Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1997, Síða 2
ig kvikmyndir
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1997 JjV
Regnboginn — The Pallbearer:
Gleymdur og grafinn ★★
Líkmaðurinn er vandræðaleg gamanmynd í
anda The Graduate (1967). David Schwimmer,
sem er í frægu hlutverki Dustins Hoffmans,
leikur ungan mann (Tom) sem sér sig til-
neyddan til þess að „hugga“ móður (Barböru
Hershey) nýlátins vinar. Sá galli er á gjöf
Njarðar að Tom man ekkert eftir þessum vini
sínum og á því fremur erfitt með að finna sig í
hlutverki syrgjandans. Málin flækjast frekar
þegar Julie (Gwyneth Paltrow), draumadísin
úr menntaskóla, kemrn- aftur inn í lif hans eft-
ir nokkurra ára fjarveru. Ekki svo að skilja að
hans hafi verið saknað því Julie minnist þess
ekki að hafa hitt Tom áður. Líkt og í The
Graduate verður úr þessu öllu saman ein stór
flækja. Tom er heillaður af jafnöldni sinni, en
ástarsamband hans við eldri konuna gerir honum erfitt um vik.
Þrátt fyrir að Schwimmer standi sig með ágætum í hlutverki sínu og njóti þar góðr-
ar aðstoðar Hershey sem fer á kostum í hlutverki hinnar syrgjandi móður nær mynd-
in aldrei flugi. Paltrow fmnur sig illa sem Julie, enda er hún eflaust flatasta persóna
myndarinnar. Af þessum sökum er erfitt að lifa sig inn í tilhugaiíf Toms og Julie sem
gerir það að verkum að ein af þungamiðjum myndarinnar missir marks. Handritshöf-
undunum tekst einnig illa, þrátt fyrir góða spretti, að flétta saman gamni og alvöru og
þvi verður persónusköpunin og framvinda sögunnar á köflum vandræðaleg.
Styrkur The Pallbearer felst því fyrst og fremst i ágætum samleik Schwimmers og
Hersheys, auk þess sem gamanieikkonan Carol Kane stelur oft senunni í hlutverki ást-
ríkrar móður Toms. Þrátt fyrir nokkrar frábærar senur hefur myndin sig því aldrei
upp fyrir meðallag, en af henni má þó hafa nokkurt gaman.
Leikstjóri: Matt Reeves. Aðalhlutverk: David Schwimmer, Gwyneth Paltrow, Michael
Rapaport, Carol Kane og Barbara Hershey.
Guðni Elísson
Tnal and Error:
Lögleysa *<
Líf lögfræðingsins Charles Tuttle (Jeff Dani-
els) virðist fullkomið öllum þeim sem ekki hafa
farið mikið í bíó. Hann er vel settur lögfræð-
ingui' í stóru fyrirtæki sem hann er nýorðinn
meðeigandi í vegna þess að hann er giftur
hinni fögru dóttur yfirmannsins. Hún er nátt-
úrlega eins ofdekruð og yfírborðsleg og allar
slíkar konur eru í hafsjó mynda af þessu tagi
og áhorfandann grunar strax að gap sé í lífi
lögfræðingsins góða. Þegar Tuttle er sendur í
Nevada-eyðimörkina til þess að skjóta yfírlýst-
um svindlara - og frænda tengdó - undan rétt-
arhaldi, og missir þar með af steggjapartýinu,
ákveður leikarinn vinur hans (Michael Ric-
hards) að færa partýið tii brúðgumans og
Nevada. Tuttle er rotaður í slag og leikarinn
tekur að sér hlutverk hans í réttarsalnum og
allt fer úr böndunum. Það er fáa bjarta punkta
hér að frnna, klisjumar eru svo yfirgengilegar
að fyndnin eiginlega drukknaði. Auðnir og
fjallasýn, kona á vélhjóli, viiltir hestar, kona í
hjólhýsi (báðar konumar ljóshærðar að sjálfsögðu); allt átti þetta að vera svo óskaplega
táknrænt fyrir frelsi og andstæðu alls þess sem líf lögfræðings stendur fyrir í bíómynd-
inn og allt var þetta framsett á ótrúlega klisjaðan máta svo minnti á slæma auglýsingu.
í miðjum þessum villtu víðáttum og villtu konum uppgötva þessir gaurar sannleikann
um sjálfa sig og sannleiksástina (mjög ólíkleg uppgötvun fyrir báðar stéttir) og breyta
lífi sínu eftir því. Þegar myndin lét einkalíf þeirra félaga í friði og kom sér að sjálfu rétt-
arhaldinu mátti skemmta sér betur, sérstaklega vora dómarinn og sakbomingurinn þeir
einu sem virtust hafa húmor fyrir öllu saman og margt í sambandi við lögfræðinga sem
leikara og réttarhöld sem yfirborðsmennsku var vel gert og mátti ná upp heilmiklum
hlátursgusum.
Leikstjóri: Jonathan Lynn. Handrit: Sara Bernstein & Gregory Bernstein. Aöalhlutverk:
Michael Richards, Jeff Danieis, Charlize Theron, Jessica Steen, Austin Pendleton.
Ford á ferð og flugi
Leikarinn Harrison Ford hefur undan-
fama daga sést fljúgandi yflr eyjum Hawai,
en hann lítur á þessar fiugæfmgar sínar sem
æfmgar. Tökur standa nú yfir á kvikmynd-
inni „6 Days, 7 Nights" á eyjunum með Ford
í aðalhlutverki og í mydnnni er víst töluvert
um flugsenur.
Harrison Ford á sjálfur tvær litlar flugvél-
ar og hann hefur óspart notað þær við flug-
æfmgar sinar. Einnig hefur hann flogið tölu-
vert um á þyrlu, en hann tók próf á þann
farkost einnig. Sagt er að Ford sé kominn
með algjöra flugdellu.
Harrison tók sér þó viku frí frá tökum á
Hawai um daginn og brá sér til Evrópu. Er-
indiö þangaö var að fylgja eftir auglýsinga-
herferð á kvikmyndinni „Air Force One“
sem verið er að taka til sýninga í kvik-
myndasölum álfunnar. Harrison á þar hags-
muna að gæta, því hann fær prósentur af
Harrison Ford, sem hér sést með Juliu
Ormond í myndinni Sabrina, er kominn
meb flugdellu.
ágóða myndarinnar. Leikstjóri „6 Days, 7
Nights" Ivan Reitman gaf Ford leyfi frá tök-
unni á Hawai, en ekki er víst að minni
stjömur hefði getað leikið slíkt eftir.
Nicolas Cage og John Travolta leika persónur sem eru svarnir andstæöingar í myndinni.
Kvikmyndin Face Off verður frumsýnd í
Sambíóunum í dag. Hún skartar ekki ómerk-
ari mönnum en stjórstjörnunum John Tra-
volta og Nicolas Cage sem em einna stærstu
leikaranöfnin í Hollywood í dag. Spennu-
myndaleikstjórinn frægi, John Woo, er við
stjómvölinn. John Travolta leikur FBI-mann-
inn Sean Archer sem stjómar sérsveit innan
FBI. Takmark sérsveitarinnar er að stöðva
með öllum ráðum hinn illræmda Castor Troy
(Cage). Þegar Castor er talinn af þarf Sean að
taka á sig gervi hans til að koma upp um
felustað stórhættulegrar sprengju. Síðar kem-
ur í ljós að Castor lét alls ekki lífið og hann
tekur á sig gervi Seans. Hlutverkaskiptin em
þannig orðin fullkomin og enginn til að
stöðva Castor.
Kvikmyndin Face Off hefur átt mikilli vel-
gengni að fagna í bíósölum vestanhafs og
verið á lista aðsóknarmestu mynda í fjöl-
margar vikur. Gagnrýnendur og kvikmynda-
áhugamenn em sammála um að þetta sé ein
af betri spennumyndum sumarsins og að
John Woo hafi aldrei tekist jafn vel upp.
Stóru dagblöðin vestanhafs spara ekki
stjömugjöfina, New York Daily News gefur
myndinni 4 stjömur, USA Today og Chicago
Tribune 3 og hálfa.
John Travolta er, eftir áratuga hlé, orðinn
aftur meðal heitustu nafnanna í Hollywood.
Þeir sem komnir em af unglingsárum muna
eftir honum úr hinum geysivinsælu mynd-
um, Saturday Night Fever og Grease og í
kjölfar þeirra mynda eins og Urban Cowboy,
hryllingsmyndinni Carrie og Blow Off. Tra-
volta skaust aftur upp á stjömuhimininn fyr-
ir nokkrum árum í mynd Quentins Tarantin-
os, Pulp Fiction, og síðan hefur leiðin legið
upp á við. Þar má nefna myndir eins og Get
Shorty, Phenomenon, Mad City og Michael.
Nicolas Cage hefur smám saman verið að
festa sig í sessi sem eitt af stóm nöfnunum á
hvíta tjaldinu og er nýorðinn eftirsóttur sem
hasarleikari. Stefnt er að því að hann leiki
sjálfan Superman í nýrri mynd um teikni-
myndahetjuna frægu. Allir muna eftir Cage í
hinni mögnuðu mynd, Rock, en meðal ann-
arra eftirminnilegra hlutverka hans, er Con
Air, Leaving Las Vegas (óskarsverðlaun), It
Could Happen to You og Raising Arizona svo
fáein hlutverk séu nefiid.
Meðal annarra leikara í myndinni eru
Joan Allen, Gina Gershon, Allessandro
Nivola, Dominique Swain og Nick Cassavet-
es.
-ÍS
1SII llíllU'
»iiS
Þeir sem séö hafa myndir John Woos vita af því aö aldrei er slakaö á í hraöri atburðarás.