Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1997, Qupperneq 2
16
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1997
frikmyndir
Laugarásbíó:
Laugarásbíó tekur í dag til sýn-
ingar gamanmyndina Trial and
Error. Richard Rietti (Michael
Richards) hefur skipulagt ærlegt
steggjapartí fyrir besta vin sinn,
lögfræðinginn Charles Tuttle (Jeff
Daniels). En aðeins nokkrum dög-
um fyrir brúðkaup Tuttles lítur út
fyrir að slá verði steggjapartíinu á
frest því lögfræðifyrirtækið sem
Tuttle vinnur hjá felur honum
verkefni í litlum bæ í órafjarlægð.
Rietti ákveður að láta það ekki
koma í veg fyrir áform sín um
villt steggjapartí og kemur Tuttle
félaga sínum á óvart með því að
mæta til leiks í bænum kvöldið
fyrir réttarhöldin. Steggjapartíið
er haldið og Tuttle er allur mar-
inn og úr skorðum farinn þegar
löng nótt endar. Hann ákveður að
biðja um frest á réttarhaldinu
daginn eftir en dómari hafnar
óvænt beiðni hans og gefur út
skipun um að málið verði strax
tekið fyrir.
Tuttle gerir sér grein fyrir að
starfsferill hans er í veði en mála-
ferlin reynast mun umfangsmeiri
en hann hafði gert sér grein fyrir
i upphafi. Tuttle gengur illa til að
byrja með og leitar huggunar hjá
þjónustustúlkunni BOlie (Charlize
Theron) og samband þeirra þróast
á viðkvæmt stig. Mitt í öllum
hamagangnum fer Tuttle að end-
urmeta líf sitt og gerir sér grein
fyrir að hann stendur frammi fyr-
ir stórum og erfiðum ákvörðun-
um.
Trial and Error er leikstýrð af
Jonathan Lynn, en hann leik-
stýrði meðal annars myndinni My
Cousin Vinny. Með önnur aðal-
hlutverk í myndinni fara Rip
Tom, Alexandra Wentworth (sem
fer með hlutverk heitkonu
Tuttle’s) og Jessica Steen. -ÍS
Vinirnir Tuttle og Rietti lenda í miklum ævintýrum í myndinni.
M
\j jJ j'J J
Speed 2 ++*
Blóðsugurnar um borð á Seabourn Legend eru ekki af
því tagi sem smökkuðu á Keanu Reeves héma um árið enda
er hann sjálfur fjarri góðu gamni. í stað Reeves, sem gerði
fyrri myndina svo ánægjulega áhorfs, er nú kominn Jason
Patric, sem síðast sást i hinni grunsamlegu „Sleepers“.
Meðan fyrri myndin hélst í skemmtilegu jafnvægi milli
Söndru Bullock og Reeves, virðist þessi seinni öllu feimnari
við að hafa sterka kvenhetju. Hlutverk Söndru er hér mun
minna auk þess sem áherslan virðist sú að gera þessa
kjarnakonu sem sannaði sig svo vel i Speed að aðhlát-
ursefhi (sem brjáluð bílstýra), um leið og henni er ýtt í
skuggann af hetjunni. Þegar hetjan er eins litlaus og
flatneskjuleg og Alex (Patric) þá fer virkilega að syrta í ál-
inn. Speed 2 gerist á skemmtisnekkju þar sem Alex hefúr
boðið Annie (Bullock) til að biðja um fyrirgefningu og hönd
hennar í einni ferð. Til að Annie drepist ekki úr leiðindum
(væntanlega) hefur dauðvona tölvuséni ákveðið að breyta
ferðaáætlun og ræna skipinu. Hér vantar yfirhöfúð allt það
sem gerði Speed að framúrskarandi hasarmynd. Handritið i Speed 2 er gloppótt og hvorki það
né myndmálið bjóða upp á þá sjálfspeglun sem dreif Speed áfram. Hliðarplottið með hina
heyrnarlausu Lolitu var hálfútþynnt enda rann það út í sjóinn og trúlofunarhringsdæmið var
með eindæmum kauðalega útfært, tilgangslaust. Þótt myndatakan og spennu- og hasaratriðin
séu enn auðkennd af handbragði meistarans þá dugir það bara ekki til með þetta tómlega
handrit og enn tómlegri hetju. Ekki einu sinni Willem Dafoe (sem leikur ýmist Jesúm eða geð-
veikan krimma) virðist nenna að gefa sig í hlutverk sitt sem illmennið Geiger og blóðsugum-
ar sem hann notar í lækningaskyni eru ekkert hrollvekjandi þegar það kemur í ljós að hann
ætlar ekki að henda þeim í sundlaugina. Það eina sem minnti á gamla góða takta var Skotinn
Brian McCardie (Merced) sem taldi niður hnútana glaður í bragði þegar hann sá að það að
sigla niður báta og hafiiir og hús og götur hafði þau ánægjulegu (en ekki alls óvæntu) áhrif að
hægja á skipinu. Sá lokakafli hlýjaði gömlum Speed- fríkum um hjartað.
Leikstjóri: Jan De Bont.
Handrit: Randall McCormick og Jeff Nathanson.
Tónlist: Mark Mancina.
Aðalhlutverk: Sandra Bullock, Jason Patric, Willem Dafoe, Temuera Morrison, Brian
McCardie, Christine Firkins og Glenn Plummer. -Úd
Lögfræöingurinn Charles Tuttle (Jeff Daniels) fær myndarlegan koss frá þjónustustúlkunni Billie
(Charlize Theron).
Sambíóin Kringlunni og Snorrabraut:
Engu að tapa
Bíóborgin og Kringlubíó hafa tekið til sýninga
gaman- og spennumyndina Engu að tapa, en hún
heitir á frummálinu „Nothing to Lose“. Aðalleikar-
ar í þeirri mynd eru Tim Robbins og Martin
Lawrence en leikstjórinn er Steve Oedekerk.
Lífið gæti ekki versnað fyrir auglýsingasfjórann
Nick Beam (Robbins). Allt samband hans við raun-
veruleikann hefur verið rofíð eftir að hann kom að
eiginkonu sinni í rúminu með yfumanni sinum. í
algjöru losti gengur hann út og ekur burt en
vandamálin eru rétt að byrja. Ringlaður á umferð-
arljósum lendir hann í bílræningja (Lawrence) sem
hefði ekki getað valið verri mann til að ræna.
Alveg sama um allt og engu að tapa snýr Nick
leiknum við og rænir ræningjanum. Eftir æðislega
eltingarleiki, klúðurslegt rán og mikla hefnd fer
vinskapur að myndast með félögunum tveimur í
þessari hraðskreiðu gamanmynd.
Aðrir leikarar í myndinni eru ekki af verri end-
anum, John McGinley sem meðal annars hefúr
leikið í „The Rock“ og „Seven", Giancarlo Esposito
(„The Usual Suspects", „Waiting to Exhale"), Kelly
Nick (Tim Robbins) kemur ekkert sérlega vel
fram viö bílræningjann (Lawrence) til aö byrja
meö.
Preston („Jerry Maguire", „Twins") og Michael
McKean (,,Jack“). Leikstjóri myndarinnar, Steve
Oedekerk, hefur starfað að nokkrmn frægum
myndum eins og Ace Ventura, Pet Detective og
The Nutty Professor auk þess sem hann leikstýrði
og skrifaði handritið að Ace Ventura H: When Nat-
ure Calls. -ÍS