Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Side 20
20
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1997
Fréttir
DV
F I R I! i! S f fi
jsiiiiBas »
Lionsklúbburinn Eir:
Afhenti tæki
til vímuefnavarna
Nokkrir af krökkunum sem hjóluðu frá Hvammstanga til Blönduóss. Lengst t.v. er Svanborg Þórdís Frostadóttir, úti-
bússtjóri Búnaðarbankans á Blönduósi, sem hjólaði með krökkunum og mun fylgja þeim í Danmerkurferðina ásamt
kennara þeirra. DV-mynd Magnús
Blönduós:
Lionskonur afhentu fíkniefnadeifdinni á dögunum hin ýmsu tæki til fikni-
efnavarna. Fra vinstri eru Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, Guð-
mundur Guðjónsson yfirlögregiuþjónn, Einar Karl Kristjánsson í fíkniefna-
deild og Lionskonurnar Rannveig Ingvarsdóttir, Hrefna Guðmundsdóttir,
Steinunn Friðriksdóttir og Guðríður Hafsteinsdóttir.
Safnað fyrir Danmerkurferð
DV, Húnaþingi:
Böm 1 sjöunda bekk grunnskólans
á Blönduósi hafa í vetur og vor staðið
fyrir mikilli fjáröflun vegna ferðar
sem þau ætla í á komandi hausti til
Horsens í Danmörku.
Horsens er einn af vinabæjum
Blönduóss og hafa krakkamir staðið í
bréfaskriftum og krakkar þaðan kom-
ið í heimsókn til Blönduóss. Krakk-
amir hafa haldið kökubasar, bingó og
selt kort og nú síðast tóku þeir sér fjr-
ir hendur að hjóla frá Hvammstanga
til Blönduóss og söfnuðu áheitum.
Gekk sú ferð vel og skilaði góðri upp-
hæð í ferðasjóðinn. -MÓ
Aukablað um
Húsið í Sandgerði sem hefur staðið autt í 14 ár. Þar hefst í haust framleiðsla
á minkafóðri til útflutnings. DV-mynd Ægir Már
Minkafóður í Sandgerði:
Útflutningur
til Danmerkur
DV, Suðurnesjum:
„Þetta er áhugaverð framleiðsla.
Við erum nú þegar búnir að fá
danskan kaupanda að öflu því fóðri
sem við getum framleitt næstu 10
árin,“ sagði Teitur Garðarsson,
framkvæmdastjóri Skinnfisks ehf., í
samtali við DV.
Hann er að hefja framleiðslu á
minkafóðri i Sandgerði til útflutn-
ings til Danmerkur og er fyrirhugað
að framleiða 15-20 þúsund tonn á
ári. Möguleiki er að framleiða
meira sem byggist á hve mikið hrá-
efni er hægt að fá í framleiðsluna en
það er innyfli fisks og afskurður úr
fiskvinnslu ásamt loðnu. Þannig er
nýtt hráefni sem annars færi í
bræðslu - það hakkað og fryst.
Kostnaður við að koma fyrirtæk-
inu af stað er um 100 millj. króna og
velta áætluð um 300 milljónir króna
á ári. 10 manns fá þama vinnu og
stefnt er á að hefja framleiðslu í
september. Húsnæðið í Sandgerði er
2000 m2 með frystigeymslu. Það hef-
ur staðið autt nánast frá upphafi en
var byggt fyrir 14 árum. Eigendur
Skinnflsks eru danski kaupandinn
með 25% og tveir íslendingar.
„Danir eru með um 60% af heims-
markaði minkabúa og framleiðslu
af minkafóðri. Þeir geta hins vegar
ekki framleitt nóg. Næsta skref okk-
ar er að setja upp 4-5 þúsund tonna
meltutanka," sagði Teitur Garðars-
son. -ÆMK
Samtökin íslenskt dagsverk afhentu á dögunum fyrsta framlag sitt til upp-
byggingar iönnámi á Indlandi. Alls söfnuðust 4,6 milljónir króna. 30 þúsund
manna námsmannahreyfing stóð á bak viö söfnunina. Það var John Win-
ston, sem rekur skóla og sjúkrahús á vegum sameinuðu kristnu kirkjunnar
á Indlandi, sem tók við framlaginu í Kornhlöðunni. DV-mynd Hilmar Þór
Ég auglýsti bílinn og
hann seldist eftír 3 tíma!
q\\t milf) hlmifc
Smáauglýsingar
550 5000
Lionsklúbburinn Eir hefur sl. 13
ár haft vímuefnavarnir sem aðal-
verkefni. Á hverju ári hafa Lions-
konur úr Eir selt bíómiða í Háskóla-
bíó og allur ágóði runnið óskiptur
til vimuefnavarna.
Yfirleitt er um að ræða forvamir
af ýmsu tagi en aðallega hafa Lions-
konur haft samráð við flkniefna-
deild lögreglunnar í Reykjavík og
keypt þann tækjabúnað sem þörf er
á. Á dögunum afhentu Lionskonur
fikniefnadeildinni hin ýmsu tæki til
vímuefnavarna. -RR
Þeir sem áhuga hafa á aS koma á framfæri efni
í blaöið er bent á að hafa samband viS GuSrúnu
GySu, blaSamann DV, í síma 550-5821.
Auglýsendum er bent á aS hafa samband viS
Gústaf Kristinsson, auglýsingadeild DV, í síma
550-5731 fyrir 4. júlí.
Miðvikudaginn 9. júlí mun veglegt
aukablað um suðurland fylgja DV.
Meðal efnis:
Sögufrægir staðir - Ferðaþjónusta - Afþreying
Atvinnulíf - Garðyrkjubændur og sjómenska
50 ára afmæli Selfosskaupstaðar