Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1997, Blaðsíða 10
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 JLlV ínlist ísland 1. (4) 2. (1 ) 3. (2) 4. (3) 5. (-) 6. (8) 7. (-) 8. (7) 9. (5) 10. (13) 11. (10) 12. ( 6 ) 13. (18) 14. (12) 15. (11) 16. (20) 17. (-) 18. (-) 19. (16) 20. (19) Bandalög 7 Ýmsir Pottþétt ást Ýmsir Fat of the Land Prodigy OK Computer Radiohead Strumpastuð 2 Strumparnir Spice Spice Girls Reif í fíling Ýmsir Pottþétt 8 Ýmsir Töfrablik Jón frá Hvanná No Way out Puff Daddy Falling into You Celine Dion Forever Wu Tang Clan Baduizm E. Badu Gling Gló Björk Aquarium Aqua Tragic Kingdom No Doubt One Fierce Beer Coaster B. Gang Travelling Without Jamiroquai Very Best of Cat Stevens Evfta Úr söngleik London 1.(1) l'll Be Missing You Puff Daddy & Faith Evans Z ( 4 ) Freed from Desire Gala | 3. ( - ) All about Us Peter Andre : 4. ( 3 ) Everybody Backstreet Boys 5. (- ) Black Eyed Boy Texas 6. (- ) Mo Money Mo Problems The Notorious BIG $ 7. ( 2 ) Picture of You Boyzone | 8. ( 6 ) Bitch Meredith Brooks i 9. ( 7 ) C U When U Get there Coolio Featuring 40 Thevz | 10. ( 5 ) D'You Know What I Mean? Oasis 1. (1) l'll Be Missing You Puff Daddy & Faith Evans 2. ( 4 ) Mo Money Mo Problems The Notorious B.I.G. 3. ( 3 ) Quit Playing Games Backstreet Boys 4. ( 5 ) Semi-Charmed Life Third Eye Blind i 5. ( 2 ) Bitch Meredith Brooks I 6. ( - ) Not Tonight Lil'Kim Feat. Da Brat Left Eye... | 7. ( 7 ) Do You Know Robyn | 8. ( 8 ) Sunny Came Home Shawn Colvin t 9. ( - ) How Do I Live Leann Rimes t 10. (-) Never Make a Promise Dru Hill Bretland — — plötur og diskar— | 1. ( 1 ) ThatFatofthe Land The Prodigy t 2. ( 4 ) White on Blonde Texas t 3. ( 5 ) OK Computer Radiohead | 4. ( 2 ) Spice Spice Girls t 5. ( 8 ) Sheryl Crow Sheryl Crow t 6. ( 9 ) Do It Yourself Seahorses 1 7. ( 6 ) The Best of Michael Jackson & Jackson Five | 8. ( 7 ) Come Find Yourself Fun Lovin’ Criminals t 9. (10) HeavySoul Paul Weller t 10. ( -) No Way Out Puff Daddy & The Family Bandaríkin 1. (- ) No Way Out Puff Daddy & The Family 2. (1 ) Men in Black-The Album Soundtrack 3. ( 4 ) Spice Spice Girls 4. ( 6 ) Middle of Nowhere Hanson 5. ( 2 ) Surfacing Sarah McLachlan 6. ( 5 ) The Fat of the Land Prodigy 7. ( 3 ) Supa Dupa Fly Missy „Misdomeanor" Elliott 8. (10) Piecesof You Jewel 9. (- ) Yourself or Someone like You Matchbox 20 10. ( 7 ) God's Property Mill.i óna mBaringarnir - hinn árlegi viðhafnardansleikur Milljónamæringarnir boða til hins árlega stórdansleiks síns ann- að kvöld og mælast til þess að allir komi í sparifotunum. Þetta er í fimmta sinn sem blásið er til stór- dansleiks. í fyrstu þrjú skiptin var hann haldinn í Perlunni. í fyrra fluttu Milljónamæringamir sig á Hótel Sögu og að þessu sinni verður ballinu slegið upp á Hótel íslandi. „Satt að segja fór dansleikurinn úr böndunum í fyrra vegna þess hve margir svindluðu sér inn,“ segir Ástvaldur Traustason, hljómborðs- leikari Milljónamæringanna. „Fólk sem ekki komst inn eftir að húsið fylltist virðist hafa tekið lyftuna upp í Grillið og komist þaðan niður í Súlnasalinn. Fyrir bragðið mynd- aðist slík örtröð að fólk þurfti að bíða í hálftíma eftir því að geta feng- ið sér bjór á bamum og annað í þeim dúr. Fyrir vikið varð talsverð óánægja á dansleik þar sem allir eiga að vera glaðir og sáttir. Nú ætl- um við að prófa Hótel ísland og sjá hvort ekki gengur betur.“ Milljónamæringarnir ásamt Bjarna Arasyni. Hinir árlegu stórdansleikir hljómsveitarinnar setja svip sinn á skemmtanalíf borgarinnar. Annað þeirra er Sólóður sem full- yrða má að sé einn af sumarsmell- unum í ár. Ástvaldur Traustason segir að Milljónamæringamir hafi rætt það í sínum hópi að hljóðrita plötu til útgáfu með haustinu. Enn þá er þó ekki búið að ákveða hvort af plötu verður eða ekki. „Það hefur til dæmis ekki enn þá komið út lag með okkur og Ragnari Bjamasyni. Ef af þvi verður að við tökum upp plötu verður örugglega ráðin bót á því,“ segir Ástvaldur. „Annars er of snemmt að ræða nokkuð um þessa nýju plötu þar eð enn þá hefur ekki verið ákveðið hvort af henni verður." Næsta mál á dagskrá er hins veg- ar hinn árlegi stórdansleikur. Heil- mikil vinna fer í að undirbúa hann og voru MiUjónamæringamir þegar famir að taka saman drög að dag- skránni fyrir verslunarmannahelgi. Þótt hljómsveitin sé stöðugt að allt árið um kring og þar af leiðandi í ágætri æfingu þarf eigi að síður að renna yfír prógrammið áður en að stóru stundinni kemur. Mikil áhersla hefur verið lögð á það á fyrri dansleikjum að hafa umgerð- ina sem glæsilegasta og minnast gestir þess eflaust hvemig Perlan var skreytt. Ástvaldur segir að sá háttur verði einnig hafður á að þessu sinni. Forsala aðgöngumiða hófst í hljóðfæraversluninni Sam- spili í gær og ef einhverjir miðar verða eftir á morgun verða þeir seldir við innganginn. „Svo leggjum við náttúrlega á það áherslu sem fyrr að gestir dansleiks- ins búi sig upp á í tilefhi dagsins," segir Ástvaldur Traustason að lokum. „Sjálfir förum við í smóking og von- umst til að sjá konur í kvöldkjólum og karla í sínu fínasta taui.“ -ÁT- Ragnar Bjarnason verður meöal gestasöngvara á stórdansleiknum annað kvöld. Það að Milljónamæringarnir efna til síns fimmta árlega stórdansleiks þýðir væntanlega að hljómsveitin er orðin fimm ára. Ástvaldur staðfest- ir það og segir að afmælisdansleik- urinn hafi verið í Þjóðleikhús- kjallaranum fyrr í sumar. Þar var stemningin með ágætum en nú á að gera jafnvel enn betur.“ Söngvarasægur „Við ætlum að tefla fram fjórum söngvurum að þessu sinni,“ segir Ástvaldur. „Þeir eru Bjarni Arason sem hefur sungið með okkur í sum- ar, Páll Óskar, Stefán Hilmarsson og loks Ragnar Bjamason sem hefur sungið með okkur sem aukamaður af og til síðastliðin tvö til þrjú ár. Með því að tefla fram svona mörg- um söngvurum eykst fjölbreytni tónlistarinnar sem við bjóðum upp á. í hvert skipti sem skipt er um söngvara breytist spilamennskan og orkuhjúpurinn." Á þeim fimm ámm sem liðin em síðan Milljónamæringamir voru stofnaðir hafa nokkrir söngvai-ar haft viðdvöl í hljómsveitinni um lengri eða skemmri tíma. Ástvaldur segir það hafa bæði kosti og galla. „Helsti kosturinn er sá að við hver söngvaraskipti má segja að hljómsveitin endumýist að vissu leyti. Hún helst því ferskari en ella. Aðalgallinn fyrir okkur hljóðfæra- leikarana er sá að þegar nýr söngv- ari kemur til leiks verðum við að æfa upp tuttugu til þrjátíu lög i við- bót við þau sem við höfum þegar æft. Fyrir bragðið erum við komnir með ákaflega langt prógramm sem kemur sér reyndar ágætlega þegar við þurfum að skipuleggja stórdans- leik á borð við þann sem við efnum til á morgun.“ Ástvaldur Traustason og Stein- grímur Guðmundsson ásláttarhljóð- færaleikari eru einir eftir af hópn- um sem stofnaði Milljónamæring- ana fyrir fimm árum. Aðrir sem skipa hljómsveitina núna em Birgir Bragason bassaleikari, Jóel Pálsson saxófónleikari og Veigar Margeirs- son sem leikur á trompet. Ný plata í vændum? Nokkuð er um liðið síðan Millj- ónamæringamir sendu síðast frá sér hljómplötu. Þeir sendu frá sér þrjú lög á safnplötunni Salsaveislu aldarinnar í fyrrasumar og á plöt- unni Bandalög sjö sem kom út fyrir nokkmm dögum eiga þeir tvö lög. Strumparnir Nýr geisladiskur Hinir geysivinsælu Stmmpar sem sendu frá sér Stmmpastuð um síðustu jól hafa nú hljóðrit- að nýja geislaplötu og ber hún nafhið Strumpastuð 2. Eins og áður flytja Strumparnir vin- sæl erlend lög með íslenskum textum á sinn einstaka hátt en nú hafa þeir einnig hljóð- ritað þrjá vel þekkta íslenska smelli. Máni Svav- arsson sá um undirleik í ís- lensku lögunum en þau em: Strumpa diskó (Diskó friskó), Brettastrumpur (Krókurinn) og Geimstmmparnir (Marsbúa cha cha). Höfundar íslensku lag- anna; Guðmundur Jónsson & Stefán Hilmarsson, Stefán Stef- ánsson og Sigurður Jónsson & Bogomil Font veittu Strumpun- um góðfúslegt leyfi til að hljóð- rita lögin, Af erlendu lög- unum má nefha Þolfimistrump (Ooh ah just a little bit), Grufl- arastrump (Lemon tree) og Strumpaleikhús (Saturday night). Alls inniheldur platan 15 stmmpagóö lög við texta Jónas- ar Friðriks Guðnasonar. Það er Spor ehf. sem gefur út Strumpastuð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.