Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Side 17
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1997 17 Nýr leikur frá höfundi The Hitchhikers Guide to the Galaxy Douglas Adams hefur víða komið við á löngum ferli sínum. Hann er að sjálfsögðu frægastur fyrir ritstörf sín en hann er m.a. höfundur The Hitchhiker’s Guide to the Galaxy- bókaflokksins. Douglas hefur einnig unnið sem lífvörður, kjúklingabóndi og var eitt sinn gítarleikari rokksveitarinnar Pink Floyd. Er spenntur Tólf ár eru síðan Adams vann með forritaranum og leikjahönnuðinum Steve Meretzky að gerð textaævin- týris sem byggt var á The Hitchhi- ker’s Guide to the Galaxy. Leikurinn sló í gegn og seldist í 350 þúsund ein- tökum enda þótti mörgum sem þeim félögum hefði tekist vel upp í að slá ryki í augu spilara með útsmognum þrautum og snúnum texta. Nú ætlar Adams að reyna að end- urtaka velgengnina með nýjum leik fyrir PC og Macintosh tölvur sem hann kallar Starship Titanic og er ætlunin að leikurinn komi á mark- aðinn í haust. Nú starfar Douglas undir merkjum eigin fyrirtækis sem hann kallar The Digital Village en það stofnaði hann á síðasta ári. Dou- glas ætlar reyndar ekki að láta sér nægja að gefa út Starship Titanic tölvuleik. Samhliða leiknum kemur út sérstök Starship Titanic skáld- saga. í báðum verkunum er hin stór- skrýtna en jafnframt skemmtilega kímnigáfa Douglas í aðalhlutverki. Hann er að sjálfsögðu spenntur yfir þessu nýja verkefni enda segir hann að þetta sé ný aðferð fyrir þekkta höfunda til að koma verkum sínum á framfæri í tölvuheiminum. „Venjulega eru leikir sem gefnir eru út bundnir af frásagnarmáta bókar- innar. Þetta minnir reyndar á þegar kvikmyndir voru lítið annað en eftir- hermur af leikritum. Ég held hins vegar að geisladiskar með leikjum og öðrum hugbúnaði séu fullgildir miðl- ar, rétt eins og kvikmyndin er löngu orðin,“ segir Adams. Netið gerir dóms- úrskurð að engu Flett var ofan af stærsta eitur- lyfjahneyksli í sögu Chile í apríl sl. þegar sérsveitir lögreglunnar hand- tóku bófaforingjann Mario Silva sem var í forsvari fyrir stærsta eit- urh'íjahring landsins eftir þriggja ára rannsókn. í henni kom fram að eiturlyfjabrask var stundað með fulltingi aðila í her, lögreglu og dómstólum landsins. Einnig var starfsemi eiturlyfjahringsins í Vest- ur-Evrópu dregin fram í dagsljósið. Eins og við er að búast hófu fjöl- miðlar í Chile víðtækan fréttaflutn- ing af málinu en það fór hrollur um blaðamenn þegar dómari nokkur bannaði umfjöllun um málið (sem oft er kallað E1 Cabro Carrera). Dómarinn nýtti sér hálfrar aldar gamla lagaheimild og sagði að fréttaflutningur væri farinn að spilla rannsókn málsins. Þessi úr- skurður var harðlega gagnrýndur af samtökum blaðamanna og forseta Chile, Eduardo Frei. Ritstjóri stærsta dagblaðs Chile (La Tercera), Fernando Paulsen, var líka ósáttur. Hann fór að rifja upp gamla tíma þegar hann var háskóla- stúdent í Texas og hafði það fyrir sið að stelast yfir sýslumörk til þess að kaupa áfengi, sem var ólöglegt í sýslunni sem hann bjó í, og ákvað að endurtaka leikinn. í þetta sinn var þó ekki verið að laumast með bjór heldur upplýsingar. Hann fékk í lið með sér vefhönn- uð og skara af lögfræðingum og setti upp sérstaka vefútgáfu af blað- inu með nýjustu fréttum af flkni- efnamálinu sem vistuð er á banda- rískum vefmiðlara. Síða La Tercera með fréttum af rannsókninni á fikniefnahneykslinu fær nú um tíu þúsund heimsóknir á dag frá netbú- um í Chile og skiptir engu hvort einhverjum dómara eða öðrum yfir- völdum þar í landi líkar betur eða verr. -JHÞ/Byggt á Wired Fjármálamenn í Bretlandi vilja alþjóðlegar reglur um netið Rannsóknarhópur á vegum breska fjármálaráðuneytisins og Englandsbanka lýsir því í nýlegri skýrslu að þó hið landamæralausa Internet geti gert svika- hröppum í fjár- málum auðvelt að stunda vafa- söm viðskipti og grafa undir fjármálakerf- um heilla þjóða sé enn sem komið er engin ástæða fyrir tauga- veiklun, enda hafl fáir fjármálaglæp- ir verið framdir í gegnum Internetið. í skýrslunni er enn fremur haldið fram að áframhaldandi þróun Nets- ins gefi fjármálastofnunum mörg sóknarfæri sé rétt á málum haldið. Enn fremur er bent á mikilvægi þess að alþjóðlegar reglur verði settar um fjármálastarfsemi á Internetinu, ekki dugi að einstök lönd reyni að halda uppi eigin reglum. Það vekur einnig nokkra athygli að hópurinn heldur því fram að sú dulmálstækni sem þegar er í notkun geri það öruggara að gefa upp kreditkortanúmer í gegnum Inter- netið en það er að gefa það upp í gegn- um síma eða með faxi. „Stærsti vand- inn sem fjármála- menn standa frammi fyrir þegar Internetið er ann- ars vegar er ein- faldlega skeytingar- leysi í öryggismál- um tölvukerfa," segir í skýrslunni. Stjórnandi rannsóknarhópsins, Andrew Hilton, segir ekki ólíklegt að eldri fyrirtækr, sem hafa íjárfest mikið í íburðarmiklum byggingum, muni ekki geta keppt við nýrri fjár- málafyrirtæki sem burðast ekki með sömu yfirbyggingu og nýta tölvutæknina til hins ýtrasta. „Það verður þó ekki einhlitt, mörg þess- ara eldri fyrirtækja munu hagnast á nýrri tækni.“ JHÞ/Byggt á Wired Torkennileg vélmenni eru meöal þeirra sem spilarinn hittir fyrir í Starship Titanic. Sagan En um hvað snýst þetta allt sam- an? Leikurinn krefst þess af spilar- anum að hann leiki hlutverk manns nokkurs sem verður fyrir því eitt kvöldið þegar hann er að horfa á sjónvarpið (eins og einhver geri það lengur?) að stærsta og flottasta geim- skipið í alheiminum (s.s.Titanic) brotlendir á húsi hans. í sama mund og hann álpast inn í skipið tekst það á loft og heldur aftur af sjálfu sér út í útgeim. Það er því mikilvægt að koma skipinu aftur heim en það er senni- lega frekar erfltt þar sem spilarinn er eina „manneskjan" um borð. Eng- ir aðrir eru um borð nema vélmenni sem öll þjást af einhvers konar taugaáfalli, snarbilaður páfagaukur (já, ég meina páfagaukur) og skips- tölvurnar sem eru í fullkomnu lama- sessi. Til þess að ná stjórn á þessari óhappafleytu verður spilarinn að ná trausti vélmennanna (og væntanlega páfagauksins) með því að tala við þau. Afar fullkomin leikjatækni er sögð gera þetta mögulegt en um- hverfið í leiknum minnir á undar- legt sambland af Ritz-hótelinu, Crys- hler- byggingunni í New York, graf- hýsi Tutankhamens, og Feneyjum. Spilarinn þarf líka að koma upp um samsæri sem upphaflega var þess valdandi að geimskipið villtist af leið. Samantekt: -JHÞ Leikjamolar Heimsyfirráð eða dauði Síöan Civilisation kom út! árdaga hafa PC-eigendur alltaf tekiö vel á móti leikjum sem ganga út á aö ná heimsyfirráðum: Fjöldi slíkra leikja er á markaðnum en leiksins Imper- ialism frá SSI, sem kemur út næsta haust, er beðiö meö sérstakri eft- irvæntingu. Leikurinn gerist í 19. aldar umhverfi og er markmið spilarans (eins og í öllum hinum leikjunum) að beita klækjum, efnahagslegum yfirburö- um eöa einfaldlega hráu valdi til þess aö ná heimsyfirráðum. Eins og er móðins í dag ætla leikjahönn- uöir hjá SSI aö gefa þeim sem vilja feta í fótspor Bismarcks tækifæri til þess aö kepþa viö sex aðra aö- ila í gegnum símalínur. Leikurinn veröur bæði fáanlegur fyr- ir PC- og Macintosh-tölvur. Erótískur Quake Búinn hefur veriö til sérstök Pent- house útgáfa af Quake sem gerist á paradísareyju meöal léttklæddra (eöa allsnakinna) yngismeyja. Illúö- legar geimverur ráöast á eyjuna og eins og vera ber þarf spilarinn aö tortíma geimverunum fyrir aö trufla unaösstundir meöal fáklæddra stúlkna. Hægt er að veröa sér úti um nýja leikinn á vefsíöum Pent- house og GT Interactive. Saturn-leikir í röðum Þaö er mikiö af nýjum leikjum aö koma út fyrir Sega Saturn-tölvur. Meöal þeirra er Shining the Holy Ark en þaö er hlutverkaleikur sem gengur út á aö stýra strlösmanni í gegnum fjandsamlegan þrívíddar- heim. World Series Baseball sló í gegn meðal Saturn-eigenda en fram- haldið, World Series '98, kemur út í sumar. Bætt hefur veriö viö keþpni milli deilda, þremur nýjum völlum og miklu af tölfræöi. Merkasta viö- bótin mun þó vera betri hreyfimynd- ir. Einnig má nefna tvo aðra titla: Worldwide Soccer '98 (kemur! haust) og nýjan en enn nafnlausan körfuboltaleik sem forritaragengið hjá Electronic Arts byrjaöi nýlega aö vinna aö. SSI dreifir Dark Colony GameTek hefur ekki gengiö sem skyldi að koma leikjum sínum á framfæri og hefur því fengiö Stra- tegic Simulations Inc. (SSI) til þess aö taka viö leikjadreifingu. Meðal leikja sem SSI mun dreifa fyrir Ga- meTek eru Dark Colony I og II. Dark Colony gerist á Mars áriö 2172 og minnir á Command & Conquer leik- ina. í þeim er takmarkiö aö að tryggja yfirráð mannkynsins yfir elds- neyti sem er að finna á Mars en þaö á í striði viö geimverur sem vilja líka þetta Marsbúabensín. Dark Colony I kemur út fyrir næstu jól en seinni leikurinn á að koma út á næsta ári. Electronic Arts og Maxis sameinast Fyrir viku sögðum viö frá hinum glæsilega leik SimCity 3000 sem gefinn er út undir merkjum Maxis. Þaö er meira aö frétta út herbúö- um Maxis, eigendur þess hafa ákveöiö aö sameinast tölvuleikjar- isanum Electronic Arts. Hér er um að ræöa viðskipti upp á sjö millj- aröa króna en stjórnendur Electron- ic Arts renna einmitt hýru auga til „Sim"Teikjanna frá Maxis en fyrir- tækiö hefur selt meira en sjö millj- ónir eintaka af sllkum leikjum. Fjöldi leikja fyrir PlayStation og Nintendo Það er mikiö aö gerast hjá japanska tölvuleikjarisanum Konami. I byrjun næsta árs mun leikurinn Winter Olympics '98 koma út fyrir Sony PlayStation Nintendo64. Leikurinn er aö sjálfsögöu byggöur á vetrar- ólympíuleikunum sem fara fram í Nagano í Japan á næsta ári. í leikn- um veröa 10-15 mismunandi keppnisgreinar. I desember mun fyrirtækiö gefa út körfuboltaleikinn NBA in the Zone '98 sem mun vera svipaöur öörum körfuboltaleikjum frá Konami. í okt- óber kemur svo út hinn langþráði leikur Castlevania: Symþhony of the Night. Leikurinn gengur út vamplru- veiöar og eins og í fjölda annarra leikja er feröast frá vinstri til hægri. PCT Óskalisti brúðhjónanna Gjafaþjónnsta jyrir /ytN silfurbúðin Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066 - Þarfœrðu gjöfina - Heima-trimform Berglindar býður nú öllum landsmönnum að stunda trimform heima hjá sár hvar sem er á landinu. Þú leigir rafnudd- tæki hjá okkur og við leiðheinum þér um notkun svo þú náir árangri. Visa/Euro Sími 553 3818 eða 896 5818 ——jtrir/i Smáauglýsinga deild DV M eropin: ’|| • virka daga kl, 9-22 - • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22 Skilafrestur smáauglýsinga er fyrir kl. 22 kvöldiö fyrir birtingu. Ath. Smáauglýsing í Helgarblaö DV verður þó aö berast okkur fyrir kl, 17 á föstudag. Smáauglýsingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.