síðan Guily
Hanna fór að
koma fram með
gítarinn og
syngja eigin lög
og annarra við
ljóð íslenskra
ljóðskálda sem
og norrænna. Sangen til dig - nordiske viser er fjórða platan sem Gully
Hanna sendir frá sér og þótt allar plötur hennar hafi verið gefnar út í Dan-
mörku þá hafa þær fengist hér á landi enda hefur Gully Hanna aldrei gleymt
uppmna sínum og haldið tryggð við íslenskuna þótt hún blandi íslenskum
ijóðum og textum saman við danska á plötum sínum.
Nafn nýju plötu hennar Sangen til dig - nordiske viser segir mikið um
innihaldið. Á henni er að finna þrettán lög, flest frumsamin af Gully Hönnu
við eigin texta eða annarra. Hún leitar fanga í íslenskum ljóðum og er Dav-
íð Stefánsson henni hugleikinn. Hefur hún samið lög við þrjú ljóða hans á
plötu sína. Hún leitar fanga víðar á Norðurlöndum en sex laganna era sung-
in á íslensku.
Tónlistin á Sangen til dig er nokkuð keimlík, öll lögin eru róleg og áhersla
lögð á að koma textum til skila. Gully Hanna er skýrmælt, hvort sem það er
á íslensku eða dönsku, en söngur hennar hefði mátt vera tilþrifameiri. Þeg-
ar lögin era svo lítið frábmgðin hvert öðm eins og raunin er stoðar það ekki
aö syngja þau öll eins og um vögguijóð sé að ræða. Inn á milli sýnir þó Gully
Hanna góð tilþrif, bæði í söng og lagagerð. Má þar nefha Seytjánda júní og
Friðlausa fuglinn af hennar eigin lagasmíðiun, vel flutt lög þótt það siðara
hljómi kunnuglega í eyrum og þá er góður flutningur hennar á Har du viser
min ven, sem er eftir Bengt Ahlfors og norska laginu Mote i Motlys. Eitt lag
ættu hlustendur ekki að vera í vafa um að þekkja, það er hið ljúfa í fyrsta
sinn sem sá þig, sem Gully Hanna flytur ágætlega en hefði eins og nokkur
önnur mátt fá meiri fyllingu. Útsetningar em mjög smekklegar og vel unn-
ar, án alls rafmagns og er sérlega skemmtilegt að heyra samspil sópransaxó-
fóns og harmóniku. Sangen til dig - nordiske viser er þegar á heildina er lit-
ið hin þægileg og romantísk hlustun og tilvalin til að hlusta á við kertaljós.
Hilmar Karlsson
í|tónlist >7
Hljómsveitin
Woofer: Upp-
hafiö má rekja
til skemmti-
kvölds i Flens-
borgarskóla.
Þótt hljómsveitin Woofer sé ekki
nema svo sem hálfs árs er hún þeg-
ar búin að senda frá sér sinn fyrsta
geisladisk. Aðeins þriggja laga, að
vísu, en von er á öðmm í fullri
lengd í haust.
Að sögn Hildar Guðnadóttur,
söngkonu Woofers, var það eigin-
lega fyrir slysni að platan Táfýla
varð til. „Við ætluðum að taka upp
tvö lög til að prófa hvemig við
hljómuðum. Upptakan gekk svo vel
að við lukum við þrjú lög á tveimur
dögum og nú eru þau sem sagt kom-
in út,“ segir hún. - Sennilega hefúr
ekki algjör tilviijun ráðið því að út-
gefandi fékkst að plötunni. Egill
Öm Rafnsson, trommuleikari
hljómsveitarinnar, er sonur Rafns
Jónssonar, útgefanda, sem í eina tíð
trommaði með Ýr, Grafik, Bítla-
vinafélaginu og fleiri landsþekktum
hljómsveitum.
Auk Hildar og Egils Amar eru í
hljómsveitinni Woofer þeir Kristinn
A. Sigurðsson gítarleikari og Ómar
Freyr Kristjánsson sem leikur á
bassa. Þau fjögur sömdu lögin á
plötunni saman en textar era eftir
Ámýju Jónasdóttur. Þau em þegar
farin að leggja drög að lögunum sem
verða á næstu plötu hljómsveitar-
innar. Vinna við upptöku þeirrar
plötu hefst væntanlega í september.
Hittust í Flensborg
Fjórmenningamir í Woofer eru á
aldrinum fimmtán til sautján ára.
Tilviljim réð því að hljómsveitin
varð til.
„Það var haldið skemmtikvöld í
Flensborgarskóla í haust,“ segir
Hildur. „Ég slysaðist þangað og þar
var hljómsveit að spila sem Egill lék
á trommur með. Einhvem tíma um
kvöldið fór rafmagnið og þá notaði
Egill tækifærið til að taka trommu-
sóló. Ég hugsaði með mér þegar ég
heyrði í honum: þetta verður
trommuleikarinn í minni hljóm-
sveit! Síðan þróuðust málin bara
svoleiðis að híjómsveitin varð til.“
Woofer hefur spilað talsvert opin-
berlega síðustu mánuðina, í Hinu
húsinu, Tónabæ, á Ingólfstorgi, Suð-
ureyri og víðar. Hljómsveitin er
hins vegar ekkert bókuð á næst-
unni, enda segja þau Hildur og Egill
að spilamennskan komi i törnum.
Hvenær sú næsta skellur á er enn
ekki vitað.
Þau tóku þátt I Músíktilraunum í
Tónabæ í vetur, komust í úrslit en
hins vegar ekki á verðlaunapall á
lokakvöldinu. „Það var svo sem allt
í lagi að fá engin verðlaun," segja
þau. „Okkur gekk vel að spila og
það var aðalatrið-
Mótmælendahópur 1 höfúöborg
Haíti, Port-au-Prince, hefur hótað
að eftia til uppþota skili ríkissfjóm-
in ekki þeim flármunum sem söfti-
uðust á góðgerðartónleikum hljóm-
veitarinnar Fugees nú á dögunum.
Rikisstjóm Haíti heldur því aft-
ur á móti fram að kostnaöurinn
vegna tónleika hijómsveitarinnar
hafi numið $50.000.
Hótelkostnaður og önnur eyösla
hljómsveitarinnar hafi numið
$53.000 og leiga á hljóð- og ljósabún-
aði hafi veriö $240.000. Útgjöldin
hafi því einfaldlega veriö meiri en
innkoman.
í síöustu viku gagnrýndi Leslie
ið. Reyndar hefúr okkur alltaf verið
vel tekið," bætir Egill við. „Fyrir
nokkrum dögum vorum við að spila
á Gauknum og þar var Massive
Attack að hlusta á okkur. Þeir vildu
fá okkur með sér út til að spila en
það er ómögulegt að segja núna
hvort af því verður. Það er nógur
tími til að hugsa um svoleiðis.“-ÁT
Moraille, forsvarsmaður góögerðar-
tónleikanna, hljómsveitina opin-
berlega. Hún sagði að þegar upp
væri staðið yrðu þeir félagar i Fu-
gees þeir einu sem raunverulega
græddu á tónleikunum. Hljómsveit-
in geröi meðal annars myndbönd
frá tónleikunum sem hún ætti ef-
laust eftir að græða stórfé á.
Fugees, sem eiga ættingja á eyj-
unni, ætluðu aö láta gróða góögerð-
artónleikanna renna til samtak-
anna National Office for Migration.
Samtökin þjálpa fólki til að flytjast
burt frá eyjunni og koma sér fýrir I
frarlægum löndum.