Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 ‘atpnlist Fela Kuti fallinn frá Nígeríski tónlistarmaðurinn Fela Anikulapo-Kuti lést í sjúkrahúsi í Lagos í Nígeríu á laugardaginn var. Nafn hans sást sjaldan eða aldrei á vestrænum vinsældaiistum en eigi að síður var hann ein skærasta stjarna afrískrar dægurtónlistar og átti hvað drýgstan þátt i að koma henni á heimskortið. Fela Kuti lést eftir skammvinn veikindi. Ekki hefur verið gefið upp hvert var banamein hans. Blöð í heimalandinu hafa getið sér þess til að alnæmi hafi orðið honum að aldurtila og minna á að kynlífið hafi lengst af verið ákaflega fjör- legt hjá karlinum. Fela Kuti vildi ekkert ræða um veikindi sín. Hann afþakkaði læknishjálp í Afríku og á Vesturlöndum, neitaði að taka inn lyf og kvað allt slíkt stríða gegn sannfæringu sinni. Ekki ligg- ur ljóst fyrir hvort hann fékk ein- hver lyf síðustu dagana fyrir and- látið. Skrítinn karl Fela Anikulapo-Kuti var yfir- leitt aðeins kallaður Fela. Hann var fimmtíu og átta ára þegar hann lést. Frægðarsól hans skein skærast á áttunda og níunda ára- tugnum og barst tónlist hans þá víða. Hann var ófeiminn við að gagnrýna stjórnvöld í heimalandi sínu en þau hafa í gegnum tíðina þótt ein hin spilltustu í gjörvallri Afríku. Fela þótti einnig skrítinn í hátt- um. Hann gekk gjarnan um á nær- buxunum einum fata. Maríjúana- reykingar voru ær hans og kýr og um ævina sængaði hann hjá ótölu- legum íjölda kvenna. Nokkrar þeirra stóðu við hlið hans til hinstu stundar. Fela rak skemmti- staðinn The Shrine í fátækra- hverfi í Lagos. Þar kom hann fram öðru hverju og stöku sinnum eftir að fréttir bárust af því að hann væri alvarlega veikur. Gestir stað- arins tóku fréttum af andláti stjörnunnar þunglega að því er frá var skýrt í blöðum í borginni á sunnudag. Bróðirinn í einangrun Þótt Fela Kuti væri jafnan gagn- rýninn á stjórnvöld í Nígeríu og sæti í steininum fyrir vikið um lengri eða skemmri tíma lét hann núverandi valdhafa, Sani Abacha hershöfðingja, að mestu leyti í friði. Það þótti fremur undarlegt þar eð bróðir Fela, Beko Ransome- Kuti, situr í fangelsi um þessar mundir. Beko er lýðræðissinni og er sakaður um að hafa reynt aö steypa herforingjastjórn Abacha. Hann er hafður í strangri einangr- un og er talið að hann hafi enn þá ekki fengið fregnir af andláti bróð- ur síns. Beko Ransome- Kuti átti 57 ára afmæli á laugardaginn var, daginn sem Fela lést. Fela Kuti var ekki einasta settur í steininn fyrir afdráttarlausar skoðanir sínar á stjórnvöldum í Nígeríu. Fyrr á þessu ári var hann hnepptur í varðhald af hópi sem berst gegn eiturlyfjaneyslu í land- inu. Ætlunin var sú að halda söngvaranum þar til hann hefði vanist af maríjúanaflkn sinni. Eft- ir nokkurn tíma var hann þó lát- inn laus með þeim vitnisburði að engu tauti yrði við hann komandi. Fjölmiðlar í Nígeríu máttu Blur á Fyrirtækið Lotion Promotion í eigu Þorsteins Kragh stendur i lok ágúst fyrir tónleikaferð bresku hljómsveitarinnar Blur til Fær- eyja, Grænlands og íslands. Ferð- in hefur hlotið heitið Next Stop North Pole og stendur yfir frá 25. ágúst til 1. september. Hljómsveitin spilar í laugardalshöllinni í Reykjavík 31. ágúst. Úndirbúningur ferðar- innar hefur staðið yfir frá því í maí síðastliðinn enda í mörg hom að líta varðandi allan undirbún- ing og framkvæmd. Lotion Promotion segir að undirbúningurinn hafi gengið mjög vel, þökk sé góðs samstarfs og mikils velvilja Flugfé- lags íslands og Græn- landsflugs. Blur ætti að vera flestum íslendingum vel kunnug en hana skipa Damon Albam, Alex James, Graham Coxon og Dave Rowntree en auk þeirra verður fjöldi aðstoðarmanna með í för. Eins og allir vita hélt sveitin tónleika í Laugardalshöll- inni í september á síðasta ári og varð uppselt á þá tónleika á að- eins sex dögum. Blur er nú nýkomin heim úr þriðju tónleikaferð sinni um Am- eríku, Japan og Evrópu og hefur að sögn manna aldrei verið betri. sjaldnast fialla neitt um Fela Kuti. Þeir skýrðu hins vegar frá andláti hans og segja kunnugir að það hefði sennilega kætt karlinn. Islandi Nýjasta plata þeirra ,sem kom út i febrúar, var að hluta til tekin á íslandi og í nýlegu viðtali Ríkis- útvarpsins við James Proctol, umsjónarmann EuroNews á BBC, segir hann Blur vera helstu ástæðuna fyrir því hversu vin- sælt ísland sé að verða í Bret- landi. íbúðarkaup Damons Albarns í Reykjavík og tíðar ferðir hans til landsins hafa og vakið upp for- vitni meðal Breta og telur Proct- ol að þarna sé um mikla land- kynningu að ræða. Damon hefur verið óspar á lofsyrðin um land og þjóð og segir kynni sín af ís- landi hreinlega hafa gefið sér aukinn kraft og innblástur og hann reyni að koma hingað eins oft og mögulegt er. T Stebbi Hilmarsson verður í Óperu- kjallaranum í kvöld. Um helgina Stærsta helgin hjá íslenskum hljómsveit- um er að baki og svo virðist sem þær ætli að taka því öllu rólegar um þessa helgi. Það er þó engin ástæða fyrir okkur að sitja heima því auk þeirrar skemmtunar sem hér verður upp talin er alltaf nóg um að vera á kaffihús- um borgarinnar og skemmtistöðum úti um allt land. Einnig er tilvalið að skella sér í bíó þar sem verið er að sýna fullt af góðum myndum. Sálin hans Jóns míns Þrátt fyrir miklar annir um verslunar- mannahelgina heldur Sálin hans Jóns míns áfram að trylla lýðinn um helgina. í kvöld verður hún í Óperukjallaranum og eru þetta einu fyrirhuguðu tónleikar hennar í borginni í sumar. Það er því um að gera fyrir aðdáend- m- sveitarinnar að nota tækifærið og mæta. Annað kvöld heldur Sálin austur fyrir fiall og leikur á Hótel Selfossi. Ungsveitin Woofer treður einnig upp á ballinu. Kringlukráin í kvöld spilar hljómsveitin Sín í aðalsal Kringlukrárinnar og flytjur létta og skemmti- lega tónlist. í leikstofunni spilar Viðar Jónsson trú- bador. Annað kvöld heldur Sín uppi kráarstemn- ingu á Kringlukránni eins og henni einni er lagið. Pollurinn, Akureyri í kvöld og annað kvöld heldur hljómsveitin Lífvera uppi fiörinu fyrir Norðlendinga á Poll- inum, Akureyri. Ráðhúskaffi, Akureyri Hljómsveitin Gammel dansk spilar í Ráð- húskaffinu á Akureyri bæði í kvöld og annað kvöld. Katalína, Kópavogi Hljómsveitin Últra heldur uppi fiörinu á Katalínu í Kópavogi í kvöld og annað kvöld. Gullöldin í Gullöldinni, sem er kráin í hjarta Grafar- vogs, munu gömlu brýnin Svenni og Halli, í hljómsveitinni Hattarnir, rifia upp liðna gullöld alla helgina. Últra spilar á Katalínu í Kópavogi. Úthlíð, Biskupstungum Um næstu helgi er dansleikur með Kidda Rós í Úthlíð, Biskupstungum. Kiddi spilar tónlist fyrir alla aldurshópa og er sérfræðing- ur í að halda uppi stuði. Á morgun verður svo haldið Geirs Goða- golfmótið þar sem keppt verður um Geirs Goða-bikarinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.