Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Page 7
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1997
7
Fréttir
Norskir útvegsmenn ósáttir við „loðnustríðsafbrotadómstól“:
Óskandi að
norsk stjórn-
völd gefi eftir
- norskir sjómenn fá ströng fyrirmæli um að fylgja reglunum
DV, Ósló:
„Ég er á endanum farinn að óska
þess að norsk stjórnvöld gefi eftir í
þessari þrætu um Sigurð VE og sýni
örlítið meiri sveigjanleika í veiðieft-
irlitinu. Þá fengjum við norskir út-
vegsmenn manneskulegri meðferð
af hálfú norsku strandgæslunnar
hér á heimamiðunum. Ef eitthvað
er fer strandgæslan verr með okkur
en íslendingana," segir Audun
Marák, formaður félags norskra
bátaútvegsmanna, í samtali við DV.
Marák kvartaði sáran undan því í
viðtalinu við DV að norskum út-
vegsmönnum væri saklausum refs-
að fyrir það sem norska strandgæsl-
an hefði gert. Nú síðast kæmu fram
hugmyndir um að rannsaka meint
brot norskra loðnuskipstjóra á mið-
unum við ísland á síðustu vertíð.
Hugmyndin var rædd á embættis-
mannafundinum í Reykjavík í
fyrradag og var tekið með opnum
hug af norsku sendimönnunum.
Óskiljanlegt
„Ég skil ekki hvernig þessir
menn ætla að koma svona rannsókn
við og ég skil ekki heldur af hverju
íslensk stjómvöld ætla nú að taka
upp mál sem voru látin átölulaus í
fyrra,“ sagði Marák og tók fram að
þessar hugmyndir væm algerlega
nýjar fyrir sér og hann varaði sterk-
lega við þeim.
„Svona rannsókn verður ekki til
annars er að magna enn deilumar
milli íslendinga og Norðmanna og
það litla samstarf sem enn er við
lýði verður úr sögunni. Ég veit ekki
hver tapar þá mestu þegar upp er
staðið. Þetta væri mikið óheilla-
spor,“ sagði Marák.
Hann sagðist efast um að hægt
væri að taka upp gömul mál sem ís-
lensk stjórnvöld hefðu þegar af-
greitt og látið sem engu skiptu.
Söguleg rannsókn á loðnuveiðunum
ætti þá einnig að gildu um íslensk
skip.
Ekki 73 brot
Aðspurður hvort þessi viðbrögð
jafngiltu ekki því að hann viður-
kenndi að Norðmenn hefðu óhreint
mjöl í pokahorninu sagði Marák að
það væri alltaf hægt aö finna eitt-
hvað athugavert. Hann vildi hins
vegar ekki kannast við að brot
Norðmanna frá í fyrra væru 73.
„Ég skil ekki hvemig íslensk
stjórnvöld geta hugsað sér að grípa
til aðgerða af þessu tagi nú. Af
hverju var ekkert gert þegar þessi
meintu brot vom framin? Norskir
sjómenn vissu að íslenska landhelg-
isgæslan tók ekki hart á smávægi-
legum yfirsjónum. Það var á allra
vitorði að reglurnar væm túlkaðar
frjálslega,“ sagði Marák.
Taka Sigurðar VE hefur valdið auknum kulda í samskiptum íslands og
Noregs.
Hann sagði að þeir Norðmenn
sem fæm til loðnuveiða eftir mán-
aðamótin fengju ströng fyrirmæli
um að fylgja reglunum að ýtrustu
nákvæmni til að koma í veg fyrir
töku skipa. Hins vegar væri þeim
vandi á höndum þar sem þeir hefðu
enn ekki séð nýju reglugerðina.
íslendingar í stríðshug
„Við vitum að íslendingar em í
stríðshug og ætlum að haga okkur í
samræmi við það. Við getum enga
áhættu tekið og munum ekki gera
það. íslendingar bíða eftir að geta
tekið skip frá okkur," sagði Marák.
„Við vitum að allt þetta uppi-
stand er vegna Sigurðarmálsins.
Það finnst okkur mesta óréttlætið
að okkur er refsað fyrir það sem
norska strandgæslan gerði. Norskir
útgerðarmenn hafa lent í mörgum
sambærilegum málum en það er
aldrei hlustað á kvartanir okkar. Á
íslandi geta útvegsmenn kallað á
stjómvöld sér til hjálpar hvenær
sem er,“ sagði Marák.
Af hálfu norskra stjómvalda er
látið í veðri vaka að sambúðin við
ísland sé nú komin í eðlilegt horf á
ný. Embættismenn séu að fara yfir
reglur og framkvæmd þeirra. Nýja
reglugerðin um loðnuveiðarnar við
ísland fær hinar bestu móttökur op-
inberlega og allt er i himnalagi.
Embættismenn sem DV hefur
rætt við segja að stefnan nú sé að
forðast öll stóryrði og taka vel í allt
sem íslendingar leggi til án þess þó
að viðurkenna nokkur mistök í
meðferð Sigurðarmálsins. Norsk
stjómvöld geta á engan hátt gefið
eftir því þá vaknar upp mikill grát-
kór norskra útgerðarmanna sem
vilja fá leiðréttingu á sektum fyrir
fjölmörg smábrot. Auðun Marák og
félögum hans verður því ekki í bráð
að ósk sinni um að norsk stjórnvöld
sýni sveigjanleika við veiðieftirlit-
ið.
„Það er ekki rétt að skella skuld-
inni á norsku strandgæsluna. Vand-
inn felst í reglunum. Það er ekkert
að pianóinu en nóturnar sem spilað
er eftir eru ómögulegar," sagði
Marák. -GK
Stýrikerfi og net
Ritvinnsla
Töflureiknir
Gagnagrunnur
Framsetning
Dagbók og tölvupóstur
Microsoft Office, almennt
Internetið
Hópvinnukerfi
Forritun
Enska
Lokaverkefni
Ttílvur
Enska
Bókhald
Islenska
Verslunarreikningur
Tollskýrslugerð
Vélritun
Námstefnur
Starfsþjálfun
Markaðs-og sölunám
HmÉk-Æ.íárnmm
3Ji iJ3iiJ3íiJdiJjiJ íjJíJí:
Fjármála- og rekstrarnám
Almennt skrifstofunám
Almennt skrifstofunám
Upplýsingar og innritun í síma 569 7640
Staófesta þarf skólavist fyrir 15. júlí n.k.
Ttílvur
Enska
Bókhald
Fjármál og reikningsskil
Rekstrarfræði
Tollskýrslugerð
Námstefnur
Starfsþjálfun
Lokaverkefni
Markaifc-M sölunám
iTölv
I Ensl
I Mar
Tölvur
Enska
Markaðsfræði
Sölutækni
Ttílfræði og aðferðir
Stjórnun
Lögfræði
Tollskýrslugerð
Námstefnur
Starfsþjálfun
Lokaverkefni
Almennt skrifstofunám
Fjármála- og rekstrarnám
Almennt skrifstofunám
Ttílvur
Enska
Stílutækni
Markaðsfræði
Starfsmannastjórnun
Ltígfræði
Bókhald
Tollskýrslugerð
Verslunarreikningur
Námstefnur
Lokaverkefni
r
Vió flytjum
Faxafen 10
Hús Framtfðar
108 Reykjaví
arl
ll
VIÐSKIPTA- OG
TÖLVUSKÓLIN N
Ánanaustum 15’ 101 Reykjavík • Sími: 569 7640 ■ Fax: 552 8583