Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Side 31
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1997
39
DV
Fréttir
> í»%a
t #M*1
Viö sumarhúsahverfiö. Frá vinstri Guörún Guömundsdóttir, maöur hennar, Einar Ólafsson, sonur þeirra, Guömund-
ur, og kona hans, Aðaiheiöur Högnadóttir, Ólafur Einarsson og Steinunn B. Svavarsdóttir, kona hans. DV-mynd jþ
Sumarhúsahverfi risið á Rangárbökkum:
Hólmavíkurhúsin
flutt suður
DV, Suðurlandi:
Fyrirtækið Rangárflúðir hefur
tekið í notkun heilt hverfi vel bú-
inna sumarhúsa á vesturbakka
Ytri-Rangár við bæinn Ægissíðu
sem er gegnt Hellu. Þar býðst nú
gisting í uppbúnum rúmum fyrir 31
gest í húsum sem taka frá 3-8
manns.
Húsin voru flutt sl. haust frá
Hólmavík en þar voru þau í eigu ís-
landsbanka. Fyrirtækið Rangár-
flúðir er í eigu Einars Ólafssonar á
Ægissiðu, sona hans Guðmundar
og Ólafs, sem einnig eru búsettir á
Ægissíðu, fjölskyldna þeirra og
Þórs Þorsteinssonar í Reykjavík.
Húsin eru sjö. Þar af er boðið upp á
gistingu í 6 húsanna. í því sjöunda
verður sánabað. í gistihúsunum 6
er svefhherbergi, stofa og sturta.
Frá Ytri-Rangá er gott útsýni yfir
Hellu og fjallahringinn allt í kring.
Ekki er síður skemmtilegt að hafa
svæði hestamanna á Gaddstaðaflöt-
um sem eru handan árinnar. -jþ
Skýli fyrir golfmenn
Golfklúbburinn hefur ráðist í að
reisa yfirbyggt skýli á æfingasvæði
klúbbsins á Hólmsvelli í Leiru. Skýl-
ið nota kylfmgar til að slá og æfa
upphafshögg. Það er 30 metra langt
og rúmir 5 metrar á dýpt. 10 kylfing-
ar rúmast þar inni í einu og ætti því
að vera þægilegt rými fyrir þá.
Svæðið, sem skýlið er á, er 150
metra breitt og 250 metra langt. Það
er traust og vandað, kostaði um
tvær milljónir króna og verður
væntanlega tekið í notkun eftir
viku. Golfklúbbur Suðumesja hefur
ráðist í miklar framkvæmdir á und-
anfomum mánuðum og árum, stað-
ið myndarlega að málum hjá
klúhbnum.
„Einn bás verður alveg lokaður af
og sérstaklega byggður fyrir golf-
kennara og nemanda. Þar verður
komið fyrir speglum þar sem fólk
getur séð sig við æfingar og haldið
einbeitingu," sagði Einar Guðberg.
-ÆMK
DV, Suðurnesjum:
„Golflþróttin byggist nokkuð á
því að hafa skjól, gott næði án um-
ferðar svo að kylfingurinn geti ein-
beitt sér. Með þessari framkvæmd
tel ég að við séum komnir í drauma-
aðstöðu golfklúbba á íslandi,“ sagði
Einar Guðberg, framkvæmdastjóri
Golfklúbbs Suðurnesja, við DV.
Ný og glæsileg aöstaöa fyrir kylfinga er aö rísa á æfingasvæöi Golfklúbbs
Suöurnesja. DV-mynd Ægir Már
Strandasýsla:
Grjót- og torfhleðsla kennd
DV, Hólmavík:
Nýlokið er hleðslunámskeiði á
Ströndum þar sem farið var yfir
byrjunaratriði góðrar grjót- og torf-
hleðslu og leiðbeint um rétt handtök
þeirrar vinnu. Verkefhinu var val-
inn staður í Kaldrananeshreppi.
Hvað grjótvinnuna snertir var
valin leiðin frá Bæ á Selströnd að
Kaldrananesi og þar hlaðnar upp og
hresstar vörður sem að niðurlotum
voru komnar á þessari fornu ferða-
leið. Þátttakendurnir voru nær 30
talsins, 12 af þeim úr sjálfboðaliða-
samtökum um náttúruvemd og
nokkrir unglingar úr vinnuskólan-
um í Kaldrananeshreppi.
Kennari var Guðjón Kristinsson
frá Dröngum í Árneshreppi. At-
vinnuþróunarfélag Vestfjarða og
ferðamálasamtök lögðu á ráðin um
vinnutilhögun þessa verkefnis og
kostuðu það að hluta. Síðar í sumar
er svo áformað að ganga til sama
vérks í norðurhluta sýslunnar og
hlaða þar upp vörður á fomum
Hópurinn sem vann aö hleösluverkefninu. Veriö er aö hefja vinnu viö gerö
göngustígs frá hótelinu á Laugarhóli aö sundlauginni viö Klúku í Bjarnar-
firöi. DV-mynd Guöfinnur
ferðaleiðum og merkja þær með m.a. þá kunnáttu þess hæfileika-
vegvísum úr rekatimbri og nýta þá fólks sem námskeiðið sótti. -GF
Vöruflutningar Bjarna Haraldssonar
auglýsa breytingu á vörumóttöku í Reykjavík.
Frá 1. júlí 1997 verður vörumóttaka mín í Fteykjavík hjá HSH
flutningum, í Tollvörugeymslunni (TVG), Héðinsgötu 1-3, sími 581 3030.
Ferðir verða sömu daga og verið hefur.
Frá Sauðárkróki mánudaga og miðvikudaga kl. 14.00.
Frá Reykjavík þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16.00.
» Bjarni Haraldsson $
Vöruflutningar Sauðárkrókur - Reykjavík Sl">a
Afgreiðsla á Sauðárkróki í verslun Haraldar Júlíussonar.
Aðalgötu 22, sími 453 5124
Afgreiðsla í Reykjavík hjá HSH flutningum Tollvörugeymslunni
Héðinsgötu 1-3, sími 581 3030
Vöruflutningar B.H. Stofnsett 1954
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi
verk:
„Staöahverfi, reið- og göngustígar, jarövinna og yfirborö".
Helstu magntölur eru:
(Reiðstígar: 2.590 m
(Göngustígar jarðvegsskipti: 550 m
(Göngustígar malbikun: 5.970 m2
Verkinu skal lokið fyrir 15. nóv. 1997.
útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá þriöjudeginum 1. júlí 1997
gegn 10.000 kr skilatryggingu.
Opnun tilboöa: miövikudaginn 9. júlí 1997 kl. 14.00 á sama stað.
gat 102/7
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskaö eftir tilboöum í stíga- og
gatnagerð á ýmsum svæðum vestan Reykjanesbrautar. Verkið nefnist:
„Ýmis smáverk 1997“.
Helstu magntölur eru:
3.200 m3
3.000 m3
4.400 m2
1.300 m2
650 m2
5.000 m2
Skilad. síðasta verkhluta er 1. nóv. 1997.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá þriöjudeginum 1. júlí 1997
gegn 10.000 kr skilatryggingu.
Opnun tilboða: fimmtudaginn 10. júlí 1997 kl. 11.00 á sama stað.
gat 103/7
(Uppúrtekt:
(Fyllingar:
(Malbik:
(Hellu-& steinlagnir:
(Steypa:
(Ræktun:
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16
Netfang: isr@rvk.is
_ Clu5)
ÓBAIL
Austurstræti 12a - 101 Reykjavík
Sími (tel) 354-562 3570 - Fax 354-562 3571
Opnunartími
Opening hours
sun til fim
Sun to Thu
22.00-01.00
fös til lau
Fri to Sat
21.00-03.00
Steggir!
- þið fáið sérstaka meðhöndlun
hjá dansmeyjum Óðals.
Hópar á sérkjörum