Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997 %iyndbönd Evita: Maria Eva Ibarguren, sem síðar varð þekkt sem Eva Peron, fæddist árið 1919 í smábænum Los Toldos í Argentínu. Fimmtán ára fylgdi hún tangó-söngvara nokkrum til Buenos Aires, hóf þar að klífa metorðastig- ann og tókst að afla sér nokkurrar frægðar sem leikkona. Á góðgerðar- tónleikum árið 1944 hitti hún ofurst- ann Juan Peron og hóf ástarsam- band með honum. Ári síðar lét for- seti landsins handtaka hann vegna þess að hann hafði áhyggjur af auknum vinsældum hans meðal verkalýðsfélaganna. Þetta leiddi hins vegar til uppreisnar í landinu, Juan Peron var látinn laus og kos- inn forseti landsins árið eftir. Eva Peron varð mjög áberandi sem for- setafrú, bæði fyrir lífstíl sinn, sem þótti í léttlyndara lagi, og afskipti sín af stjómmálum og ekki síst góð- gerðarmálum. Henni tókst að koma á kosningarétti fyrir konur og stofn- aði kvennahreyfingu innan Peron- istaflokksins. Hún lét m.a. byggja sjúkrahús og heilsugæslustöðvar, elliheimili, heimili fyrir einstæðar stúlkur og heimilislausa og skóla. Þar að auki stóð hún fyrir margvís- legri góðgerðarstarfsemi, hún lét út- býta gjöfum til fátækra og töldu margir að hún væri að koma land- inu í gjaldþrot. Hún var gagnrýnd fyrir að halda ekki bókhald yfir góð- gerðarstarfsemina og aflaði sér margra óvina, sérstaklega innan hersins. Hún var hins vegar geysi- vinsæl meðal almúgans og var m.a. hvött til að gefa kost á sér í embætti varaforseta, sem hún gerði þó ekki, enda lifði hún ekki langt fram yfir kosningar. Krabbamein varð henni að bana 26. júlí 1952 eftir margra mánaða sjúkralegu. Löng meðganga Það var Tim Rice sem fyrst lét sér detta í hug að gera nútímaóperu úr sögu Evu Peron. Saman gerðu hann og Andrew Lloyd Webber plötuna Evitu sem kom út í nóvember 1976 og fór beint á toppinn á bresku vin- sældalistunum. Alan Parker fékk áhuga á að gera kvikmynd eftir plötunni um leið og hann heyrði hana en hætti við þegar ákveðið var að setja söngleikinn upp á leiksviði fyrst. Hann var fyrsti leikstjórinn sem boðið var að leikstýra kvik- mynd eftir söngleiknum en neitaði þar sem hann var nýbúinn að leik- stýra söngleiknum Fame og vildi ekki endurtaka leikinn strax. Fimmtán árum síðar var enn ekki byrjað að framleiða myndina. Ýms- ir höfðu verið orðaðir við leik í myndinni, þ. á m. Elaine Page, Patti LuPone, Charo, Raquel Welch, Ann- Margret, Bette Midler, Meryl Streep, Barbra Streisand, Liza Minelli, Diane Keaton, Olivia Newton-John, Elton John, John Tra- volta, Pia Zadora, Meat Loaf, Elliot Gould, Sylvester Stallone, Barry Gibb, Cindy Lauper, Gloria Estefan, Mariah Carey, Jeremy Irons, Raul Julia og Michelle Pfeiffer. Meðal til- vonandi leikstjóra höfðu verið Ken Russel, Herb Ross, Alan Pakula, Hector Babenco, Francis Ford Coppola, Franco Zeffirelli, Michael Cimino, Richard Attenborough, Glenn Gordon Caron og Oliver Sto- ne. En það var ekki fyrr en 1994, þegar Alan Parker var boðinn leik- stjórastóllinn aftur, að hlutirnir byrjuðu að rúlla. Erfið fæðing Alan Parker mætti miklu mótlæti við gerð myndarinnar en tókst þó að lokum að klára hana. Honum tókst meðal annars að fá Andre Ll- oyd Webber og Tim Rice til að vinna saman á ný en þeir höfðu ekki talast við um nokkurt skeið. Mikið írafár varð í kringum leik- aravalið og sérstaklega val hans á Madonnu í aðalhlutverkið en hana valdi hann eftir að hún skrifaði honum fiögurra blaðsíðna langt handskrifað bréf þar sem hún lýsti yfir örvæntingarfullri löngun eftir hlutverkinu og lýsti sig reiðubúna til að gefa alla sína krafta og all- an sinn tíma í hlutverkið eins lengi og á þyrfti að halda. Sér- staklega voru margir Argentínu- menn ósátt- ir, enda Eva Peron nán- ast dýrling- ur þar í landi, og tökuliðið mætti mik- illi andstöðu meðal frétta- manna og al- mennings i Argentínu. Þeim tókst þó að lokum að fá forseta landsins, Peronistann Carlos Menem, til að leyfa tök- ur á svölun- um frægu á stjórnarbyggingunni Casa Rosada. Eftir Argentínuævintýrið fóru tök- ur fram í Ungverjalandi og Englandi en þá kom enn eitt reið- arslagið - Madonna tilkynnti að hún væri orðin ólétt og leikstjórinn þurfti að ljúka tökum í flýti til að kúlan sæist ekki í myndinni. Það tókst og tökum lauk í London eftir 84 daga í þremur löndum og meira en hundrað kílómetra af filmu. Tónlist hefur leikið stórt hlutverk i mörgum mynda leikstjórans Alans Parkers (Bugsy Malone, Fame, Pink Floyd, The Wall og The Commit- ments) en aðrar myndir hans eru m.a. Midnight Express, Shoot the Moon, Birdy, Angel Heart, Miss- issippi Burning og The Road to WeUville. Madonna, sem fer með aðalhlutverið, hefur átt gífurlegri velgengni að fagna sem söngkona. Hún hefur átt 29 topp-tíu lög, þar af 11 sem komist hafa í efsta sætið og af 11 plötum hennar hafa aUar nema ein komist á topp-tíu listann. Upp á síðkastið hefur hún látið að sér kveða á leiklistarsviðinu í kvik- myndum eins og Desperately Seek- ing Susan, Dick Tracy, Shadows and Fog og Dangerous Games. í ^ hlutverki sögumannsins er Antonio Banderas (Women on the Verge of a Nervous Breakdown, Mambo Kings, Philadelphia, Interview with the Vampire, Desperado) og Juan Peron er leikinn af breska leikaranum Jonathan Pryce (The Ploughman’s Lunch, Brazil, Glengarry Glenn Ross, The Age of Innocence, Carr- ington). PJ Antonio Banderas og Madonna í hlutverkum sínum í Evita. UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT Ragnar Kjartansson „Uppáhaldsmyndbandið mitt, hennar þar. Stúlkuna a.m.k. þessa dagana, er leikur ein skærasta kvikmyndin Breakfast at stjarna þessa tíma- Tiffany\s. Ég var nýlega JpBfe . bUs, Audrey Hep- að horfa á hana í i, ’ burn, en af öðrum annað sinn og varð if5Jy leikurum má nefna ekki fyrir vonbrigðum. Æ George Peppard, Myndin er dæmigerð É Patriciu Neal, rómantísk gaman- m Buddy Ebsen og síöast mynd HoUywood " en ekki síst Mickey 7.áratugarins og fiaUar um unga sveitastúlku sem kem- ur tU New York og ævintýri Rooney sem er sér- lega eftirminnUegur í fordómafullri túlkun sinni á japönskum Ijósmyndara. Blake Edwards leikstýrir myndinni og eru efnistök hans talsvert frábrugðin því sem síðar varð í myndunum um Bleika pardusinn. Rúsínan í pylsuendanum er síðan tónlist Henrys Mancinis sem ég híusta mik- ið á um þessar mundir en þar á meðal má nefna hið góð- kunna lag „Moon River“. The Glimmer Man Unhook the Stars A Modern Affair Hér er á ferðinni nýjasta mynd bardaga- meistarans og hasar- leikarans Stevens Seagals. Seagal leik- ur lögreglu- manninn Jack Cole sem er fyrr- verandi leyniþjón- ustumaður. í leyniþjón- ustunni var hann fremstur í flokki leyniþjónustumanna og gekk þá undir dulnefninu Glimmermaður- inn. Cole reynir nú að upplýsa dul- arfull og sérstaklega hrottafengin morð í Los Angeles. Honum reynist erfitt að hafa hendur í hári morð- ingjans og neyðist því til að hefia samstarf við lögreglumanninn Jim Campell, sem leikinn er af Keenan Ivory Wayans, en það er honum mjög á móti skapi. Þeir Cole og Campell komast að þvi að málið er enn flóknara en þeir bjuggust við. Svo virðist sem morð- inginn tengist einhverjum valdam- iklum aðilum sem vilja ekki að mál- ið verði upplýst. Ekki líður á löngu þar til Cole áttar sig á þvl að málið teygir anga sína inn í fortíð hans hjá leyniþjónustunni. Leikstjóri er John Gray. Mynd þessi fiallar um ekkjuna Mildred sem stend- ur á tíma- mótum í lifi sínu. Bömin eru flogin úr hreiðrinu og fátt ann- að virðist liggja fyrir henni en að setjast í helgan stein. Það er Mildred hins vegar ekki að skapi því hún vill öðlast lífsfyllingu. Dag einn bankar ung nágrannakona hennar upp á og biður hana að líta eftir syni sínum. Á milli drengsins og Mildredar myndast síðan ein- stakt samband og samverustundir þeirra verða fleiri en upphaflega var gert ráð fyrir. Inn í málin flétt- ast síðan líf og örlög fiölmarga ann- arra persóna og líf Mildredar tekur heldur betur óvænta stefnu. Með að- alhlutverk fara Gene Rowlands, Gerard Depardieu og Marisa Tomei. Leikstjóri er Nick Cassavetes. Grace Roberts (Lisa Eichhorn) er nútíma- kona sem hefur ákveðið að láta karl- menn ekki koma of nærri sér - ekki einu sinni þegar hún vill verða ófrísk. Hún . runis r sæðisbanka og eftir að hafa skoðað framboðið gaumgæfilega velur hún herra 247 til að verða foðurinn því hann uppfyllir allar hennar kröfur og rúmlega það. Reyndar fær Grace ekki annað séð en herra 247 hljóti að vera alger draumaprins. Sú upp- götvun hennar leiðir til þess að eft- ir að hún er orðin ófrísk ákveður hún að komast að því hver herra 247 raunverulega er. Auðvitað grun- ar hinn myndarlega Peter Kessler (Stanley Tucci) ekki að konan sem * hann hittir einn góðan veðurdag og verður ástfangin af beri bam hans undir belti. Hér er á ferðinni rómantísk gam- anmynd sem sannar aö hlutirnir þurfa ekki að gerast í réttri röð til að allt gangi upp. Leikstjóri er Vern Oakley.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.