Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997
tónlist I9
*★ ★
J ohn
Árið 1992 vaknaði John Fogerty
upp við vondan draum. Hann hafði
svikið loforðið sem hann hafði gefið
sjálfum sér á unglingsárunum. Að
verða reglulega góður hljóðfæra-
leikari og gera almennilegar plötur
eins og átrúnaðargoðin Chet Atk-
ins, Duane Eddy, Elvis, Amos
Burton og fleiri.
„Mig dreymdi um það þegar ég
var fjórtán ára að verða virkilega
góður,“ segir John Fogerty. „Síðan
sló maður í gegn með Creedence
Clearwater Revival og þar með fór
allt á versta veg. Ég varð latur og
hætti að taka framforum og svo var
árið 1992 allt í einu komið og þá
mundi ég eftir loforðinu. Þama var
ég og rembdist við að búa til tónlist
á nýja plötu með fólki sem ég gerði
þær kröfur til að það stæði sig óað-
finnanlega. Sjálfur var ég of lélegur
til að eiga heima í þessum hópi svo
að ég ákvað að gera eitthvað í mál-
inu.“
Þegar þama var komið sögu voru
liðin sex ár frá því að John Fogerty
sendi frá sér plötuna Eye of the
Zombie og það áttu eftir að líða
fimm ár til viðbótar þar til platan
Blue Moon Swamp var gefin út.
Listamaðurinn segist einfaldlega
hafa verið að leita að hinum full-
komna hljómi - og sjálfum sér.
„Það eru reyndar liðin fjögur og
háift ár síðan ég byrjaði á plöt-
unni,“ segir hann. „Þeir sem ég
vann með á þeim tíma náðu hins
vegar ekki alveg þeim anda sem ég
vildi hafa á lögunum. Útsetningam-
ar gáfu mér ekki eins kröftugt
spark í afturendann og ég vildi að
þær gerðu. Ástæðan var hins vegar
ekki bara samstarfsmennirnir. Það
tók mig dálítinn tíma að átta mig á
að ég átti sjálfur hlut að máli.“
Fjölhæfur
Fogerty fékk að lokum þann
mannskap sem hann var sáttur við.
Sjáifur greip hann síðan í gítara,
írskt bouzouki, farflsa orgel, tam-
búrínu, fetilgítar, rafmagnaðan sít-
ar, mandólín og síðast en ekki síst
Dobro sem hann lærði sérstaklega á
til að geta spilað sjálfur í einu lagi
plötunnar, Á Hundred and Ten in
the Shade.
„Fyrst eftir að ég samdi lagið var
ég sannfærður um að með því að
spila á gítarinn með flöskustút næði
ég rétta blænum. Ég æfði mig á að
spila svoleiðis i ár en áttaði mig svo
allt í einu á því að ég hafði alltaf
haft Dobro í huga.“ Tveimur árum
síðar var John Fogerty ekki einung-
is orðinn sáttur við eigin Dobro-leik
í laginu heldur hafði hann uppgötv-
að að það var „farartækið mitt til að
komast til annarra heima og vídda.“
Aldarfjórðungur er liðinn á þessu
ári síðan hljómsveit Fogertys,
Creedence Clearwater Revival, leið
undir lok. Síðan hefur hann einung-
is sent frá sér þrjár plötur. Ekki er
hægt að kenna leti um að afköstin
eru lítil. Ýmis málaferli í kjölfar
þess að hljómsveitin hætti hafa gert
það að verkum að mikill hluti
starfsorkunnar fór í að leysa úr
lagaflækjum með lögfræðingum. Og
ekki spiúti það síður fyrir að John
Fogerty var einfaldlega bannað að
láta gefa út með sér neina tónlist í
lengri tíma meðan verið var að út-
kljá eitt og annað sem viðkom CCR.
Erfitt fyrir andann
„Öll þessi málaferli reyndu veru-
lega á sköpunargleðina," segir
Fogerty. „Það hljómar bamalega að
segja það núna en ég var gjörsam-
lega óviðbúinn öllu því neikvæða
sem helltist yfir mig þegar málaferl-
in út af CCR byrjuðu. Þau leiddu til
þess að ég fór að fyrirlíta allt sem
við kom hljómsveitinni, þar á með-
al mín eigin lög.“
Slik varð
fyrirlitningin
að John
Fogerty neit-
aði með öllu
að spila
gömlu
Creedence-
smellina á
hljómleika-
ferðum sín-
um. Hann
samdi þó frið
við þá og sjálf-
an sig og lék
nokkra þeirra
á hljómleik-
um á þjóðhá-
tíðardegi
Bandaríkj-
anna árið 1987
þegar efnt var
til hátíðartón-
leika til
styrktar göml-
um Víetnam-
hermönnum.
Síðar hefur
hann
nokkrum
sinnum kom-
ið fram og
spilað blöndu
af lögum frá
CCR-tímanum
í bland við
tónlist sem
hann samdi
eftir að hljóm-
sveitin var
lögð niður.
Nú er fyrsta
hljómleikaferð
hans um margra ára skeið í uppsigl-
ingu og þar á að leika brot af því
besta frá ferlinum öllum, frá því
þegar Proud Mary og Bad Moon Ris-
ing klifruðu upp vinsældalistana og
tii þessa dags.
John Fogerty með Dobroið í fanginu. Það tók hann tvö ár að ná almennilegum tökum á þvf.
„Ég held að með Blue Moon
Swamp sé ég loksins kominn á þá
línu sem aðdáendurnir vilja hafa
mig á,“ segir hann. „Ferillinn hefur
svo sem ekki verið línulegur.
Skrykkjóttur og hlykkjóttur væri
nær sanni. En nú er ég farinn að
vanda mig og er að gera það sem ég
veit að ég geri best og vona að þeir
sem hafa gaman af lögunum minum
séu sáttir.“
Pog
m m % m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m % m m m m m m
Þeir sem eru í djammstuði
um helgina og langar að
skreppa út á land þurfa al-
deilis ekki að láta sér leið-
ast.
Föstudaginn 27. júní verð-
ur hin þjóðkunna hljóm-
sveit Reggae on Ice með
brjálað ball í Víkurröst á
Dalvík. Þar er aldurstak-
mark 18 ára.
Strákamir úr hljómsveit-
inni Sóldögg spila um helg-
ina í Vestmannaeyjum og
ri§a upp gamla Eyjaslagara.
Það verður líf og fjör í
Stykkishólmi en þar troða
Milljónamæringarnir upp
með Bjarna Ara í farar-
broddi.
Laugardaginn 28. júní
verður Reggae on Ice með
sveitaball í Miðgarði,
Skagafirði. Þar er 16 ára
aldurstakmark.
Á laugardaginn er það
hljómsveitin Úttra, með
Antoni Kröyer og Elínu
Klemenzdóttur, sem heldur
uppi fjörinu í Kántríbæ á
Skagaströnd.
Það verðmr grípandi stemn-
ing í Eyjum um helgina en
stuðhljómsveitin Greip leikur
fyrir dansi á skemmtistaðn-
um Lundanum.
Þeir sem ætla að
dvelja í bænum um
helgina geta einnig tek-
ið sér ýmislegt fyrir
hendur.
Bubbi Morthens,
hinn eini og sanni,
verður með tónleika á
Café Royal á laugar-
dagskvöldið og heíjast
þeir stundvíslega
klukkan 21.
Stefán P. og Pétur
leika tónlist fyrir gesti
á Mímisbamum.
Á Gauki á Stöng
leikur hljómsveitin
Kisuber fyrir dansi alla
helgina og er tilvalið
að mæta og fá sér
snúning.
Á laugardaginn spil-
ar hljómsveit Birgis
Gunnlaugssonar í
Danshúsinu í Glæsibæ.
Og síðast en ekki
síst. Gömlu brýnin
Svenni og Halli leika
fyrir dansi bæði á
föstudags- og laugar-
dagskvöldið á kaffi
Gullöld í Grafarvogi.
Góða skemmtun um
helgina en munið að
ganga hægt um gleð-
innar dyr.
Reggae
on lce
Piltamir geðþekku í Reggae on
Ice hafa sent frá sér nýjan geisla-
disk en hann ber einfaldlega nafnið
R. Þeir félagar hafa spilað mikið
saman í vetur og aflað sér mikilla
vinsælda með grípandi og skemmti-
legri tónlist.
Síðasta sumar kom út diskurinn
í berjamó sem hlaut afbragðsundir-
tektir en að sögn hljómsveitar-
manna er annar tónn á nýja gripn-
um. Að þeirra sögn er að finna á
plötunni skarpar, grípandi melódí-
ur og fjölbreytta rytma eða blöndu
af reggaepoppi eins og strákarnir
vilja hafa það sjálfir. Algjör
kúvending.
Hljómsveitarmenn gefa plötuna
út sjálfir, líkt og þeir gerðu í fyrra,
en Skífan sér hins vegar um dreif-
ingu.
-------FFFFFFA
Smáauglýsinga
deilci DV
er opin:
• virka daga kl. 9-221
• laugardaga kl.9-14
• sunnudaga kl, 16-22
Skilafrestur smáauglýsinga
erfyrir kl. 22 kvöldiö fyrir
tök, Smáauglýsingí
Helgarblað DVverðurþó að
berast okkur fyrir kl. 17 á
föstudag.
o\\t mill/ hi^
Smáaudvámaf
wn 'y ‘wfi isflwi
EEÍ