Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1997, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1997, Síða 4
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 £>V i8 fjn helgina Sterkustu menn íslands: Stórslagur við Skota um helgina Frá einum af Hálandaleikum sem háðir hafa verið í sumar. Sterkustu menn íslands munu um helgina etja kappi við kraftalandslið Skota á Hálanda- leikum i Mosfells- bæ. „Þetta er í fyrsta skipti sem keppt er milli landa á Hálanda- leikum, að því er ég best veit. Hún skipar því óneit- anlega nokkuð sérstakan sess,“ segir Andrés Guð- mundsson, krafta- jötunn og einn skipuleggjenda leikanna. Löng og sterk hefð er fyrir Há- landaleikum í Skotlandi og vaknar því sú spurning hvort okkar menn standi ekki höllum fæti gagnvart Skotunum hvað reynslu varðar. „Skotarnir hafa vitaskuld hefðina á sínu bandi. Þarlendis keppa menn á Hálandaleikum 4-6 sinnum í viku og því talsvert oftar en við - enn sem komið er,“ segir Andrés. „Þess utan eru þeir með firnasterka menn innanborðs, þar á meðal heims- meistarann í Hálandagreinum," seg- ir Andrés. Keppt verður í 6 hefðbundnum Skotagreinum á Hálandaleikunum, þar á meðal í kasti lóða, sleggju og kringlu, að ógleymdu staurakastinu sem jafnan er hápunktur slíkra leika. Keppendur á leikunum eru sex talsins og er stigagjöf þannig háttað að sigurvegarinn í hverri grein hlýtur 6 stig en síðan koll af mfBÍOiH SAMBÍÚÍ^ Á4MBlÓm VU/IBÍÓk UTrnimmminmiiiuuiui i inm mimiiiniiiiniiiiiiiiiiirriminxi muummmimiiimmmiinmi e rnmiiiiimummimiimmmm Forsýnum í kvöld þessa stórkostlegu grínmynd þar sem IVIartin Lawrence og Tím Robbins tara á kostum. Ótrúlegt rán, æðislegir eltingaleikir og endalaust grín. l,.,tal.UI,IISi Sll hkdiJlliHN IAIJÍ8 BiílSII ^ ■ >fpc , 11 kolli. Loks gilda sérstakar reglur um klæðaburð á Hálandaleikum en öllum keppendum er skylt að klæð- ast Skotapilsum. Þess má geta að nokkur meiðsl hafa hrjáð íslenska liðið að undan- fómu og er fyrirséð að þeir Andr- és og félagi hans, Hjalti „Úrsus“ Árnason, verða íjarri góðu gamni á laugardaginn. góða. Lið íslands verður því vænt- anlega skipað þeim Auðuni Jónssyni, Sæmundur Sæ- mundssyni og Pétri Guð- mundssyni kúluvarpara eða Unnari Garðarssyni. Þrátt fyrir forfoll telur Andrés möguleika ís- lenska liðsins í keppninni nokkuð góða: „Strákarnir era býsna góðir og geta full komlega stað- ið Skotunum á sporði. Um sigurlíkur þori ég ekki að spá en ég get lof- að mönnum hörku- keppni.“ Keppnin við Skotana hefst klukk- an 15 á morg- un við íþróttavöll- inn í Mos- fellsbæ. -kbb Keppt veröur í 6 heföbundnum Skotagreinum á Hálandaleikunum, þar á meðal í kasti lóöa, sleggju og kringlu, að ógleymdu staurakastinu . ON lceland 1997: Villt list í Reykjavík Alþjóðlega gerninga- og mynd- bandahátíðin „ON Iceland 1997“ heldur áfram göngu sinni um helg- ina. Hátiðin snýst í grófum dráttum um svokallaða tímatengda mynd- list, þ.e. myndlist þar sem tímamiðl- ar eins og video, ljósmyndir og gjörningar koma sérstaklega við sögu. Ýmsar uppákomur tengdar hátíðinni verða um helgina og klukkan 14 á laugardag hefst fjöl- breytt dagskrá í Nýlistasafninu þar sem hinir og þessir listamenn munu sviðsetja verk sín. Meðal þeirra sem koma fram era Árni Ingólfs- son, Hannes Lárasson, The Icelandic Love Corporation og In- ferno 5. Hátíðin er liður í samnor- rænu verkefni og viðamesta uppá- koma sinnar tegundar sem haldin hefur verið hér á landi. Henni lýkur 28. september en þangað til verður ýmislegt á seyði í listasöfnum borg- arinnar, m.a. á Kjarvalsstöðum, í Listasafni íslands, Nýlistasafninu og Norræna húsinu. @mynd:Margt skrýtið ber fyrir augu gesta alþjóð- legu gerningahátíðarinnar ON Iceland sem fram fer í Reykjavík þessa dagana. Hér má sjá einn listamannanna svið- setja geming í Nýlista- safninu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.