Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1997, Qupperneq 8
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997 IjV
- 22 ‘®n helgina
m TÍr
Fjórðungsmótið á Kaldármelum:
Stærsta hestamannamót ársins
Dagana 26.-29. júní stendur yfir
á Kaldármelum á Snæfellsnesi
fjórðungsmót hestamanna. Mótið
var sett í gær en því lýkur á
sunnudaginn klukkan 17. „Þetta er
stærsta hestamannamót sem hald-
ið verður á árinu og ég geri ráð
fyrir að gestir verði um 3-4 þús-
und,“ segir Grettir Guðmundsson.
Að sögn Grettis hefur undirbún-
ingm- staðið yfir í allan vetur og
margir lagt hönd á plóg. „Annars
er þetta ekki í fyrsta sinn sem við
höldum fjórðungsmót. Snæfelling-
ar hafa verið gestgjafar 4 sinnum
áður þannig að menn vita hvemig
á að standa að þessu,“ segir Grett-
ir.
„Fyrir utan hestasýningar verð-
ur ýmislegt annað um að vera þótt
hestamir séu að sjálfsögðu í fyrir-
rúmi. Til dæmis verður diskótek
fyrir unglingana og Geirmundur
Valtýsson leikur síðan á dansleik í
tjaldi,“ segir Grettir. -kbb
Stærsta hestamannamót ársins verður á Hvolsvelli um helgina.
Blómstrandi bær
í Hveragerði
Helgina 27.-29.júní veröa svo-
kallaðir Heilsudagar í Hveragerði.
Fjölbreytt dagskrá verður í bæn-
um alla helgina og má þar nefha
dansleiki, iþróttir, útivist og fleira
í þeim dúr. Boöið verður upp á
leiðsögn um hverasvæöið og út-
sýnisflug í þyrlu yfir dali Hengils-
ins og ókeypis verður í bíó, tennis
og golf á Hótel Örk. í íþróttahús-
inu verður heilsu- og útivistarsýn-
ing og opiö hús verður hjá Heilsu-
stofnun Náttúrulækningafélags ís-
lands. Dagskráin laugardag og
sunnudag stendur sem hæst síð-
degis en á laugardagskvöld er
dansleikur á Hótel Hofi.
Norskir dagar á
Seyðisfirði
Um helgina verður efnt til
norskra daga á Seyðisfirði. Allt
frá stofnun Seyðisfjarðar hafa ver-
ið mikil tengsl milli bæjarfélags-
ins og Noregs og er þá skemmst að
minnast umsvifa norska athafna-
mannsins Ottos Wathnes á seinni
hluta 19. aldar en hann hefur oft
veriö nefhdur faðir Seyðisfjarðar.
Margt verður um að vera á
Seyðisfirði í tilefni af hátíðinni og
veröur sérstök hátíðardagskrá við
minnisvarða Ottos Wathnes við
Fjarðará og á Miðbæjartorgi.
Fjöldi norska gesta er í bænum
þessa dagana og munu verslanir,
veitingastaðir og aðrir sem þjón-
ustu veita leitast við að bjóða
norsk-íslenskar vörur meðan há-
tíðin stendur.
Sumarhátíöin er samvinnu-
verkefni norska sendiráðsins í
Reykjavík og vinnuhóps heima-
manna á vegum Seyðisfjarðar-
kaupstaðar.
Tour de Hvolsvöllur
Helgina 28.-29.júní verður hin árlega
hjólreiðahátíð, „Tour de Hvolsvöllur",
haldin á Hvolsvelli. Þetta er fjórða árið
i röð sem hátíðin er haldin. Keppt verð-
ur bæði í flokkum götuhjóla og fjalla-
hjóla og eru peningaverðlaun í boði fyr-
ir stigahæsta keppandann.
Margs konar skemmtun önnur verð-
ur í boði. Má þar nefna kraftasýningu
Magnúsar Vers, stuttar hestaferðir,
keppni í götukörfubolta og kvöldvöku á
laugardag. Keppni hefst klukkan 10 á
morgun og er skráning hjá Sælubúinu.
-jþ
Hjólreiöahá-
tíó veröur á
Hvolsvelli
um helgina.
MESSUR
Árbæjarkirkja: Guðsþjón-
usta Id. 11. Prestamir.
Áskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Árni Bergur Sigur-
bjömsson.
Breiðholtskirkja: Guðs-
þjónusta kl. 11. Samkoma
ungs fólks með hlutverk kl.
20. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Guðsþjón-
usta kl. 11. Pálmi Matthías-
son.
Digraneskirkja: Sumar-
ferð Kirkjufélags Digranes-
kirkju á sunnanvert Snæ-
fellsnes. Brottför sunnu-
dagsmorgun kl. 8.30 frá
kirkjunni. Helgistund í
Búðakirkju.
Dómkirkjan: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Jak-
ob Á. Hjálmarsson. Kam-
merkór Dómkirkjunnar
syngur.
Elliheimilið Grund: Guðs-
þjónusta kl. 10.15.
Fella- og Hólakirkja:
Guðsþjónusta kl. 20.30.
Prestur sr. Guðmundur
Karl Ágústsson. Prestarnir.
Grafarvogskirkja: Guðs-
þjónusta kl. 11. Vigfús Þór
Árnason.
Grensáskirkja: Messa kl.
11. Prestur sr. Guðný Hall-
grímsdóttir.
Hafnarfjarðarkirkja:
Helgistund kl. 11. Sr. Þór-
hallur Heimisson.
Hallgrímskirkja: Messa
kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar
Lámsson prófastur setur
sr. Sigurð Pálsson í starf að-
stoðarprests við Hallgríms-
kirkju. Félagar úr
Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngja. Tónleikar kl.
17. Einar St. Jónsson
trompetleikari og Douglas
A. Brotchie organleikari.
Landspítalinn: Messa kl.
10. Sr. Bragi Skúlason.
Háteigskirkja: Messa kl.
11. Sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir.
Hjallakirkja: Vegna fram-
kvæmda í Hjallakirkju og
sumarleyfa starfsfólks
kirkjunnar er fólki bent á
helgihald og þjónustu í
Breiðholtskirkju eða öðrum
kirkjum í Kópavogi. Prest-
amir.
Kópavogskirkja: Guðs-
þjónusta kl. 11. Kór Kópa-
vogskirkju syngur. Ægir
Fr. Sigurgeirsson.
Langholtskirkja: Kirkja
Guðbrands biskups. Messa
kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi
Þórarinsson. Kór Lang-
holtskirkju (hópur H) syng-
ur.
Laugarneskirkja: Vegna
sumarleyfa er minnt á
guðsþjónustu í Áskirkju.
Mosfellskirkja: Guðsþjón-
usta í Mosfellskirkju kl. 11.
Jón Þorsteinsson.
Neskirkja: Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Halldór Reynis-
son.
Seljakirkja: Guðsþjónusta
kl. 20. Sr. Valgeir Ástráðs-
son prédikar. Húnakórinn
flytur tónlist undir stjóm
Sesselju Guðmundsdóttur.
Sóknarprestur.
Seltjamameskirkja:
Messa kl. 11. Prestur sr. Sol-
veig Lára Guðmundsdóttir.