Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1997, Page 9
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997
HLJÓMPLjÍTU
US 3 - Broadway and 52nd:
Góður bræðingur
Geoff Wilkinson heitir
Englendingur nokkur, land-
fræðingur að mennt, upp-
tökustjóri og músíkgruflari.
Eftir að menn frá hinu
þekkta djassútgáfufyrir-
tæki Blue Note höfðu heyrt
músíktilraunir hans gáfu
þeir honum grænt ljós svo
hann gæti notað alla þeirra
músík, gamla og nýja, sem
bakgrunn fyrir rapp/djass
sinn. Þannig varð Us 3 til.
Tveir rapparar, KCB og
Shabaam Sahdeeq, gera
textalanglokur yflr undirleik, sem að hluta er unninn þannig að
flikkað er upp á upptökur af lögum eftir menn á borð við Horace
Silver, Lou Donaldson eða Bobby Timmons, eða bútar úr lögum
þeirra og annarra eru notaðir til viðbótar við nýjar upptökur. í
slíku safni laga mætir fyrirtaks djasstónlist liðinna ára nútíman-
um í bræðingi sem virkar furðuvel.
Trúlega er þessi tilraun í hip hop- djasstónlist sú skásta hingað til.
Eldri upptökurnar eru lagaðar til með „lifandi“ hljóðfæraleik svo að
ýmis (og oft hálfpirrandi) trommuheilasánd eru til að mynda fjarri
góðu gamni. Gamla djassfönkið frá því í kringum 1960 er hér aðallega
lagt til grundvallar og þetta er svo frábær músík að ekki þarf miklar
breytingar að gera á henni tO að hún hljómi nútímalega og oft þarf
bara einfalt ásláttarhljóðfæri á borð við tambúrínu eða cabasa tÖ að
lappa aðeins upp á trommutakt. Ingvi Þór Kormáksson
★★★*
UB40 - GUNSIN THE GETTO:
Þægileg áheyrnar ***
„Guns in the Getto“ er
sextánda plata hljómsveitar-
innar UB40 en hún hefur frá
upphafi haldið sig við
popptónlist með sterkum
reaggie-áhrifum. Þessi for-
múla hefur gefist vel og afl-
aö hljómsveitinnrverulegra
vinsælda. Margir muna ef-
laust eftir rauðvínslaginu
fræga sem hljómaði lon og
don í útvarpi um nokkurra
ára skeið. Meðlimir hljóm-
sveitarinnar semja öll lögin
sjálfir og sjá um upptöku-
stjórn i sameiningu. Grunnbygging laganna er ákaflega fábrotin,
yfirleitt ekki nema tveir til þrír hljómar og stundum bara einn
hljómur út allt lagið. Til að gera tónlistina áhugaverða þarf því að
koma til fjölbreytni í hrynjandi og útsetningum. Á „Guns in the
Getto“ er hvort tveggja fyrir hendi. Enn fremur tekst UB40 að hafa
laglínurnar allvel áheyrilegar innan þessa þrönga ramma sem
þeim er skorinn með svo fáum hljómum. Má i þvi sambandi nefna
titillagið og hið rómantíska „Oracabessa Moonshine“.
Það er augljóst að engar sérstakar breytingar hafa orðið á tónlist
UB40 með þessum nýja diski. Tónlistin er enn mjög þægileg áheyrn-
ar en þrátt fyrir ásláttarhljóðfæri af ýmsu tagi og ýmsar takttegund-
ir er hún dálítið loðmulluleg í heildina. Bassatónar eru óþægilega
djúpir þannig að manni flnnst stundmn eins og splunkunýir og
sterkir hátalarar séu farnir að gefa sig. Ingvi Þór Kormáksson
Bruce Cockburn — The Charity of Night
Meðvitaður Kanadamaður ****
Sú var tíðin að karlar og
konur sungu söngva um
ósóma heimsins og hvernig
bæta mætti úr slæmu
ástandi ýmissa mála. Kana-
díski tónlistarmaðurinn
Bruce Cockbum trúir enn
á mátt hins meðvitaða dæg-
urlagatexta ef marka má að
minnsta kosti sum yrkis-
efnin á plötunni The
Charity of Night. Til dæmis
leggur hann sitt lóð á vog-
arskálarnar í sívaxandi
baráttu fólks gegn notkun
jarðsprengna í hemaði með laginu The Mines of Mosambique.
Fleiri lög á plötunni em athyglisverð þótt ekki séu þau jafli
þjóðfélagslega meðvituð. Live on My Mind lætur vel í eyrum.
Sömuleiðis kántríflugan The Whole Sky Night þar sem Bonnie
Raitt leikur á slidegítarinn af sinni alkunnu snilld.
Bruce Cockburn er áheyrilegur söngvari og hann ætti að vera
i þokkalegri æfingu því að ferillinn er orðinn langur og plötum-
ar margar, tuttugu og þrjár talsins á næstum jafnmörgum árum.
Stefna Cockburns er fýrst og fremst svonefnt folkrokk eða rokk í
þjóðlagastíl eins og það er oft kallað á íslensku. Hann lætur sig
hins vegar ekki muna um að blanda tónlist sína djassi og öðrum
stefnum þegar honum þykir það henta. Og útkoman er hin þokka-
legasta. Ásgeir Tómasson
Senn líður að því að
hljómsveitin The Doors
láti frá sér efni sem
hingað til hefur ekki
fengið að koma fyrir
eym almennings. Rúm-
lega aldaríjórðungur er
liðinn síðan Jim Morri-
son, söngvari hljóm-
sveitarinnar, fannst lát-
inn í baðkari í París.
Það aftrar honum þó
ekki frá því að syngja
„nýja“ tónlist frekar en
John heitnum Lennon.
Lesendum er eflaust í
fersku minni að The
Beatles sendu frá sér
tvö lög, Free As A Bird
og Real Love, fyrir
nokkrum misserum.
Lögin hafði John
Lennon sungið inn á
kassettu nokkru áður
en hann var myrtur.
Nú ætla fyrrverandi
samstarfsmenn Jims
Morrisons í The Doors
að leika sama leikinn.
Þeir Ray Manzarek,
John Densmore og
Robbie Krieger hafa
spilað ofan á flögur lög
sem Jim hljóðritaði við
eigin píanóundirleik
skömmu áðiu- en hljóm-
sveitin leystist upp.
Pamela, kærasta Jims,
var viðstödd upptökuna
og hún varðveitti hana
þar til hún lést af of-
neyslu eiturlyfla árið
1974. Síðan tóku ætt-
ingjar söngvarans
hljóðritið í sína vörslu Hijómsveitin The Doors: ný lög væntanleg í október.
og við því hefur ekki
verið hreyft fyrr en nú.
Það hefur alla tíð gengið undir
heitinu Orange County Suite. Ætt-
ingjamir hafa verið tregir til að
láta lögin af hendi og stóðu samn-
ingaumleitanir yfir í þijú ár áður
en samkomulag náðist.
sína gömlu félaga síðla árs 1970 og
flutti sig til Parísar. Þeir héldu þó
áfram að hittast og æfa ef söngvar-
anum dytti i hug að snúa aftur heim
til Bandaríkjanna og vilja taka upp
þráðinn að nýju. Æfingar lögðust
hins vegar af þegar hann dó í baði á
heimili sínu í París í júlíbyrjun
1971. Söngvarinn var jarðsettur í
París og hefur legstaður hans verið
vinsæll samkomustaður bóhema og
sukkara alla tíð.
ThelDoors
- sendir frá sér „nýtt" efni
Einnig tölvutækir
Útgáfudagur nýju laganna er
fimmtándi október. Aðdáendur The
Doors fá eitt og annað til viðbótar
til að moða úr þann dag. Þá verður
gefin út platan The Doors’ Greatest
Hits á geisladiski. Hún hefur reynd-
ar verið á markaði um nokkurt
skeið en á nýju útgáfunni verður að
finna myndband með laginu Ghost
Song og eitt og annað til viðbótar
sem tölvueigendur geta nýtt sér.
Sömuleiðis verður endurútgefin
platan Absolutely Live frá árinu
1970. Hún hefur hingað til ekki ver-
ið til á geisladiski.
Greatest Hits diskurinn hefur
selst vel á undanfömum ámm.
Brace Botnick, upptökumaður sem
starfaði með The Doors á sínum
tíma, hefur hins vegar hreinsað
upptökurnar þannig að á nýju
tölvutæku útgáfunni eiga lögin að
hljóma enn betur en hingað til.
The Doors er ein þeirra hljóm-
sveita frá sjöunda áratugnum sem
nýtur sifelldra vinsælda. Ekki ein-
ungis meðal þeirra sem hrifust af
tónlist hennar fyrir þremur áratug-
um eða svo heldur vekur hljóm-
sveitin sífellt forvitni unglinga.
Fyrst og fremst er þessi athygli Jim
heitnum Morrison að þakka. Hann
þótti áheyrilegur rokksöngvari,
ágætis textahöfundur og ljóðskáld
og ekki spillir fyrir að lífsstíllinn
var skrautlegur. Fjórmenningamir
í Doors voru talsvert fyrir ýmisleg
ólögleg efni fyrstu árin á ferlinum
og Morrison hélt áfram að neyta
þeirra allt fram í andlátið. Á tón-
leikum var sviðsframkoman
ögrandi og nokkrum sinnum kom
fyrir að lögreglan skarst í leikinn
þegar henni þótti athæfi söngvarans
á sviöi vera helst til ósæmilegt.
Jim Morrison sagði skilið við
1
j 1
Nafn vikunnar að þessu inguna og rokiö í Reykholti.
sinni er hljómsveitin Boney M Boney M var mjög \
meö söngkonuna Liz Mitchell 8. áratugnum og á enn
í fararbroddi. Sem kunnugt er mörg vinsæl lög: Rivers
var hljómsveitin stödd hér á Babylon, Daddy Cool, Sunny,
landi um síðustu helgi
spila á Regnbogahátíðinni
Reykholti. Reyndar endaði
útihátiðin sem innihátíö í
Þjóðleikhúskjallaranum þar
sem hátíöargestir flúðu rign-
Girl in the Ri)
Ma Bak
Hooray!, It’s a Holi-Holiday,
svo að fáein séu nefnd.
í dag heldur sveitin sig
meira viö trúarlega tónlist.