Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Blaðsíða 13
JLj’V’ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1997 íennmg 13 ) Djasshátíð Egilsstaða: 1 Stórsveit, Slag-bít og djamm I > I t Það var kominn tími til að heyra í upprennandi kynslóð tónlistarfólks á Austurlandi og það gerðist á fóstudagskvöld þegar Einar Bragi Bragason stjómaði Stórsveit Austurlands í Hótel Valaskjálf. Unga fólkið hafði stuðning frá nokkrum eldri og reyndari spilurum og tónlistarkennurum því að í hljómsveitinni era m.a. sjálfur Ámi ísleifs á píanó, Grétar saxófónleikari frá Húsavík, Anna Lilja, trompetleikari á Fáskrúðsfirði, Giilan frá Reyðar- firði á saxófón og þeir Þórður Óli (sax.) og Ágúst Ármann, bassaleikari frá Norðfirði. Þrátt fyrir fáar æfingar hljómaði bandið aldrei illa og oft glæsilega. Ekki er hægt annað en að dást að þessari góðu frammistöðu. Tvö lög eftir píanistann voru á dag- skránni; Mánagull, faileg ballaða sem Bjami trompetleikari fór vel með og Mambó nr. 4 Alla frá Múla (Aðalheiður Borgþórsdóttir) tók „Ail of Me“ með stórsveitinni eins og ekkert væri og hefði mátt syngja meira. Þá stigu á svið trommaramir Guð- mundur Steingríms- son, Skapti Ólafsson og Þorsteinn „Krupa“ Eiriksson og fluttu trommu- svítuna Slag- bit. Það er allvel á spilmn haldið þegar þrír trommarar geta fang- Stórsveit Austurlands lék undir stjórn Einars Braga Bragasonar. „Papa Jazz“ Steingríms- son stjórnaói trommu- svítunni Slag-bít meö fööurlegri mildi og hörku. DV-myndir Siguröur Mar að athygli áheyrenda og haldið henni um nokkum tíma án stuðn- ings annarra hljóðfæra. Þeir gáfú i skyn að ekki bæri að taka uppá- komuna of alvarlega en henni stjórnaði „Papa Jazz“ Steingríms- son af fóðurlegri mildi og hörku. Þrátt fyrir spaugið sem þessu fylgdi var mikil músík í skinnum, kjuð- um og spilurum. Þessu kvöldi lauk svo með djammssessjón sem Friðrik Theo- dórsson básúnuleikari stjórnaði. í tilefni góða veðursins á Egilsstöð- um hafði í miklu skyndi verið sett saman hljómsveit til að leika undir berum himni á fóstudag og laugar- dag. Þótti við hæfi að gefa henni nafnbótina Skyndikynni og hóf hún djammið. Fleiri fylgdu í kjölfarið, þar á meðal Einar Bragi sem blés „In a Sentimental Mood“ á tenór al- veg snilldarvel við nettan undirleik Áma ísleifs, Garðar „blúsari" Harðarson sem söng „Stormy Monday" af list og blés í munnhörpu við undirleik Steingrímssonar á trommur, Ingva Þórs á píanó, Önnu Lilju á trompet og Einars á bassa. Þama komu einnig fram, auk Skyndikynna og ýmissa sem áður hafa verið nefiadir, Höskuldur Egilsson söngvari og Kiddi trommari. -IÞK Oraiur í lygnum Legi - og fleira fólk Sérstaka athygli vakti frábær frammistaða Kristjönu Stefánsdóttur. DV-mynd Sigurður Mar Djasshátíðin á Egilsstöðum var ágæt- lega sótt öll kvöldin og ekki síst á laugar- f dagskvöldið þegar Léttsveit Ólafs Gauks I lék á Hótel Valaskjálf ásamt söngkonunni Kristjönu Stefánsdóttir. Á meðal gesta f var forseti íslands, Ólafur Ragnar Grims- son, ásamt frú Guðrúnu Katrínu Þor- bergsdóttur. Frumflutt var verkið Ormur í lygnum Legi sem tileinkað er Egilsstöðum á 50 ára aftnæli staðarins og um leið 10 ára af- mæli Djasshátíðarinnar. Verk þetta eða svíta ber viss einkenni höfundar síns, Óla Gauks. Sándið er að verða álíka klassískt | hér á landi og viss stíleinkenni frægra er- lendra höfunda og útsetjara. Laglínan ' sem fylgir texta verksins er ekki ómstríð, | ekki mjög grípandi, svipað og í dægurlagi væri, heldur einhvers staðar mitt á milli og skrifuð í moll. Á milli söngkafla voru kaflar fyrir blásara og einn kaflinn með alláberandi fimmundartónbilum sem settu á verk- ið þjóðlegan brag. í heildina vel frambærilegt stykki og var því vel fagnað. Eftir „Orminn" flutti hljómsveitin og söngkon- an tvö frumsamin lög ðlafs. Annað kallaðist i „Badú“ eftir textanum eða textaleysinu sem var þetta hefðbundna „Badúbadúbadúdeidei o.s.frv., I létt og skemmtilegt. Hitt var kynnt sem Rómantísk j ástarsaga og réðu þar hljómasamböndin II-V sem Djass Ingvi Þór Kormáksson gerðu þetta að afar áheyrilegu dægurlagi. Svo komu lögin „Softly (as in the Morning Sunrise)" og „There’ll never Be Another You“, óað- finnanlega flutt. Eftir hlé vora á dagskrá „This Masquerade" þar sem Gunnar Hrafnsson fór á kostum á kontrabassann og „Bye, Bye Blacbird" án blásara með flottu gítarspili Gauks. Þá kom einn mjög skemmtilegur frumsaminn Austfiarða- blús þar sem blásararnir fengu að sýna hvers þeir eru megnugir. Það voru þeir Haukur Gröndal á baritón- og altósaxó- fón, Ólafur Jónsson á tenórsaxófón, Ein- ar Jónsson á básúnu og Veigar Margeirs- son trompetleikari. Trommari var Guð- mundur Steingrímsson. Þessu lauk svo með „Cry Me a River“ og laginu hans Árna ísleifs um hana Stínu sem gekk einmitt í endurnýjun líf- daga ekki alls fyrir löngu og var hérna flutt i mjög laglegri útsetningu. - Léttleik- inn var allsráðandi á þessum tónleikum og var það svo sem vel við hæfi. Sérstaka athygli vakti frábær frammistaða Krisfiönu Stef- ánsdóttur, kannski vegna þess að enginn bjóst við öðru eins framlagi frá henni. Hún impróviseraði t.d. bæði með og án texta og, að því er virtist, áreynslulaust, sem er alltaf plús. Það er ljóst að með þessu og þviliku áframhaldi kemur hún til með að verða hin ókrýnda djassdrottning íslands. - Þannig lauk tíundu djasshátíð Egilsstaða og ekk- ert annað eftir en að þakka fyrir sig. Merking málverksins og götunnar í Listasafninu á Akureyri lauk um nýliðna helgi athyglisverðri sýningu Einars Garibalda á ' málverkum sem í raun eru merkjaflekar er not- | aðir hafa verið sem mát fyrir gatnagerðarmenn í I Reykjavík til þess að merkja götur og staði. Við eram alvön að lesa merki í malbikinu á borð við þau að ákveðin akrein sé ætluð strætis- vögnum eða leigubílum, að fram undan sé beygja á hægri hönd eða að hér sé göngubraut eða bíla- stæði fyrir fatlaða. Við lesum þessi merki nánast sjálfkrafa og umhugsunarlaust. Þau eru hluti af merkjakerfi borgarlandslagsins sem við búurn í og þau leiða okkur í gegnum það nánast án þess að við gerum okkur grein fyrir því. ) Hvaða þýðingu hefur það að taka flekana, sem | þessi merki eru máluð eftir, og setja upp á vegg í nýju samhengi sem listaverk í sýningarscd? ) Þessi hliðran á fyrirbærinu gerir það að verk- um að merking sem áður var fullkomlega ljós, ótvíræð og flöt verður allt í einu margræð um leið og hún öðlast nýja dýpt og fyllingu. Orðin eða merkin lýsa með fiarveru sinni um leið og gatið býður upp á frekari merkingu, hvort sem er á vegginn undir flekanum eða annars staðar. Allt i einu er orðið TAXI orðið að mónu- mental formi sem stendur ekki bara fyrir það að | hér sé leigubílum einum heimilt að aka heldur I verður það jafnframt að tákni fyrir merki í um- hverfi okkar almennt. Frá sýningu Einars Garibaida: TAXI, SVR Ef við lítum svo á sjálfa flekana sem merkin era skorin í og máluð eftir fer heldur ekkert á milli mála hvert var hlutverk þeirra og tilgangur við merkingu malbiksins. En um leið og þeir eru komnir upp á vegg sem listaverk förum við að horfa á þá frá nýjum sjónarhóli. Allt í einu fara Myndlist Ólafur Gíslason slettumar, slitið og skíturinn, sem segja okkur sögu flekans, að fá nýja merkingu og opna fyrir sögulega vídd og tilfinningu. Við sjáum hvernig þessi fleki hefur ferðast í gegnum borgina og gef- ið stöðum merkingu. Saga flekans verður hluti verksins. í heild sinni búa þessi verk yfir þeim þéttleika og þeirri dýpt sem einkennir táknmál góðrar myndlistar umfram tákn merkjamálsins. Möguleikinn að halda merkjavinnunni áfram vekur líka spurningar. Hvemig gefum við um- hverfi okkar merkingu, hvert er samband forms, texta, skynjunar og tilfinningar? Og ekki síst, hver era tengsl merkingar og ytra samhengis hlutanna? Svörin við þessum mikilvægu spurningum liggja ekki á lausu en með því að vekja þær og setja fram á skýran og ögrandi hátt hefur lista- maðurinn hjálpað okkur til að nálgast skilning á atriðum er varða nokkur grundvallaratriði í mannlegu tungumáli og samskiptum. Eitt megineinkenni módernismans í myndlist var fullkominn aðskilnaður forms og texta. Form- ið átti að tala sínu eigin máli og texti var nánast bannfærður frá myndmálinu. Það er eitt af ein- kennum síðmódernismans að textinn hefur ruðst inn i myndmálið með nýjum hætti og skapað nýj- ar forsendur fyrir sköpun merkingar í myndlist- inni. Ekki út frá bókstaflegri merkingu orðanna, heldur út frá virkni þeirra og samspili við form- ið, umhverfið og áhorfandann. Þessi verk Einars Garibalda eru gott dæmi um þetta og það er einmitt meginkostur þessarar sýningar að hér er fiallað um nokkrar grundvallarspurningar mynd- listarinnar á okkar dögum. MIKIL PRESSA Schneider - þessar þýsku! fjötbreytt úrval SKÍimSON BJÚNSSON SKÚTUVOGI 12H • SÍMI 568-6544 faxtæki UX 71 • Innbyggður sími • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Símsvara tengimöguleiki • 15 úthringi minni (5 hraðaval og 10 skammval) • 15 bls. arkar- matari • 30 m pappfrsrúlla FO 1450 Faxtæki fyrir venjulegan pappír Símsvara tengimöguleiki 1 99 úthringi minni (20 hraðaval og 79 skammval) • 20 bls. arkar- matari • 300 bls._pappírs bakki 1 512 kb minni (31 bls.) FO 261 Laser faxtæki fyrir venjulegan pappír • Sjálfvirkur deilir fax/sími 1 Símsvara tengimöguleiki • 50 úthringi minni (20 hraðaval og 30 skammval) • 20 bls. arkar- ; matari • 100 bls,__ pappírs bakki 1 512 kb minni 38 bls.) F-27001 ■ Windows Laser Prentari og faxtæki fyrir venjulegan papplr ’ Sjálfvirkur deilir fax/sími 1 Símsvara tengimöguleiki 1 50 úthringi minni (20 hraðaval og 30 skammval) • 20 bls. arkar- matari • 100 bls. pappírs bakki 1 512 kb minni (38 bls.) BRÆÐURNIR Lógmúla 8 • Sími 533 2800 )

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.